Skrá 08 · skjáir re121_epi – re128_epi

Opinberunarskjölin 13

Re121 Epi · Eftirmáli #121

Forritun, eða sía. Mörg dæmi í sögunni sýna hvernig þetta leiðir til dauða einstaklingsins með því að hann er drepinn eða honum eytt af samtíðarmönnum sínum. Á nútímatímum á þetta sér stað vegna vanhæfni annarra til að skilja og sætta sig við hvað hefur komið fyrir þennan breytta einstakling, sem gæti átt nógu erfitt með að skilja sjálfur hvað hefur komið fyrir hann og hvers vegna hann hugsar eins og hann gerir. Í sumum tilfellum leiðir þetta til þess að einstaklingurinn er stimplaður með geðrænum greiningum, þar sem við getum almennt ekki greint á milli geðrofa og ferlis heilbrigðrar andlegrar vakningar. Þetta leiðir síðan til neyslu geðlyfja sem gætu orðið honum að bana, sérstaklega ef um er að ræða alkóhólista fíkil. Þetta er mjög algengt þar sem megin einkenni fíknarinnar er afneitunin. Það er því tilgáta höfundar þessa skjals að meirihluti snillinga sögunnar hafi verið einstaklingar sem á einn eða annan hátt losuðu sig við sína villandi forritun, eða síu. Þeir voru einnig einstaklingar sem uxu með þessari breytingu og vissu hvernig ætti að haga sér þrátt fyrir muninn á þeim og félögum þeirra. Þeir kunnu að laga sig að þeim sem ekki sáu jafn mikið og þeir, vitandi að venjulegir menn gátu ekki lagað sig að þeirra stigi meðvitaðrar árvekni og skynjunar. Hér er stutt innsýn í einn slíkan mann, sem Guð, í gegnum Jamais vu-stöðvarnar, sagði að sagan um öll endanleg svör — meira að segja við þyngdaraflinu — væri að finna í Opinberunarbókinni.

Sér Isaac Newton (1642–1727), hinn frægi náttúruspekingur, fæddist á Woolsthrope Manor í Lincolnshire. Hann var mesti stærðfræðingur nútímans. Hann uppgötvaði:

Re122 Epi · Eftirmáli #122

Tvíliðuregluna, aðferð deildareiknings og árið 1666 leiddi íhugun hans um fallandi epli til mestu uppgötvunar hans; þyngdarlögmálsins. Sama ár uppgötvaði hann samsetta náttúru ljóssins. Hann gegndi Lucas-prófessorsstöðunni í stærðfræði við Cambridge í 33 ár. Árið 1699 varð hann forstjóri Konunglegu myntsláttunnar. Hann var fulltrúi háskóla síns á þingi og var kjörinn forseti Konunglega vísindafélagsins, stöðu sem hann gegndi í 24 ár. Hann var sleginn til riddara árið 1705. Hann náði áttræðisaldri og var grafinn í Westminster Abbey. Burnet biskup lýsti honum sem hreinustu sál sem hann nokkru sinni þekkti. Margs konar sögur fara af sér Isaac og margar þeirra bera sterkan keim af þjóðsögum og hjátrú, sem hjaðnaði ekki eftir dauða hans. Eftir að upp komst að John Maynard Keynes hafði keypt kistu fulla af handritum Newtons á uppboði og fundið hana fulla af glósum um gullgerðarlist, biblíuspádóma og endurgerð úr hebreskum textum á grunnmynd musterisins í Jerúsalem, sem Newton hafði talið vera tákn um skipulag veraldarinnar, margfölduðust sögurnar. Keynes, sleginn yfir fundinum, sagði við samkomu Konunglega vísindafélagsins: Newton var ekki sá fyrsti á öld skynseminnar, heldur einnig sá síðasti af töframönnunum, sá síðasti af Babýloníumönnum og Súmerum. Nokkrar skáldsögur gengu um fund Newtons og Lúsífers, þar sem þeir deildu um eðlisfræði og sköpunina. Líklegt er að margar af þessum skröksögum hafi orðið til meðal stúdenta í Cambridge og Oxford. Prófessor Arthur B. Anderson hefur gert ítarlega rannsókn á biblíulegum tengslum Newtons. Á næstu síðum eru nokkrir kaflar úr þessari merku rannsókn:

Re123 Epi · Eftirmáli #123

THE_OLD_SCROLL/assets/images/81_TRF-Isaac-Newton-Epil.gif

Isaac Newton 1642–1727

isaac Newton and The Book of Revelation
THE_OLD_SCROLL/assets/images/autogen/a_82_TRF-Newton_s-Revelations-Epil.gif

Auk vísindastarfa sinna helgaði Newton umtalsverðum hluta gríðarlegrar orku sinnar í rannsóknir á Biblíunni og biblíutextum og -sögu. Hann las Biblíuna daglega alla ævi og skrifaði yfir milljón orð af glósum varðandi rannsóknir sínar á henni. Isaac Newton trúði því að Biblían væri bókstaflega sönn í hvívetna. Alla sína ævi prófaði hann stöðugt biblíulegan sannleika gagnvart eðlisfræðilegum sannindum tilrauna- og kennilegra vísinda. Hann sá aldrei neina mótsögn. Í raun leit hann á eigin vísindastörf sem aðferð til að styrkja trúna á biblíulegan sannleika.

Re124 Epi · Eftirmáli #124

Hann var gríðaröflugur biblíufræðingur, talaði fornmálin reiprennandi og bjó yfir yfirgripsmikilli þekkingu á fornsögu. Hann trúði því að sérhver manneskja ætti að lesa Biblíuna og öðlast með þeim lestri eigin skilning á hinum alhliða sannleika sem hún hefur að geyma. Aðeins ein bók eftir Newton um Biblíuna var gefin út. Árið 1733, sex árum eftir andlát hans, gáfu J. Darby og T. Browne út Observations Upon the Prophecies of Daniel and the Apocalypse of St. John. Með sína ótrúlegu þekkingu á fornsögu og tungumálum og óviðjafnanlegu andlegu hæfileika er Isaac Newton hæfasti einstaklingur þessa árþúsunds til að skrifa um spádómana. Rannsóknir hans á Daníelsbók hófust 12 ára að aldri og héldu áfram að vera sérstakt áhugamál alla ævi. Þar að auki skrifar hann um spádómana af auðmýkt sem gefur til kynna að hann sjálfur fyllist lotningu gagnvart orðunum sem honum hefur gefist tækifæri til að lesa. Isaac Newton komst að þeirri niðurstöðu að tilgangurinn væri sá að Opinberunarbókin yrði aðeins skilin af örfáum fram undir lok sögunnar, dómstímann og upphaf hins eilífa konungsríkis hinna heilögu Hins Hæsta. Eftirfarandi er brot úr þeirri bók: Þessi spádómur er kallaður Opinberunin, með tilliti til Ritningar sannleikans, sem Daníel var boðið að læsa og innsigla, allt til lokatímans. Daníel innsiglaði hann þar til

Re125 Epi · Eftirmáli #125

Tíminn kemur, Lambið opnar innsiglin: Og eftir það spá vitnin tvö út frá honum langan tíma í hærusekk, áður en þau stíga upp til himins í skýi. Allt er þetta jafngilt því að segja að spádómar Daníels og Jóhannesar skyldu ekki skiljast fyrr en á lokatímanum: Heldur að sumir myndu spá út frá honum í þjáðu og sorgmæddu ástandi langan tíma, og það aðeins í daufu ljósi, svo að fáir snerust til trúar. En í allra síðustu lok ætti spádómurinn að skýrast svo mjög að það sannfærði marga. Þá segir Daníel að margir muni hlaupa fram og aftur og þekkingin muni aukast. Því að fagnaðarerindið verður fyrst að prédika meðal allra þjóða fyrir þrenginguna miklu og endalok veraldar. Fólksfjöldinn með pálmagreinarnar, sem kom út úr þessari miklu þrengingu, getur ekki verið óteljandi af öllum þjóðum nema þeim sé gert það fært með prédikun fagnaðarerindisins áður en hún rennur upp. Steinn verður að höggvast úr fjallinu án handaáverkis, áður en hann getur fallið á tær líkneskisins og orðið að miklu fjalli og fyllt jörðina. Engill verður að fljúga um miðhimininn með eilíft fagnaðarerindi til að boða öllum þjóðum, áður en Babýlon fellur og Mannssonurinn sker upp uppskeru sína. Spámennirnir tveir verða að stíga upp til himins í skýi, áður en konungsríki þessa heims verða konungsríki Krists. Það er því hluti af þessum spádómi að hann skuli ekki skiljast fyrir síðustu öld veraldarinnar; og því mælir það spádóminum í vil að hann er ekki enn skilinn. En ef síðasta öldin, öldin þar sem þessir hlutir eru opnaðir, nálgast nú, eins og

Re126 Epi · Eftirmáli #126

Frábær árangur síðari tíma skýrenda virðist bera vitni um, höfum við meiri hvatningu en nokkru sinni til að rýna í þessa hluti. Ef almenn prédikun fagnaðarerindisins er í nánd, heyrir það okkur og eftirkomendum okkar einkum til sem þessi orð segja: Á endalokatímanum munu hinir vitru skilja, en enginn hinna óguðlegu mun skilja. Sæll er sá sem les og þeir sem heyra orð þessa spádóms og varðveita það sem í honum er ritað (Daníel XII 4,10, Op. Í 3).

Útdrætti líkur.

Þetta er svo sannarlega merkileg innsýn og sýnir að Newton bjó yfir andlegri færni til að framleiða þau taugaboðefni sem gáfu heila hans hámarksorku (betri en kókaín). Frá unga aldri bjó Newton yfir hæfileikanum til að ræða við Guð, eða við sköpunarveruleikann, og var þar af leiðandi gæddur því sem Yogananda kallaði ofurvitund (super-consciousness). Með öðrum orðum hafði vitund hans aðgang að meirihluta taugafrumnanna í heila hans, sem var tiltölulega laus við síur. Hann var sér fyllilega meðvitaður um að hann hefði ekki sagt síðasta orðið um þyngdaraflið. Að hann hefði beðið Guð sinn um þetta svar og hefði verið vísað á Opinberunarbókina, sem gefur til kynna að hún spái um þann tíma þegar síðustu ráðgátur náttúrulögmálanna og mannsins eru að leysast. Þetta lýsir Opinberunarbók

Re127 Epi · Eftirmáli #127

Þetta er svo sannarlega merkileg innsýn og sýnir að Newton bjó yfir andlegri færni til að framleiða þau taugaboðefni sem gáfu heila hans hámarksorku (betri en kókaín). Frá unga aldri bjó Newton yfir hæfileikanum til að ræða við Guð, eða við sköpunarveruleikann, og var þar af leiðandi gæddur því sem Yogananda kallaði ofurvitund. Með öðrum orðum hafði vitund hans aðgang að meirihluta taugafrumnanna í heila hans, sem var tiltölulega laus við síur. Hann var sér fyllilega meðvitaður um að hann hefði ekki sagt síðasta orðið um þyngdaraflið. Að hann hefði beðið Guð sinn um þetta svar og hefði verið vísað á Opinberunarbókina, sem gefur til kynna að hún spái um þann tíma þegar síðustu ráðgátur náttúrulögmálanna og mannsins eru að leysast. Þetta lýsir Opinberunarbók Biblíunnar (10: 7) þannig: „En á þeim dögum, er rödd sjöunda engilsins heyrist og hann fer að básúna, mun leyndardómur Guðs fullkomnast, eins og hann boðaði þjónum sínum, spámönnunum.“ Endanlegt svar um þyngdaraflið var hægt að gefa Newton þar sem mannkynið þyrfti fyrst að uppgötva skammtafræði (quantum mechanics), almennu afstæðiskenninguna (general relativity), taugafræði og taugarefnafræði. Hvert gæti hið dularfulla leyndarmál einstaklinga á borð við Newton og Einstein verið? Hvað var það í heila þeirra sem veitti þeim hæfileika til að sjá dýpra inn í virkni náttúrunnar? Þetta er vissulega forvitnileg spurning, en fáir munu átta sig á því að svar við þessari spurningu verður ekki fengið án svars við spurningunni um raunveruleikann, sem aftur krefst allsherjarkenningar (Theory of Everything) sem felur athugandann í sér. Á fyrstu stigum rannsókna okkar hafði höfundur sett fram spár um taugauppbygginguna í heila einstaklinga sem höfðu lifað

Re128 Epi · Eftirmáli #128

Stóran hluta ævi sinnar í ofurvitund. Það kom honum því skemmtilega á óvart þegar hann rakst á krufningarskýrslu um heila Alberts Einstein. Einstein gaf heila sinn til krufningar við Princeton-háskóla, þar sem í fyrstu fannst enginn munur á honum og öðrum heilum. Síðar uppgötvaði kona, sem fór yfir niðurstöðurnar, muninn sem samræmdist spám höfundar. Þetta var einn af þeim atburðum sem hvöttu hann til að halda áfram.

Biology Nature. Spiritual Philosophy Evolved Natural Instincts
THE_OLD_SCROLL/assets/images/autogen/a_83_TRF-Bacon_s-Pyramid-Epil.gif

Fyrir athugasemdir, hafið samband: peace @ peace-files. com

Allan þann tíma sem unnið var að Litla bókfellinu (The Little Scroll) hefur höfundur haft myndræna sýn sér Francis Bacons um „píramída þekkingarinnar“ að leiðarljósi. Eins hefur trúarjátning Bacons verið leiðarljós: Ég trúi því að ekkert sé án upphafs nema Guð; og engin náttúra, ekkert efni, enginn andi, nema einn hinn eini vitri, hinn eini góði í eðli sínu, og þannig er hann eilíflega faðir, sonur og andi í persónum. Það má því segja að það að sanna að þessi yfirlýsing sé sönn hafi verið og sé lokatakmark höfundar.

Hér líkur Opinberunarskjölunum (The Revelation Files).