Skrá 07

ALKAÞRAS: Inngangur

PowerPoint-fyrirlesturinn

ALKAÞRAS

Fyrirlestur í sex þáttum sem fjallar um skammtafræðilegar og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi lyfjum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: „Alkóhólismi“, „mengun mannsheilans“, „boðefnasvindl mannsins“. Hér kemur fram í fyrsta skipti í mannkynssögunni skýring á virkninni í taugaánetjunarsjúkdómunum og batalausn þeirra, en fyrirlesturinn samanstendur af:


ALKATHRAS/00_J-Alkathras-Front-1.gif
ALKATHRAS/00_K-Pyramidlogo-Front.gif
Páll 3. Ei. taugaánetjunarsjúkdóma, ásamt skycingum. vitkni bata og endurhæfingar frá
ALKATHRAS/00_L-Alkathras-Front-2.gif

•


Fyrirlestrinum er skipt. þætti sem hér segir: 00. Inngangur. (15 mínútur) 02. Bygging og heilbrigð forritun mannsheilans, (60 mínútur) 03. Stjórnun heilans. raunveruleikaskynjuninni. (66 mínútur) 04. fölsk taugaboðefni. (77 mínútur) 05. Bataleiðrétting og varanlegar breytingar. heila. (53 mínútur)…
ALKATHRAS/00_M-Alkathras-efnisyfirlit.gif

Rétt er hér að athuga að aðeins er mögulegt að útskýra ranga starfsemi mannsheilans (4) og bata frá henni (5) með skilningi á réttri starfsemi hans (1 2 3). Þetta er ástæða þess að byrjað er á að skoða heilbrigða heilastarfsemi. Er þátttakendum bent á að reyna að ná yfirlitsmynd af því sem hér kemur fram og forðast að rýna í smáatriðin. Þau má skoða síðar.

Athugið að fyrirlesturinn er ekki að kenna hagnýta notkun AA-prógrammsins.

fyrirlestri þessum eru öll fyrirbrigði af taugaánetjunar- sjúkdómum skilgreind með samheitinu ALKOHOLISMI og býður fyrirlesturinn upp. þær fyrstu frumorsakaskýringar sjúkdómsins sem fram koma
ALKATHRAS/00_N-Alkathras-skilgreint.gif

Í Samtökum óvirkra alkóhólista (Alcoholics Anonymous) og í meðferðum er því líst fyrir okkur hvernig sjúkdómur þessi hegðar sér og hvernig hann þróast. Okkur er sömuleiðis sýnt hvernig lausnin frá honum er — það er að segja — hvernig við þurfum að lifa til að losna við áhrifavald hans. Þetta eru HVERNIG-skýringarnar varðandi þennan sjúkdóm. Enginn getur hins vegar sagt okkur HVERS VEGNA sjúkdómur þessi verður til, né HVERS VEGNA hann birtist í fólki á svo tilviljunarkenndan máta sem raun ber vitni. Enginn getur heldur sagt okkur HVERS VEGNA hann kemur nú fram í sívaxandi mæli í mannkyninu. Enn síður getur nokkur sagt okkur HVERS VEGNA við verðum að lifa eins og AA-prógrammið leggur til ef við viljum sleppa frá hörmungum sjúkdómsins. Fyrirlestur þessi er sá fyrsti sem býður upp á HVERS VEGNA-svör mannkynsins varðandi virknina í birtingu og þróun alkóhólismans og endurhæfingarinnar frá honum, en lausn þessarar gátu krefst þess að gátan um mannsheilann sé fyrst leyst. Á fremstu víglínu raunvísindanna er okkur sagt að heilinn sé hin endanlega áskorun fyrir greind mannsins. Að þetta séu lokalandamæri vísindanna! Okkur er jafnframt sagt að ekki sé hægt að leysa þessa gátu án þess að leysa fyrst hina óleystu gátu varðandi ÁHORFANDANN og fyrirbæri skammtafræðinnar. Hér heldur QF-kenningin því fram að hún hafi leyst þessa gátu, en að sú lausn sýni að gátan sé ekki leysanleg af mannsheilanum fyrr en hann hefur sigrast á þeim ósamhverfuáhrifum í starfsemi sinni sem skapast hafa vegna hinnar sameiginlegu ÁNETJUNAR MANNKYNSINS Á ALKÓHÓLI. Lausn þess vandamáls verður þannig fyrsta áskorun mannsins, sem síðan sýnir honum að ALMENN NEYSLA mannsins á ALKÓHÓLI er fyrsta vandamál mannkyns.

Hvers vegna svona fyrirlestur? Hverjum er þessi fyrirlestur ætlaður? Fyrirlesturinn er sérstaklega ætlaður fyrir fólk sem er haldið einhverskonar formi af taugaánetjun eða eru aðstandendur slíkra einstaklinga. Hann er jafnframt hag- nýtur fyrir alla sem iðka einhverskonar hug- og mannræktar tækni,…
ALKATHRAS/00_O-Alkathras-rettlaeting.gif
Hver er skammtíma- og. de, langtimavirkni alkóhóls og annara hugbreytandi efna. taugakerfi mannsins. “edlilegri” neyslu? Hér er um að ræða hin The Pleasure raunverulegu fjöldamorða- ofthe North vopn mannkynsins og þá Finest. duldu virkni þeirra sem orsakar ALLA statistisku sjúkdóma mannsins
ALKATHRAS/00_P-Alkathras-Black-Death.gif

Talið er að í byrjun tuttugustu aldarinnar hafi alkóhólismi hrjáð um 5% Vesturlandabúa, en á öldinni hafi alkóhólisminn fimmfaldast og um aldamótin 2000 hafi hlutfallið náð 25 prósentum. Nú, 71 ári eftir stofnun AA-samtakanna, er staðan sú að einungis um 20 af hverjum 36 alkóhólistum kynnast AA-samtökunum, en af þeim 20 sem kynnast lausninni fær einungis 1 til 2 varanlegan bata. Þetta hlutfall var 75% eða 15 af 20 í byrjun sögu AA-samtakanna.

Í byrjun árs 2005 upplýsti dr. Tómas Helgason Íslendinga um að frá 1969 til 2004 hefði áfengisvandamálið í landinu meira en tvöfaldast. Sagði hann líkur þess að karlmenn á Íslandi yrðu alkóhólistar hafa tvöfaldast, en fyrir konurnar hefðu líkurnar tífaldast frá árinu 1969. Nú upplýsir Hagstofa Íslands okkur um að neysla Íslendinga á hreinum vínanda á hvern íbúa á ári – undanfarin 20 ár – hafi verið sem hér segir: 1983: 3,00 lítrar – 1993: 3,34 lítrar – 2003: 5,04 lítrar. Eru nú um 28% íslensku þjóðarinnar komin með alkóhólisma, eða 16% vegna alkóhóls, 6% vegna ólöglegra lyfja og 6% vegna löglegra lyfja. Tölur frá 2002 um neyslu hreins vínanda í lítrum á íbúa á Norðurlöndum eru: Danir 11,3 lítra, Finnar 9,2, Svíar 6,9, Íslendingar 6,5 og Norðmenn með 5,9. Rannsóknarrétt Tómasar Helgasonar, yfirlæknis á geðdeild Landspítalans, um sölu geðdeyfðarlyfja á Íslandi á tímabilinu 1975 — 2000 greinir frá því að sala þeirra hafi aukist úr 8,4 dagskömmtum á hverja þúsund íbúa í 72,7 skammta, en á þessum tíma hafi lýðheilsa landsmanna ekki batnað. Þetta þýðir 8,65 — falda aukningu á 25 árum, en fram kom að örorka vegna þunglyndis og kvíðaröskunar hefði ekki minnkað á þessu tímabili og hefði innlögnum vegna þessa fjölgað frá 1989 til 2000.

Kynningarformáli Sérhver tilfinning, sérhver hugsun, draumur, gjörð og líkamleg starfsemi. vöku og svefni lífs okkar er stjórnað af heilanum og hinu fjölþætta neti af taugum sem teygja sig til hvers hluta líkama mannsins. Það er. heila okkar sem líf okkar er skynjað og. sér stað, jafnframt er það…
ALKATHRAS/00_Q-Alkathras-Kynningarfor.gif

Spurningum okkar mannanna um mannsheilann og ósk okkar um að vita; Hvers vegna erum við hér? — Hvað erum við að gera hér? Og hvert stefnum við? Verður ekki svarað nema við leysum fyrst hinar óráðnu gátur: Hvað býr að baki ófullkomleikasetningunni (Incompleteness Theorem)? Hvað býr að baki sköpunarsekúndu alheimsins? Hvað býr að baki skammtafræðiraunveruleikanum? Svörin við þessum spurningum hanga öll á sömu spýtunni og ekki er hægt að svara einhverri einnig þeirra nema svara hinum líka — afgerandi og endanlega. Mannsheilinn getur ekki leyst þessar gátur fyrr en hann hefur fyrst leyst gátuna um fyrirbæri alkóhólismans í heilum mannanna.

•

Páll Jóhann II


RAUNVERULEIKINN OG AHORFAN
ALKATHRAS/1-01_Alkathras-Inngangshaus.gif

•

Hér hefst skoðun okkar á mannsheilanum sem birtist í formi líkana sem byggð eru á niðurstöðum Venn-mynda-mengislíkana QF-kenningarinnar, þar sem reynt er að ná fram sem mestri einföldun í lýsingum á byggingu hans og forritun. Af þessum sökum, og jafnframt til að einfalda þetta flókna efni, eru líkönin sett upp í þessu sama einfalda mengisformi (eins og sýnt er hér að ofan í inngangsrammanum) þar sem heilahvelin eru táknuð með mengishringjum. Á myndunum táknar blái hringurinn heilahvel efnisskynjunarinnar — venjulega það vinstra — og rauður hringur táknar heilahvel rúmskynjunarinnar — venjulega það hægra.

Almennur samanburður á líkönum sameindalíffræðinnar og QF-kenningarinnar á starfsemi mannsheilans og þeim starfstruflunum sem fram koma í honum býður upp á mjög ólík sjónarmið og niðurstöður. Ekki er þó ætlunin að gera þessum mismun nein tæmandi skil hér umfram það að kynna lesandanum hinn þríþætta grundvallarmun á sameindalíffræðinni og QF-kenningunni. Grundvallarmun þessara tveggja líkana er að finna í þeim þremur þáttum sem QF-líkanið býður upp á umfram hin hefðbundnu líkön, en upplýsingar um uppruna þeirra hugmynda sem hér koma fram í þessum fyrirlestri er að finna í The Origin of the QF-models sem kynnt er í UNIFICATION FILES, sem finna má á PEACE-Files Master Index Page undir:

peace-files. com

Yfirlitssamanburður á líkönum sameindalíffræðinnar og þeim sem QF-kenningin býður upp á er þríþættur og er hér skráður sem: Hið fyrsta nýja innsæi, Hið annað nýja innsæi og Hið þriðja nýja innsæi, en hann er jafnframt skýrður í fyrirlestrinum í mismunandi köflum og á ýmsum skyggnum eins og sýnt er hér á eftir:

Hið fyrsta nýja innsæi:

QF-líkanið kynnir ný tvíþætt og jafnskipt hlutverk kirnanna í öllu genamengi pýramídatauga í vitundarsviði heilans, þar sem annað kirnusviðið framkallar örvandi taugaboðefni en hitt hemlandi taugaboðefni. Þetta er sýnt í fyrsta hluta, á skyggnum #2 - 05, #2 - 06, #2 - 07, #2 - 09 og skyggnu #2 - 19. Í öðrum hluta, á skyggnu #3 - 09.

Hið annað nýja innsæi:

QF-líkanið kynnir ný tvíþætt almyndalíkön af vitundarsviði heilans sem geymir hugsanirnar í formi almynda-ljóseinda og samræmir jafnframt virkni stýrigena og klippisameinda við framleiðslu boðefna.

Þetta er sýnt í fyrsta hluta, á skyggnum #2 - 14 og #2 - 15.

Hið þriðja nýja innsæi: (C) QF-líkanið kynnir ný tvíþætt almyndalíkön (holografísk) af grunnraunveruleikaforriti heilans sem geymir stjórnunarforrit fyrir frumustarfsemina og afritun prótínuppskrifta erfðakóðans. Þetta er sýnt í fyrsta hluta, á skyggnum #2 - 15, #2 - 16, #2 - 17 og #2 - 19.

Hvað átt er við með þeim hugtökum sem hér eru notuð mun koma fram í fyrirlestrinum.

Frekari mun á þessum tveimur líkanasmíðum er að finna í þeirri staðreynd að líkön sameindalíffræðinnar innihalda ekki neinar afgerandi, samfelldar og heilsteyptar skýringar á grundvallarstarfsemi heilans og nánast engar afgerandi skýringar á vitundinni. Þau bjóða heldur ekki upp á skýringar á þeim grundvallarrökunum sem fram koma í hinum mikla fjölda starfstruflana heilans: Geðröskunum, geðsjúkdómum og ánetjunarsjúkdómum. Ekki er þar heldur um að ræða skýringar á hugsuninni, formi hennar eða geymslu og endurkölluð minninga. Þetta eru hins vegar þættir sem QF-líkön mannsheilans geta skýrt og bent á frumorsakir fyrir.

Lesandinn ætti að vera meðvitaður um þá staðreynd að ef ekki væri um að ræða mun á milli heilalíkana QF-kenningarinnar og gildandi líkana sameindalíffræðinnar, þá væru þær upplýsingar sem hér birtast einfaldlega ekki til.

Sem sagt; þá leggjum við af stað!


Yfirlit sköpunar- og þróunarferlisins. “Stóri Hvellur" Sköpun fyrir 14.000.000.000 árum. Efniseindir. jón kynslóð sólna kviknar. ára lífs lukka,. árum. infrumungalíf or innur upp
ALKATHRAS/1-02_Skopunin.gif

•

Við hefjum þessa kynningu á því að skoða yfirlit yfir sköpun og samsetningu alls raunveruleika, sem er sköpun efnis og rúms, en ástæðan fyrir þessu er sú staðreynd að við erum að fara að skoða fyrirbæri sem er hin eina raunsanna raunveruleikatölva sem um ræðir. Á skyggnunni höfum við því í stórum dráttum þróunarferli alheimsins, sem hefst í Miklahvelli (Big Bang) fyrir um það bil 14.000 milljónum ára. Hér kemur fram að fyrir um 10.000 milljónum ára, eða um 4.000 milljónum ára eftir sköpunina, eru vetrarbrautir orðnar til og hin svokallaða fyrsta kynslóð stjarna farin að brenna. Þessar stjörnur voru margfalt stærri en sólin okkar, og vegna þess mikla aðdráttarafls sem í þeim bjó brunnu þær mjög hratt, eða á um 5.000 milljónum ára. Efnið í stjörnurnar kom úr því upphafsefni sem myndaðist í sköpuninni og er um 75% í formi vetniskjarna og 25% í helíumkjörnum, en það er svo í þessum kjarnasamrunabruna sem öll þau frumefni sem við þekkjum í dag myndast, þar á meðal kolefnið sem er grundvöllur alls lífs. Þegar stjörnur þessar voru útbrunnar þöndust þær stærstu út í tröllaukinni sprengingu sem kölluð er sprengistjarna, en í sprengingunni spúðu þær frumefnum sínum út í geiminn.

Fyrir um 5.000 milljónum ára fóru að koma fram svokallaðar annarrar kynslóðar stjörnur, en þær eru flestar mun minni en stjörnur fyrri kynslóðar og brenna því mun hægar. Er sólin okkar ein slík og hefur nú lokið um það bil helmingi lífs síns; hefur hún brunnið í um 5.000 milljónir ára og á um 5.000 milljónir ára eftir. Skömmu eftir myndun sólar okkar, eða um 600 milljónum ára síðar, dró aðdráttarsvið hennar að sér leifar úr sprengistjörnu, en þessar leifar eru nú þau frumefni sem mynda jörðina og reikistjörnur sólkerfisins okkar, þannig að við erum í orðsins fyllstu merkingu stjörnuryk (stardust). Er plánetan sem við lifum á og erum hluti af um 4.600 milljón ára gömul, en talið er að það hafi ekki tekið nema um 400 milljónir ára fyrir jörðina að kólna nægilega mikið til þess að líf gæti kviknað, og hefur lífið því verið til staðar í um 4.000 milljónir ára.

Fyrsta lífið sem fram kemur á jörðinni er í formi einfrumunga sem hafa aðeins einfaldan DNA-erfðakjarna sem leyfir ekki uppsöfnun þróunareiginleika. Lífverur þessar, sem lifa eingöngu sem aðskildir einstaklingar, réðu ríkjum á jörðinni í um 2.500 milljónir ára og var lífríkið því ekki fjölskrúðugt, en þær mynda enn stóran hluta af lífríki nútímans. Á þeim 2.500 milljónum ára sem einfrumungarnir réðu hér ríkjum byggðu þeir upp lífríkishjúp jarðarinnar, lofthjúp sem inniheldur súrefni, en án þess er frekari þróun lífsins óhugsandi. Einfrumungar þekkja hvorki kyn né dauða og fjölga sér með skiptingu, svipað og þegar afleggjarar eru teknir af plöntum, en dauða þeirra ber að vegna skemmda frekar en vegna elli. Kol og olía sem unnin eru úr jörðu eru leifar þessara lífvera, en sums staðar hafa þær byggt upp kalksandslandsvæði eins og til dæmis margar Kyrrahafseyjar og Flórídaskaga.

Fyrir um 1.500 milljónum ára koma svo fram einfrumungar með afmarkaðan kjarna og litninga, eða kjörnungar, sem skiptast í tvo kynhópa og fjölga sér með því að skipast á erfðaefni. Þessir einfrumu kjörnungar þróast næstu 800 milljónir ára þar til fyrir um 700 milljónum ára að fjölfrumulífverur – fjölfrumungarnir – stíga fram á sjónarsviðið, en þetta eru lífverur sem hafa tvöfaldan DNA-streng sem leyfir uppsöfnun þróunar- og erfðaeiginleika ásamt flutningi þeirra milli kynslóða. Frumur fjölfrumunganna lifa í samstarfi og mynda heildstæðar lífverur sem fjölga sér með kynæxlun og enda í dauða. Fjölgun fjölfrumunganna byggist á hlutverkaskiptingu í tvo kynhópa, karl og konu, sem hvort um sig leggja til hálfan DNA-streng við frjóvgun, sem síðan sameinast og mynda nýjan einstakling í gegnum ferli sem nefnist rýriskipting. Því næst skiptir sú fruma sem úr verður sér endurtekið í gegnum ferli sem kallast jafnskipting og byggir þannig hina nýju fjölfrumulífveru. Fjölfrumungarnir ljúka svo lífi sínu með hrörnunardauða sem er fyrir fram forritaður í erfðaefnið.

Fyrstu 160 milljón ár fjölfrumunganna einkenndust af fremur einföldum lífverum, en fyrir um 540 milljónum ára, í gegnum það sem almennt er kallað kúmbríska sprengingin (Cambrian Explosion), hófu lífverur þessar að þróast í ógrynni af mismunandi tegundum plantna og dýra. Um 320 milljónum árum síðar, eða fyrir um 220 milljónum ára, leiddu þessar breytingar til risaeðlanna sem ráfuðu um jörðina í um 155 milljónir ára en hurfu svo í einhvers konar náttúruhamförum sem stöfuðu af árekstri loftsteins eða halastjörnu við plánetuna okkar. Þetta gerðist fyrir um 65 milljónum ára, en þá steig lítið blóðheitt spendýr fram á sjónarsviðið og hóf þróun þeirrar stórkostlegu fylkingar dýra sem við þekkjum í dag og erum sjálf hluti af.

Fyrir um 7 til 5 milljónum ára skildu forfeður okkar sig frá öðrum prímötum, öpunum, með því að fara að ganga uppréttir, sem hafði gífurleg áhrif á þróun heila okkar og líkama. Það er svo fyrir um einnig og hálfri milljón ára sem fram koma einstaklingar sem líkjast manninum í dag: Homo sapiens, en æviskeið mannsins sést varla á klukku lífsins þar sem það jafngildir aðeins örfáum sekúndum í samanburði við æviskeið lífsins í heild sinni. Samsvarar sá tími breidd hins lóðrétta striks sem vísar á klukkan 12. Á þessum tíma höfðu forfeður okkar þegar náð þeirri heilastærð sem við höfum í dag og við það fleygði þróun okkar mjög hratt fram, en það er einmitt þessi vera sem hér er að skoða sjálfa sig í þessum fyrirlestri í ljósi vísindalegrar þekkingar.


1-03 Raunveruleiki alheimsins.
ALKATHRAS/1-03_Alheimurinn.gif

Næsta skref er að skoða yfirlit yfir grunn alls raunveruleika eins og hann er í dag, sem er að sjálfsögðu hinn sýnilegi alheimur. Þetta gerum við vegna þess að heili okkar er — meðal annars — raunveruleikaskynjunarlíffæri og það er í grunni alheimsraunveruleikans sem raunveruleiki mannsheilans er mótaður. Þetta er ástæðan fyrir athugasemd Einsteins þegar hann sagði: Það furðulegasta við alheiminn er að hann er okkur skiljanlegur.

Hinn sýnilegi alheimur, sem talinn er vera um 14 þúsund milljón ára gamall, er talinn geyma um 100 þúsund milljónir vetrarbrauta sem vísindamenn hafa nú kortlagt eins og fram kemur á skyggnu #1 - 03. Þetta er heildarmynd af uppsöfnuðum vetrarbrautum sem mynda veggi í formi sem líkist sápufroðu, þar sem allt að 400 til 600 milljón ljósára tómarúm er sums staðar á milli bólanna. Þykir nú víst að það sem við sjáum í formi ljóss í alheiminum sé aðeins um 10% alls efnis hans, en það er einungis það atómkjarnaefni sem sendir frá sér ljós við stjörnubruna; talið er að um sé að ræða 90% meira efni sem ekki sendir frá sér ljós og sést því ekki. Þetta er kallað hulduefni og hulduorka. Einhvers staðar í einhverjum vetrarbrautaveggjum alheimsins er svo vetrarbrautin okkar með sínar 100 þúsund milljónir stjarna og sólina okkar utarlega í einum af þyrilormum hennar. Sólkerfið okkar er því aðeins örlítið sandkorn í öllu þessu hafi alheimsins, og í raun verður allur stærðarsamanburður hér innihaldslaus. Það sem við viljum leggja áherslu á með þessari mynd er að í grundvallaratriðum er aðeins um tvennt að ræða í raunveruleika alheimsins. Það er annars vegar rúm, sem stundum er kallað ekki neitt eða tómarúm, og hins vegar efni, sem einnig birtist sem orka; annað er ekki til. Grunnurinn að raunveruleikanum er því þetta tvennt: Rúm og efni, en hér er vert að hafa í huga að efnis- og orkuheimurinn sprettur úr rúminu, eða engu, í Miklahvelli. Má segja að hann hafi stokkið fram úr rúminu og sé hið eina sem við fáum 100% ókeypis. Það er því rúmið sem er hið upphaflega orsakarsvið alls; fyrsti raunveruleiki alheimsins.


ALKATHRAS/1-04_Akvardandinn.gif

Hér höfum við svo viðfangsefni fyrirlestrarins, sem ert þú eða ég, eða áhorfandi alheimsins, maðurinn, sem Prótagóras kallaði réttilega mælikvarða allra hluta! , En það er heili okkar sem metur og ákvarðar alla hluti. Það er einmitt þetta líffæri sem hér í fyrirlestrinum er að skoða sjálft sig, og er það eðlisfræðileg og líffræðileg skoðun. Sjálfsskoðun er hins vegar könnun á innra ástandi og starfsemi þessa líffæris, og er það nokkuð sem við iðkum persónulega í íhugun. Það er ekki aðeins þetta líffæri sem gerir okkur ólík öllum öðrum dýrum jarðarinnar og setur okkur ofar þeim, heldur er það alfarið fyrir tilstilli heilans sem við höfum staðist hið harða náttúruval og komist áfram í gegnum þróunarsöguna. Það voru ekki klær og tennur eða frár fótur sem gerðu framþróun okkar mögulega; það var fyrst og fremst heilinn sem var líffærið sem gerði okkur kleift að lifa þróunina af og þroskast.

Á skyggnumyndinni sjást nokkrir helstu hlutar heilans, sem eru vinstra og hægra heilahvel, með hvata- eða dýrsheilanum í miðjunni í rauðum lit. Það er venjulega vinstra hvelið sem annast alla efnisskynjun og hægra hvelið sem annast rúmskynjunina í samræmi við grunn raunveruleikans. Í raun er þetta líffæri svo stórkostlega flókið að til að öðlast skilning á því þurfum við að bera saman allt sem við þekkjum í náttúrunni við dýrð þess. Það er því ekki að furða þótt rannsakendur heilans segi að allt sem í honum er að finna megi finna í raunveruleika alheimsins, og allt sem er að finna í raunveruleika alheimsins megi finna í heilanum. Þessi regla hefur staðist í öllum rannsóknum nema hvað við kemur rúmskynjunar - –venjulega hægra – gagnaugablaðssvæðunum sem kölluð eru Jamais vu og Déjà vu stöðvarnar, en samsvörun þeirra við raunveruleikann hefur ekki verið skýrð endanlega af vísindunum. Það gerir hins vegar þessi fyrirlestur.

Orðin Jamais vu og Déjà vu eru úr frönsku og þýða: Jamais vu = „ég hef aldrei séð þetta áður“. Déjà vu = „ég hef séð þetta áður“.

Jamais vu er svæðið sem nú hefur verið sýnt fram á að sé trúarsvið heilans, en ekki hefur tekist að skýra hvers vegna það er í heila okkar. Má segja að eitt aðalviðfangsefni þessa fyrirlestrar sé sú staðreynd að enn er óvitað í vísindunum hvort þessar taugastöðvar samsvari einhverju í raunveruleika alheimsins eða séu framkallaðar af okkur sjálfum. Er þar á ferð hin ævaforna spurning: Skapaði Guð manninn, eða skapaði maðurinn Guð? Höfum við þróað þetta svið með okkur — til þess að fróa okkur andlega í lífsbaráttunni — eða hefur náttúran gefið okkur það á öðrum forsendum? Í fyrirlestri þessum er stuðst við niðurstöður QF-kenningarinnar hvað þessa spurningu varðar, en þar eiga þessar taugastöðvar sér samsvörun í svokölluðum V-pólum núllorku tómarúmsins. Það er út úr þessum pólum sem efni alheimsins sprettur, og því er ekki fráleitt að þeir samsvari trúar-, samkenndar- og sköpunarsviðum heilans. Samhliða þeim spurningum sem dulræn fyrirbæri mannsheilans vekja eru þessar spurningar jafnframt hluti af stærstu ráðgátu taugalíffræðinnar, þar sem þær tengjast gátunni um undirvitundina og fela því í sér lokasvarið um heilann. Áhorfandinn, eða heilinn, er af þessum sökum hluti af lokasvörum skammtafræðinnar og er þar með lykillinn að stærstu ráðgátu allra raunvísinda mannsins.

Það er því almennt viðurkennt í vísindunum, að heili okkar er ekki bara fremsta víglína vísindanna, heldur endanleg landamæri þeirra. Hinn kunni taugalíffræðingur Bretlands, barónessan, dr. Susanne Greenfield, hefur skilgreint lokaráðgáturnar um heilann sem The Ultimate Mystery, eða Hina endalegu ráðgátu. Árið 1979 hafði hinn kunni sálarlíffræðingur, dr. Richard M. Restak, bent á, að: Tveir fyrrum Nóbelsverðlaunahafar í eðlisfræði hefðu nýlega verið beðnir um að giska á hvaða svið rannsóknarvísindanna myndi vinna til Nóbelsverðlauna í eðlisfræði árið 2000. Án þess að hika svöruðu báðir því til að það yrðu heilarannsóknir. Niðurstaða þeirra var að það væri mannsheilinn sem væri hin endanlega áskorunarögrun til greindar okkar á síðasta fjórðungi tuttugustu aldarinnar. Árið 1984 hafði dr. Stephen Hawking líst því yfir, að hin endanlega ráðgáta væri uppgötvun hinnar endanlegu sameiningarkenningar eðlisfræðinnar, sem einungis yrði svarað með endanlegri ráðningu gátunnar um Miklahvell, en með því svari fengist endanlegt svar við lífinu sjálfu og þar með heilanum.

Þessum ráðgátum var endanlega svarað í kyrrþey af QF-kenningunni þegar árið 1998, og birtist niðurstaðan á prenti árið 2002 í bókinni THE LITTLE SCROLL. Þar sem ráðningin er ekki framkölluð af þekktum og virtum vísindamanni, heldur af óþekktum áhugamanni, er eðlilegt að hún stökkvi ekki upp á pallborð vísindanna þegjandi og hljóðalaust strax við birtinguna. Eins og áður hefur fram komið, þá er það á niðurstöðum þessarar kenningar sem heilalíkön og starfsskýringar fyrirlestrar þessa eru hönnuð, en þau eru jafnframt fyrstu slíku heildrænu líkönin sem okkur er kunnugt um.

Lokaorð inngangs þessa koma svo frá taugalíffræðingnum, dr. Paul MacLean, en hann hefur þetta að segja um efni það sem tekið er fyrir í fyrirlestri þessum: Áhugi okkar á heilanum þarfnast ekki annarra réttlætinga en forvitni þeirrar sem felst í því að vilja vita: Hvers vegna erum við hér? — Hvað erum við að gera hér? Og hvert erum við að fara?

Hér líkur þá inngangi fyrirlestrarins sem gefið hefur okkur einfalt grundvallarinnsæi inn í grundvallarforsendur raunveruleikaforrits mannsheilans. Við snúum okkur því að Fyrsta hluta fyrirlestrarins og skoðum byggingu og grundvallarstarfsemi hins heilbrigða heila.


Hér líkur þá formála og inngangi fyrirlestrarins sem gefið hefur okkur einfalt grundvallarinnsæi inn í grundvallarforsendur raunveruleikaforrits mannsheilans. Við snúum okkur því að Fyrsta hluta fyrirlestrarins og skoðum byggingu og grundvallarstarfsemi hins heilbrigða heila.

Næsti hluti þessa fyrirlestrar er:

02: Fyrsti hluti. Bygging og heilbrigð forritun mannsheilans.


Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar viðkomandi efni því sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum, sem mun koma þeim áfram til föðurhúsanna. Hér eru þau netföng sem hægt er að senda skilaboðin á: