PowerPoint-fyrirlesturinn
ALKAÞRAS
Fyrirlestur í sex þáttum sem fjallar um skammtafræðilegar og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi lyfjum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: „Alkóhólismi“, „mengun mannsheilans“, „boðefnasvindl mannsins“. Hér kemur fram í fyrsta skipti í mannkynssögunni skýring á virkninni í taugaánetjunarsjúkdómunum og batalausn þeirra, en fyrirlesturinn samanstendur af:

Við erum hér komin að fjórða og síðasta þætti þessa fyrirlesturs, en hann fjallar að sjálfsögðu um lausnina á því vandamáli sem fjallað var um í þættinum hér á undan. Í gegnum aldirnar hafa einungis örfáir einstaklingar, oftast aðskildir frá almenningi, losnað úr viðjum taugaánetjunarinnar og hefur það þá gerst í gegnum sterka andlega reynslu, án þess að um nokkra kerfisbundna aðferðafræði hafi verið að ræða. Í þessum fátíðu tilfellum hurfu þessir einstaklingar jafnan inn í trúfélög, þar sem þeir voru ekki sérstaklega áfjáðir í að segja frá sínu fyrra líferni, annað en að þeir hefðu lifað í synd. Voru flestir þeirra ekki sérstaklega þjálfaðir í að selja virkum alkóhólistum einhvers konar Guðslækningu, og getum við nú skilið það með hliðsjón af því sem við höfum séð hér áður, hvað við kemur trúarsviðinu í heila virku alkóhólistanna, sem var að sjálfsögðu að mestu orðið óstarfhæft af alkóhólneyslu-filternum.
Það er ekki fyrr en á fjórða áratug tuttugustu aldar að loksins kemur fram hjá mannkyninu kerfisbundin aðferðafræði til þess að kasta filternum í innrauða - (intro) kirnum rúm-VIÐ-hvelsins yfir í útrafa - (exon) kirnur efnis-ÉG-hvelsins. Með þessu kemst taugahemlaframleiðsla rúm-VIÐ-hvelsins í starfhæft ástand. Þessi aðferðafræði gaf hinum taugaánetjaða – alkóhólista eða neytanda – valkost um það hvort hann vildi vera ódrukkinn og lifa nokkurn veginn eðlilegu lífi, eða kveljast í neyslunni, verða geðveikur og deyja ótímabærum dauða. Það er einmitt skammta- og taugalíffræðileg virkni þessarar kerfisbundnu aðferðafræði sem við ætlum að skoða í stórum dráttum hér í þessum þætti fyrirlestrarins. Það sem við erum að tala um eru að sjálfsögðu Samtök óvirkra alkóhólista (Alcoholics Anonymous) og 12 spora kerfi þeirra, sem kom fram árið 1935 og náði fljótt varanlegri fótfestu. Þegar svo um aldamótin 2000 TIME Magazine gerði yfirlit yfir 100 merkustu atburði tuttugustu aldarinnar var tilkoma AA-samtakanna talin einn af þeim, en jafnframt var hún talin einn af þeim tíu atburðum sem myndu koma til með að skila mestu inn í framtíðina fyrir mannkynið.

Það má segja að það hafi verið dr. Carl Gustaf Jung sem sáði fræinu að AA-samtökunum og aðferðafræði þeirra. Í sálarfræði Jungs sér hann hina ýmsu grundvallareiginleika mannsins sem frumgerðir (archetypes) og eru grunnþættir þeirra settir fram í hugtökunum um „animu“, sem er karlkyns fyrir efnis-ÉG-hvelið, en „anima“, sem er kvenkyns fyrir rúm-VIÐ-hvelið. Var þessari hugmyndafræði beitt af mikilli skarpskyggni af hinum fræga meðhöfundi Star Wars-kvikmyndanna, dr. Joseph Campbell, prófessor í túlkun á goðsögnum og mýtum. Dr. Campbell ferðaðist um alla jörðina, þar sem hann kom m.a. tvisvar til Íslands, en á ferðum þessum leitaði hann uppi og safnaði goðsögnum. Honum varð síðan ljóst að sömu sögurnar, í mismunandi útgáfum, væri alls staðar að finna, jafnvel þar sem engin tengsl voru á milli menningarheimanna. Voru það niðurstöður dr. Campbells að sálin, eða æðra sjálfið, eða kosmíska vitundin, væri að reyna að koma skilaboðum til okkar í gegnum goðsagnirnar, og reyndist þar sagan af heilögum Georg og drekanum hvað útbreiddust. Þar sigrar Georg drekann, frelsar prinsessuna úr álögum og fær hana sem eiginkonu að launum. Myndlíkinguna um animu og anima er einnig að finna í austurlenskri túlkun á sálarlífi manna, þar sem í hindúisma er andleg uppljómun og sameining heilahvelanna oft tjáð með brúðkaupi prinsins — animusar — og prinsessunnar — anime. Þetta líkingamál er einnig að finna í Opinberunarbókinni (Book of Revelation) í Biblíunni, þar sem hin Nýja Jerúsalem, uppljómunin, kemur til jarðarinnar, sem er efnis-ÉG-hvelið – eða animu. Uppljómunin kemur til jarðarinnar af himnum, sem er hið filter-frelsaða rúm-VIÐ-hvel — eða anima — sem einnig er í líkingamálinu brúðurin að mæta brúðgumanum.
Sömu goðsagnatáknmynd er að finna í höggmynd Einars Jónssonar, sem er einkar viðeigandi um frelsun rúm-VIÐ-hvelsins frá filternum. Þetta er að sjálfsögðu álagahjúpurinn sem prinsessan — anima — leggur frá sér. Riddarinn og sigurvegarinn er svo efnis-ÉG-hvelið — animu — og sverðið sem hann vegur drekann með eru sporin 12, eða öllu heldur þrepin 12, en skjöldurinn er þá hinar 12 erfðavenjur AA-samtakanna. Drekinn er að sjálfsögðu taugaánetjunarsjúkdómurinn, alkóhólisminn, sem er, eins og Berlín galdramaður (Merlin the Wizard) segir í „Excalibur“–goðsögninni um Arthur konung: „Drekinn andar alls staðar!“ , Eða „The Dragon breaches Everywhere!“

Eitt af merkilegustu fyrirbærum mannkynssögunnar er sagan um það hvernig AA-samtökin urðu til. Kveikjan að fæðingunni var samkenndarhjálp tveggja alkóhólista við þann þriðja, William Griffith Wilson, í gegnum hina svokölluðu Oxford-hreyfingu, sem nú heitir Moral Re-Armament. Hafði annar þessara alkóhólista, Rowland Hazard, í tvígang verið í meðferð hjá dr. Carl Gustav Jung í Sviss og fengið þær upplýsingar að hægt væri að losna við taugaánetjunarsjúkdóminn í gegnum gagngera andlega og trúarlega reynslu. Þetta varð til þess að þegar Bill Wilson kom til afeitrunar í þriðja sinn á stuttum tíma, að hann — með þessar upplýsingar frá dr. Jung — á fyrsta klukkutíma dagsins 12.12. 1934, bað Guð í angist að hjálpa sér og kvaðst vera tilbúinn að gera hvað sem var. Varð hann þá fyrir gagngerri andlegri og trúarlegri reynslu sem varð síðan til þess að hann drakk aldrei aftur það sem hann átti ólifað, sem voru 36 ár. Þegar þessum einstaklingi tókst svo að smita annan alkóhólista, dr. Robert Holbrook Smith (dr. Bob), af bata sínum, leiddi það til þess að sá drakk síðast þann 10.06. 1935, og er sá dagur skoðaður sem stofndagur AA-samtakanna. Síðar kom svo fram hin kerfisbundna aðferðafræði samtakanna: Þrepin 12 og Erfðavenjurnar 12.
Rauði þráðurinn í aðferðafræði AA-samtakanna er að ná vitundarsambandi við Guð eins og einstaklingurinn skilur hann hverju sinni. Er þessu náð fram með því að byrjað er að hjálpa hinum virka alkóhólista í gegnum samkennd, sem er framleiðsla taugaboðefna (neurotransmitter) í gegnum samúðarstöð heilans (Brain's Empathy Center), eða Déjà vu-miðstöð hans (sjá skyggnu #2 - 07). Strax og hann er orðinn nægilega hress fer hann að vinna hið svokallaða 12 þrepa kerfi samtakanna, en það er þessi vinna sem leiðir hann svo inn í vitundarsambandið við Guð, sem er uppvakning Jamais vu-miðstöðvarinnar. Það er endurvakning þessarar taugastöðvar sem framkallar losun filtersins úr innröðunum, sem er jafnframt ráðandi framleiðslusvæði taugaboðefna í heilanum, og gerir einstaklingnum með því kleift að vera ódrukkinn undir öllum kringumstæðum. Alkóhólistinn getur verið ódrukkinn á samkenndinni einnig saman — Déjà vu-stöðinni — en slíkt er ekki fullnægjandi og leiðir oft til þunglyndis og jafnvel sjálfsvígs.

Þungamiðjan í bataþróun þeirri sem AA-samtökin bjóða upp á er í gegnum fundasókn og 12 þrepa vinnu sem leiðir alkóhólistann inn í prógramm samtakanna og skilur hann þar eftir. Orðið step á ensku er í réttri íslenskri þýðingu þrep, eins og í stiga, en rétt þýðing fyrir orðið spor er footprint. Er því orðið spor, sem almennt er notað, röng þýðing, en þetta kann að skipta máli hér þar sem merkingin kann að tapast við þessa röngu þýðingu á orðinu step, því þrep er hluti af stiga sem liggur upp á við, og er það einmitt andlegur tilgangur hins andlega prógramms AA-samtakanna: Að koma vitundarlífi alkóhólistans upp á við í æðri raunveruleika. Með því er alkóhólistanum komið út úr svartholi hins alkóhólíska filters og inn í vitundarsamband við Guð, sem er á himnum, eða nánar og réttara, í rúminu sjálfu, sem er jafnframt raunveruleiki innraðakirnanna í rúmskynjunar-VIÐ-hveli heila hans. Þar sem ekki stendur til að kenna AA-prógrammið hér látum við duga að bjóða upp á eina gamla og góða þjóðsögu úr Mið-Austurlöndum, sem er nátengd aðferðafræði AA-samtakanna.
Hinir sjö illu andar (Evil Spirits) Djöfulsins, dauðasyndirnar sjö. Hinir sjö góðu andar Guðs, dyggðirnar sjö.
Óstaðfestar þjóðsögur segja að orðið alkóhól sé komið af semíska orðinu alkul, sem í hinum fornu semísku málum á að hafa þýtt illur andi, en ekki það þegar alkóhólisti hælir einhverjum. Er því haldið fram að á fornaldarsögum biblíusögunnar hafi vitringarnir kennt að þegar alkóhólið fór í manninn, þá þýddi það að konungur hinna illu anda — venjulega kallaður djöfullinn á nútímamáli — hefði þar með fengið inngöngu í manninn. Þetta þýddi svo að þessi illi andi tók með sér sjö aðra illa anda sem einnig fengu inngöngu í þann sem drakk alkóhólið, en þessir illu andar voru andar dauðasyndanna sjö. Þegar síðan konungur hinna illu anda hvarf, í fylgd með alkóhólinu, úr líkama mannsins, héldu hinir sjö illu andar kyrru fyrir hjá þeim sem hafði verið að drekka alkóhólið. Þessir illu andar kölluðu síðan aftur og aftur á foringja sinn, konung hinna illu anda. Kenndu vitringarnir að eina leiðin til að stöðva manninn frá því að drekka enn meira magn af víni og bjór með aukinni tíðni (sterkir drykkir voru ekki til á þessum tíma) væri sú að reka út anda dauðasyndanna sjö úr manninum. Sögðu vitringarnir að væri það gert myndu hinir sjö andar Guðs birtast í manninum. Þetta eru dyggðirnar sjö, en þær eru sagðar hafa verið í drykkjumanninum allan tímann meðan hann drakk. Þeim hafði verið haldið í fjötrum af hinum sjö illu öndum dauðasyndanna. Í Biblíunni er dauðasyndunum sjö og hinum sjö öndum Guðs víða líst, en þessi goðsagnakennda lýsing fellur að QF-kenningunni (QF-theory) um filterinn og batakennslu AA-samtakanna – eins og flís við rass. Þetta er það sem AA-prógrammið kennir: Andleg hreinsun á rústum fortíðarinnar, rangar gjörðir fortíðarinnar leiðréttar eftir föngum og hinn týndi sonur eða dóttir snýr heim til föðurhúsanna. Hinn kosturinn er sá að alkóhólistinn vinni ekki þrepavinnuna og sé ódrukkinn á hnefanum, sem síðan leiðir til þess að hann verður órólegur, önugur og ófullnægður og fer að finna fyrir einkennum þurrafyllerí, sem síðan leiða til þess að hann leitar til sálfræðinga eða geðlækna sem greina hann með annan sjúkdóm og setja hann á lyf, sem svo kemur í veg fyrir bata hans.
Með fenginni reynslu AA-samtakanna í 70 ár hefur komið í ljós að batinn kemur til alkóhólistans í tvenns konar formi; stöku sinnum hratt og skyndilega, en að jafnaði hægt, jafnt og sígandi, en áður var slíkt breytinga- eða bataferli vel þekkt í ýmiss konar jóga og búddískri iðkun. Við munum því skoða næst þá skammta- og taugalíffræðilegu virkni sem á sér stað við þrepavinnuna.

Texti í vinnslu!

Hvað er það svo sem setur hæga batann í gang? Í hægu bataferli er það fyrst til að byrja með VIÐ-samkenndar-, hugsunar- eða Déjà vu-miðstöð heilans sem setur af stað hið lífleiðréttandi (biofeedback) skammtaferli er framkallar batann, en í gegnum sporavinnu – þar sem farið er eftir leiðbeiningum í einlægni – er Jamais vu-trúarstöðin síðan með í virkninni. Vera kann að um sé að ræða virkni er framkallar breytt hugarfar, hvort sem einstaklingurinn er meðvitaður um hana eða ekki, og ættu menn að vera þess meðvitaðir að þetta gerist allt í takt við þeirra eigin viðleitni.
Hið hægfara bataþróunarferli, eða lífleiðréttandi (biofeedback) skammtaferli – þar sem filterinn er fjarlægður úr innraðakirnum rúmskynjunar-VIÐ-hvelsins – getur tekið á sig margar myndir og staðið yfir í mjög mismunandi langan tíma. Af því að hér er um að ræða andlegt prógramm er ekki úr vegi að samtvinna líkingamálslýsingar Opinberunarbókarinnar á þessu fyrirbæri. Eina þeirra er að finna í 12. kafla spádómsins og er hún svona: Þá braust út stríð á himnum. Mikael og englar hans börðust gegn drekanum, sem barðist á móti með sínum englum; en drekinn var sigraður og var honum og englum hans ekki leift að dvelja lengur á himnum. Hinum risastóra dreka var kastað út – þessum gamla snák, sem ber heitið Djöfull, eða Satan, sem blekkti allan heiminn. Honum var kastað niður á jörðina og öllum englum hans með honum.“
Eftir að við höfum fengið skammta- og taugalíffræðiskýringarnar á himni, jörðu, helvíti, filternum, drekanum eða djöflinum, verður auðvelt að setja þessa sömu mynd upp á tungumáli þessa skilnings, en hún myndi hljóma eitthvað á þessa leið: „Þá hófst mikil framleiðsla örvandi boðefna (Mikael og englar hans) í rúm-VIÐ-hveli heilans (himnum) og jókst vitundarbylgjuflæðið (stríðið), með neikvæða hleðslu sína, inn í þetta heilahveli og tók með sér hina neikvætt hlöðnu hólógrafísku ljóseindaskammta sem mynduðu „filterinn“ (Drekann eða Djöfulinn og engla hans) úr hinum jákvæðu innraðakirnum. Flutti flæði þetta ljósskammta filtersins með sér (drekinn sigraður) yfir í efnis-ÉG-hvelið (jörðina) og kom þeim fyrir í hinum neikvæðu útraðakirnum, þar sem þeir áttu upphaflega að vera og gera ekki skaða.“
Hvernig þetta ferli lítur út gefur að líta á miðri skyggnunni og til vinstri í láréttum skurði höfuðs, en til hægri er sýnd mynd af virkninni í bylgjunni, sem er ósamhverf og INN- og ÚT-bylgjuvirknin ójöfn í báðum hvelum. Eru þau andstæð hvort öðru, í spegilmynd, en viðbúið er að bylgjan sé EKKI klofin meðan á þessu stendur. Jafnframt er gróft meðalsveiflulínurit fyrir lengra tímabil bataþróunarinnar sýnt neðst í myndaröðinni, en þetta er að sjálfsögðu mjög einstaklingsbundið. Er mjög algengt að alkóhólistar og aðrir sem eru að fara í gegnum þetta dýrmæta bataferli upplifi miklar langanir í glúkósa, einkum súkkulaði og sætindi, en kvarti jafnframt yfir minnisleysi og einbeitingarskorti. Getur ferli þetta tekið sex, níu eða allt að 12 mánaða tíma hjá þeim sem eru að vinna prógrammið og gildir þá að vera meðvitaður um að: Góðir hlutir gerast hægt, en vondir hlutir koma í hvelli! Þeir koma með fyrsta sopanum, pípunni, skammtinum eða sprautunni.

Hvað er það svo sem setur hratt bataferli í gang? Í hröðu bataferli er það fyrst og fremst Jamais vu-trúarstöð heilans sem framkallar hið lífleiðréttandi skammtaferli í gegnum þrepavinnu þar sem farið er eftir leiðbeiningunum í einlægni, en Déjà vu-samkenndarstöðin er með í virkninni. Í flestum þeim tilfellum þar sem hraðri bataþróun er náð er einstaklingurinn oftast að iðka djúpslökunarkyrjunartækni með þrepavinnunni, eða hefur komið sér upp einhverju formi af slíkri iðkun. Þegar um slíka bataþróun er að ræða verður einstaklingurinn meðvitaður um hana í gegnum andlegar upplifanir, oftast í sterkari kantinum, en í slíkum upplifunum steðjar að sú hætta að hann segi röngum aðilum frá þeim og verði síðan álitinn eða stimplaður sem geðveikur.
Þótt tæknin sem notuð er við að koma hröðu ferli af stað sé aðeins öðruvísi en í hægfara ferli er virknin sú sama, nema hvað hér þróast ferlið með verulega meira afli og á styttri tíma. Tekur aðalbatavirknin venjulega um þrisvar sinnum 28 daga, eða 84 daga alls, með hápunkt ferlisins einhvers staðar í miðju þess tímabils. Til skýringar á þessu er hér gróft meðalsveiflulínurit fyrir þriggja mánaða tímabil bataþróunarinnar sýnt neðst í myndaröðinni, en þetta er að sjálfsögðu mjög einstaklingsbundið. Meðan á þessu stendur er mjög áríðandi að einstaklingurinn sæki 90 fundi á 90 dögum. Í þessu ferli er sú hætta fyrir hendi að einstaklingurinn, sem kann að hafa lítinn eða engan skilning á því sem er að gerast, verði hræddur og leiti til geðlækna, sem sjálfir skilja hvorki ferlið né forsendur þess og gefa því lyf við ástandinu. Það þýðir að sjálfsögðu að ferlið er stöðvað og getur orðið enn erfiðara að koma því í gang aftur, og er hér mjög algengt að einstaklingurinn — ef hann er alkóhólisti — hverfi aftur til neyslunnar, en þetta allt framkallar svo verri filter en áður var fyrir hendi. Við þetta bætist svo sú ógnun að neytandinn verði greindur með tvo sjúkdóma, að hann sé geðveikur til viðbótar við alkóhólismann og fari því í geðlyfjaneyslu það sem eftir er ævinnar og nái aldrei neinum bata.
Hið hraða lífleiðréttandi skammtaferli er vel þekkt í Austurlöndum og á Indlandi er það kallað Kundalini-vakning, en þar eru þeir sem taka sér fyrir hendur að kyrja og hugleiða til að ná þessu ferli fram varaðir við því að hættulegt sé að reyna það án þess að njóta leiðsagnar gúrús. Gúrú þýðir kennari og leiðbeinir hann iðkandanum úr myrkri í ljós, en GU á sanskrít þýðir myrkur og RU þýðir ljós, þannig að gúrú er sá sem leiðir nemandann úr myrkri til ljóss, eða til uppljómunar. Slíkur gúrú er mjög nauðsynlegur þar sem iðkendurnir geta fengið miklar og sterkar upplifanir og mjög erfiðar með miklum andlegum fráhvörfum, einkum ef þeir hafa verið í neyslu á gerviboðefnum, eða eru afkomendur slíkra einstaklinga. Samkvæmt QF-kenningunni og reynslu AA-félaga er ekki nauðsynlegt að hafa gúrú ef viðkomandi er stíft í AA-prógramminu og stöðugt á fundum meðan á þessu ferli stendur, og er hann þá ekki í hættu. Þetta byggist á því að séu menn einir að iðka er trúarvirkni Jamais vu, eða æðri máttar (Higher Power), ráðandi og um litla Déjà vu-samkenndarvirkni að ræða, og getur það leitt til mikils ójafnvægis í boðefnaframleiðslu heilans og þar með í raunveruleikaskynjun. Getur það jafnvel leitt til geðrofsástands (psychosis) með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Sé hins vegar samkenndarvirkni með Jamais vu-trúarvirkninni verður ekki mikið boðefnaójafnvægi og þetta því ekki hættulegt einstaklingnum. Hið tvíþætta leiðréttingarkerfi AA-samtakanna er því hið fullkomnasta sem sköpunarafl náttúrunnar – hvað sem þú kallar þau – bjóða upp á.
Í seinni tíð hafa nokkrir vísindamenn á Vesturlöndum, eins og prófessor dr. William R. Möller, réttilega farið að kalla þetta líftæknileiðréttingarfyrirbæri „skammabreytingu“ (Quantum Change), en Miller er bæði með doktorsgráðu í geðlækningum og sálfræði og er jafnframt einn helsti ráðgjafi þekktustu meðferðarstofnana jarðarinnar fyrir alkóhólista. Hann kom til Íslands á vegum SÁÁ árið 1996. Árið 2001 skrifaði hann bók um þetta efni sem hann kallaði Quantum Change eða Skammtabreytingar, en þar kvartar hann sáran yfir því að vísindin skuli ekki hafa skilning á þessu fyrirbæri.
Í Opinberunarbókinni í Biblíunni er svo að finna mjög merkilega lýsingu á skammtafræði rafsegulsviðsins, í hröðu og orkumiklu bata-lífleiðréttandi skammtaferlisflæði úr rúm-VIÐ-hvelinu, í gegnum hinar 200 milljónir frumna í hvelatengslunum (corpus callosum), yfir í efnis-ÉG-hvelið. Lýsing þessi hefur verið mönnum mikil ráðgáta í gegnum aldirnar og verið tengd hugtakinu um gulu hættuna, en lýsinguna er að finna í seinni hluta 9. kafla spádómsins og hljómar hún svona í styttingu: Þá blés sjötti engillinn í básúnu sína Hinum fjórum englum var sleppt; höfðu þeir verið búnir til að deyða þriðja hluta mannkynsins. Var mér sagður fjöldi riddaranna sem þeystu fram: Voru þeir tvö hundruð milljónir. Og sá ég í sýn hestanna og riddarana sem þá sátu: Höfðu þeir brjóstskjöldur hver, sem voru rauðir sem eldur, bláir sem safír og gulir sem brennisteinn.“ Þessi spádómsorð, sem lýsa í líkingamáli einhverri lokaorrustu, hafa verið kveikjan að talinu um gulu hættuna, en enginn gat ímyndað sér aðra þjóð en Kínverja sem framkallað gæti slíkan ógnarhár. Gerðu menn sér ekki ljóst að 200 milljóna manna her er óhugsandi í raunveruleikanum, þar sem bara það eitt að fæða hann er nánast ógerlegt. Við getum hins vegar hugsað okkur að hér sé verið að tala um – í líkingamáli – lokaorrustuna við Bakkus og filterinn í heilanum á einhverjum alkanum. Þegar hér er talað um þriðjung mannkynsins er trúlega átt við filterviðbótina í rúm-VIÐ-hvelinu, en samkvæmt QF-kenningunni er það einmitt þar sem við skynjum annað fólk, mannkynið. Þetta eru filterskammtarnir sem þarf að eyða eða deyða og er það gert með því að henda þeim yfir í efnis-ÉG-hvelið í gegnum hvelatengslin með sínar 200 milljónir taugafrumna. Þar er það flutt með ljóseindaflæðinu í rafsegulsviðinu, en hér eiga grunnlitirnir þrír — grunnlitir náttúrunnar — rauður, blár og gulur, við um þessa skammta þar sem allir skammtar eru í þessum þremur litum. Hér látum við þessa túlkun duga.

Þar sem QF-kenningin heldur því fram að allir geðsjúkdómar og allar geðraskanir séu af völdum filters í innraðakirnum heilans, þá munum við skoða lauslega helstu geðveikisfyrirbærin sem fram koma. QF-kenningin segir okkur að nánast öll þessi fyrirbæri, að undanskildum þeim sem orsakast af slysum, veirum eða bakteríum, eigi upptök sín í boðefnasvindli. Séu þau ekki af völdum beinnar neyslu einstaklingsins sjálfs, þá kemur til annað tveggja: Þau eru fengin að erfðum eða áunnin í gegnum neyslu annarra í umhverfinu. Því verður ekki hjá því komist að fjalla lauslega um geðsjúkdómana og hvers vegna geðlæknisfræðin ræður ekki við neitt af þeim.
Á skyggnunni hér höfum við dæmigert geðrofs-geðveikiástand sem skilgreint er sem geðklofi, en í geðrofi koma fram alls kyns ofskynjanir, bæði í skynjunarhugsun og rökhugsun. Samkvæmt QF-kenningunni á þetta upptök sín í því að rafsegulsviðsflæðinu til heilans er stjórnað af innraðakirnuforritum þeim sem hafa miðstöð í Jamais vu- og Déjà vu-stöðvunum. Truflast flæðið og vitundarbylgjan brotnar gjarnan í hluta, en hvernig það kemur fram ræðst af því hvar filterinn hefur lent í innröðunum. Hér þurfum við að vera minnug þess að spurningin um það hvar filterinn lendir ræðst af hugsanaupplifunum okkar í neyslunni, en af þessu leiðir að geðklofinn kemur fram í fimm flokkum sem síðan telja sérstök afbrigði innan hvers flokks. Á skyggnunni sjáum við hvernig vitundarbylgjan er brotin og myndar 6 vitundarsvið, en þetta var áður kallað að vera haldinn illum öndum eins og talað er um í lækningu Krists á manninum í Gerasa.
Fyrir kemur að alkóhólistar og aðrir neytendur upplifa þetta ástand tímabundið þegar þeir vakna upp úr mikilli neyslu, og upplifa þeir sjálfa sig sem sundurtætta andlega. Ef ekkert er að gert lagast þetta þegar bylgjan byggist upp eftir því sem líður á daginn, og batnar ástandið við það. Flestir neytendur eru þó ekkert að standa í því að bíða eftir slíku og breyta þessu strax sjálfir með því að fá sér afréttara og hverfa aftur inn í neysluna. Hjá einstaklingi með geðklofa er þessu ekki þannig farið; hann er fastur í ástandinu í lengri eða skemmri tíma, en það er vægast sagt mjög kvalafullt og er eina ráðið að gefa honum lyf sem slær á ástandið. Slíkur einstaklingur þarf að læra um sjúkdóm sinn sjálfur eftir getu og fara síðan að iðka til að losna við filterinn og stefna jafnframt á að verða lyfjalaus með tímanum samhliða iðkuninni.

Hér höfum við svokölluð PET-skannayfirlit um skammtímaviðgerð á vitundarbylgjunni í geðklofa, en myndin til vinstri er að sjálfsögðu eðlileg og heil vitundarbylgja, hið svokallaða fiðrildisform. Í miðjunni er sjúkleikaástandið með brotinni bylgju, en til hægri er svo myndin af vitundinni eftir að lyfjaneysla hefur lagfært hana að einhverju leyti. Er þessi lagfæring í sjálfu sér engin leiðrétting, heldur í besta falli einhvers konar tjasl, en tali maður við einstakling í þessu ástandi er eins víst að hann telji sig vera fullkomlega eðlilegan. Gallinn á þessu er sá að undir áhrifum lyfjanna heldur uppfærsla filtersins áfram þar sem endurupptakan bregst í lyfjaneyslu, rétt eins og á sér stað með öllum efnum sem koma í stað hinna náttúrulegu boðefna. Við þetta bætist svo sú staðreynd að taugakerfið byggir upp þol gegn lyfjunum, að vísu mismunandi hratt hjá hverjum einstaklingi fyrir sig, og verður tjaslið því engin varanleg lausn. Er þetta því miður það besta sem við höfum, eins og guðfræðingarnir svara gagnrýninni á það. Er þetta jafnframt ástæðan fyrir því að geðlæknar eru ekki fúsir til að draga til baka geðsjúkdómastimplana sem þeir skilgreina skjólstæðinga sína með, en enn sem komið er hefur nútímageðlæknavísindum ekki tekist að lækna eitt einasta geðveikitilfelli.
Hér er það tillaga QF-kenningarinnar að hægt sé að losna við geðklofann, sem og öll önnur geðveiki- og geðröskunarfyrirbæri, á sama grundvelli og menn losna við áfengis- og aðra efna- og taugaánetjunarsjúkdóma, en það yrði augljóslega gert með því að fjarlægja filterinn. Hefur reynslan innan AA-samtakanna þegar staðfest þetta og leitt til stofnunar Emotions Anonymous-samtakanna, eða EA-samtakanna. Hins vegar gengur illa að koma fólki inn í þennan bata þar sem skilningur er ekki fyrir hendi í taugalíffræðivísindum mannsins, en þar er ekki vitað hvað veldur alkóhólisma og geðsjúkdómum og enn síður hvaða taugalíffræðilega virkni liggur að baki bata frá þeim. Til að ná einstaklingi með geðklofa, eða öðrum geðsjúkum, inn í bataferli þarf mikinn undirbúning og langa afeitrun samhliða mikilli andlegri iðkun, en margir geðlæknar eru ekki hrifnir af neinu guðskjaftæði. Þetta kann að eiga sér orsakir í því að þeir hafi þurft að hlusta á mikinn veruleikafirrtan guðskjaftæðis — þvætting í geðveiku fólki án þess að skilja forsendurnar fyrir honum, þar sem engar taugalíffræðilegar skilgreiningar eru fyrir hendi. Hér er það einmitt þessi tilhneiging margra geðsjúkra sem er ein af sterkari vísbendingunum um réttmæti QF-healalíkana (QF-brainmodels), en kenningin gerir forspár um slíkt þar sem filterinn er forritaður ofan í trúar- og samkenndarstöð heilans. Þess vegna fer hann, þegar hann verður fullvirkur í vitundinni, að framkalla Jesúsa eða Maríur meyjar á Vesturlöndum, eða þá einhverjar allt aðrar persónur í öðrum menningarsamfélögum svo sem Búdda, en persónugervingarnir eru menningartengdir eins og hinn mikli fjöldi fólks með „Napóleons-æði“ í Frakklandi ber vitni um.

Í framhaldi af geðklofanum skoðum við náskyldan geðsjúkdóm sem er einn sá allra furðulegasti, en þetta er geðhvarfasýkin, eða manía-depressíva, eins og hún er oftast kölluð, en djúpt þunglyndi eins og í skyggnu #5 - 11 er svo hin hliðin á þessu ástandi. Er þetta trúlega einn algengasti geðsjúkdómurinn sem taugaánetjunarsjúkdómarnir leiða beint af sér og hér býður QF-kenningin upp á skýringu á orsökum þessa. Samkvæmt QF-kenningunni gerist þetta þegar mikill filter hefur byggst upp og mikið ójafnvægi hefur skapast í taugakerfinu, en það fer síðan af sjálfsdáðum að reyna að losa sig við filterinn. Þetta þýðir að ástandið getur bæði verið: Misheppnað og sjúklegt, þar sem einstaklingur tapar réttri raunveruleikaskynjun, eða: Heilbrigt, sjálflæknandi lífleiðréttandi skammtaferli taugakerfisins, þar sem einstaklingurinn tapar ekki réttri raunveruleikaskynjun. Er því ástandi líst í umfjöllun og mynd í skyggnu #5 - 07.
Því miður gerir geðfræðin ekki greinarmun á þessum tveimur eðlismunandi fyrirbærum og er það sérstaklega dapurleg hlið á þessum geðsjúkdómi, en það leiðir svo til þess að einstaklingnum eru gefin lyf sem eyðileggja sjálflækningarferli taugakerfisins. Venjulega leiðir það til þess að úr verða síendurtekin maníu-geðhvarfatilfelli með þunglyndi inn á milli, en það er hin hliðin á geðhvarfasýki. Ástæðurnar eru þær sömu og eiga við um hina geðsjúkdómana, en það er sú staðreynd að taugalíffræði háskólanna botnar hvorki upp né niður í því hvað er að gerast og hvers vegna. Er kaldhæðnin í þessu sú að þegar einhver kemst í gegnum heilbrigt, sjálflæknandi lífleiðréttandi skammtaferli taugakerfisins, talar geðfræðin um að það sé maníukast sem komi bara einu sinni á ævinni.
Sá sem lendir í boðefnasvindlsorsökuðu maníuástandi í fyrsta skipti á ævinni botnar enn síður í því og lætur algjörlega blekkjast, jafnframt því sem hann tapar alfarið jarðsambandinu eins og það er kallað og er síðan greindur geðveikur og settur á lyf. Er hann dæmdur til að endurtaka maníukastið með þunglyndisköstum inn á milli það sem eftir er ævinnar, nema honum takist að losa sig við lyfin og filterinn. Sá sem sleppur í gegnum heilbrigt, sjálflæknandi lífleiðréttandi skammtaferli taugakerfisins verður augljóslega gjörbreyttur einstaklingur, þar sem hann hefur losnað við filterinn að mestu leyti, en það getur svo þýtt að bæði hann og hans nánustu þurfi að aðlagast þessum nýja manni. Lýsingar á slíkum ferlum eru algengar í trúarbrögðunum, þar sem þau eru útskýrð með ýmsum andlegum hugtökum eins og til dæmis lækningu heilags anda eða kundalíní-vakningu, en þetta staðfestir QF-kenninguna, sem segir að hið sjálflæknandi lífleiðréttandi skammtaferli komi í gegnum Jamais vu-trúarstöðina.

Hér gefur svo að líta yfirlitsmynd af algengasta sjúkleikaástandi nútímamannsins, sem er þunglyndi, hvort sem við skilgreinum það sem geðsjúkdóm eða geðröskun. Þetta hrjáir hlutfallslega fleira fólk á Íslandi en í nokkru öðru landi og fer ástandið versnandi. Er staðan fyrir vikið sú að við erum orðin mestu geðlyfjaneytendur á Norðurlöndum, en þar sem Skandinavía er talin vera með mestu geðlyfjaneyslu á jörðinni setur þetta okkur í fyrsta sæti í heiminum. Þetta kemur svo fram í hinni vaxandi gleðipilluneyslu okkar sem er nú þegar farin að ógna fjárhagsstöðu hins frábæra heilbrigðiskerfis okkar.
Hvað við kemur QF-kenningunni, þá er þunglyndi réttilega skilgreint af eldri og reyndari AA-félögum í Bandaríkjunum (United States) sem „aðskilnaður frá Guði“, sem í QF-kenningunni þýðir að Jamais vu-trúarstöðin er óvirk. Það er því ekki að undra þótt vísindunum gangi illa að átta sig á því hvað sé að í þunglyndinu, þar sem deilt er um það á þeim bæ hvers vegna þessi taugastöð sé í heila okkar: Hvort við höfum búið hana til með andlegri sjálfsfróun í gegnum aldirnar eða hvort hún sé okkur eðlislæg. Enn verra er svo að hvorki vísindin né þeir sem þjást af þunglyndinu hafa neina skýra vitneskju um hvernig þessi taugastöð starfar. Hér hafa trúarbrögðin stuðlað að því að koma í veg fyrir slíkan skilning, þar sem þau eru almennt verulega lituð af filter-orsökuðum ranghugmyndum um andlegan raunveruleika. Að fengnum þeim upplýsingum um erfða- og neyslu-filterinn sem fram hafa komið í fyrri þáttum fyrirlestrarins, og gengið sé út frá því að þær séu í stórum dráttum réttar, verður augljóst hversu erfitt það er fyrir vísindin að átta sig á forsendum og virkni þunglyndisins. Hins vegar er sú skoðun margra geðlækna rétt, að stór hluti þeirra sem verða alkóhólistar séu einstaklingar sem lærðu að nota áfengi gegn þunglyndi, en í þá skýringu vantar svarið við því hvers vegna það fór af stað í upphafi og þá jafnframt hvers vegna ekki allir þunglyndir læra að nota áfengi sem þunglyndislyf, eða hvers vegna það virkar ekki á þá. Á þessu vandamáli er svo lausnin að sjálfsögðu sú sama og fram kom í umfjölluninni hér á undan.
Fréttatilkynning Stöðvar 2. febrúar 2005
Kynning: Ætla má að fjöldi sjálfsvígstilrauna hér á landi hafi nær fimmfaldast síðustu ár. Sólveig Bergmann og Þráinn Brjánsson eru með þessa frétt.
Sólveig Bergmann: Þetta kemur fram í tölum sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur látið taka saman yfir fjölda sjálfsvígstilrauna síðustu 19 ár. Tölurnar sýna mikla aukningu. Fjöldi þeirra sem reynt hefur að taka líf sitt hefur þrefaldast á árinu og sjálfsvígstilraunir hafa nær fimmfaldast. Síðustu 19 ár er um að ræða 414 einstaklinga og 664 tilraunir til sjálfsvígs. Ef skoðaðar eru tölur síðustu 5 ára er um að ræða 181 einstakling og 309 sjálfsvígstilraunir. Fjórðungssjúkrahúsið þjónar Norðausturlandi. Að sögn Brynjólfs Ingvarssonar, geðlæknis sem hafði umsjón með rannsókninni, er ekkert sem bendir til þess að tölurnar séu aðrar í öðrum landsfjórðungum. Því má ætla að svipuð aukning hafi orðið á landsvísu.

Dr. Brynjólfur Ingvarsson: Þetta er langmest í hópi yngra fólks og yngstu aldursflokkarnir skera sig svolítið úr. Konur meira en karlar.
Sólveig Bergmann: Þær eru 64% á móti 36% karla og fjölmennasti hópurinn eru konur á aldrinum 15–20 ára.

Dr. Brynjólfur Ingvarsson: Við erum náttúrulega að giska á eitt og annað, og reyna að veiða það upp úr rannsóknarniðurstöðum erlendis hvað er á bak við þetta og það heyrast svo sem kenningar, en við vitum þetta ekki. Þannig að okkur vantar núna vísindalega vinnu til þess að fá svörin: Hvað er á bak við þetta, hvað hverjar eru raunverulegu ástæðurnar.
Sólveig Bergmann: Um helmingur fólks leggst inn á geðdeild í kjölfar sjálfsvígstilrauna. Hinir leita sér að aðstoð annars staðar eða afþakka alla heilbrigðisþjónustu.

Dr. Brynjólfur Ingvarsson: Við erum náttúrulega búnir að velta þessu mikið fyrir okkur, hvers vegna fólki líður svo illa að það bara gefst upp og grípur til svona óendis úrræðis og sjáum náttúrulega að það er á bak við þetta gífurleg vanlíðan og vonleysi og oft einstæðingsskapur. En ástæðan fyrir því að akkúrat þessir - -við erum með 660 einstaklinga ef við lítum yfir allt tímabilið - -af hverju þessir einstaklingar gripu... völdu þessa leið á meðan að aðrir sem áttu kannski við svipaða vanlíðan að stríða, að þeir gerðu þetta ekki. Við þekkjum ekki nógu vel, eða ekki nógu nákvæmlega, muninn á þessum tveimur hópum.“
* * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Ath: Það sem er athyglisverðast við frétt þessa er að hér er verið að segja almenningi hvað vísindin okkar virkilega vita um þunglyndi og sjálfsvíg og ekki verið að láta svo líta út sem geðlæknisfræðin sé með skýringu á þessu stærsta vandamáli nútímamannsins.

Eins og áður hefur komið fram má upphaflega rekja alkóhólískt ástand til þess að endurupptaka taugaboðefna í skiptingu taugamóta bregst. Þessar starfrænu truflanir berast svo áfram til afkomenda neytandans gegnum DNA-erfðir. Við þetta ástand bætast svo frekari, starfrænar truflanir sem myndast við það að alast upp í alkóhólísku umhverfi. Eins undarlega og það kann að hljóma myndast filterinn aðallega vegna lyga og annarra rangra gjörða, þar sem kirnin í efnisraunveruleika-ég-heilahvelinu búa til lygar í formi ljóseindaminninga-afrita sem eru síðan lagðar inn í innraðir (intro) kirnanna í rúmraunveruleika-við-heilahvelinu.
Að lýsa skammtafræðilegum smáatriðum sem eiga sér stað í þessu ferli er býsna flókið og verður ekki farið nánar í þá sálma hér, en afleiðingarnar eru eftir sem áður þær að filterar í innröðunum aukast. Einstaklingurinn sem er að vaxa úr grasi mun finna fyrir sálrænni ófullnægju vegna erfðafiltersins eða meðvirknifiltersins sem skapar ástand er leiðir til minnkandi framleiðslu taugaboðefna í taugum sem snerta vitundina og á endanum leiðist einstaklingurinn sjálfur út í neyslu sem hann upplifir í flestum tilvikum sem mikinn létti. Þetta á sér yfirleitt stað í kringum kynþroskaaldurinn þegar kynhormónarnir koma til sögunnar og valda oftar en ekki töluverðu uppnámi í vitundarlífi einstaklingsins.
Upp frá þessu munu erfðafilterinn og eða meðvirknifilterinn hafa áhrif á þol einstaklingsins með þeim afleiðingum að hann þarfnast sífellt stærri skammta af alkóhóli eða öðrum efnum til þess bæta fyrir skort hans á boðefnum þar til því stigi er náð að efnin geta ekki lengur fullnægt neytandanum. Þetta er 8. þrepið í þriðja stigi þróunarskóla Jelleneks, sem gefur til kynna að nú verði stökkbreyting á fíkninni inn í alkóhólismann. Sé hins vegar um að ræða filtera í litlu magni kann að vera að þetta ferli fari ekki í gang og að einstaklingurinn verði áfram í meðvirkniástandi.
Skyggna #5 - 12 hér á síðunni á undan, minnir okkur á sorglegustu afleiðingar boðefnasvindlsins hvort sem er af völdum alkóhóls eða annarra efna, en það eru hinar sálrænu truflanir sem meðvirknifilterinn orsakar hjá börnum. Þær kringumstæður sem börnin alast upp við eru í samræmi við þær starfrænu truflanirnar sem þau hafa hlotið í arf. Í þessu er fólgin ein versta og sorglegasta blekkingin varðandi áhrif alkóhólneyslu mannsins; en hún er ein af mörgum lúmskum og eyðileggjandi áhrifum þess.
Flestir foreldrar átta sig ekki á því að það sem skiptir sköpum er ekki hvernig þeir haga sér meðan þeir drekka né hvernig þeir koma fram við börn sín. Það sem ræður úrslitum er að barnið finnur á sér — en sú skynjun fer fram í rúmskynjunarhluta heilans — að foreldrarnir eru ekki eins og þeir eiga að sér að vera og þetta ástand sáir fræjum óttafilters í innraðakyrnunum í DNA í rúmskynjunar-við-heilahvelinu. Með tímanum mun þessi filter hafa veruleg áhrif á endorfínframleiðslu barnsins á neikvæðan hátt sem aftur leiðir til minnkandi dópamín- og serótonínframleiðslu, en endorfínin eru eins konar yfir-boðefni sem örva boðefnaframleiðsluna.
Afleiðingin er að barnið (eða unglingurinn) verður þunglynt, ofvirkt eða þegar verst lætur einhverft. Leiðin til bata við þessum sjúkdómum, eins og öðrum sem rekja má til alkóhólisma, liggur eftir þrepunum 12 — bataleið alkóhólista, ásamt því að stunda jóga-djúpslökunarkyrjun og hugleiðslu.
Það hörmulegasta í þessu er að almenningur leiðir þetta ástand hjá sér og afneitar því og við það bætist að sérfræðingar á heilbrigðissviðinu viðhalda ástandinu óbreyttu og láta stjórnast af eigingjörnum tilgangi. Ef þeir hefðu ekki þunglyndislyf og amfetamín — sem eru í sjálfu sér ekki lausnir — myndu þeir verða atvinnulausir eða þurfa að laga sig að hinum náttúrulegu leiðréttingarkerfum. Eins og staðan er í dag bæla róandi lyf niður filterinn og auka við hann, á meðan örvandi lyf hraða á hægari hluta vitundarsviðsins og gera það heilt, og byggja með því upp einbeitingu á falskan hátt. Þetta er því miður það besta sem við höfum á boðstólum læknisfræðinnar, en lækning er þetta svo sannarlega ekki.

Þar sem enn er umdeilt hvar skynjun eigin persónu sé í heilanum og ekkert sérstakt svæði hefur fundist er afgreiðir þá skynjun, þá höfum við tekið tvær skannamyndir af fjölpersónuleika. Þar kemur fram hvernig vitundarbylgjustarfsemin í kringum vinstri Sylvíusar-fellinguna er brotin upp og myndar fleiri en eitt „ÉG“, eða persónuleika, en þetta kemur heim og saman við QF-kenninguna, sem segir að skynjun eigin persónu eigi sér stað í öllum útraðakyrnum (exon) heilans – jafnvel þeim sem mynda prótínafritunarkóðana – og að brennipunkt þessarar ÉG-skynjunar sé að finna í talstöðvarsvæði því sem kennt er við dr. Paul Broca, eins og fram kemur í Skyggnu #5 - 13. Er þetta svið annar tveggja aðalboðefnaframleiðslu-raunveruleikaskynjunar-stjórnunarpóla heilans, á móti VIÐ-samkenndarpólnum í rúmskynjunarhvelinu og sem sýndur er í Skyggnu #3 - 11. Truflandi áhrif frá ÉG-afritum filtersins í innraðakyrnunum geta svo haft áhrif inn á þetta svæði og framkallað með því fleiri en eitt ÉG (ofurégið, superego). Skyggnumynd þessi er hér aðallega fyrir þá sem kunna að vera með efasemdir varðandi staðsetningu QF-kenningarinnar á skynjun eigin persónu, ÉG-sins, fyrir ofan efnishvels-gagnaugablaðið.

Ein af algengustu spurningum sem spurðar eru af þeim sem eru að reyna að ná fram breytingum á vitundarlífi sínu — eða eru að reyna að losna við filterinn — er: Hver er munurinn á slökun og hugleiðslu? Niðurstöður QF-kenningarinnar eru að hér sé ekki um sama fyrirbærið að ræða og er það jafnframt kenning hans heilagleika Maharishi Mahesh, og höfum við tekið okkur til handargagns vísindalega unna skipurits- og skýringarmynd úr hinni kunnu bók, HOLL ER HUGARRÓ eftir Peter Russel, sem Guðrún Andrésdóttir og Jón H. Hannesson þýddu 1978. Öll slökun er að sjálfsögðu góð fyrir taugakerfið og líkamann, þar erum við öll á einu máli. Slökun hins vegar framkallar ekki filtereyðandi sjálflæknandi-lífleiðréttingar-skammtaferlið í heilanum, en algengt er að fólk sem lengi hefur liðið illa rugli saman vellíðan og bata.
Ég get farið í heita pottinn og slakað vel á meðan ég horfi á stelpurnar og er það mjög gott fyrir líkama minn og verkar jafnframt upp í heila, en það framkallar ekki neitt sjálflæknandi líf-leiðréttingar-skammtaferli í heilastarfseminni eins og áður er vikið að. Sitji ég hins vegar í heita pottinum með lokuð augu og kyrja — jafnvel þó skarkali sé í umhverfinu — verður vitundarbylgjan í heilanum heil og hæg, og þá á sér stað hvoru tveggja; framleiðsla slakandi taugaboðefna sem láta mér líða vel, samhliða því að filtereyðandi sjálflæknandi líf-leiðréttingar-skammtaferli fer í gang. Þetta er hluti af því sem kallað er kriya-jóga, en að fara í sund eða út að hlaupa með hund er gott fyrir líkamann, en leiðréttir ekki sálina.

Aðrar tvær spurningar sem oft eru spurðar varða jóga og nútímarafeindatækni vísindanna, en þeim verða gerð hér nokkur skil í lokin. Ef við skoðum jógaiðkunina, þá er hún í raun það sama og andlegi hugleiðsluhluti ellefta spors AA-kerfisins, en sanskrítarorðið jóga þýðir einfaldlega tenging eða sameining og vísar til tengingar við Guð eða æðri mátt. Í jóga er hins vegar öll áherslan á að vinna með andann, en samkenndarvinna er miklu minni, og er AA-kerfið þar jógatækninni fremra, þar sem það vinnur með bæði Jamais vu og Déjà vu sviðin í heilanum. Því miður er hugleiðslukennslan í Samtökum óvirkra alkóhólista nánast engin og því mikill ávinningur í því að leita eftir kennslu í henni í jógafræðunum, en margir halda að hugleiðsla sé að sitja kyrr í einhvers konar sljóvgunar- eða rotástandi. Við þetta bætist svo að í mörgum trúfélögum er jóga og hugleiðsla skilgreind sem af hinu illa og eru það fordómar byggðir á vanþekkingu, en hér á enska máltækið afar vel við: Ignorance breeds prejudice! eða Þekkingarskortur elur af sér fordóma! Með því innsæi sem heilastarfsemislíkön QF-kenningarinnar bjóða upp á verður skiljanlegt hvernig þessi fordæming er tilkomin, en hún á rætur sínar í því að þegar hinn óupplýsti fer að fikta við hugleiðsluna getur komið að því að filterinn birtist honum, og þá í myndlíki djöfulsins eða einhverrar ófreskju. Einkum er þetta algengt þegar filterinn yfirgefur innraðirnar, en þá er það næsta víst að viðkomandi upplifir þessar myndir, rétt eins og Kristur í eyðimörkinni og Búdda undir bódítrénu. Fyrir þann sem ekkert botnar í þessu og nýtur engrar leiðsagnar getur þetta komið sem algert áfall og veldur fordæmingu á hugleiðslunni eins og hún væri af hinu illa, jafnvel þótt hann á eftir verði betri maður. Er myndbirting hins illa oftast tilkynning frá hinu æðra sjálfi, eða sálinni, eða Guði, um að nú sé filterinn á brott úr lífi einstaklingsins og er hún því góðs viti.
Myndin hægra megin er af rafeinda-lífleiðréttandi tæki, sem ekki er það sama og rafloststæki hinna svokölluðu geðlækninga. Samkvæmt QF-kenningunni er það algjör geðveiki að telja raflost í gegnum stúku og hástúku heilans sem lækningu, en raflostið gerir ekki annað en að nauðga eða kreista boðefni úr heiladinglinum. Í hvert skipti sem það er gert er miklum fjölda tauga eytt og verður sjúklingurinn enn verr settur á eftir, en þetta er enn ein hörmungin í kringum lækningar geðlæknavísindanna. Aftur á móti eru tilraunir með rafeinda-lífleiðréttandi-skammtaferlistæki gerðar til að færa til forrit í heilanum og hefur einhver árangur náðst með einstaklinga eftir heilablóðfall til þess að gefa þeim hreyfigetu á ný. Hins vegar hefur okkur ekki tekist að finna neinar upplýsingar um árangur af slíkri filter-fjarlægjandi lífleiðréttingar-skammtaaðferðatækni.

Í kaflanum hér á undan var fjallað um það hvernig hin ráðandi taugaboðefnaframleiðsla hemlunar í heilanum í innraðakyrnum DNA-sameinda rúm-VIÐ-hvelsins er trufluð af áhrifum neyslu-filtersins, og er hún sýnd myndrænt í Skyggnu #4 - 13. Skyggna #5 - 16 sýnir aftur á móti að í hinu ráðandi boðefnakerfi heilans hefur filterinn verið fluttur yfir í hina hlið heilans, í útraðakyrnur DNA-sameinda efnis-ÉG-hvelsins, en þar eiga þær heima og valda ekki neinni ójafnvægisröskun í raunveruleikaskynjun og viðbragðastarfsemi hans. Þetta hefur átt sér stað fyrir atbeina þeirra áhrifa sem koma fram við stöðvun neyslunnar, fundarsókn og 12 spora vinnu þá sem Samtök óvirkra alkóhólista bjóða upp á. Það er í raun fyrir þá tilstuðlan að annaðhvort Jamais vu eða Déjà vu taugamiðstöðvarnar settu hið filter-fjarlægjandi lífleiðréttingar-skammtaferli í gang, en hér getur ráðið úrslitum að innifalin í iðkuninni sé kyrjun og hugleiðsla samkvæmt ellefta sporinu, en hún kann að skipta sköpum um árangur þessarar viðleitni.
Hér þýðir að sjálfsögðu fjarlægður filter – lestir og brestir – úr ráðandi starfsforriti innraðanna gjörbreyttan persónuleika og viðhorf, en fremur öllu öðru þýðir hann vitundarsamband við Guð eða æðri mátt og þar með endurreista framleiðslu taugahemla, aðallega endorfína, sem svo aftur hrinda framleiðslu annarra slíkra taugaboðefna af stað. Þessu lýsa þeir sem hafa upplifað þetta með því að segja að þeir séu farnir að neyta úr áður óþekktri innri uppsprettu, og þýðir það svo aftur að alkóhólistinn eða neytandinn er ekki lengur þvingaður af hemlaskorti til að fara að neyta svindlboðefna.
Staðan hvað við kemur filternum í stuðningskerfi því sem er í innraðakyrnum DNA-sameinda efnis-ÉG-hvelsins er sú að hann er enn til staðar á röngum stað, og þýðir það að einstaklingurinn er áframhaldandi með skerta framleiðslugetu á taugahemlum í þessu heilahveli. Þessi truflun verður ekki fjarlægð með neinu filtereyðandi sjálflæknandi lífleiðréttingar-skammtaferli, svo okkur sé kunnugt um. Að viðbættum mögulegum varanlegum taugaskaða, sem tengist framleiðslu á taugahemlum í þessu hveli, þýðir þetta ástand að einstaklingurinn kemur ekki til með að geta haldið sér frá neyslu svindlboðefna á þeim forsendum að hugsa einungis með forritum útraðakyrna DNA-sameinda efnis-ÉG-hvelsins. Þýðir það enn fremur að hann mun ekki upplifa heilbrigða lífsfyllingu og getur átt von á hvers kyns vanheilsu í tengslum við þann endorfínskort sem því fylgir.
Vilji einstaklingurinn tryggja sér hamingjuríkt og fullnægt líf án neyslu verður hann að lifa lífi sínu þannig að forritin í innraðakyrnum DNA-sameinda rúm-VIÐ-hvelsins séu virk í hugsun hans. Þetta er nákvæmlega það andlega og kærleiksríka hugarfar sem AA-prógrammið leggur til, en afneitun þessarar staðreyndar getur auðveldlega leitt til eymdar, vesaldar, geðveiki og ótímabærs dauða.

Hér höfum við svo að endingu yfirlit yfir vitundarvirkni hins fullkomlega endurhæfða, en þar eru að sjálfsögðu allir þættir boðefnaþríhyrningsins í jafnvægi. Sýnir miðmyndin hin ráðandi forrit heilans sem eru frjáls við filter, en í bakgrunnsforriti innrauða efnishvelsins situr enn filterinn sem ekki er sýndur, en hann mun ógna hinum fyrrverandi boðefnasvindlara það sem hann á eftir ólifað. Þetta þýðir samt að heilinn getur framkallað örvandi og hemlandi taugaboðefni til að skapa sveiflulaust vitundarjafnvægi, en það er tjáð með brennipunkti vitundarkúlunnar í stóru heilabrúnni. Er þetta grundað í rafsegulfræði til vitundarinnar sem einnig er í jafnvægi. Lárétt þverskurðarmynd höfuðs til vinstri tjáir heilbrigða og óklofna vitundarbylgju, en hægri myndin sýnir að INN- og ÚT-hlutar hennar eru í jafnvægi. Þetta er svo einstaklingurinn sem er kominn með vitundarlíf sitt inn í það sem margir gamlir reynsluboltar í bandarísku samtökunum kalla The Bill W. Utopia, eða framtíðar-óskaland Bill W.; og er það tilvitnun í niðurlagsorð reynslusögu Williams Griffiths Wilsons í AA-bókinni. Það er einmitt svona sem við mennirnir eigum allir að vera, samkvæmt QF-kenningunni og lögmálum lífsins, og það er svona sem við værum ef boðefnasvindlið hefði ekki komið til.
Hér líkur þá fjórða og síðasta hluta fyrirlestrarins, sem gefið hefur okkur einfalt grundvallarinnsæi inn í það hvernig batinn frá boðefnasvindlinu er framkallaður í gegnum aðferðafræði Samtaka óvirkra alkóhólista, sem veitir aðgang að sköpunarraunveruleikanum, eða æðri mætti, eða Guði, sem er eini mátturinn sem sigrað getur filterinn í innraðakyrnum alkóhólistans. Við höfum jafnframt fengið að sjá hverjar varanlegar breytingar hafa komið fram á heilanum og hvaða afleiðingar þær hafa fyrir framtíðarlíf okkar.
Við snúum okkur því að lokaorðum fyrirlestrarins, sem eru:
06: Lokaorð. Niðurlag og umræða um fyrirlesturinn.
Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar varðandi efni það sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum, sem mun koma þeim áfram til föðurhúsanna. Hér eru þau netföng sem hægt er að senda skilaboðin á: