PowerPoint-fyrirlesturinn
ALKAÞRAS
Fyrirlestur í sex þáttum sem fjallar um skammtafræðilegar og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi lyfjum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: „Alkóhólismi“, „mengun mannsheilans“, „boðefnasvindl mannsins“. Hér kemur fram í fyrsta skipti í mannkynssögunni skýring á virkni taugaánetjunarsjúkdóma og batalausn þeirra, en fyrirlesturinn samanstendur af:
UMRÆÐA UM FYRIRLESTURINN.
Bullvefurinn athyglisverði!
PEACE-hópurinn fagnar því að fá athugasemdir eða ábendingar viðkomandi efni því sem birtist á THE PEACE FILES vefnum, neikvæðar eða jákvæðar. Hér gefur að líta viðbrögð okkar við vefskrifum Orra Harðarsonar — ásamt viðbrögðum hans — en þar sem hann býður ekki upp á skýringar til leiðréttingar vefs okkar, einungis einhliða yfirlýsingar án nokkurs rökstuðnings eða skýringa, lítum við ekki á umfjöllun hans sem athugasemdir eða ábendingar, heldur sem róg.
Fram: Paul John [maisto: pauljohn @ centrum. is] Sent: 5. júlí 2006 09:56 To:'Orri Harðarson Subject: Vítisvefurinn Athyglisverði – Fram the Master of Disaster, at the Temple of Doom.

Orri Harðarson
121272-3349
Leynisbraut 26, eða Garðabraut 2a, 300 Akranesi.
Símar: 464-2326/867-6210
Hér á eftir — og jafnframt sem viðhengi — gefur að líta uppkast okkar að viðbótarvefsíðu við ALKAÞRAS-fyrirlestur okkar á netinu og er það send til þín í von um athugasemdir sem þú kynnir að hafa viðkomandi efninu. Verður að finna á vefnum tengingar inn á þá tvo þætti vefs þíns sem hér koma fram, en vefurinn verður settur inn á netið formlega – við hátíðlega athöfn – þann 07. 07. 06, til minningar um þá landa hins mikla mannvinar, prófessors Richard Dawkins, er létu lífið fyrir hendi íslamskra jihad-trúargegla á þessum sama degi fyrir ári. Munum við nota tækifærið til að senda hinum ofursnjalla blaðamanni Suðurlandsundirlendis, Bjarna Harðarsyni (sem nú er orðinn Dawkins Íslands), eintak af vefnum, sem hann hefur enn ekki séð. Erum við fullvissir um að hann muni bregðast vel við og skammast allrækilega út af honum og spara ekki kjarnyrtar svívirðingar, þar sem innihald vefsins samanstendur af sefjun og blygðunarlausri lygi og við sem að honum stöndum erum lifandi í fölskum heimi og hættulegir umhverfi okkar (það var hins vegar allt í lagi með okkur á meðan við vorum að fremja ofbeldisverk, glæpi, ljúgandi, svíkjandi, stelandi og draugfullir að aka bifreiðum).
0
Hjartkæri Orri! Hinn frábæri sjálfhverfi og stórskemmtilegi sjálfslofsvefur þinn (ég, um mig, frá mér, til mín) og athugasemdir þínar á honum um ALKAÞRAS-vef okkar frá því í febrúar 2005 varð nú – með lofsöng þínum um „blinda úrsmiðinn“, líffræðiprófessorinn Richard Dawkins – loksins að kveikju að gagnlegum viðbrögðum af okkar hálfu. Eru viðbrögðin til komin fyrir þær sakir að hér sjáum við möguleika á því að koma af stað umræðu um innihald hins athyglisverða, vitlausa og stórkostlega hrærigrautar af bulli — en jafnframt skemmtilega — vefs okkar, ALKAÞRAS. Okkur finnst hins vegar vefurinn okkar ekki skemmtilegur, heldur fremur sorglegur, þar sem við erum neydd til þess að grípa fram fyrir hendur gervivísinda sál-, geð- og taugalíffræðinnar, sem ekki hefur tekist, og er ekki að takast, að leysa gátuna um mannsheilann og sjúkdóma þá sem á hann herja. Er þar um sjúkleika mannkynsins að ræða.
Með tilkomu vefsíðusnilli þinnar er nú komin upp sú staða að gagnlegt getur orðið fyrir framgang ALKAÞRAS-fyrirlestrarins að setja upp sérstaka síðu þar sem fram kemur gagnrýni á innihald vefsins í formi aðsendra tölvupósta, og er hér hugmyndin að hafa ATHYGLISVERÐUR VEFUR og DÁSAMLEGUR DAWKINS efnið af vef þínum sem kveikjuna að þessu. Með því vonumst við svo til að fá aðsendar lítilsvirðandi skammir og svívirðingar, sem og annað alkóhólíseraði góðgæti.
Hér finnst okkur lýsing þín á innihaldi ALKAÞRAS-vefsins einkar góð og eiga hugtökin sem þú notar einkar vel við, sérstaklega þar sem verið er að fjalla um sjúkdóm okkar, sem vissulega er stórkostlegur hrærigrautur af bulli. Hins vegar tekur það okkur sárt að þér skuli ekki hafa tekist að ná árangri í viðleitni þinni til að öðlast frelsi frá áfengis- og eiturlyfjaneyslu þinni, þrátt fyrir ítrekaðar meðferðartilraunir undanfarin 12 ár, og er það nú von okkar að eitthvað verði úr nýjustu viðleitni þinni til að halda þig frá neyslunni og að þér megi takast að verða edrú í andlegri vakningu (trúarstöðin fari að starfa). Það er einmitt svona einstaklingum, eins og þér, sem ALKAÞRAS-vefurinn er tileinkaður; einstaklingum sem þjást af ómeðhöndluðum alkóhólisma og komast ekki út úr vítahring sjúkdómsins vegna þess að þeir ekki bara vita allt, en skilja ekki neitt, heldur rugla saman trú og trúarbrögðum.
Er hugmynd þín um að fá alvöru vísindamenn til að fara í gegnum þetta, lið fyrir lið (ALKAÞRASIÐ), og tæta í sig rangfærslurnar einkar frábær. Liggur hér þegar ljóst fyrir að hinn heimskunni og snjalli trúleysingi og darwinismi-líffræðingur, Richard Dawkins, væri betur til þess fallinn en nánast nokkur annar á þessari plánetu, þar sem ALKAÞRAS-fyrirlesturinn fjallar einmitt um aðaláhugamál hans í formi þeirrar vísindagreinar sem er fag hans. Væri okkur mikill fengur í því ef þú nú – í samræmi við uppástungu þína – skrifaðir prófessor Dawkins og bentir honum á hinn allruglaða ALCATRAS-vef, sem er enska útgáfan af ALKAÞRASI. Hér er Dawkins sérstaklega hæfur til uppbyggjandi gagnrýni á þetta efni þar sem hann — vísindamaðurinn — er fullkomlega ófær um að aðskilja trú og trúarbrögð, en þetta er jafnframt augljóslega eitt af þeim vandamálum þínum sem komið hafa í veg fyrir að þér hafi tekist að ná varanlegum árangri í að stöðva boðefnasvindl þitt og hætta að framkalla þær starfrænu truflanir sem því fylgja.
Hér höfðar líka hinn stórkostlega snjalli (brilliant) BBC-CHANNEL 4 þáttur Dawkins – „RÓT ALLS ILLS?“ (<Em> ROOT OF ALL EVIL? Em) sérstaklega til efnis ALKAÞRAS-vefsins, þar sem við erum sammála honum um að með trúarbrögðunum hafi mannkynið verið, og sé enn, á rangri braut. Í þættinum þreytist Dawkins ekki á því að spyrja og óskapast út af því hvers vegna mannkynið sé með þetta trúarbragðabull sem framkallar glundroða og morð meðal manna. Dawkins getur einungis fjallað um hvernig þetta vandamál er, en ekki komið með neinar hvers vegna skýringar og er því á sama báti og smákrakkarnir með sínar af því bara skýringar. Hér gerir Dawkins því vel að setja spurningarmerki við titil þáttarins, en í því er jafnframt fólgin mótsögn á milli skoðana Dawkins og okkar hvað við kemur því hver sé rót alls ills í mannkyninu, og teljum við okkur vera með svarið við spurningu þessari. Er slík yfirlýsing að sjálfsögðu augljóslega háþróað og hreinræktað stórmennskubrjálæði (grandiosity insanity).
Með þessu stórmennskubrjálæði viljum við halda því fram að rót alls ills í mannkyninu sé það sem við skilgreinum sem boðefnasvindls-mengun mannsheilans, sem er neysla mannsins á áfengi og hvers kyns öðrum hugbreytandi efnum, löglegum sem ólöglegum. Er mjög dapurt til þess að vita að hinn mikli fágaði vínkunnáttumaður (wine connoisseur) og snjalli líffræðingur skuli ekki koma auga á þetta, en hvernig má slíkt vera? Hér vantar Dawkins — eins og alla aðra líffræðinga — innsæi í þær starfrænu truflanir sem hin ranga taugaboðefna-endurupptaka og ranga móttökutauga-umpólun í taugamótum framkalla við neyslu ónáttúrulegra efna sem koma í stað hinna náttúrulegu taugaboðefna. Afleiðingar þessa eru svo hvort tveggja, röng og skert starfsemi trúar- og samúðarstöðvar (spegilnórun, mirror neurons) mannsheilans. Hér er fyrst og fremst um að ræða skort á innsæi í það hvernig þetta ruglar fyrst svið það í heilanum sem er rót Guðshugmynda mannanna og breytir starfsemi þess. Þessar starfrænu truflanir eru það taugalíffræðifyrirbrigði sem við köllum filterinn (lestir og brestir) og jafnframt það sem í andlegu líkingamáli trúarbragðanna er kallað djöfullinn, en hér koma okkur í hug nokkrar bilaðar spurningar eins og: Hvað í andskotanum gekk að Newton með allar Guðs pælingarnar, þegar hann vildi samt ekki vera í biskupakirkjunni og sótti hina bönnuðu unitarakirkju? Hvað í ósköpunum gekk að Einstein sem fékk andlega reynslu 18 ára, varð trúaður og sagði sig úr gyðingdóminum? Hvers vegna í andskotanum er Dawkins óður í að útrýma Guði en ekki andskotanum? Svarið við þessum spurningum er fólgið í skilningsmun á hugtökunum trú og trúarbrögð, en frekari skýring hvað við kemur Dawkins kann að vera falin í því að hann lét sig hafa það hér um árið að fara í rannsókn á trúarsviði heila síns hjá prófessor Michael Persinger við Laurentian-háskólann í Ottawa í Kanada, og sýndi rannsóknin nánast engin viðbrögð í heila hans. Ekki að furða þótt maðurinn sé algjör trúarbragðaleysingi, jafnframt andlega flatur, en spurningin er hér: Hvernig í ósköpunum hefur hann náð sér í svona flottan filter í þetta svæði heila síns? Nú er vitað að menn öðlast filter þennan í gegnum erfðir (í gegnum THE SELFISH GENE) samkvæmt mendelsku erfðalögmálum, eða og öðlast filterinn í uppeldisumhverfi sínu, eða og í gegnum eigið boðefnasvindl. Var Dawkins mögulega að kanna lyfjaskáp sinn í sjónvarpsþættinum, eða bara að skoða steingerfingaskúffurnar sínar? Vakna hér hjá okkur grunsemdir um að hann sé ekki bara í léttvíns- og viskídrykkju einnig saman og mögulega geti ALKAÞRASIÐ hér komið einhverju góðu til leiðar hvað við kemur boðefnasvindls-heilamengunarneyslu hans, og væri það ekki amalegt tólfta spor í landi þar sem allt er að verða vitlaust í lotudrykkju (binge drinking) og eiturlyfjaneyslu og enginn botnar neitt í neinu og stjórnvöld ráða ekki við eitt né neitt.
Verðum við hér minnug þess að sá „prófessor“ sem skrifaði sálfræði tuttugustu aldarinnar, Sigmundur Fraud, var konunglegur boðefnasvindlari sem notaði kókaín frá 1890 til 1905, síðan hvítvín, koníak og kampavín frá 1905 til 1923, en þá hafði hann náð sér í krabbamein út á allt saman og bætti því við morfíninu, en það varð þegar Guð hans og því skrifaði hann hið mikla snilldarverk sitt, „BLEKKING TRÚARINNAR“ (ZUKUNFT EINER ILLUSION), þar sem hann reif Guðshugmyndir mannanna í tætlur. Hér verðum við meðvituð um hina miklu mótsögn sem fólgin er í því að við erum að banna boðefnasvindlið og refsa áfengis- og eiturlyfjaneytendum og segjum þá ruglaða, geggjaða og vitlausa, á sama tíma og við lofsyngjum sálfræði þessa stóreiturlyfjaneytanda þegar hann skrifar greinar þær sem lýsa hugarástandi áfengis- og dópmengaðs heila.
Af því sem hér hefur nú komið fram er augljóst að mikill fengur væri í því að fá prófessor Dawkins til að skammast út af ALCATRAS-fyrirlestrinum, en þar sem Dawkins heldur ekki uppi heimasíðu og tölvupóstfang hans er ekki að finna á netinu, höfum við hér tölvupósttengingu við Dawkins í gegnum John Catalano, sem kemur boðum áfram til hans.
John Catalano catalj @ spacelab. net>
Þetta er gert þér til hægðarauka skyldir þú hafa manndóm til að láta framkvæmd koma í stað blaðurs þíns um það hve gott væri að fá alvöru vísindamenn til að fara í gegnum þetta (ALKAÞRASIÐ), lið fyrir lið. Væri okkur með slíku mikill greiði gerður og þægð í því jafnvel þótt um einhvern minna þekktan líffræðing væri að ræða, eins og til dæmis einhvern óþekktan Íslending. Erum við þó meðvitaðir um að hér kann vandamálið að vera — eins og vel er kunnugt — að virkir drykkjusjúklingar og eiturlyfjaneytendur, sem og þeir sem ekki ná andlegri vakningu í viðleitninni til að verða edrú, gera meira af því að tala um það hvað gera þurfi og hvað þeir ætli að gera, fremur en að framkvæma það.
Að lokum viljum við svo benda þér á að úr því að hinn vitlausi bull-hrærigrautur og þvættingur ALKAÞRAS-fyrirlestrarins er þér svona mikil skemmtun, þá býður enska index-síðan okkar upp á tífalt meira rugl, bull og þvætting í formi UNIFICATION-bókarinnar, Litla bókfellið (THE LITTLE SCROLL), sem er eðlisfræðiþvættingur sá sem er grunnurinn að ALKAÞRAS-bullsteypunni. Einnig er að finna á íslensku index-síðunni fleira góðgæti eins og þvættingsfyrirlesturinn um hina snilldarlegu uppgötvun prófessors Dean Hamer á Guðs-geninu.
Í von um að þú megir lafa í þurrkinum og jafnframt senda okkur skjót og hamslaus viðbrögð við skrifum þessum hvað þér við kemur, síðan eitthvað seinna tilkynningu um að Dawkins sé að fara í gang með skammirnar, bíð ég áfram afar,
Virðingarfullur, Páll Jóhann II, Master of Disaster.
Knight of the Light — turned — Prince of Darkness.
Fram: Orri [mailto: orri @ orri. org] Sent: 5. júlí 2006 11:57 To: Paul John Subject: Er: Vítisvefurinn Athyglisverði – Fram the Master of Disaster, at the Temple of Doom.
**************************************************************************************************
Sæll. Einkennilegt að fá nú viðbrögð við bloggi sem skrifað var fyrir hálfu öðru ári.
Þú skrifar m.a.: „Hin frábæri ego-centríski og stórskemmtilegi sjálfslofs-vefur þinn (ég, um mig, frá mér, til mín)“
Vitanlega einkennast bloggsíður alltaf af einhvers konar sjálfhverfu, enda er um nokkurs konar vefdagbók að ræða. Það liggur sem sé í eðli fyrirbærisins. Hins vegar held ég að sjálfslofið sé ekkert meira en lof á öðrum og sjálfsgagnrýni er vissulega til staðar líka. Annars er mér slétt sama hvað mér ókunnugu fólki finnst um vefdagbók mína.
Ég óska þér annars góðs gengis með þennan vef þinn og frábið mér jafnframt vangaveltur þínar um mína edrúgöngu. Veit ekki til þess að við höfum nokkurn tímann talað saman og finnst ótrúlegt að þú hafir hugmynd um hvernig mér vegnar í dag. Sé reyndar ekki að það komi þér yfirleitt við. Hugsaðu um þinn eigin bata.
Ég nenni annars ekki að standa í alkaþrasi. Þegar ég skrifaði þessa gömlu færslu hafði ég gaman af alls kyns vangaveltum og rökræðum um alkóhólisma, en ég er löngu hættur að nenna því.
Ég samgleðst bara öllum sem eru edrú, sama hvernig þeir fara að því.
Virðingarfyllst,
Orri.
Bull- og rangfærsluvefurinn athyglisverði.
Fram: Paul John [maisto: pauljohn @ centrum. is] Sent: 6. júlí 2006 20:45 To:'Orri Harðarson Subject: Bull- og Rangfærsluvefurinn Athyglisverði.
Hjartkæri Orri.

Réttlætingar þínar á egóisma-ranti því sem birtist á vef þínum – „Það liggur sem sé í eðli fyrirbærisins“–eru í takt við hið virka alkóhól- og eiturlyfjahugarfar þitt og þetta því ekkert annað en alkóhólíseraðar egó-réttlætingar sem horfa á bullið í öðrum og réttlæta sjálfan sig með því. Er ekki að finna neitt á vef þínum sem talist getur einlæg sjálfsgagnrýni og því sú yfirlýsing þín sjálfsgagnrýni er vissulega til staðar ekkert annað en ósannindi af því tagi sem slíkt hugarfar framkallar. Við þetta bætist svo „Annars er mér slétt sama hvað mér ókunnugu fólki finnst um vefdagbók mína“ sem er ekki í samræmi við réttlætingar þínar á vefbullinu og jafnframt í takt við það að þú telur þig útvalinn til að rægja vefi þeirra sem eru að ná árangri í edrúmennskunni.
Þegar svo þú segir „Ég…. frábið mér jafnframt vangaveltur þínar um mína edrúgöngu“ þá verður hins vegar ljóst að þú ert ekki meðvitaður um að þú, með rógi þínum um ALKAÞRAS-fyrirlesturinn, ert að stuðla að því að koma í veg fyrir að aðrir alkóhól- og eiturlyfjaneytendur sem eiga í erfiðleikum með að ná batanum nýti sér upplýsingar þær sem þar koma fram. Sem sagt, enn ein birtingarmynd hins sjúklega egó-maníska hugarfars þíns og er hér fyllilega þörf á að benda þér á hið raunsanna andlega ástand þitt; einstaklings sem telur sig geta skipt sér af velferð og upplýsingum annarra, en telur jafnframt að öðrum komi ekki við hans eigin ástand.
Meðan þú í hroka þínum gefur þér leyfi til að rægja efni sem gæti mögulega hjálpað öðrum sem eins illa eru staddir og þú — eftir 12 ára árangurslausa viðleitni til að vera óvímaður — þá munum við láta það koma okkur við, og jafnframt skipta okkur af því hvernig þér vegnar í dag. Meðan þú í hroka þínum gefur þér leyfi til að rægja vefsíðuefni sem þú hvorki skilur né hefur þekkingu á, og bullar svo um hvað gera þurfi til að gagnrýna það, án þess að vera tilbúinn að setja gjörðir þar sem þetta egó-maníska bull þitt segir til um hvað gera þurfi, þá munt þú og þitt hugarfar koma okkur við. Með öðrum orðum, „Put your money where your mouth ís!“ og hættu að réttlæta þig.
Af rógi þínum um ALKAÞRAS-vefinn er ljóst að um enn eina egó-rant-lygi er að ræða af þinni hálfu þegar þú segir: Ég samgleðst bara öllum sem eru edrú, sama hvernig þeir fara að því. Þú hvorki samgleðst öðrum né er þér sama hvernig þeir fara að því að vera edrú, enda hlakkar í þér yfir skömmum um hina svokölluðu „talibana“. Það er því augljóst að þú ert enn illa blekktur eftir eiturlyfjaneyslu þína og hefur ekki komið neins staðar nálægt leiðréttingarkerfi því sem eitt getur komið þér í lag. Er af þessu öllu saman ljóst að enn vantar margar blaðsíður í vitundarlíf þitt og að hinir sjálfspeglandi eiginleikar þess eru ekki vaknaðir. Væri þér því hollast að láta talibanana tukta þig til og gera úr þér túlipana í andlegri vakningu.
Á morgun, þann 7.7. 6, munu skrif og tölvupóstsamskipti okkar verða sett inn á netið og upplýsingar um þennan vef sendar á alla póstlista okkar. Í von um að þú munir komast út úr „sjálfsáliti“ (supergóinu) sem er að rugla þig, svo þú – orðinn 33 ára – megir fara að þroskast. Nú ef þú hyggst ekkert gera þér og framkomu þinni til leiðréttingar og þú munir ekki fá vísindalega gagnrýni á vefinn, þá líkur hér með að öðru leyti þessari orrahríð.
Með hjartans kveðjum, þinn auðmjúkur þjónn,
Páll Jóhann II.
Fram: Orri [mailto: orri @ orri. org] Sent: 7. júlí 2006 00:38 To: Paul John Subject: Er: Bull- og Rangfærsluvefurinn Athyglisverði. * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Svona persónulegt skítkast er ekki svara vert.
Ég bið þig vinsamlegast um að finna eitthvað uppbyggilegra við tíma þinn að gera en að vega að og velta þér upp úr minni persónu. Sjálfur hef ég látið þig persónulega alveg í friði.
Ég frábið mér jafnframt því að þú birtir prívat tölvuskeyti okkar á milli á einhverjum vef.
Fjörgömul vísan mín í Alkaþrasið var á engan hátt persónuleg og fjallaði ég ekki um nokkra einustu persónu í því samhengi. Annars er svo langt síðan að ég vísaði á Þrasið, að mér þykir með ólíkindum að nú í júlí 2006 skuli það vekja upp svona heiftarleg viðbrögð hjá þér.
En þú ert aldeilis búinn að blása út, með tveimur síðustu bréfum. Vonandi líður þér betur núna.
Mér þykir bara leitt að þú skyldir hafa farið út í persónulegt skítkast. Ef þú hefðir ekki gert það, hefði ég hugsanlega nennt að rökræða við þig.
Rökræddu við einhverja sem nenna þér.
Bið þig vel að lifa og hér með mun ég ekki svara fleiri bréfum frá þér.
Orri.
Fram: Paul John [maisto: pauljohn @ centrum. is] Sent: 7. júlí 2006 10:34 To:'Orri Harðarson Subject: Orrahríðin er komin inn á netið!
Hjartkæri Orri.
Orrahríðin er komin inn á netið og er slóðin hér:
http://www. peace-files. com/ALKATHRAS/00_G-Umraedan. html
En of story. En of orrahríðar story!
Þinn auðmjúkur þjónn,
Páll Jóhann II

„Minnstu þess, maður, að þú hefur fæðst einn, og að þú munt deyja einn; og að eini vinurinn sem þú munt eignast á ferð þinni á milli þessara tveggja áfanga er sá sem elskar þig nægilega til að segja þér sannleikann um sjálfan þig. Spurningin er hvort þú sért nógu þroskaður til að hlýða á sannleikann og hagnýta þér hann á ferðalaginu frá eilífð til eilífðar.
Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar viðkomandi efni því sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum, sem mun koma þeim áfram til föðurhúsanna. Hér eru þau netföng sem hægt er að senda skilaboðin á: