Skrá 07

Er Guð í genum okkar?

ICELANDIC_FILES/QF-R-08/00_C_TAF-Sphynx-Logo.gif

QF-ritgerð 08!

Er GUÐ í genamengi okkar?

Er um það að ræða að í genamengi okkar sé fyrir hendi eitt eða fleiri gen, eða erfðalóðar, sem framkalla trúarþörf, jafnt sem andlegar upplifanir og eiginleika mannsins?

Þessi mappa kynnir hluta af röð ritgerða sem lýsa í sem mestri einfeldni mögulegri, grundvallarafleiðingum niðurstaða QF-kenningarinnar, sem kynnt var árið 2002 með útgáfu bókarinnar THE LITTLE SCROLL og síðar á PEACE-Files vefsíðunum. QF-kenningin er heildstæð sameiningarkenning (Complete Unified Theory) í eðlisfræði sem inniheldur áhorfandann, líf og meðvitund og er hún því skilgreind sem allsherjarkenning (Theory of Everything).


QF-ritgerðirnar og efni þeirra:

QF-L — 00

Inngangar að QF-bréfunum

QF-L — 01

Önnur stærðfræðileg lausn QF-kenningarinnar

QF-L — 02

Endalok kennilegrar eðlisfræði

QF-L — 03

Samsíða alheimur og takmörk stærðfræðinnar

QF-L — 04

BBC-gátan um: Guð í heilanum

QF-L — 05

Gátur forskynjunar (déjá vu) til ráðgátna einhverfu

QF-L — 06

Tvær gerðir rúmmálstaps í dreka

QF-L — 07

Eftir greinina um genamengið – eftir tvígorminn

QF-L — 08

QF-kenningin og trúarsvið mannsheilans

QF-L — 09

QF-kenningin og samkendarsvið mannsheilans

QF-L — 10

QF-kenningin og sameining trúar og vísinda

QF-L — 11

EPR-þverstæður — setning Bells - Aspect-tilraunin

QF-L — 12

QF-kenningin og fyrirbæri tvíraufatilraunarinnar

QF-L — 13

Mannmiðjulögmálið (anthropic principle) og QF-kenningin

QF-L — 14

Leitin að alkóhólisma og Guði í genum okkar

QF-L — 15

Spurningar um allsherjarkenningu sem hrjá eðlisfræðina

QF-L — 16

Þyngdaraflsgátur Richards Feynman

QF-L — 17

Gátan um víxlverkunarfastann

QF-L — 18

Viðtal við hinn dularfulla herra 666

QF-L — 19

Gátan um þrjá grundvallarriti náttúrunnar

QF-L — 20

Eftirmálinn

Til inngangssíðu íslensku útgáfunnar


Áttunda QF-ritgerðin:

Ritgerð þessi var upphaflega sett fram sem fyrirlestur þann 29. apríl 2005 og nú síðast uppfærð þann 4. desember 2007.

Nýjasta staða erfðavísindanna varðandi spurninguna: ER GUÐ Í GENUM OKKAR?

Á meðan vísindin hafa ekki leyst ráðgátuna um vitundina (consciousness), eru allar yfirlýsingar um að einhver einn erfðalóði genamengisins (genome) ráði ákveðnu hugarfari mjög vafasamar.

Eftirfarandi efni er þríþættur fyrirlestur sem fluttur var í Guðspekifélaginu þann 29. apríl 2005. Tilefni fyrirlestrarins var leiðaraskrif úr TIME-vikuritinu frá 29. nóvember 2004, en kveikjan að greininni var nýútkomin bók sameindalíffræðingsins (molecular biology) dr. Dean Hamer, „GUÐS-ERFÐAKÓÐINN; HVERNIG TRÚ ER FORRITUÐ Í GENAMENGI OKKAR“ eða „THE GÓÐ GENE; HOW FAITH ÍS HARDWIRED INTO OUR GENES“. Var greinin auglýst á forsíðu tímaritsins. Efni fyrirlestrarins var tekið saman og flutt af Páli J. Einarssyni. Fyrsti hluti fyrirlestrarins er stutt ágrip af þróunarsögu genamengisrannsókna sameindalíffræðinnar á síðari hluta tuttugustu aldarinnar, með nokkrum útskýringum á helstu hugtökum sem notuð eru í þeim. Annar hlutinn er svo þýdd og stytt grein TIME-vikuritsins, en hún er skrifuð af Jeffrey Kluger. Þriðji hluti fyrirlestrarins er stuttur samanburður á stöðu sameindalíffræðinnar ásamt niðurstöðum dr. Hamers varðandi spurninguna um tilvist einhvers GUÐS-gens, séðum í ljósi QF-kenningarinnar. Samanburður þessi skoðar þær niðurstöður sem nú er að finna á skurðaregg raunvísindanna varðandi DNA-sameindina og starfsemi hennar og niðurstöðum þeim sem fram koma í QF-kenningunni á þessu sviði. QF-kenningin er birt í bókinni THE LITTLE SCROLL og í PEACE-skránum. QF-kenningin er heildstæð sameiningarkenning í eðlisfræði, eða það sem heitir á ensku: Complete Unification Theory inn physics. Er hér um að ræða það sem kallað er „samsetningarkenning“, eða hugmyndafræði (paradigm), og er hún sú eina slíka sem okkur er kunnugt um sem inniheldur áhorfandann (the observer), lífið og vitund mannsheilans og er hún því réttilega skilgreind sem:

„Allsherjarkenning“ eða „The Theory of Everything“

Því er hér haldið fram að QF-kenningin hafi leyst gátuna um hina andlegu og trúarlegu eiginleika mannsins og samkvæmt þeirri niðurstöðu er spurningin um GUÐS-genið erfðakóðann og spurningin um ALKÓHÓLISMA-genið erfðakóðann sama spurningin. Samkvæmt kenningunni er þessi spurning og svarið við henni jafnframt spurningin og svarið um alla hina svokölluðu tölfræðilegu sjúkdóma mannsins, þar á meðal krabbameinið.

Leiðaragrein TIME-vikuritsins þann 29. nóvember 2004.

us tO. ist! say yes PLUS:. How spiritual are
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/01_TIME-cover.gif

Nýútkomin bók líffræðingsins, dr. Sean Hamer, „Guðs-erfðakóðinn; Hvernig trú er forrituð í genamengi okkar“ eða „The God Gene; How faith ís hardwired into our genes“ var til umfjöllunar í grein TIME-vikuritsins þann 29. nóvember 2004. Greinin var auglýst á forsíðu blaðsins. Uppgötvun sú sem fjallað er um í grein þessari er hér séð af fyrirlesaranum sem mjög vafasamt framlag til skilnings okkar á hugsunar- og vitundarvirkni mannsheilans. Kemur fram í greininni að hann er ekki einn um þessa skoðun. Sú hugmynd að einhver einn boðefnakóði eða gen búi að baki hinum andlegu upplifunum og trúartilfinningum mannsins er hér séð sem afar langsótt. Boðefnin eru hvorki hugsanir okkar né uppspretta þeirra. Boðefnin eru afleiðingar hugsananna og stilla raunveruleikajafnvægi heilans í takt við þær, en við andlegar upplifanir framkallast mikið af boðefnum.

Hér á eftir skoðum við þróunina í líffræðinni ásamt umræddri blaðagrein og reynum að skýra hvað búi að baki ágreiningnum.


VIÐ BYRJUM Á AÐ SKOÐA STUTTLEGA HVAÐ MENN ERU AÐ TALA UM ÞEGAR ORÐIN GENAMENGI EÐA ERFÐAKÓÐI ERU NOTUÐ. ÞETTA ER JAFNFRAMT STUTT ÁGRIP AF SÖGU ERFÐAFRÆÐINNAR Á TUTTUGUSTU ÖLDINNI OG KOMA ÞAR FRAM HINIR NÝJU LEYNDARDÓMAR GENAMENGISINS.

Uppgötvun á byggingu DNA-sameindarinnar.

•

=) Rosalind Franklin. Sir Francis Crick’
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/02_A-DNA-Sagan.gif

Árið 1943 fann breski vísindamaðurinn dr. William Astbury aðferð til að framkalla fyrstu röntgenmyndirnar af DNA-sameindinni. Tíu árum síðar framkölluðu þau Rosalind Franklin og Maurice Wilkins með aðferð þessari þær röntgenmyndir sem þeir Francis Crick og James Watson notuðu til að ráða gátuna um DNA-sameindina. Fyrir uppgötvun þessa fengu þeir Crick, Watson og Wilkins Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- eða læknisfræði árið 1962. Rosalind Franklin var þá látin af völdum geislunar sem hún varð fyrir við röntgenmyndatökuna. Crick og Watson uppgötvuðu uppröðun hinna fjögurra kjarnasýrusameinda — sem á íslensku kallast kirnur — adenín, cýtósín, gúanín og týmín, sem festar eru á sykurfósfatsameindir sem síðan raðast upp þannig að þær mynda eins konar skrúfustiga. Það var svo skrúfustigaformið sem gerði afritun allrar sameindarinnar mögulega þar sem í hinum svokölluðu basapörum kirnanna var alltaf um sömu pörunina að ræða. Það er að segja að á móti C-kirnu kom alltaf G-kirna (gúanín), en á móti T-kirnu alltaf A-kirna. Þær DNA-kirnur sem mynduðu

ICELANDIC_FILES/QF-R-08/03_A-Double-Helix.gif

Erfðakóðana (genin) voru síðan afritaðar með öðrum slíkum kirnum og mynduðu svokölluð RNA-afrit. Þessi RNA-afrit voru síðan uppskriftin að samsetningu þeirra amínósýra er mynda prótín sem byggðu líkama fjölfrumunganna. Um 1977 hafði sameindalíffræðin uppgötvað að stærstur hluti kirnanna í DNA-sameindinni var ekki afritaður til framleiðslu á prótínum. Sama ár sýndi rannsóknarstofa Roberts og Sharps fram á að jafnvel kirnukeðjan sem myndaði erfðakóðann var slitin í sundur með kirnum sem klipptar voru út úr RNA-afritinu þar sem þær báru engin skilaboð til afritunar. Fengu kirnur þessar heitið innraðir (tintrons), en þær sem báru upplýsingarnar um prótínmyndunina heitið traðir (exon). Hinum mikla sæg kirna sem var að finna milli genanna var gefið heitið ó-umritað DNA, milligenasvæði eða jafnvel rusl-DNA. Ekki tókst að skýra tilvist innraðanna né ruslkirnanna öðruvísi en svo að hér væri um að ræða einhvers konar sjálfstæðar sníkjukirnur eða leifar úr þróunarferlinu síðastliðin 15 milljarða ára sem náttúrunni hefði láðst að þurrka út.

Bygging og pökkun DNA-sameindarinnar.

DNA-sameindinni er pakkað saman af mi. snilld þannig að samanpökkuð er hún einungis 0,02 mi etrar. Sundurrakin með strimlana tengda myndar hún einn strimil sem er 180 til 200 cm. DNA-KIRNU-þrep (base) er festur DNA samanstendur við sykur- og fósfattopp sem af. 23 (46) litninga- myndar…
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/04_DNA-pokkun.gif

Taugaboðefna- og prótínframleiðsla tauga og vefja.

DNA afritun, klipping og lesning til próteinframleiðslu. Hinir. utan frumukjarnans. Hér eru mRNA sameindir að störfum með Ribosominu við framleiðslu. eggjahvítu. Það eru tRNA sameindirnar ndurbyggingarsta, sem sækja aminósýru sam: og fa il Ribosomsins. Hvað stýrir þessu er tan? innan frumukjarnans…
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/05_A-Frumustarfsemin.gif

Endanleg talning og skráning kirna DNA-sameindarinnar, ásamt kortlagningu erfðalóðanna — genanna.

Skömmu fyrir aldamótin komu fram í Bandaríkjunum tvö risafyrirtæki sem höfðu það að markmiði að telja, skrásetja og kortleggja allar kirnur DNA-sameindar mannslíkamans. Þetta voru annars vegar fjölþjóðlega ríkisverkefnið THE HUMAN GENOME PROJECT og hins vegar einkafyrirtækið CELERA GENOMICS. Talningarniðurstöður beggja aðila voru birtar samtímis í ágúst árið 2000, en kortlagningarniðurstöðurnar í febrúar 2001. Niðurstöður þessarar merku ofurtækni voru þær að tveir strengir sykurfósfatkeðjanna innihéldu um 3,2 milljarða kirna. Við kortlagningu genamengisins voru upphafsniðurstöðurnar þær að einungis um 30–35.000 erfðalóðar væru til staðar. Áður hafði verið talað um 50–100 þúsund erfðalóða og hafði eitt líftæknifyrirtækið jafnvel tekið út einkaleyfi á 140.000 erfðalóðum. Mörgum til mikillar furðu var útkoman sú að einungis um 1% af kirnum DNA-sameindarinnar mynduðu erfðakóðana, en tveimur árum síðar kom í ljós að erfðakóðarnir sem voru uppskriftin að prótínum mannslíkamans voru aðeins 20 til 25.000 talsins. Þetta svaraði til 32 milljóna af hinum 3.200 milljónum kirna DNA-sameindarinnar, en restin — 3.168 milljónir — eru nú taldar vera tilgangslaust innraðarusl eða rusl-DNA milli gena án afritunar. Frétt þessi vakti undrun mjög margra og farið var að kalla þessar kirnur rusl, dót eða drasl og þær ýmist útskýrðar sem leifar úr þróuninni sem náttúrunni hefði láðst að losa sig við, eða eins konar sjálfstæðir flakkarar — hitchhikers.

Upphafleg DNA-kortlagning sameindalíffræðinnar.

sameindin inniheldur. 3.200.000.000 rnur af. GTen um 1% þeirra mynda hina ca 20-25.000 erfðakóða. Fjórar tegundir af kirnum mynda hin: “lífrænu, bókst: NA-. EXON sameindinni Ei-AFRITUNAR. exon| INTRON intron. MILLIGENA-DNA-RUSL mynda GENIN og samanstanda af 2% eru 98% allra kirnanna DNA allra…
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/06_DNA-A-Samsetning.gif

Við kortlagningu genamengisins varð ljóst að um svipaðan fjölda erfðalóða — um 20 til 25.000 — var að ræða í músinni og sömuleiðis í fílnum. Einungis þurfti að afrita kóðana sjaldnar til að búa til músina og oftar fyrir fílinn. Jafnframt þessu öllu var nú vitað að sami erfðakóðinn getur verið afritaður allt að nokkur þúsund sinnum og afritið síðan klippt til þannig að sífellt komi út ný gerð af prótíni. Hafa fundist dæmi um að allt að 38.000 mismunandi afrit séu framkölluð úr sama erfðakóðanum. Klippingin átti sér stað með tilstilli svokallaðra splæsikorna (spliceosomes), en þessi sameind er í dag ein mesta ráðgáta sameindalíffræðinnar. Við framkomu þessara upplýsinga spurðu menn sig hvað stjórnaði þessari furðusameind og varð mönnum ljóst að gátan um DNA-sameindina og lífið var einungis að hluta til leyst og jafnframt orðin mun flóknari en við upphaflega uppgötvun á samsetningu DNA-sameindarinnar. Áður höfðu svokölluð stýrigen (homeotic genes) verið uppgötvuð og því lengi trúað að í þeim væru forritin að stjórnun afritunarstarfseminnar. Þá var stýrigeni sem býr til auga músarinnar víxlað við stýrigen sem býr til auga ávaxtaflugunnar og komu rétt augu á kvikindin, en við það varð ljóst að stjórnunarupplýsingarnar voru ekki fólgnar í stýrigeninu sjálfu, heldur kæmu þær annars staðar frá. Spurningin um stjórnun erfðamengisins er nú orðin sífellt meira aðkallandi, en enn er ekki vitað hvaðan hún kemur. Þetta eru spurningar um hvað stjórni formsköpun, sérhæfingu og samvirkni frumustarfseminnar í því gífurlega flókna genasamspili sem myndar fjölfrumunga. Í tilefni af birtingu kortlagningarniðurstaðna erfðamengisins í febrúar árið 2001 birtu hin tvö risafyrirtæki fjölda yfirlýsinga þessu tengdu, en þar segir hvað mest yfirlýsing vísindamanna CELERA GENOMICS, sem hljóðar svo í lauslegri þýðingu: Vegna tiltölulega lítils fjölda gena telja vísindamenn Celera að nauðsynlegt verði að horfa annað í leitinni að þeim flækjum sem felast í þróun mannverunnar og þeirri starfsemi sem framkallar hið flókna stjórnkerfi er viðheldur sköpunar- og endurnýjunarstarfi frumunnar. Þeir líta svo á að rannsóknarvísindamenn geti kannað fjölda þeirra þátta sem nú eru aðgengilegir með tilkomu hinnar greinargóðu þekkingar á svæðum í erfðamenginu sem ekki innihalda erfðalóða. Þetta felur í sér kóðalaus svæði sem framkvæma stjórnunarþættina sem ráða erfðakóðaforrituninni og frumustarfsemi þeirri er framkallar upphafs- og stöðvunarskipanir í afritun DNA-erfðakóðanna (tengt utanerfafræði eða em epigenetics em). Að fengnum öllum þessum upplýsingum sáu fjárfestar að framtíðarhorfur líftækniiðnaðarins voru ekki eins bjartar og talið hafði verið og hrundu verðbréf slíkra fyrirtækja niður í kjallara, eins og mörgum landa okkar er kunnugt um af eigin raun. Ekki dugði til allt fjölmiðlatal almannatengla þessara fyrirtækja um hvaða kraftaverkaflóðbylgja erfðalóða stæði nú fyrir dyrum. Þar töluðu menn um að fyrirtæki þeirra myndu hið snarasta fara í að uppgötva hinar og þessar kirnur eða erfðalóða sem orsökuðu hina ýmsu eiginleika og sjúkleika mannsins. Þegar er búið að uppgötva flesta erfðagalla sem felast í rangri kirnuforritun, en gátan um frumorsakir nánast allra tölfræðilegra sjúkdóma mannsins er enn óleyst. Í þessum sjúkdómum er ekki um vírusa eða bakteríur að ræða. Óljóst er hvort svarið sé að finna í prótínuppskriftum erfðalóðanna eða í stjórnun genamengisins, en minna hefur verið rætt um að hún sé enn lítt skilin starfsemi genamengisins innan sameindalíffræðinnar. Upp úr árinu 2002 fór þó að aukast skilningur sameindalíffræðinnar á utanerfafræði (epigenetics) sem fjallað var um í fréttatilkynningu Celera Genomics, en hér er um að ræða ákveðnar efnafræðilegar merkingar á þeim hluta genamengisins sem afrita skal. Enn minna er fjallað um þá staðreynd að starfsemi DNA-sameindarinnar í pýramídafrumum mannsheilans og samspil þeirra við vitundina er enn síður skilin. Þessi staðreynd hefur hins vegar ekki aftrað mönnum frá því að lýsa því yfir að þeir hygðust nú finna þann prótínafritunarkóða sem framkallaði fyrirbæri eins og guðstrú og alkóhólisma. Þetta gengur þvert gegn þeirri staðreynd að enn er ekki vitað hvað vitund eða hugsun er, hvað stjórnar vitundinni, hugsununum og upplýsingageymslu tauganna, eða hvert sé grunneðli og virkni taugaboðefna (neurotransmitters) í heilastarfseminni. Í slíkum yfirlýsingum er alfarið horft fram hjá því að hér er um að ræða spurningar um grundvallarstarfsemi mannsheilans og raunveruleikaskynjunar hans, en hún er hvorki þekkt né skilin til hlítar og virkni genanna er þar önnur en í venjulegum frumum. Í þessu samhengi horfa líffræðingar almennt fram hjá því að öll þessi starfsemi er skammtafræðilegs eðlis. Áður en við snúum okkur að grein TIME um Guðs-erfðakóðann er viðeigandi að rifja upp áminningu fyrrum forseta Harvard-háskóla, prófessors Gerald D. Fischbach, en árið 1993 benti hann á hversu þýðingarmiklar rannsóknir á heilastarfseminni eru. Hann sagði: Heimspekileg leit verður að vera studd með tilraunum sem eru nú á meðal hinna mest áríðandi, ögrandi og örvandi í öllum vísindagreinum og sögu vísindanna. Lífsafkomumöguleikar okkar og sennilega alls lífs á þessari plánetu byggjast á því að við öðlumst enn fullkomnari skilning á mannshuganum.


ÞÝDD OG STYTT LEIÐARAGREIN TIME-VIKURITSINS FRÁ 29. NÓVEMBER 2004. FJALLAR GREININ UM SPURNINGAR VARÐANDI TILVIST GUÐS-ERFÐAKÓÐA EÐA GUÐS-GENA Í GENAMENGI MANNSINS

Greinaropna TIME-leiðaragreinar um Guðs-genið.

IsGod in Our Genes? th GO the divinity
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/07_A-Article-Cover-3.gif

ER GUÐ Í GENUM OKKAR?

TIME-MAGAZINE GREIN EFTIR BLAÐAMANNINN JEFFREY KLUGER

ÖGRANDI RANNSÓKN — Í TENGSLUM VIÐ LEITINA AÐ RÓTUM TRÚARINNAR — SPYR HVORT TRÚARBRÖGÐ SÉU AFLEIÐING ÞRÓUNARINNAR.

Ef við biðjum trúaða einstaklinga af hvaða trúarbrögðum sem er að lýsa því hvað reki áfram trúrækni þeirra, munu þeir svara því til að það sé ekkert sérstakt annað en tilfinning – skynjun á æðri mætti (higher power) langt handan þeirra sjálfra. Dýrategund eins og við — sem sífellt er að búa til eigin vandamál vegna mikillar greindar og skorts á sjálfsaga til að fara með hana — hefur engu að síður alltaf haft hagnýtar ástæður fyrir þörfinni á trúarbrögðum, og þá fyrst og fremst með tilliti til lífsafkomunnar. Sá rammi sem trúarbrögðin hafa markað okkur hefur hjálpað okkur að varðveita bæði hug og líkama. Þetta hefur aftur kallað fram þá ögrandi spurningu sem rædd er sífellt meira í heimi vísinda og trúar: Hvað kom á undan, Guð eða þörfin fyrir Guð? Með öðrum orðum: Sköpuðu mennirnir trúarbrögðin vegna boðskapar að ofan, eða var það einfaldlega þróunin sem gæddi okkur tilfinningu fyrir guðdómnum svo að við kæmum okkur upp þeim samfélögum sem nauðsynleg eru til að viðhalda tegundinni? (Þetta er hin forna spurning Dostojevskís: Skapaði Guð manninn, eða maðurinn Guð? –Innskot þýðanda). Þessi umræða þyrlar upp aragrúa spurninga: Séu sumir einstaklingar andlegri en aðrir, stafar það þá af eðli eða uppeldi? Ef vísindaleg rök fá ekki skýrt andlegt atgervi okkar og það kemur alfarið frá Guði: Hvers vegna heyra þá sumir orð Guðdómsins auðveldlega meðan aðrir eru andlega heyrnarlausir?


Hér kemur svo innskot frá ALBERT EINSTEIN

Vísindi án trúar eru lömuð, trú án vísinda er blind.


Sú spurning hvort mannkynið gæti þrifist í heimi án trúar þar sem náttúrulögmálið um vígtennur og klær ræður ríkjum, og dráp, rán og prettir bera ríkulegan arð, er hugsuðum ofarlega í huga. Það sem gerir ástandið enn verra er skorturinn á siðferðislögreglu sem grípur inn í þegar böndin bresta. Þá er heppilegra að hafa guðlega veru tiltæka til að hemja verstu skyndihvatir okkar og kalla fram það besta í fari okkar; veru sem skapar þá tilfinningu að einhver vaki í hinu kosmíska húsi þegar ljósin slokkna á nóttunni og við förum að velta því fyrir okkur hvað við séum eiginlega að gera hér. Geti Guð, eða jafnvel margir guðir, veitt okkur allt þetta, er það hið besta mál. Og gerist það að við misnotum trúarhugmyndir okkar – eins og aldaraðir trúarstríða bera vott um – vegur ávinningurinn af því að vera andlegar verur upp á móti blóðbaðinu. Þörfin fyrir Guð er langt frá því að vera einhver þróunarlúxus, heldur er hún afgerandi eiginleiki sem er ristur æ dýpra í genamengi okkar með hverri kynslóð. Þeir einstaklingar sem þróuðu með sér andlegt hugarfar þrifust betur og miðluðu þessum eiginleika áfram til afkomenda sinna. Þeir sem fóru á mis við þetta áttu á hættu að tortímast í stjórnleysi og manndrápum. Þróunarformúlan er einföld en áhrifarík. Hvergi hefur þessi hugmynd vakið jafn mikla athygli og í nýútkominni bók sameindalíffræðingsins Dean Hamers, Guðsgenið: Hvernig trú er ofin í genin okkar (The God Gene: How Faith Is Hardwired into Our Genes). Hamar, sem er deildarstjóri við bandarísku krabbameinsstofnunina, heldur því ekki einungis fram að andleg viðleitni mannsins sé aðlögunareiginleiki, heldur einnig að hann hafi fundið eitt af þeim genum sem kalla fram þennan eiginleika; en það vil svo til að þetta gen tengist jafnframt framleiðslu eins þeirra taugaboðefna sem stýra hugarfari okkar. Dýpstu andlegu tilfinningar okkar kunna — séu skrif Hamers tekin bókstaflega — að vera lítið annað en einstaka skot af vellíðunarboðefnum heilans, stýrt af DNA-genamenginu. Hamar segir: Ég tel að við lútum grunnlögmálum náttúrunnar — við erum bara poki af efnahvörfum. Jafnvel fyrir þá sem eru vantrúaðir getur slík smættarstefna valdið gremju. Merking orðsins trú felur þegar öllu er á botninn hvolft í sér að halda í eitthvað án þess að krefjast allra þeirra smáatriða, orsaka og afleiðinga sem vísindunum eru svo ómissandi. Reyndu að skilgreina hlutina eins og erfðafræðingurinn og þú átt á hættu að skilgreina þá niður í ryk. Guð er ekki eitthvað sem hægt er að sanna með rökum eða nákvæmum mælingum, segir Neil Gillman, heimspekiprófessor í gyðingdómi við prestaskóla gyðinga í New York. Hann segir hugmyndina um guðsgenið ganga þvert á eigin sannfæringu. John Polkinghorne, eðlisfræðingur og jafnframt guðfræðingur við dómkirkjuna í Liverpool á Englandi, tekur í sama streng: Þú getur ekki smættað trúna niður í minnstu einingar genamengisins. Slíkar tilraunir sýna aðeins fátækt hins vísindalega hugsanaferils. Hamar, sem hóf rannsóknir sínar árið 1998, vonast til þess að niðurstöðurnar geti svarað hinum andlegu spurningum samkvæmt vísindahefðinni. Niðurstöður mínar snúa að efasemdum um tilvist Guðs, segir hann. Sé Guð til, þá er hann til. Vitneskja okkar um þau taugaboðefni sem kalla fram trú breytir ekki þeirri staðreynd. Leit í genamenginu er engan veginn auðveld þar sem hin 25.000 gen eru mynduð úr minna en þremur prósentum af þeim 3,2 milljörðum kirna sem mynda bókstafarunur þess. Til að þrengja leitarsvæðið takmarkaði Hamer leit sína við gen sem vitað er að gegna lykilhlutverki í framleiðslu ákveðinna taugaboðefna á borð við serótónín, noradrenalín og dópamín, sem stjórna grunnvirkni eins og geðslagi og hreyfingum. Lyf eins og flúoxetín, Prozac, Fontex og fleiri þunglyndislyf líkja eftir þessum taugaboðefnum. Eiturlyf á borð við alsælu, LSD, perote og önnur hugvíkkandi efni líkja einnig eftir þessum heilaefnum, og hafa sum þeirra lengi verið notuð við trúarlega helgisiði.


Og hér kemur svo innskot frá JEFFREY KLUGER blaðamanninum

Með allri þinni vísindaþekkingu, getur þú sagt mér

Hvernig það má vera að ljós komi inn í sálu mína?


Það er hugmyndin um Guð sem birtir siðmenningu um alla jörðina, alveg sama hversu einangruð hún kann að vera. Þegar ættbálkar sem eru einangraðir á afskekktum svæðum framkalla Guðshugmyndina eins auðveldlega og þjóðir sem búa í löndum sem liggja saman, þá er það verulega sterk ábending um að hugmyndin sé þegar til staðar í genamengi okkar, frekar en að við höfum tekið hana upp af hagkvæmnisástæðum á þróunarleið okkar. Ef þetta er tilfellið, þá er það sterk ábending um að hún sé okkur gefin fremur en áunnin eða sköpuð af okkur sjálfum. Á hinn bóginn kann þýðingarmesta sjálfshjálparhlutverk trúarbragðanna að vera fólgið í því að framkalla það sem heldur hópnum saman. Tilbeiðsla á Guði þarf ekki að vera sameiginleg athöfn; hana má iðka í einrúmi, aðskilið frá hvers kyns skipulögðum trúarbrögðum. Eigi að síður kýs langstærsti hluti fólks að koma saman til bæna, iðka sömu helgisiðina og beygja sig undir sömu trúarjátningarnar. Þegar söfnuðurinn er orðinn til, þá er það aðeins lítið skref fyrir hann að fara að nota samhæft kerfi trúar og iðkana sem grundvöll fyrir öllum þeim veraldlegu lögum sem halda hópnum starfandi. Öll trúarbrögð þróast í það að verða eitthvað veraldlegt, segir David Sloan Wilson. Til þess að komast af verðurðu að skipuleggja þig í menningarsamfélagi. Neikvæða hliðin á þessu er sú þegar trúarhópar safnast ekki saman í söfnuði, heldur í herbúðir og stundum í vopnaðar herbúðir. Dæmi um þetta eru samfélög krossriddara, þræla- og útrýmingarbúðir nasista og jihad-hryðjuverkasamtök múslíma. Ekki verður þó séð hvernig slík samfélög með trúarstríðum og hryðjuverkum sínum geti bætt lífsafkomu mannsins. Hið einfalda svar kann að vera fólgið í því að þótt okkur hafi verið gefin gjöf, þá þýðir það ekki að við notum hana alltaf viturlega. Eldurinn getur annaðhvort líst upp þorpið þitt eða brennt niður næsta þorp, eftir því hvernig tilhneigingar þú hefur. Trúarbrögðin eru tilraun til þess að beisla áskapaðar andlegar hneigðir til að skapa reglur — sem ekki eru alltaf góðar reglur, segir prófessor Davies.


Að lokum er hér svo innskot frá WILLIAM JAMES: Allar hinar vísindalegu og heimspekilegu hugsjónir okkar eru altari fyrir óþekkta guði.


Fyrir hvern þann stað í heiminum sem líður undir trúarbragðaátökum er eigi að síður að finna mun fleiri þar sem andleg málefni hafa upplyftandi og siðbætandi áhrif. Sá Guð sem útbýr okkur með erfðalóðum og gáfum til að vinna saman á svo snjallan máta er Guð sem einmitt höfðar svo sterkt til bókstafstrúarmanna. Eftir sem áður er ein sérstaklega truflandi spurning efst á blaði í öllum þessum hugrenningum, en það er spurningin um það hvers vegna Guðsgeni doktors Hamers — eða einhverju af þeim Guðsgenum sem kunna að verða fundin — er dreift svo ójafnt á meðal okkar. Hvers vegna eru sum okkar andleg ofurmenni, á meðan önnur eru andleg peð? Er það ekki ein af grundvallarkenningum trúarbragðanna, að náðin sé aðgengileg öllum? Hvers vegna geta sumir verið guðlausir meginhluta lífs síns, en síðan hlotið andlega upplifun og orðið að minnsta kosti andlega sinnaðir, ef ekki trúaðir? Aðspurðir yppta flestir vísindamenn öxlum við þessari spurningu. Engu að síður kann þetta augljósa ójafnrétti að vera mikilvægur hluti af hinu andlega ferðalagi. Hefði ekki verið auðveldara fyrir Guð að forrita okkur einfaldlega til tilbeiðslu? Það er hins vegar áhrifameira þegar dyrnar eru opnar og einstaklingurinn verður að ganga í gegnum þær á eigin forsendum — hversu erfið sem þau skref kunna að vera fyrir suma. Ég hef aldrei upplifað Miklahvells-umbreytingarreynslu, segir prófessor Gillman við Gyðingaprestaskólann. Mín niðurstaða er sú að maður byggi trú sína hægt og rólega á þeirri reynslu sem heimurinn færir manni. Hvernig sem þessar vangaveltur vega salt kunna vísindin að lokum að uppgötva að tilraunir til að staðsetja ákveðin svæði sem mynda hinn andlega harða disk okkar séu einfaldlega ómögulegar — rétt eins og að reyna að kortleggja genamengi ástarinnar. Samt sem áður eru vísindamenn líklegir til að halda áfram að reyna. Ég er persónulega sannfærður um að það sé til staðar áætlun um alla hluti, segir prófessor Davies við Macquarie-háskóla, og að alheimurinn sé ekki bara einhver ruslapoki fullur af lögmálum. Á endanum kunna erfðakóðarnir að reynast hluti af þessari áætlun — en augljóslega aðeins einn af afar mörgum þáttum.


Spurningalistinn. (Fylgdi TIME-greininni)

Hversu andleg úr ert þú?

Til að komast að því hversu andlegur þú ert geturðu tekið þetta próf, en það er hluti af persónuleikaprófi sem hannað var af geðlækninum Robert Cloninger við Washington-háskóla, höfundi bókarinnar Feeling Good: The Science of Well-Being.

01

Ég fæ oft þá tilfinningu að ég sé svo tengdur fólki í kringum mig að það er eins og ekki sé um aðskilnað að ræða á milli okkar.

Rétt

Rangt

02

Ég geri oft hluti til að hjálpa til við að vernda dýr og plöntur fyrir útrýmingu.

Rétt

Rangt

03

Ég heillast af mörgum fyrirbærum í lífinu sem ekki er hægt að útskýra með vísindum.

Rétt

Rangt

04

Ég fæ oft óvænt leiftur af innsæi eða skilningi þegar ég slaka á.

Rétt

Rangt

05

Ég fæ stundum tilfinningu um tengsl við náttúruna þannig að allt virðist hluti af einnig lifandi veru.

Rétt

Rangt

06

Ég virðist hafa sjötta skilningarvitið sem gerir mér stundum kleift að vita hvað er að fara að gerast.

Rétt

Rangt

07

Stundum hef ég fengið þá tilfinningu að ég væri hluti af einhverju sem hefði engin takmörk eða landamæri í rúmi og tíma.

Rétt

Rangt

08

Ég er oft sagður utan við mig vegna þess að ég er svo gagntekinn af því sem ég er að gera að ég missi yfirsýn yfir allt annað.

Rétt

Rangt

09

Ég fæ oft sterka tilfinningu um sameiningu við alla hluti í kringum mig.

Rétt

Rangt

10

Jafnvel eftir að hafa hugsað um eitthvað lengi, hef ég lært að treysta tilfinningu minni fremur en rökhugsun.

Rétt

Rangt

11

Ég upplifi oft sterk andleg eða tilfinningaleg tengsl við fólk í kringum mig.

Rétt

Rangt

12

Oft þegar ég er að einbeita mér að einhverju, tapa ég skynjun minni á líðandi stundu.

Rétt

Rangt

13

Ég hef fært raunverulegar persónulegar fórnir í þeim tilgangi að gera heiminn að betri stað, eins og að koma í veg fyrir stríð, fátækt og óréttlæti.

Rétt

Rangt

14

Ég hef fengið upplifanir sem gerðu mér tilgang minn í lífinu svo ljósan að ég fylltist mikilli hamingjutilfinningu og eldmóði.

Rétt

Rangt

15

Ég trúi því að ég hafi upplifað yfirskilvitlega skynjun.

Rétt

Rangt

16

Ég hef upplifað augnablik af miklum fögnuði þar sem ég fékk skyndilega skýra og djúpa tilfinningu um sameiningu við allt sem er.

Rétt

Rangt

17

Oft þegar ég horfi á venjulega líflausa hluti gerist eitthvað stórkostlegt. Ég fæ þá tilfinningu að ég sé að sjá þá í fyrsta sinn.

Rétt

Rangt

18

Ég fagna blómgun blómanna á vorin jafn innilega og að hitta gamlan vin á ný.

Rétt

Rangt

19

Fyrir annað fólk virðist ég stundum eins og í öðrum heimi vegna þess að ég er svo fullkomlega ómeðvitaður um hvað er að gerast í kringum mig.

Rétt

Rangt

20

Ég trúi því að kraftaverk séu möguleg og eigi sér stað.

Rétt

Rangt

Útkomumat:

Gefðu þér 1 punkt fyrir hvert rétt svar og 0 punkta fyrir hvert rangt svar.

14 punktar og háandlegur, ekta dulspekingur. 12 til 13 punktar andlega vakandi, gleymir sér auðveldlega. 08 til 11 punktar andlegt meðallag, getur þroskast andlega ef vil. 06 til 07 punktar = virkur rökhyggjumaður, skortir andlega vitund (consciousness). 01 til 05 punktar efasemdamaður, á móti andlegri þróun.

Lausleg þýðing og stytting Páll J. Einarsson/Pétur Einarsson/Leifur Leifsson


HVAÐ SEGIR QF-KENNINGIN VARÐANDI SPURNINGUNA UM TILVIST EINHVERS GUÐS-ERFÐAKÓÐA EÐA GENS (QF-kenningin er skammta-afstæðileg sviðskenning sem er kenningasmíði fyrirlesarans og birtist í bókinni: THE LITTLE SCROLL)


Almennur samanburður á líkönum sameindalíffræðinnar (molecular biology) og QF-kenningarinnar á starfsemi mannsheilans og starfstruflunum þeim sem fram koma í honum, bjóða upp á mjög ólík viðhorf og niðurstöður. Ekki er þó ætlunin að gera þessum mismun nein skil hér umfram það að benda á að líkön sameindalíffræðinnar innihalda ekki neinar afgerandi, samfelldar og heilsteyptar skýringar á grundvallarstarfsemi heilans og nánast engar afgerandi skýringar á vitundinni. Þau bjóða heldur ekki upp á skýringar á grundvallarorsökum hins mikla fjölda starfstruflana heilans; geðraskana, geðsjúkdómanna og ánetjunarsjúkdómanna. Ekki er þar heldur um að ræða skýringar á hugsuninni, formi hennar eða minnisgeymslu og endurkölluð. Þetta eru hins vegar þættir sem QF-líkön mannsheilans geta skýrt og gefið frumorsakir fyrir. Grundvallarmun þessara tveggja líkana er að finna í þeim þáttum sem QF-líkanið býður upp á umfram hin hefðbundnu líkön, en þeir eru: A) QF-líkanið kynnir ný tvíþætt heilmyndarlíkön grunnraunveruleikaforrits heilans sem innihalda stjórnunarforrit fyrir frumustarfsemina og afritun próteinuppskrifta erfðalóðanna.

B) QF-líkanið kynnir ný tvíþætt heilmyndarlíkön vitundarsviðs heila sem samræma einnig virkni stýrigena og klippisameinda.

C) QF-líkanið kynnir ný tvíþætt og jafnskipt hlutverk kirnanna í öllu genamengi (genome) pýramídatauga vitundarsviðs heilans, þar sem annað kirnusviðið framkallar örvandi taugaboðefni (neurotransmitter) en hitt hemlandi boðefni.

DNA-kortlagning QF-kenningalíkansins.

hlutverki og dreifingu DNA-kirnanna.. 13 sameindin inniheldur “,. EXPLICATE um 2,75% þeirra mynda hina IMPLICATE skammtasvið ca 20-25.000 erfðakóða. skammtasvið framkvæmda orsaka DNA:. Fjórar tegundir af kirnum. mynda hina “lífrænu. EXON sameindinni.. eru 50% af kirnum DNA-sameind- eru 50% af…
ICELANDIC_FILES/QF-R-08/08_DNA-B-Samsetning.gif

Niðurstöður QF-líkansins varðandi spurninguna um það hvort um sé að ræða einhvern einn eða fjölda af boðefnaafritunarkóðum sem framkalli guðstrú eða andlega sinnað hugarfar mannsins, eru alfarið neitandi. Hvort einhverjir erfðalóðar skýri jafnframt andlegar og dulspekilegar upplifanir sem síðan leiða til þroskaferils inn í andlega vakningu, eru sömuleiðis neitandi. Samkvæmt QF-kenningunni eru endanleg svör við spurningum þessum ekki möguleg án endanlegra skýringa á starfsemi hugsunarinnar og vitundarinnar sem verður að skýra í smáatriðum þá virkni sem á sér stað í samspilinu á milli vitundar, upplýsingageymslubanka og stjórnunar boðefnaafritunar próteinuppskrifta-erfðakóða þeirrar sem á sér stað í gegnum stýrigenin. Samspil þetta framkallar allt að um 300 mismunandi boðefni er stilla af raunveruleikaskynjun heilans, en stjórna henni ekki. Í QF-kenningunni er það alfarið samspil vitundarinnar og genaforritanna sem stjórnar boðefnaframleiðslunni. Samkvæmt QF-kenningunni er það aðalorsök þess að vísindunum hefur ekki tekist að leysa gátuna um the binding problem, að vísindamönnum hefur ekki tekist að leysa gátuna um vitundina, sem er svo aftur orsök þess að þeim hefur ekki tekist að leysa gátuna um mannsheilann og starfsemi hans. Ástæðurnar fyrir þessu eru þær að sameindalíffræðin lítur enn á próteinafritunarkóðana, eða genaafritunina, og boðefnin sem þar verða til, sem grunninn að hugsunum okkar, eða gengur jafnvel svo langt að álíta þau hugsanir okkar. Hér skoðar QF-kenningin boðefnin sem laun tauganna fyrir upplýsingaþjónustuna og verkfæri tauganna til að umpóla hvor annarri í takt við hugsanirnar. Þetta þýðir að þeir erfðalóðar sem fara í gang við andlegar eða trúarlegar hugsanir eru einungis afleiðing en ekki orsök. Á meðan vísindin halda áfram að rýna í erfðakóðana sem orsök hugsana okkar og hegðunar, er mjög líklegt að þeim dr. Þórarni Tyrfingssyni hjá SÁÁ og dr. Kára Stefánssyni hjá DECODE takist að finna Djöfulsgenið, eða Alkagenið, en þeir voru nú að fá 350.000. 000 króna styrk frá Evrópusambandinu til leitarinnar. Þeir geta varla verið minni menn en dr. Dean Hamer með Guðsgenið sitt og ber þeim skylda til að koma með eitthvað djöfullegt gen fyrir 350 milljónirnar. Samkvæmt QF-kenningunni eru þau stjórnunarforrit sem hér um ræðir þau sömu og framkalla guðstrú eða andlega eiginleika mannsins. Það er síðan truflun þessara forrita sem framkallar geðsjúkdómana, alkóhólisma og aðra taugánetjunarsjúkdóma mannsins. Heldur kenningin því fram að truflanir þessar séu framkallaðar þegar maðurinn grípur inn í boðefnaframleiðsluna með fölskum boðefnum eins og alkóhóli, sem og öðrum löglegum sem ólöglegum hugbreytandi lyfjum. Þar truflast síðan forritin með fölskum upplýsingum sem orsakast af rangri endurupptöku boðefna í taugaendum með meðfylgjandi rangri umpólun í taugafrumunum. Þessi röngu forrit erfast síðan samkvæmt erfðalögmálum Mendels og eru orsökin að öllum tölfræðilegum sjúkdómum mannsins. Þetta þýðir því meðal annars að þessar truflanir í starfsstjórnunarforritunum séu beinar eða óbeinar orsakir krabbameinsins. Um þetta má lesa nánar í ALKAÞRAS-fyrirlestrinum sem hefur tengingu í gegnum íslensku index-síðuna hér í byrjun þessarar síðu.

Samspil vitundar, DNA-upplýsingageymslu og stjórnunar boðefnaafritunar erfðalóðanna.

Hér koma svo að lokum orð hins þekkta sálarlífeðlisfræðings, prófessors Richard M. Restak, okkur enn og aftur í hug, en hann segir: „Þar sem heili okkar er ólíkur nokkurri annarri byggingu í hinum þekkta alheimi, þá virðist það vera sanngjarnt að skilningur okkar á starfsemi hans, ef við eigum einhvern tímann eftir að öðlast slíkan skilning -- muni þarfnast leitar sem er verulega frábrugðin þeim leiðum sem við notum til að skilja önnur kerfi. — Hér er ekki vísað til uppgjafar, heldur til auðmýktar. Nýjustu og árangursríkustu hugmyndir okkar í vísindunum hafa verið árangur af því að einhver hefur haft hugrekki til að leggja frá sér viðteknar hugmyndir vísindanna til að reyna djörf, ímyndunarrík og skapandi hugmyndalíkön. Er heili okkar ekki þegar öllu er á botninn hvolft hluti af grundvallareðli þess alheims sem þrátt fyrir þúsundir ára af getgátum er okkur enn algjör ráðgáta? Resta, sem og breski taugalíffræðiprófessorinn Susanne Greenfield barónessa, kalla leitina eftir lokaskilningnum á starfsemi mannsheilans og vitundarinnar: „Hin endanlegu landamæri vísindanna.“ Hið sama hefur einnig verið sagt á annan máta af hinum heimskunna sameindalíffræðingi, dr. Paul MacLean: „Réttlæting fyrir áhuga okkar mannanna á mannsheilanum þarf ekki að vera önnur en ósk okkar um að vita: Hvaðan komum við? Hvað erum við að gera hér? Hvert erum við að fara? Fyrir þá sem hafa hug á að kynna sér frekar þetta efni er bent á vefslóð PEACE-hópsins, en hún er: peace-files. com

Góðar stundir.


Hér líkur fyrirlestri þessum en við mælum með að lesandinn kynni sér grein okkar sem fjallar um svipað efni og kveikjan að henni er í BBC-sjónvarpsþætti þeim er titill greinarinnar er dreginn af. Greinina er að finna á heimasíðu PEACE-hópsins, eða peace-files. com

QF-L - 04 „God on the Brain“ and „The Riddle of God and the Brain!“


Sem stendur var þessi síða síðast uppfærð þann 4. desember 2007, en hún er enn í fæðingarhríðunum og verður væntanlega sett upp af kunnáttumanni, framtíðarvefstjóra PEACE Útgáfunnar ehf. sem mögulega byrjar störf sín í ágúst 2008.

Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir, tillögur eða kvartanir sem hann vildi koma á framfæri, hvort sem um er að ræða jákvæðar eða neikvæðar, þá mun bráðabirgðavefstjóri okkar taka við þeim og koma þeim áfram til föðurhúsanna. Hér eru netföng þau sem nota má til að koma slíkum skilaboðum áfram: