Skrá 07

Samkenndarstöð heilans

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/03_ENGIL-Logo.jpg

QF-bréf 09.

Hin þýðingarmikla uppgötvun „spegiltauga“ (mirror neurons) mannsheilans og afleiðingar þeirra fyrir hegðun mannsins!

Þessi mappa kynnir hluta af röð ritgerða sem lýsa, í eins mikilli einfaldleika og unnt er, grundvallarafleiðingum niðurstaðna QF-kenningarinnar, sem kynnt var árið 2002 með útgáfu bókarinnar THE LITTLE SCROLL og síðar á PEACE-skrár vefsíðunum. QF-kenningin er heildstæð sameiningarkenning í eðlisfræði sem inniheldur áhorfandann, líf og meðvitund og er hún því skilgreind sem allsherjarkenning (Theory of Everything).


QF-bréfin og efni þeirra:

QF-L — 00

Inngangur að QF-bréfunum

QF-L — 01

Önnur stærðfræðileg lausn QF-kenningarinnar

QF-L — 02

Endalok kennilegrar eðlisfræði

QF-L - 03

Samsíða alheimur og takmörk stærðfræðinnar

QF-L — 04

BBC-gátan um: Guð á heilanum

QF-L — 05

Gáturnar frá déjá vu til ráðgátu einhverfu

QF-L — 06

Tvær gerðir rúmmálstaps í dreka

QF-L — 07

Eftir genamengisgreinina – eftir tvígorminn

QF-L — 08

QF-kenningin og trúarsvið mannsheilans

QF-L — 09

QF-kenningin og samúðarsvið mannsheilans

QF-L — 10

QF-kenningin og sameining trúar og vísinda

QF-L — 11

EPR-þverstæður - Bell-setningin - Aspect-tilraunin

QF-L — 12

QF-kenningin og fyrirbæri tvíraufatilraunarinnar

QF-L — 13

Mannmiðjulögmálið og QF-kenningin

QF-L — 14

Leitin að alkóhólisma og Guði í genum okkar

QF-L — 15

Spurningar um allsherjarkenningu sem hrjá eðlisfræðina

QF-L — 16

Þyngdaraflsgátur Richards Feynman

QF-L — 17

Gátan um fínformgerðarfastann

QF-L — 18

Viðtal við hinn dularfulla herra 666

QF-L — 19

Gáta hinna þriggja grundvallarrita náttúrunnar

QF-L — 20

Eftirmálinn

Til inngangssíðu íslensku útgáfunnar


Níunda QF-ritgerðin:

Nýjar tilraunauppgötvanir í taugalíffræðinni, sem kunna að hafa gífurlega þýðingu til skýringar á mannlegri hegðun:

SAMKENNDARSVIÐ MANNSHEILANS eða boðorð Krists og eðli hins illa.

Spurningar varðandi siðferðisvitund, samkennd og samhygð mannsins — tilvist og skort á þessum eiginleika — í nýju ljósi. Er Kristur með boðorði sínu að kenna okkur að framkalla jafnvægis- og gleðitaugaboðefni í heila okkar?


Í vinnu minni með sakborningunum var ég að leita eftir eðli hins illa og nú trúi ég því að ég hafi komist nálægt því að skilgreina það. Skortur á samkennd. Þetta er eini eiginleikinn sem tengir alla sakborningana; ósvikið getuleysi til að finna til samúðar með náunganum. Hið illa er, að ég held, skortur á samúð.“

Tilvitnun: G. M. Gilbert höfuðsmaður og hersálfræðingur, sem skipaður var til þess verks að annast sálgæslu sakborninganna í Nürnberg-réttarhöldunum.


NÜRNBERG-STRÍÐSGLÆPARÉTTARHÖLDIN Í LOK SÍÐARI HEIMSSTYRJALDARINNAR OG SPURNINGARNAR UM RAUNVERULEGT EÐLI MANNSINS Í LJÓSI ÞEIRRAR UPPGÖTVUNAR AÐ:

„Hið illa er skortur á samkennd!“

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/05_Domshollin.gif

Í LOK SÍÐARI HEIMSSTYRJALDARINNAR, ÁRIÐ 1945, KOMU BANDAMENN UPP STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLI Í DÓMSHÖLLINNI Í NÜRNBERG, EN ÞAR VAR RÉTTAÐ YFIR ÞEIM LEIÐTOGUM ÞRIÐJA RÍKISINS SEM ENN VORU Á LÍFI OG Í NÁÐIST. RÉTTARHÖLDIN STÓÐU ALLT TIL ÁRSINS 1949. EINN HÖFUÐTILGANGUR RÉTTARHALDANNA VAR AÐ ÞAÐ SEM FRAM KÆMI Í ÞEIM YRÐI TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR STYRJALDIR.

ÞEGAR LJÓST VAR HVÍLÍKA GLÆPI HIN SIÐMENNTAÐA MENNINGARÞJÓÐ ÞÝSKALANDS HAFÐI GERST SEKA UM, FÓRU MENN UM ALLA JÖRÐ AÐ SPYRJA HVAÐ

DÓMSHÖLLIN OG FANGELSIÐ ÞETTA ÞÝDDI. ÞÝDDI ÞAÐ AÐ VIÐ MENNIRNIR VÆRUM

SLÍKIR VILLIMENN Í EÐLI OKKAR AÐ EINUNGIS ÞYRFTI EINHVERN TIL AÐ TELJA OKKUR TRÚ UM AÐ VIÐ YRÐUM ALDREI GERÐ ÁBYRG GJÖRÐA OKKAR, ÞÁ DYGÐI ÞAÐ TIL AÐ HÖMLUR SIÐMENNINGARINNAR HRYNDU OG VIÐ MYNDUM FREMJA HVAÐA GLÆP SEM VÆRI?

Merkasta innsæi Nürnberg-réttarhaldanna.

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/06_Sakborningarnir.gif

Sálfræðingurinn G. M. Gilbert, bandarískur Gyðingur sem var liðsforingi í njósnadeild Bandaríkjahers í síðari heimsstyrjöldinni, var uppalinn í Þýskalandi og talaði því málið, sem leiddi til þess að hann var gerður að sálfræðingi sakborninganna. Hann hafði því ótakmarkaðan aðgang að nasistaforingjunum gegnum öll réttarhöldin. Hann skráði samtöl sín við þá og birti í bók sem út kom 1947 og ber heitið NUREMBERG DIARY, eða Nürnberg-dagbókin, en bók þessi er enn í útgáfu.

HÖFUÐSAKBORNINGARNIR

Af innihaldi allra þeirra skjala sem fram komu í réttarhöldunum kann þessi dagbók Gilberts að vera það þýðingarmesta fyrir framtíðina, en í henni koma fram vangaveltur hans um spurninguna sem þá brann á vörum milljóna manna: Hvernig var mögulegt að fólk sem virtist vera svo siðmenntað gerðist sekt um þá villimennsku sem varð ljós í lok stríðsins? Þessari spurningu er enn ósvarað. Eina sem við höfum er lýsingin á því „HVERNIG“, án þess að við höfum fengið afgerandi „HVERS VEGNA“ svör.

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/07_Nuremberg-dagbokin.gif

Rannsóknir Gilberts kafteins á hugarfari sakborninganna í Nürnberg-réttarhöldunum

Í kvikmyndinni NUREMBERG, sem gerð var árið 2000, leikur Matt Craven G. M. Gilbert kaftein, sálfræðinginn sem fékk það hlutverk að annast sakborningana og veita þeim útrás svo þeir fremdu síður sjálfsvíg. Það er svo Alec Baldwin sem leikur hinn bandaríska aðalsaksóknara, Robert Jackson.

Í myndinni eiga Gilbert og Jackson samræður við lok réttarhaldanna, en þar segir Gilbert Jackson frá niðurstöðum rannsókna sinna á orsökum þeirrar mannlegu hegðunar sem fjallað er um í réttarhöldunum.

Niðurstöður hans eru þó ekki endanlegt svar við öllum heilabrotum okkar um hvað kunni að framkalla slíka hegðun í okkur. Það er í orðum Gilberts til Jacksons sem í ljós kemur hin endanlega og afgerandi spurning um okkur mennina og hið raunverulega eðli okkar. Spurningin um það hvort við séum einfaldlega svona, eða hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í þróunarferli okkar. Við skulum því næst horfa á íslenskutextaða myndbandsúrklippu úr kvikmyndinni með viðtali þeirra, áður en við skoðum samtal þeirra frekar.

Niðurstöður Gilberts kafteins kynntar Jackson

Saksóknara fyrir lokamálflutning réttarhaldanna.

Í gærkvöldi fór ég í gegnum minnispunktana mína. Á undanförnum mánuðum hef ég verið að reyna að átta mig á huga þeirra í þeirri von að öðlast skilning á því hvernig þetta fólk gat framið slík grimmdarverk gegn fólkinu mínu. Ég trúi því að tveir þættir skýri mikið af þessu.

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/08_Gilbert-og-Jackson.gif

Í fyrsta lagi: Þýskaland er land þar sem fólk gerir það sem því er sagt að gera. Þú hlýðir foreldrum þínum, kennurunum, prestunum, yfirboðurum. Þú ert alinn upp frá barnæsku í því að draga ekki í efa yfirvald, stjórnvöld eða hið opinbera, þannig að þegar Hitler kemst til valda er hann með heila þjóð sem trúir því að það sé fullkomlega eðlilegt að gera hvað sem hann segir.

Í öðru lagi: Áróður. Árum saman hefur dunið á Þjóðverjum hugmyndafræði á borð við: ‚Gyðingar eru ekki raunverulegar mannverur,‘ eða ‚Þeir eru úrkynjun mannkynsins,‘ svo að þegar ríkisstjórnin segir að leyfilegt sé að neyta Gyðingum um réttindi sín… og síðan er sagt að það skipti miklu máli að drepa þetta fólk… þá hlýða þeir, jafnvel þótt um hafi verið að ræða vini þeirra eða nágranna.

Ég sagði þér einu sinni að í vinnu minni með sakborningunum væri ég að leita að eðli hins illa og nú trúi ég því að ég hafi komist nálægt því að skilgreina það. Skortur á samkennd. Þetta er eini eiginleikinn sem tengir alla sakborningana, ósvikið vanhæfi til að finna til samúðar með náunganum. Hið illa er, held ég, skortur á samúð.“

Myndbandsúrklippa úr kvikmyndinni NUREMBERG frá árinu 2000.

Hvað býr að baki þeirri tillögu að: Hið illa sé skortur á samkennd?

Augljóslega eru það ekki fyrstu tveir þættirnir sem skýra orsakir þessara ofbeldisglæpa nasistanna. Þessir þættir lýsa aðeins rammanum sem gerir hinar illu gjörðir mögulegar. Það er ekki heldur sú staðreynd að einhver sem hinir vitstola ódæðismenn trúa á — Hitler og fylgismenn hans — segi þeim að þeir muni aldrei sæta ábyrgð vegna þessara verka eða glæpa. Það er þriðja skilgreiningin sem hittir í mark varðandi orsakaskilgreininguna: Skorturinn á samúð eða samkennd.

Þessar beittu skilgreiningar Gilberts kafteins eiga ekki aðeins við um Þýskaland nasismans (Auschwitz-Birkenau, Bełżec, Buchenwald, Chelmno, Dachau, Gross Rosen, Majdanek, Mauthausen, Mary Trostenets, Jasenovac, Treblinka, Sobibór), Rússland stalínismans (morð á 20.000. 000 rússneskra samlanda sem og Katyn-morðin í Póllandi), heldur öll þjóðerni og kynstofna á þessari plánetu — frá Litlu-Asíu til Nanjing, Shanghai, Kambódíu, Srebrenica, Rúanda og Darfúr — eða okkur öll á okkar verstu dögum. Staðreyndin er sú að þessar skilgreiningar tengjast þeim ósvarandi spurningum sem enn brenna um hugmyndir okkar um siðferðisvitund mannsins, sem kemur okkur til að hafna rangri framkomu gagnvart náunganum.

Spurningarnar sem hér vakna eru fornar og margbrotnar; þær hafa verið ígrundaðar af hugsuðum og heimspekingum allra stefna svo lengi sem ritaðar heimildir ná, en fremstar og þýðingarmestar eru þessar tvær spurningar: 1) Er siðferðisvitund okkur eðlislæg eða er hún einungis áunnin nytsemd samanber kenningar Thomasar Hobbes og Freuds? 2) Hvers vegna er þessum eiginleika eða kosti svo misskipt á milli manna?

Þegar að lokaskilgreiningum kemur eru þetta spurningar sem snerta mannsheilann, því í frjálsri náttúru finnst þetta afbrigðilega eðli ekki. Dýr í villtri náttúru kvelja hvorki né drepa af eigin tegund; þau berjast einungis um óðul eða í mökunarvígi uns annað hvort gefst upp.

Tvíþætt skýring á samkennd og siðferðisvitund mannsins.

Kennilega skýringin — sem kölluð er QF-kenningin — sem sett var fram í bókinni THE LITTLE SCROLL árið 2002 — heldur því fram að spurningin um samkenndarhæfni mannsins sé ekki eitthvert aukaatriði varðandi andlega eiginleika okkar, heldur sé hún þýðingarmesti þátturinn í stjórnun raunveruleikaskynjunar mannsheilans. Það þýðir að hún er þar með afgerandi spurning um framtíð mannsins og lífið á þessari plánetu.

Í næsta kafla munum við skoða stuttlega hvernig QF-kenningin segir til um tilvist og virkni samkenndarstöðvarinnar í rúmskynjunarhluta heilans, ásamt því hvernig tilviljun í rannsóknum á Ítalíu staðfestir tilvist þessarar taugamiðstöðvar.

QF-kenningin heldur því fram að maðurinn hefði ekki lifað af þróunarferlið án þess að hann hafi haft sterka samkennd með meðbræðrum sínum. Sé þetta rétt, þá er eðlilegt að við spyrjum: Hvað kom þá fyrir samúðar- og samkenndareiginleika okkar? Hvers vegna hefur samkenndarhæfileiki okkar minnkað jafnmikið og raun ber vitni? Hvers vegna er samkenndarhæfileika okkar svo misjafnt úthlutað?

Eitt af því merkilega sem fram kemur í rannsóknum á starfsemi samkenndarstöðvarinnar (Déjà vu) í samanburði milli einstaklinga, er sú staðreynd að hið sama gildir um trúarsvið mannsheilans (Jamais vu), en það er staðsett samsíða samkenndarstöðinni. Þetta kemur heim og saman við niðurstöður QF-kenningarinnar sem segja að mismunurinn stafi af starfrænum truflunum í mannsheilanum sem kenningin kallar filter.

Hvað þessu við kemur gengur QF-kenningin svo langt að halda því fram að skerðing og misdreifing samkenndar- og trúareiginleika mannsins sé orsökin að öllum styrjöldum, glæpum, grimmd og miskunnarleysi mannkynssögunnar. Jafnframt að þetta sé orsakað með mengun mannsins á heila sínum með neyslu hans á ALKÓHÓLI og öðrum hugbreytandi kemískum efnum sem smám saman breyta grunnforritum heila okkar í gegnum kynslóðirnar. Athugið að hér er ekki bara verið að tala um alkóhólisma, heldur alla neyslu á hugbreytandi efnum. Þetta er skýrt nánar í ALKAÞRAS-fyrirlestrinum.

http://www. peace-files. com/ALKATHRAS/00_A-Inngangur. html

Hér á við að minna á það sem fram kom í viðtali Jiddu Krishnamurti og David Bohm í bókinni THE ENDING OF TIME. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að mannkynið hefði tekið ranga beygju einhvers staðar í þróunarferli sínu, án þess að þeim yrði ljóst hver þessi ranga beygja var. Áður hafði hinn kunni dulsálkönnuður, Arthur Koestler, komist að sömu niðurstöðu, einnig án þess að komast að því hver hin ranga beygja og orsök hennar kynni að vera.

Staðfesting á tilvist samkenndarstöðvar mannsheilans — sem gerð var fyrir tilviljun sumarið 2003 — er til mikils stuðnings við QF-kenninguna, þrátt fyrir að hún skýri ekki starfsemi þessarar heilastöðvar og misjafna starfsemi hennar nema að hluta til. Þessa uppgötvun mun ég kynna stuttlega í síðasta hluta þessa fyrirlestrar.

Þetta er efni þessarar ritgerðar, en könnun þess byrjar með stuttu yfirliti af þróunarsögu alheimsins, lífsins, DNA-sameindarinnar og mannsheilans, sem inniheldur grundvallarkenningaskýringarnar á VIÐ-samkenndarsviði mannsheilans.


Ég trúi því að ég hafi skilað einhverjum árangri, en það sem ég hefi framkallað er ekki skýringin á Helförinni. Það sem ég hefi gert kann að vera persónulegt svar fyrir mig; mögulega vegna þess að til þess að finna hina raunverulegu skýringu á Helförinni myndum við þurfa 500 slíkar stofnanir eins og þá sem ég setti á laggirnar.

Tilvitnun frá: Símon Wiesenthal.


STUTT YFIRLIT YFIR ÞRÓUNARSÖGU ALHEIMSINS, LÍFSINS, DNA-SAMEINDARINNAR OG MANNSHEILANS, EINS OG HÚN Á VIÐ UM:

Skýringar QF-kenningarinnar á VIÐ-sviðinu, eða samkenndarsviðinu, eða spegiltaugum mannsheilans.

ÞETTA ER HLUTI ÞESS SVIÐS HEILANS SEM FRAMKALLAR: „HINA SJÁLFSPEGLANDI EIGINLEIKA VITUNDARINNAR“ SEM NÓBELSVERÐLAUNA EÐLISFRÆÐINGURINN EUGENE WIGNER SAGÐI AÐ MAÐURINN YRÐI AÐ ÖÐLAST SKILNING Á.

Inngangur að skýringunum á VIÐ-sviði heilans.

Það var í árslok 1984 að QF-kenningin fæddist og kom þar strax fram að heilanum yrði að skipta í tvo viðbótarpóla innan efnis- og rúmskynjunarhvelanna. Jafnframt þessu varð þá ljóst að þessir tveir pólar réðu hinni tvíþættu taugaboðefnaframleiðslu (neurotransmitter) heilans, sem framleiðir tvenns konar tegundir þeirra; örvandi og hemlandi taugaboðefni er koma fram í allt að 300 mismunandi útgáfum. Kenndi kenningin að miðpunktur starfsemi efnishvelsins hefði með skynjun eigin persónu og framleiðslu örvandi taugaboðefna að gera og væri þar um að ræða nokkurs konar ÉG-svið. Andstætt þessu sviði er svo starfsemi rúmhvelsins sem hefur með skynjun annarra persóna og framleiðslu hemlandi taugaboðefna að gera og er þar því um nokkurs konar VIÐ-svið að ræða. Kenningin sýnir jafnframt að heilinn er almyndasveigjanlegur og almynda-samhverfur og getur því framkallað hvaða taugaboðefni sem er, hvar sem er í vitundarsviðinu, en skortur á innsæi og vitneskju á þessu byggingarlagi hefur verið erfiðasti þrándurinn í götu heilarannsakenda.

Áður en við skoðum uppsetningu QF-kenningarinnar á mannsheilanum er rétt að við skoðum lauslega þróunarferil lífsins frá einfrumungum í fjölfrumunga og þá sérstaklega hvernig frumur fjölfrumunga eru þróaðar í að upplifa tvenns konar raunveruleika, annars vegar sinn eigin einstaklingsraunveruleika og hins vegar samfélagsraunveruleika. Afleiðing þessa alls gefur okkur síðan heilabyggingu þar sem skynjun eigin persónu er í efnisskynjunarhveli heilans, þar sem ég bý í efnislíkama mínum, en þá er aftur skynjun annarra persóna í rúmskynjunarhveli heilans, þar sem aðrir einstaklingar eru — afstætt miðað við mig — staddir í rúminu.

Stutt yfirlit um sköpunina og þróun alheimsins.

“Stóri Hvellur" Sköpun fyrir 14.000.000.000 árum.. Fyrsta kynslóð sólna kvikna, fyrir um 10.000:000.000 árum:. kynslóð sólna kviknar
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/10_Skopunin.gif

Saga alheimsins hefst með Miklahvelli (Big Bang) fyrir um 14.000 milljónum ára, en um 4.000 milljónum ára síðar, eða fyrir um 10.000 milljónum ára, eru fyrstu vetrarbrautirnar að myndast og í þeim, fyrri kynslóð sólna að byrja að brenna. Efnin í þessum sólum eru léttustu atómin sem sköpuð voru í Miklahvelli, eða um 75% vetni og 25% helíum. Það er síðan úr þessum tveimur atómum sem öll frumefni lotukerfisins eru sköpuð í kjarnasamrunabruna í sólum þessum, þar á meðal kolefnisatómið sem er grunnatómið að öllum lífverum. Þessi fyrsta kynslóð sólna var nokkur hundruð sinnum stærri en sólin okkar og vegna hins gífurlega aðdráttaraflsþrýstings sem í þeim var — vegna ofurmassa þeirra — brunnu þær helmingi hraðar en sólin okkar, eða á um 5.000 milljónum ára. Þegar svo sólir þessar höfðu brennt allri orku sinni þöndust þær út og síðan, annaðhvort féllu saman í svarthol, eða splundruðust í gífurlegri sprengingu þekktri sem sprengistjarna (supernova). Í þessari sprengingu var hinum nýsköpuðu frumefnum þeytt út í geiminn.

Það er síðan fyrir um 5.000 milljónum ára að svokallaðar seinni kynslóðar sólir eru farnar að brenna, en þær eru mörgum sinnum smærri en fyrri kynslóðin og brenna því margfalt hægar. Er sólin okkar ein slík seinni kynslóðar sól og hefur hún verið að brenna í um 5.000 milljónir ára, eða helming af 10.000 milljón ára líftíma sínum og á því um 5.000 milljón ára bruna eftir. Um ca. 400 milljónum ára eftir að sól okkar var sköpuð hafði aðdráttaraflssvið hennar safnað í sig afgöngum úr sprengistjörnunni og formað þá í pláneturnar, þar á meðal jörðina. Þetta þýðir að við mennirnir erum í orðsins fyllstu merkingu skapaðir úr stjörnuryki. — En hvað hefur þetta svo að gera með spurninguna um samkenndareiginleika mannsins kynni einhver að spyrja?

Birting einfrumunganna og breyting þeirra í fjölfrumunga.

Saga alheimsins hefur að gera með myndina af aldri jarðarinnar og lífsins, en jörðin myndast fyrir um 4.600 milljónum ára, en vísindin segja okkur að það hafi tekið hana um 600 milljónir ára að kólna nægilega fyrir myndun lífsins. Þetta þýðir að klukka lífsins hefur verið að tifa hér á jörðu í um 4.000 milljónir ára.

Fyrst birtist lífið í formi dreifkjörnunga (procaryot, prokaryotes), sem kallaðir eru fyrirkjarna þar sem þeir hafa nánast engan kjarna, einungis lítinn einfaldan hringmyndaðan DNA-strimil sem ekki getur safnað í sig þróunarupplýsingum eða eiginleikum. Einfrumungarnir — sem eru enn á meðal okkar — þekkja hvorki kynmök né dauða og fjölga sér með binary fission-progeny sem er svipað og þegar afleggjari er tekinn af plöntu og ræktaður. Dauða þeirra ber svo að með utanaðkomandi skemmdum en ekki í gegnum ellihrörnun. Einfrumungarnir voru því eina lífið á jörðunni í um ca. 2.500 milljónir ára og eru enn stór hluti hins lífræna hjúps hennar. Eru leifar þessa lífs í dag kol og jarðolía, en sumt landsvæði er skapað af kalkleifum þeirra eins og til dæmis sumar Kyrrahafseyjar og Flórídaskagi.

Á 2.500 milljón ára einokunartímabili einfrumunganna byggðu þeir hinn lífræna hjúp jarðarinnar, þar á meðal hinn súrefnisríka lofthjúp, en án þessa hefði frekari þróun lífsins ekki verið möguleg.

Tilkoma fjölfrumunganna.

ICELANDIC_FILES/QF-B-09/11_Livid.gif

Fyrir um 1.500 milljónum ára koma svo fram einnar frumu lífverur með aðskilinn kjarna og litninga eða kjörnungar (eukaryotes), sem skipta sér í tvo kynhópa og fjölga sér með því að skiptast á erfðaefni. Þessir kjarna-einfrumungar eru að þróast næstu 800 milljón árin þar til að fyrir um 700 milljónum ára koma fjölfrumulífverur — fjölfrumungarnir — fram á sjónarsviðið, en þetta eru lífverur sem hafa tvöfaldan DNA-strimil sem leyfir söfnun þróunar- og erfðaeiginleika og flutning hans á milli lífvera. Frumur fjölfrumunganna lifa í sambýli og mynda lífveruheildir sem fjölga sér með kynmökum og enda í dauða.

Fjölgun fjölfrumunganna er framkölluð með hlutverkaskiptingu í tvo kynhópa, karl og konu, sem hvort um sig gefa af sér hálfan DNA-strimil í kynmökum sem síðan sameinast og mynda nýjan einstakling í gegnum ferli sem kallað er rýriskipting (meiosis). Þar á eftir skiptir sú fruma sem úr því myndast sér endurtekið í gegnum ferli er kallað er jafnskipting (mitosis, frumuskipting) sem svo byggir hina nýju fjölfrumulífveru. Fjölfrumungarnir enda svo líf sitt í ellihrörnunardauða sem er fyrir fram forritaður í erfðaefnið.

Hin fyrstu 160 milljón ár fjölfrumunganna voru fremur einhliða og þeir einfaldir, en fyrir um 540 milljónum ára, í gegnum það sem almennt er kallað kúmbríska sprengingin (Cambrian Explosion), hófu lífverur þessar þróun í ógrynni af mismunandi tegundum af plöntum og dýrum. Um 320 milljónum ára síðar, eða fyrir um 220 milljónum ára, framkallaði þetta risaeðlurnar sem flökkuðu um jörðina í um 155 milljónir ára en enduðu svo tilveru sína í einhvers konar náttúruhamförum framkölluðum af árekstri loftsteins eða halastjörnu við plánetu okkar. Þetta var fyrir um 65 milljónum ára síðan en þá steig lítið blóðheitt spendýr fram á sviðið og byrjaði þróun hinnar stórkostlegu keðju af dýrum sem við þekkjum í dag og erum hluti af.

Það er svo fyrir 7 til 5 milljónum ára síðan að forfeður okkar aðskilja sig frá öðrum prímötum (öpum) með því að flytjast niður á grundina og byrja að ganga uppréttir, sem síðan leiddi til gífurlegrar framþróunar á heila okkar og líkama. Þessi þróun leiddi svo til birtingar homo sapiens, sem á sér stað fyrir um einnig og hálfri milljón ára síðan. Á lífsklukkumynd okkar hér á undan er þessi tími tjáður með þykkt striksins sem vísar beint upp í kl. 12 stöðuna, en það jafngildir nokkrum sekúndum í líftíð lífsins. Í byrjun þessa tíma fyrir einnig og hálfri milljón ára síðan var heili forfeðra okkar þegar búinn að ná þeirri stærð sem hann hefur nú, en starfsþróun hans hefur aukist gífurlega síðan þá. Það sem er mjög undravert er sú staðreynd að hin samansafnaða vísindaþekking, sem líffæri þetta er hér að skoða, er tilkomin á einungis sekúndubroti á tímaskala þeim sem fram kemur í hinni myndrænu lífsklukku okkar, en þetta kallar á spurninguna: Hver eru takmörk getu heila okkar?

Þessa spurningu ætlum við ekki að taka fyrir hér, en það er niðurstaða QF-kenningarinnar að geta heilans sé óendanleg. Það sem við ætlum að skoða næst eru rökin fyrir því hvers vegna við höfum ÉG- og VIÐ-svið í heila okkar

QF-kenningin og þróun grunn-DNA-forrita lífsins úr dreifkjörnungum í kjörnunga og „ÉG“ og „VIГ sviða mannsheilans.

Í gegnum þau 2.500 milljón ár sem lífið var eingöngu í formi einfrumunga var DNA-forrit þeirra augljóslega afar einfalt þar sem það þurfti einungis að byggja eina sjálfstæða frumu og sjá um hana. Eru því einfrumungarnir einungis ÉG-raunveruleiki. Þegar lífið síðan fer í gegnum breytinguna úr einfrumungum í fjölfrumunga munu DNA-forrit fjölfrumunganna augljóslega hafa þurft að þróa miklar breytingar á sjálfum sér og framkalla verulega snjöll samvinnustjórnunarforrit. Hefur fjölfrumungurinn orðið að þróa getu til að samhæfa með öðrum frumum og til að taka að sér sérhæfð hlutverk í sambýlinu innan lífverunnar. Þetta þýðir að fram hefur þurft að koma einhvers konar VIÐ-raunveruleiki í hverri frumu og því um tvenns konar grunnforrit að ræða: Eitt sem sér um frumuna sjálfa og smíði prótínanna og síðan annað er sér um samhæfingarþarfir hennar. Nú er komið fram í vísindunum að þessu er þannig háttað. Þessi forrit eru skilgreind í QF-kenningunni með tvennum hugtökum úr eðlisfræðinni: Útskýrður raunveruleiki (explicate reality) og fólgin raunveruleiki (implicate reality), en í einföldun heilalíkana kenningarinnar eru þau kölluð „ÉG“ og „VIГ forritin. Þetta – ásamt öðrum rökum – þýðir að skipta þarf kirnum DNA-sameindarinnar í tvo jafna hópa (50/50) sem skilgreindir eru sem útröð (exon) og innröð (intro). Núgildandi skipting sameindalíffræðinnar (molecular biology) er í 2,5% erfðalóða (gena) og 97,5% óafvitandi milligena DNA-kirnurusl.

Hugtökin útröð og innröð eru tekin úr skilgreiningu sameindalíffræðinnar á afritunarkirnum fyrir hérna sem koma frá DNA-forritunum (5%) til framleiðslu prótína, en þar eru útraðirnar (2,75%) sem eru þær kirnur sem eru uppskriftin að prótínunum, en aftur eru svo innraðirnar (2,25%) kirnurnar sem líffræðivísindin vita ekki til hvers eru og eru þau því skilgreind með öðrum ruslkirnum.

DNA DNA. ‘sam in inniheldur. 3.200.000.000 kirnur. af. Ten um 2,75% þeirra mynda hina um 2,75% þeirra mynda hina. if kirnum. arinnar, þar sem 94,5% innihalda. Genin eru 275%. enn, mynda genai til. yfir na (PSE). kimum DNA-sameind- arinnar sem innihalda stjórnforrit ru 95% allra kirnanna DNA fyrir…
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/12_DNA-Intr-Exon-skipting.gif

Sem stendur eru um 97,5% kirna DNA-sameindarinnar skilgreind sem „óafvitandi milligena DNA-rusl“ þar sem ekki er vitað um neinn tilgang þeirra og ekki er heldur vitað um tilgang innrauða í RNA-erfðakóðaafritunum. Sem stendur er að finna í sameindalíffræðinni mikið um alls konar umdeildar tillögur varðandi tilvist þessara kirna. Hefur það verið erfitt fyrir marga einstaklinga sem eru vel að sér í sameindalíffræðinni og er kunnugt um þennan ágreining, að setja í samhengi hin stórkostlegu flækjur og snilld í genatjáningu (gene expression) og þurfa síðan að þiggja þá uppástungu að um 97,5% af hinum 3.200 milljón kirnum í hinum 100.000 milljón frumum í líkama okkar séu bara einhvers konar rusl eða mistök náttúrunnar. Hér gengur QF-kenningin svo langt að halda því fram að skipta verði öllum kirnunum í tvo jafna hópa. Eru hópar þessir annars vegar 50% intron-VIÐ-kirnur, sem eru kirnur þær er innihalda stjórnunarforrit DNA-sameindarinnar, og hins vegar 50% exon-ÉG-kirnur, sem eru framkvæmdaforrit DNA-sameindarinnar. Síðari hópurinn er sá hluti kirnanna sem inniheldur hina 30 — 35.000 erfðalóða (gen), sem eru uppskriftir lífsins til prótínaframleiðslunnar. Þetta er grundað fyrst og fremst í þeirri staðreynd að lífsafkomumöguleikar fjölfrumunganna byggjast aðallega á líffræðilegri samvinnustarfsemi, en þetta kemur sérstaklega fram þar sem þessi starfsemi bregst í intron-VIÐ-kirnu forritunum sem veldur hruni á lífsstarfsemi fjölfrumunganna og leiðir þá til dauða, en þetta er sérstaklega áberandi í frumum sem verða krabbameinssjúkar. Þessi ofangreinda raunveruleikaskipting DNA-forritanna flyst yfir í mannsheilann þar sem hún kemur fram í „ÉG“ og „VIГ brennipunktum taugaboðefnaframleiðslunnar, en truflun á starfsemi „VIГ-pólsins kemur fram í öllum taugaánetjunar- og geðsjúkdómunum og er sérstaklega áberandi í maníu og ráðgátu einhverfu (Autism Mystery).

ÖRVANDI BOÐEFNI HEMLANDI BOÐEFNI. EXON DNA INTRON DNA
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/13_Bodefnapolarnir.gif

Það ætti að vera augljóst að samfélagslegir lífsafkomueiginleikar einstakrar frumu í fjölfrumungunum ættu að skila sér út í umhverfið á mismunandi hátt og í mismunandi formum, einkum þegar um er að ræða eigin tegund. Er það einmitt reyndin og er þetta sérstaklega áberandi í hjarðlífi sumra dýrategunda, eins og í samfélagsþörf mannsins, sem er félagsvera númer eitt.

Frá fæðingu QF-kenningarinnar árið 1984 hefur hún haldið því fram að í fjölfrumungum birtist DNA-eiginleikar sérhverrar frumu í grunnforritum heila þeirra og hér eru ÉG-sviðs og VIÐ-sviðs forritin brennipunktar grunnforritanna. Í heila háþróaðs fjölfrumungs eins og mannsins, sem hefur byggt þróunarferil sinn á samvinnu, en ekki á kjafti, klóm og fráum fæti, verða þessi forrit hvorki meira né minna en aðaltaugaboðefnastjórnunarforrit heila hans, enda er maðurinn félagsvera fram yfir aðrar dýrategundir.

Það var nú árið 2003–19 árum eftir kennilegu uppgötvun QF-kenningarinnar — sem VIÐ-sviðs forrit heilans uppgötvast fyrir tilviljun í taugalíffræðitilraunum, enda ekki að undra þar sem ekki hafði hvarflað að vísindamönnum að slíkt svið væri til staðar í heilanum. Það sama var uppi á teningnum hjá höfundi QF-kenningarinnar sem fékk sínar upphaflegu hugmyndir í gegnum afar sérstaka andlega upplifun í jógaiðkun sinni. Var innsæi hans í formi Venn-mengis (Venn-set) skammtafræðinnar (quantum mechanics) sem fjallaði um fyrstu sekúndu sköpunarinnar. Þar birtist honum líkan sem í skammtafræðinni er kallað „skammtabylgja (quantum wave) alheimsins“, en um leitina að því innsæi hefur prófessor Stephen Hawking, árið 1984, sagt eftirfarandi: „Ég vildi gjarnan fá að vita nákvæmlega hvað gerðist á milli sekúndu 10^-33 og sekúndu 10^-43. Það er þar sem hin endanlegu svör við öllum spurningum um alheiminn — að meðtöldu lífinu sjálfu — er að finna. Hið almyndasamhverfa líkan QF-kenningarinnar af heilanum er byggt á þeirri uppröðun DNA-kirnanna sem áður hefur komið fram, ásamt tvíþættri virkni vitundarsviðsins, en án hennar eru líkönin ekki hæf um að gefa þau svör sem sóst er eftir varðandi hinar starfrænu truflanir mannsheilans. Þessu er líst í umtalsverðum smáatriðum í ALKAÞRAS-fyrirlestrinum sem er að finna:

http://www. peace-files. com/ALKATHRAS/00_A-Inngangur. html

TVÖFALDUR HEILI og TVÖFÖLD VITUND DNA-EXON DNA-INTRON HEILI HEILI. VITUNDARBYLGJU NORMAL BYRTING VÍTUNDARBYLGJU. RÁÐANDI BAKGRUNNS ÁÐANDI "ÉG". EFNISHYGGJU EFNISHYGGJU “EG” HVELI RUMSKYNJUNAR
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/14_Almyndaheilinn.gif

Vegna tiltölulega lítils fjölda gena, telja vísindamenn Celera að það verði nauðsynlegt að horfa annað í leitinni að þeim flækjum sem eru innifaldar í þróun mannverunnar og þeirri starfsemi sem framkallar hið flókna stjórnkerfi sem viðheldur sköpunar- og endurnýjunarstarfi frumunnar. Þeir líta svo á að rannsóknarvísindamenn geti kannað fjölda af þeim þáttum sem nú eru aðgengilegir með tilkomu hinnar greinargóðu þekkingar á svæðum í genamenginu (genome) (DNA-sameindinni) sem ekki innihalda erfðakóðagen (hefur verið skilgreint sem óafvitandi milligena DNA-rusl). Þetta inniheldur genalaus svæði sem framkvæma stjórnunarþætti þá sem ráða genaafrituninni á DNA-erfðakóðunum (prótínbyggingarforritin). (Hér er verið að tala um stjórnun á formgerðarmyndun, eða formsköpun lífverunnar, ásamt stjórnun á sérhæfni og samvirkni frumunnar) (Það blálitaða í svigunum eru skýringar þýðanda).

Tilvitnun úr febrúar 2001 fréttatilkynningu: Celera Genomics.


UPPGÖTVUN Á „SPEGILTAUGUM“ MANNSHEILANS – SEM GERÐ VAR FYRIR TILVILJUN – ÁSAMT FYRSTU TÚLKUNUM VÍSINDANNA Á STARFSEMI ÞESSA TAUGASVIÐS, EÐA:

Spegiltaugar mannsheilans og samkenndar — samúðarvirkni þeirra!

Í júlí 2003 birtu tveir ítalskir vísindamenn í Parma á Ítalíu, dr. Giacomo Rizzolatti og dr. Laila Craighero, grein í hinu virta tímariti Annual Review of Neuroscience, en greinin fjallaði um uppgötvun þeirra á svokölluðum SPEGILTAUGUM (mirror neurons). Ári síðar var þessari uppgötvun fagnað sem mikilvægu vísindaafreki og gengu sumir jafnvel svo langt að jafna henni við uppgötvun á byggingu DNA-sameindarinnar, en flestir voru sammála um að hún kynni að hafa mikla þýðingu fyrir framtíðarskilning okkar á mannsheilanum. Fyrir höfund QF-kenningarinnar var þetta staðfesting á kenningunni með rannsóknum. Vísindamennirnir sem gerðu uppgötvunina skilgreindu spegiltaugasvæðið í rúmskynjunarhvelinu réttilega sem samúðarstöð heilans (Brain's Empathy Center). Þetta er það sem QF-healalíkönin sögðu til um þegar árið 1984 og birt var á prenti 1998 og 2002. QF-healalíkönin sögðu til um staðsetningu þessarar taugastöðvar — og þar er hún nefnd VIÐ-sviðsheilastöðin — á svipuðum slóðum og hún hefur nú verið uppgötvuð, en þetta er einmitt svipað svæði og déjá vu-svæði heilans er að finna á. Munurinn á QF-kenningunni og spegiltaugakenningunni er hins vegar sá að samkvæmt QF-healalíkaninu er spegiltaugasvæði efnishvelsins það svæði sem kenning mín skilgreinir sem miðstöð fyrir ÉG-skynjunina — og er Broca-talsvæðið jafnframt hluti af því.

Á internetinu má sjá myndbandsbrot úr NOVA scienceNOW þar sem Robert Krulwich fjallar um þessar uppgötvanir. Slóðin á vefinn er eftirfarandi:

http://www.pbs. org/wgbh/nova/sciencenow/archive/

Uppgötvun Giocomo Rizzolati og Laila Craighero
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/15_Spegiltaugarnar.gif

Á einhverjum tímapunkti á ævinni mun sérhver vísindamaður fara að öðlast dýpri áhuga á starfi sínu og spyrja sjálfan sig hvaða tilgangi það þjóni. Þá mun hann standa frammi fyrir vali. Fari hann að spyrja spurninga og reyna að finna svör við þeim – til að skilja hvaða tilgangi starf hans þjónar – mun hann líta út sem bjáni í augum samstarfsmanna sinna. Á hinn bóginn getur hann látið það ógert, mun þá ekki líta út sem bjáni og læra meira og meira um minna og minna... Þú verður að taka þá ákvörðun að þora að líta út eins og bjáni.

Tilvitnun í prófessor Karl Pribram.


Í LJÓSI ÞESS SEM HÉR Á UNDAN ER KOMIÐ FRAM VAKNAR SPURNINGIN: HVAÐ VELUR ÞVÍ ÞÁ AÐ VIÐ-SVIÐ HEILANS EÐA SPEGILTAUGAR RÚMSKYNJUNARHVELSINS STARFA SVO MISMUNANDI Á MILLI EINSTAKLINGA?

Hverjar eru orsakir hinna starfrænu truflana á við — eða samkenndar — heilastöð manna?

Tvenns konar gallar koma fram í mannsheilanum: Annars vegar óafturkallanlegar vefrænar skemmdir og hins vegar starfrænar truflanir sem unnt er að leiðrétta. Vefrænar skemmdir orsakast af slysum, sýklum, bakteríum og veirum, en hvernig starfrænar truflanir verða til er ekki vitað, en undir þær falla erfðagallar. Starfrænar truflanir eru vel þekktar og þeim líst í vísindum okkar, en orsakakerfi þeirra er með öllu óþekkt, sem stafar af því að þær lúta stjórn genatjáningar (gene expression) í genamenginu og eru því skammtafræðilegs (Quantum Mechanics) eðlis. Skammtagrunnur líffræðinnar er margfalt smærri en svo að öflugustu smásjár fáni greint hann og er því afar torveldur til rannsóknar. Þess vegna hefur ekki tekist að finna orsakir þess aragrúa af tölfræðilegum starfrænum sjúkdómum sem hrjá mannkynið.

Þegar QF-kenningin kom fram árið 1984 skapaðist sá möguleiki að öðlast nýja innsýn í skammtavirkni DNA-sameindarinnar og hafist var handa við að smíða fyrstu líkönin af starfsemi mannsheilans, en grunnur heilastarfseminnar liggur á skammtasviðinu. Fljótlega kom í ljós að ef líkönin væru byggð samkvæmt ábendingum QF-kenningarinnar gætu þau svarað nánast öllum spurningum varðandi hinar starfrænu truflanir. Fyrstu truflanalíkönin voru sett upp í þeim tilgangi að öðlast skilning á því hvernig áfengisneysla mannsins gjörbreytti persónuleika hans og framkallaði taugavana á gervitaugahemla. Niðurstaðan varð sú að í þeirri truflun sem á sér stað við endurupptöku gervitaugaboðefna í taugamótunum — sem gerist í heilanum um 600.000 milljón sinnum á sekúndu — væri móttökutaugunum ranglega umpólað, sem jafngilti því að afriti af ÉG-efnisheilahvelinu væri troðið inn í VIÐ-rúmheilahvelið, eins og sjá má á næstu síðu.

Hinar starfrænu truflanir. heilahveli Ég
ICELANDIC_FILES/QF-B-09/16_Starfraenar-truflanir.gif

Bláu skálínurnar VIÐ-rúmheilahvelsmegin á myndinni tákna þær starfrænu truflanir sem hin ranga umpólun veldur, og hafa þær hlotið ýmis nöfn, en hugtak QF-kenningarinnar yfir þær er sía (filter). Með nægilega mikilli uppsafnaðri síu truflast framleiðsla náttúrulegra taugahemla í VIÐ-rúmhvelinu svo mjög að einstaklingurinn getur ekki framkallað nægilegt magn þeirra og neyðist því til að neyta gervitaugahemla í ýmsu formi, einkum áfengis. Hlaut sjúkdómurinn sem af þessu leiddi því nafnið alkóhólismi.

Þegar hönnuður líkansins fékk í hendur niðurstöður eineggja tvíburarannsókna frá Háskólanum í Minnesota, sem sýndu að atferlismynstur mannsins gengju í erfðir, varð honum ljóst að þau söfnuðust upp í gegnum kynslóðirnar. Þetta átti sér stað í heila allra þeirra sem neyttu áfengis og annarra vímuefna, en eins og sakir standa verður þriðjungur þeirra alkóhólistar.

Það sem er öllu óhugnanlegra er sú ábending QF-kenningarinnar að hinar starfrænu truflanir — sían — sem myndast í mannsheilanum geti tekið skammtastökk út í aðra vefi líkamans og framkallað með því þann aragrúa af tölfræðilegum sjúkdómum sem enn eru með öllu óútskýrðir hvað orsök varðar. Á þetta einnig við um 70% þeirra krabbameina sem verða til við stökkbreytingar án áhrifa eiturefna. Hönnuðinum varð ljóst að afleiðingar áfengisneyslu mannsins voru margfalt alvarlegri en svo að valda aðeins rugli, ósætti, slysum og ofdrykkju, heldur var hún meginorsök allrar úrkynjunar mannkyns; en munurinn á drykkjusjúklingi og alkóhólista felst í því að sá síðarnefndi gerir eitthvað í sínum málum. Áfengisneysla mannsins hefur því margfalt verri afleiðingar en menn hafa gert sér grein fyrir vegna þeirra hægfara breytinga sem hún veldur á grunnforriti heilans, einkum skautum VIÐ-rúmheilahvelsins, sem eru samtengd trúarsviði heilans.

Sé þetta rétt sem hér kemur fram merkir það að hér kunni að vera komnar fram víðtækustu og þýðingarmestu skýringar á mannsheilanum og starfsemi hans sem fram hafa komið til þessa. Hönnuði fyrirlestrarins brá mjög við að átta sig á þessu, þar sem hann sá fram á hversu erfitt yrði að koma þessum hugmyndum á framfæri í þeim tilgangi að stemma stigu við þeim hörmungum sem áfengið veldur nú í sívaxandi mæli meðal mannkynsins, en þær vaxa veldisvísislega milli kynslóða.

Augljóst er að þær útskýringar og myndir sem hér hafa verið settar fram eru afar mikil einföldun á gífurlega flóknu máli. Nánari umfjöllun yrði að vera á háskólastigi og því ekki við hæfi almennings, en hér eiga orð hins kunna taugalíffræðings og fyrrverandi forseta Harvard-háskóla, dr. Geralds D. Fischbachs frá árinu 1993, afar vel við: Heimspekilegri leit verður að vera fylgt eftir með tilraunum sem nú eru meðal hinna brýnustu, krefjandi og hvetjandi í öllum vísindagreinum og sögu vísindanna. Lífslíkur okkar, og sennilega alls lífs á þessari plánetu, velta á enn fullkomnari skilningi okkar á mannshuganum.

Síðast en ekki síst ber að nefna orð Krists, sem í ljósi þess sem hér hefur verið reifað birtist sem sérfræðingur í taugalíffræði og boðefnaframleiðslu, ofan á allt annað sem hann var: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum (trúarsvið heilans). Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn (samúðarstöð heilans) eins og sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.

Þetta merkir að við ættum öll að spyrja okkur: Hvað er ég að hugsa? , En Descartes – þótt hann væri jesúíti – kann að hafa misst af kjarna málsins þegar hann sagði: „Cogito ergo sum“, eða „Ég hugsa, þess vegna er ég!“ Hann hefði verið nær sannleikanum hefði hann sagt: Ég hugsa VIÐ, þess vegna er ég!

Lokatillögur QF-kenningarinnar eru enn sem fyrr þær að skerðingin á okkar mannlegu samkenndareiginleikum sé orsök allra stríða og glæpa (Wars and Crimes) og illsku í mannkynssögunni, auk þess að valda öllum tölfræðilegum sjúkdómum mannsins, OG AÐ þetta stafi af mengun mannsins á eigin heila með neyslu á áfengi og öðrum vímuefnum, sem smám saman breyta grunnforritum heila okkar í gegnum kynslóðirnar. Þetta er útskýrt í ALKAÞRAS-fyrirlestrinum sem má finna hér:

http://www. peace-files. com/ALKATHRAS/00_A-Inngangur. html


Ef djöfullinn er ekki til, heldur hefur maðurinn skapað hann, þá hefur hann sannarlega skapað hann í sinni eigin mynd og líkingu.

Tilvitnun í Fjodor Mikhaílovítsj Dostojevskí.


Spurningarnar um uppruna hins illa og skort á samkennd meðal manna kalla fram í hugann fræga sögu úr eðlisfræði tuttugustu aldar.

Eðli tilvistar og fjarveru, birtingar og hverfulleika.

Skapaði Guð allt sem er til? Er hið illa til? Skapaði Guð hið illa?

Háskólaprófessor við vel virta æðri menntastofnun ögraði nemendum sínum með eftirfarandi spurningu: Skapaði Guð allt sem er til?

Hugrakkur nemandi svaraði: Já, það gerði hann!

„Skapaði Guð allt?“ ítrekaði prófessorinn.

Já, herra minn, hann gerði það sannarlega, svaraði nemandinn.

Við þessu brást prófessorinn með frekari spurningum: „Ef Guð hefur skapað allt, þá hefur Guð skapað hið illa. Og þar sem hið illa er til, gildir sú regla að verkin sýna merki meistarans; því getum við gengið út frá því að Guð sé hið illa.“

Hér þagnaði nemandinn og veitti ekkert svar við röksemdafærslu prófessorsins. Prófessorinn – augljóslega mjög ánægður með sig – stærði sig nú af því að hafa enn á ný sýnt fram á að hugmyndir manna um Guð væru goðsagnir einar.

Annar nemandi rétti upp hönd, bað um orðið og sagði: Má ég spyrja yður spurningar, herra prófessor?

Að sjálfsögðu, svaraði prófessorinn.

Nemandinn stóð á fætur og spurði: Herra prófessor, er kuldi til?

Hvers konar spurning er þetta? Auðvitað er hann til. Hefur þér aldrei verið kalt?“ gall í prófessornum, á meðan hinir nemendurnir flissuðu að þessari undarlegu spurningu samnemanda síns.

Nemandinn sem spurði hélt þá áfram og svaraði: Herra minn, í raun er kuldi ekki til. Samkvæmt lögmálum eðlisfræðinnar er það sem við köllum kulda í raun skortur á hita. Hægt er að rannsaka alla hluti þegar þeir búa yfir orku eða geisla frá sér orku, og hiti er það sem veldur því að hlutir hafa eða gefa frá sér orku. Algjör kuldi eða alkul (-273,16° á Celsíus eða -459,69° á Fahrenheit eða 0 á Kelvin) er algjör fjarvera hita; allt efni verður óvirkt og ófært um hvers kyns efnahvörf við þetta hitastig. Kuldi er því ekki til. Við bjuggum til þetta orð til að lýsa því hvernig okkur líður þegar engan hita er að finna.

Nemandinn hélt áfram spurningum sínum: Prófessor, er myrkur til?

Prófessorinn svaraði: Að sjálfsögðu er það til.

Nemandinn svaraði: Enn á ný hafið þér á röngu að standa, herra prófessor. Myrkur er heldur ekki til. Myrkur er í raun aðeins fjarvera ljóss. Við getum rannsakað ljós en ekki myrkur. Staðreyndin er sú að við getum notað ljósbrotstening Newtons til að kljúfa hvítt ljós í marga liti og rannsakað mismunandi bylgjulengdir og tíðnir hvers litar um sig. Ekki er hægt að mæla myrkur. Einfaldur ljósgeisli getur brotist inn í veröld myrkursins og líst hana upp. Hvernig getur maður vitað hversu mikið myrkur ríkir í ákveðnu rými? Maður mælir ljósið sem þar er til staðar. Er það ekki rétt? Myrkur er orð sem maðurinn notar til að lýsa því hvað gerist þegar ekkert ljós er til staðar.

Eftir stutta þögn spurði nemandinn prófessorinn að lokum: „Herra minn, er hið illa til?“

Orðinn nokkuð óöruggur svaraði prófessorinn: „Að sjálfsögðu, eins og ég hef þegar sagt. Hið illa gefur að líta í daglegum dæmum um grimmd mannanna í garð hvers annars. Hið illa birtist í hinum mikla fjölda glæpa og ofbeldisverka alls staðar í heiminum. Þetta er vitnisburður um ekkert annað en tilvist hins illa.

Svar nemandans var á þessa leið: „Hið illa er ekki til, herra, eða er að minnsta kosti ekki til í sjálfu sér. Hið illa er fjarvera Guðs. Það er eins og myrkrið og kuldinn, orð sem maðurinn hefur búið til til að lýsa fjarveru Guðs. Guð skapaði ekki hið illa. Hið illa er afleiðing þess sem gerist þegar maðurinn hefur ekki kærleika Guðs í hjarta sínu. Það er eins og kuldinn sem kemur þegar enginn hiti er til staðar, eða myrkrið sem kemur þegar ekkert ljós er til staðar.

Við þetta tók prófessorinn sæti sitt í auðmýkt.

Nafn hins unga spyrjanda og svaranda: Albert Einstein

Góðar stundir.


Fyrirlestur fluttur 21. janúar 2006 í Guðspekifélagi Íslands og ætlaður til birtingar á vef PEACE Útgáfunnar ehf.

Áður birtar tilvitnanir í ritgerðum og greinum:

http://www.pbs. org/wgbh/nova/elegant/program. html http://www.bbc.co. uk/science/horizon/2001/paralleluni. shtml http://www.bbc.co. uk/science/horizon/2003/godonbrain. shtml http://www.visindavefur.hi. is/index. asp? url = svar. asp? id = 3947 http://kevxml2 a.infospace. com/_1_300313__info. alltel/health/hlt-story. htm & qid = 517182 & qt = 1


Næsta ritgerð er sú tíunda í röðinni af ritgerðum, bréfum, smáritum, samsetningum, fræðiritum eða skýringum á niðurstöðum QF-kenningarinnar sem birt er í Litla bókfellinu (THE LITTLE SCROLL). Þessi ritgerð er:

QF-R — 10 QF-kenningin og sameining trúar og vísinda


Þessi heimasíða er enn í fæðingarhríðum og verður væntanlega sett upp af kunnáttumanni, framtíðarvefstjóra (Webmaster) PEACE Útgáfunnar ehf., sem mögulega byrjar störf í ágúst 2006.

Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir, tillögur eða kvartanir sem hann vildi koma á framfæri, hvort sem um er að ræða jákvæðar eða neikvæðar, þá mun bráðabirgðavefstjóri okkar taka við þeim og koma þeim áfram til föðurhúsanna. Hér eru netföng þau sem nota má til að koma slíkum skilaboðum áfram: