PowerPoint-fyrirlesturinn
ALKAÞRAS
Fyrirlestur í sex þáttum sem fjallar um skammtafræðilegar og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi lyfjum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: „Alkóhólismi“, „mengun mannsheilans“, „boðefnasvindl mannsins“. Hér kemur fram í fyrsta skipti í mannkynssögunni skýring á virkninni í taugaánetjunarsjúkdómunum og batalausn þeirra, en fyrirlesturinn samanstendur af:

Hér hefst svo hin raunverulega skoðun okkar á viðfangsefninu þar sem við könnum byggingu og grunnforritun mannsheilans, sem er í formi líkana sem byggð eru á niðurstöðum Venn-mengislíkana QF-kenningarinnar. Skal það endurtekið hér að án þess innsæis sem QF-kenningin býður upp á, og fram kemur undir A, B og C hér á eftir, ásamt þeim skyggnum sem þar eru upptaldar, er sköpun líkana þeirra sem hér koma fram ekki möguleg. Hér er átt sérstaklega við skyggnur #2 - 05, #2 - 06, #2 - 07, #2 - 14, #2 - 15, #2 - 16, #2 - 17 og #2 - 19, en án þessa innsæis væri staðan sú sama og í sameindalíffræðinni (molecular biology), það er, að einungis væri um „hvernig“-skýringar að ræða, án nokkurra „hvers vegna“-skýringa.
Sem fyrr segir er hér reynt að ná fram sem mestri einföldun í lýsingunum á byggingu og forritun heilans og eru því líkönin sett upp í hinu einfalda mengisformi (sýnt hér að ofan í inngangsrammanum) þar sem heilahvelin eru tjáð með mengjahringjum. Á myndunum táknar blái hringurinn heilahveli efnisskynjunarinnar – venjulega það vinstra – og rauður hringur táknar heilahveli rúmskynjunarinnar – venjulega það hægra.
Við byrjum skoðun okkar á mannsheilanum með stuttu yfirliti yfir sögu mannkynsins í leit sinni að þekkingu og skilningi á kjarna lífsins: DNA-sameindinni. Þessi leit hófst í raun með moravíska (í tékkneska lýðveldinu) ágústínusarprestinum og vísindamanninum Gregor Jóhann Mendel (1822–1884), en hann varð „faðir nútímaerfðafræðinnar“ með rannsóknum sínum á erfðum ertuplöntunnar á árunum 1856 til 1863. Gregor birti niðurstöður sínar 1866 en þær mættu mikilli gagnrýni og lítilli athygli og var það ekki fyrr en upp úr aldamótum 20. aldar að vinna hans var viðurkennd og þekkt sem mendelsku erfðalögin. Enduruppgötvun þessara lögmála hleypti erfðafræði nútímans af stokkunum, en athyglisvert er að sáralítið hefur þurft að leiðrétta upphaflegar niðurstöður Mendels. Ekki var þó mikið um framfarir í erfðarannsóknum fyrr en árið 1943 þegar breski vísindamaðurinn dr. William Astbury fann aðferð til að framkalla fyrstu röntgenmyndirnar af DNA-sameindinni. Tíu árum síðar framkölluðu þau dr. Rosalind Franklin og dr. Maurice Wilkins með þessari aðferð röntgenmyndir þær sem þeir dr. Francis Crick og dr. James Watson notuðu til að ráða gátuna um DNA-sameindina. Uppgötvun þessi leiddi af sér fæðingu sameindalíffræðinnar og þess að þeir Crick, Watson og Wilkins hlutu Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- eða læknisfræði árið 1962. Rosalind Franklin var þá látin af völdum geislunar þeirrar sem hún varð fyrir við röntgenmyndatökuna.
Crick og Watson uppgötvuðu uppröðun hinna fjögurra kjarnasýrusameinda – kallaðar kirnur: Adenín (adeline), cýtósín (cytosine), gúanín (ganine) og týmín (thymine), sem festar eru á sykurfósfatsameindir sem síðan raðast upp þannig að þær mynda eins konar skrúfustiga. Það var svo skrúfustigaformið sem gerði afritun allrar sameindarinnar mögulega þar sem í hinum svokölluðu basapörum (base-pairs) kirnanna var alltaf um sömu pörun að ræða. Það er að segja að á móti C-kirnu var alltaf G-kirna (gúanín), en á móti T-kirnu alltaf A-kirna. Þær DNA-kirnur sem mynduðu erfðavísana (genin) voru síðan afritaðar með öðrum slíkum kirnum og mynduðu þau svokölluð RNA-afrit. Þessi RNA-afrit voru síðan uppskriftin að samsetningu amínósýra þeirra sem mynda prótínin er byggja líkama fjölfrumunganna.

Hér í skyggnu #2 - 02 sjáum við líkan af frumu og kjarna hennar þar sem DNA-sameindina er að finna. Út úr frumukjarnanum er sýnd mynd af DNA-sameindinni dreginni út úr kjarnanum og sést þar hin snilldarlega pökkun kirnukeðjunnar. Árið 1990 hófst í Bandaríkjunum hið opinbera líftækniverkefni Human Genome Project, sem í alþjóðlegri samvinnu við aðra aðila einbeitti sér að talningu og kortlagningu kirnanna í DNA-sameindinni. Átta árum síðar, eða 1998, kom fram einkafyrirtækið Celera Genomics sem fékkst við hið sama. Í ágústmánuði árið 2000 birtu þessi fyrirtæki fyrri hluta heildarniðurstaðna sinna: Endanlega talningu allra kirnanna, sem reyndust vera um 3.200. 000.000. Ári síðar komu svo fyrstu niðurstöður kortlagningar genanna sjálfra, sem notuðu aðeins 1,5% allra kirnanna, og reyndust prótínuppskriftir genamengisins, eða erfðavísarnir (genin), vera einungis 30 til 35.000. Nokkrum árum áður hafði eitt líftæknifyrirtæki í Bandaríkjunum tekið út einkaleyfi á 140.000 genum. Árið 2004 komu svo fram nýjar og nákvæmari tölur fyrir erfðavísana og voru genin nú orðin 20 til 25.000, sem nota einungis 1% kirna DNA-sameindarinnar.
(Hér kemur myndbandsklippa #01)

Næst snúum við okkur að þungamiðju fyrirlestrarins, manninum, og förum yfir stutta upprifjun á þeirri líffræðilegu þekkingu sem við lærðum í unglingaskóla. Þetta er mjög einfölduð skoðun þar sem við fylgjum niðurstöðum smækkunarstefnu raunvísindanna. Munum við skoða það sem rafeindasmásjáin getur sýnt okkur og síðan það sem skammtafræðin (quantum mechanics) segir okkur, og förum réttsælis í gegnum hina 10 ramma á skyggnunni.
Rammi #1 Mannslíkaminn er gerður úr frumum. Talið er að í manninum séu um 100 trilljónir frumna, eða 100.000. 000.000. 000. Þar af er talið að um 1 prómill séu taugafrumur, eða 100.000. 000.000. Lífveran maður er fjölfrumungasamfélag þar sem hver og ein fruma inniheldur nákvæmar upplýsingar um byggingu sína, hlutverk sitt og framkvæmd þess. Frumum þessum er skipt í tvo höfuðhópa: Taugavefi og líkamsvefi, sem síðan greinast í marga undirflokka. Hér eru það fyrst og fremst taugavefirnir sem við höfum áhuga á, en í þeim á upplifun og stjórnun lífsins sér stað. Allir vefir líkamans búa yfir forriti að sköpun sinni, sem er hin þekkta DNA-sameind. Þetta forrit skapar líkamann í upphafi, viðheldur honum með sífelldri endurnýjun og gerir við skemmdir af völdum slysa, samtímis því að safna í sig þróunarupplýsingum gegnum kynslóðirnar.
Hér er þó um að ræða mjög markverða undantekningu hvað varðar forritun taugafrumnanna, en svo virðist sem þær hafi við fæðingu afsalað sér getunni til að nota forritið að sjálfum sér til viðgerða. Þetta þýðir að sköpunarforritið var í fullu starfi í fósturþróuninni og lauk við að skapa allar taugafrumurnar þegar fæðingin fór fram. Skaddist eða skemmist taugafrumur eftir fæðingu er ekki gert við þær og er það orsök allra lömunarskaða og lömunarsjúkdóma. Sem dæmi: Ef mænan slitnar sundur grær hún ekki aftur. Hverjar orsakirnar eru fyrir þessari forritsúreldingu er ekki vitað með vissu, en mjög líklegt þykir að þetta stafi af eðli þeirra sérverkefna sem taugarnar taka að sér, sem eru að annast hugsunarstarfsemina, upplýsingageymsluna og þar með lífstjórnunina. Gott er að vera meðvitaður um þessa staðreynd þar sem hún tengist sjúkdómum þeim sem við hyggjumst skoða síðar.
Rammi #2. Í hverri frumu er frumukjarni. Frumukjarni er í sérhverri frumu að undanskildum rauðum blóðkornum. Sérhver kjarni inniheldur alla uppskriftina að allri lífverunni. Við byrjum hér að kynna okkur nánar hið stórkostlega sköpunarforrit sem er hin fræga DNA-sameind, en hún inniheldur upplýsingar um sköpun, endursköpun og hlutverk hverrar frumu, svo og framkvæmd hlutverksins. Hér setjum við ofurlítinn hluta húðar undir rafeindasmásjána og sjáum að hún er samsett úr fjölda frumna með ytra byrði, eða frumuvegg, og í miðjunni hinn dökka frumukjarna.
Rammi #3. Frumukjarninn er gerður úr litningum. Hver frumukjarni inniheldur 23 litningapör eða 46 litninga alls. Er hvort settið um sig fengið frá öðru foreldrinu. Ef við stækkum myndina af frumunni sjáum við smáatriði hennar og er kjarninn þar mest áberandi og áhugaverðastur. Við stækkum því innihald hans sem sýnir þá hina 46 litninga, skipta í 2 sett með 23 litningum hvort. Hvort þessara tveggja litningasetta DNA-sameindarinnar kemur frá föður og móður.
Rammi #4. Litningarnir hafa að geyma DNA-spírala. DNA-skrúfustigasameindinni er svo listilega pakkað saman af náttúrunni að samanpakkaður er tvígormurinn (double helix) ekki nema um 0,02 mm á lengd, en ef allir 46 litningarnir eru raktir sundur og settir endi við enda mynda þeir tvær 90–100 cm langar sykurfósfatstrimlakeðjur. Á þær eru festar fjórar tegundir af flóknum kjarnasýrusameindum sem nefnast kirnur. Þessar kirnur, þekktar sem adenín, cýtósín, gúanín og týmín, eru hinir fjórir lífrænu bókstafir lífsins sem mynda byggingarforrit lífverunnar.
Rammi #5. Erfðir liggja í lífeindabókstöfum DNA. Lífeindabókstafir eru kjarnasýrur af fjórum gerðum og nefnast KIRNUR, alls um 3.200. 000.000 stykki sem fest eru á tvo skrúfustigastrimla. Þessar fjórar tegundir kirna eru smíðaðar úr um 63 tegundum kjarnasýra, en amínósýrurnar sem lífið notar til að byggja upp öll prótín líkamans eru einungis 20. Einungis 20 amínósýrur byggja því líkama okkar, en 63 kjarnasýrur stjórna byggingunni.
Bygging og virkni spíralstiga lífsins — DNA-sameindarinnar — var fyrst uppgötvuð 1953 og viðurkennd með Nóbelsverðlaunum 1962. Ekki var mikið vitað um starfsemi erfðaforritsins í upphafi, en árið 1977 kom í ljós að um gríðarlegan fjölda kirna var að ræða og að jafnframt myndaði einungis lítill hluti þeirra genin eða erfðakóðaröðina sem var uppskriftin að prótínsamsetningunni. Voru þær kirnur sem mynduðu afritunarröð genanna kallaðar traðir (exon), en aukakirnur þær sem var að finna í erfðakóðanum inn á milli þeirra kallaðar innraðir (tintrons). Afgangurinn, sem nam um 99% DNA-kirnanna, var ekki notaður við neins konar afritun og tilgangur hans óþekktur. Voru þessar kirnur skilgreindar sem „táknalaust milligena-DNA“ (non-coding intergenic DNA). Var talið að þetta væru leifar úr þróuninni sem frumunum hefði láðst að eyða.
Rammi #6. Kirnurnar mynda hinar 20–25.000 erfðakóðakeðjur sem skilgreina mannveruna en einungis um 1% af kirnum genamengisins eru notaðar til þess. Erfðakóðakirnurnar skiptast í tvo hópa: Traðir (0,5%) mynda hina raunverulegu erfðavísa og innraðir (0,5%) sem vísindin vita ekki hvað gera. Afgangurinn, eða 99% kirnanna, er talinn vera rusl. Þetta voru niðurstöður Human Genome Project og Celera Genomics, sem birtar voru í febrúar 2001, en þær vöktu mikla furðu. Varð mönnum ljóst að gátan um DNA-sameindina og lífið var einungis ráðin að hluta og orðin mun flóknari en við upphaflega uppgötvun á samsetningu DNA-sameindarinnar. Kom í ljós að músin hafði svipaðan genafjölda og maðurinn og vísbendingar voru um að hið sama gilti um fílinn; einungis þyrfti að afrita sama genið sjaldnar í músinni en oftar í fílnum. Grunnforritið og byggingarefnið var hið sama. Einnig kom í ljós að sama genið kynni að vera afritað mörg þúsund sinnum, en afritið síðan klippt til á mismunandi hátt hverju sinni af svokölluðum splæsisameindum, þannig að fá mætti árafjölda mismunandi prótína úr sama geninu. Fóru menn þá að átta sig á að stærsti hluti gátunnar um DNA-sameindina var óleystur og sneri að því hvað stjórnaði hinum svokölluðu stýrigenum og splæsisameindum. Leiddi þetta til mikils verðhruns á hlutabréfum líftæknifyrirtækja á mörkuðum heimsins.
Þessar staðreyndir snerta sérstaklega þau hvalalíkön sem þessi fyrirlestur byggir á, en samkvæmt QF-kenningunni er ekki um neinar ruslkirnur að ræða. Í QF-kenningunni er öllum 3.200. 000.000 kirnum DNA-sameindarinnar skipt í tvo samhverfuhópa: 50% traðir og 50% innraðir, en þetta verður grandskoðað hér á eftir í fyrirlestrinum.
Rammar #7, #8 og #9. Hér erum við komin að endimörkum þess sem rafeindasmásjáin getur sýnt okkur og við tekur vettvangur hinnar nýju eðlisfræði, eða skammtafræðinnar. Þar erum við komin að grunni veruleikans og taka þar við skammtalögmálin sem birta allt annan veruleika en þann sem við eigum að venjast. Hér höfum við þróað annars konar smásjá þar sem við sjáum ekki neitt með berum augum: Kjarnakljúfana eða hraðlana, sem sýna okkur einungis ferla eftir brot og brotabrot af atómum í sérstökum vökva. Ferlarnir eru síðan skilgreindir með beitingu stærðfræðinnar. Ekki er unnt að beita þessari aðferð við rannsóknir á starfsemi DNA-sameindarinnar, en það er einmitt á þeim vettvangi sem upplýsingageymsla vitundar (consciousness) heilans á sér stað. Er því haldið fram hér að eina leiðin til að kanna þetta raunveruleikasvið sé að beina vitundinni inn á við, líkt og jógar iðka í innhverfri íhugun. Jafnframt er því haldið fram að mikið af goðsögnum og spádómum fortíðarinnar sé líkingamál um samspil í starfsemi vitundarinnar og genamengis mannsheilans. Hraðlarnir hafa gert okkur kleift að finna atóm og hluta þeirra, svo sem rafeindir og kvarkabrot kjarnagnanna, en á síðari tímum er farið að skoða þessi brotabrot efnisins sem strengi og himnur og sjáum við hér framsetningu á slíkri líkanagerð.
Rammi #10. Athyglisverðast við efnisgrundvöllinn er sú staðreynd að hér komumst við að því að samkvæmt gildandi niðurstöðum eðlisfræðinnar er fastefnishluti alheimsins byggður upp úr einungis fjórum tegundum öreinda: Fiseind, rafeind, uppkvarki og niðurkvarki, og er fiseindin þar einungis afgangur úr sólbrunanum sem þeytist um geiminn. Fiseindin er svo smá að milljónir slíkra fara gegnum líkama okkar á hverri sekúndu án þess að við finnum fyrir því og án þess að þær rekist á nokkuð. Að vísu er unnt að framkalla allar efniseindirnar í sinni gagnstæðu mynd í tilraunastöðvum — sem andefni — en enginn hluti alheimsins hefur fundist sem byggður er úr slíku efni. Með öðrum orðum: Snilld sköpunarinnar er slík að hún þarf aðeins þrjár öreindir til að byggja upp svo margslungið fyrirbæri sem mannveran er.

(Hér kemur myndbandsklippa #02)
•
Frá árinu 1977 hafa sameindalíffræðingar vitað að einungis lítill hluti DNA-sameindarinnar myndar kirnukeðjukóða þá sem skapa RNA-afritið og þekktir eru sem gen eða erfðalóðar. Jafnframt voru ekki allar kirnur þessarar keðju afritaðar í loka-mRNA-afritinu. Kirnur þær sem afritaðar voru yfir í RNA hlutu heitið traðir, en þær kirnur sem ekki voru með í lokaafritinu og lágu á milli útrafanna hlutu nafnið innraðir. Á níunda áratugnum var talið að traðir væru um 30% af geninu (hérna) og að innraðir væru 70% afgangurinn, en nýjustu tölur tala nú um 55% traðir og 45% innraðir. Þetta er einungis lítill hluti af hinum mikla fjölda kirna í DNA-sameindinni, en afgangurinn hefur ýmist verið kallaður táknalaust DNA (non-coding DNA) eða milligena-DNA (intergenic DNA), sem við getum einfaldlega nefnt táknalaust milligena-DNA. Í dag er heildartala kirnanna í DNA-sameind mannsins um það bil 3.200. 000.000 kirnur, þar sem einungis 1% mynda raunverulega genakóða, eða eru raunverulegar útraðarkóðakirnur. Starfsemi og tilgangur hinna 99% af táknalausu milligena-DNA og innraðakirnum er óþekktur. Enginn veit með vissu ástæðurnar fyrir tilvist þessara kirna og margir trúa því að þær séu leifar úr þróunarferli lífverunnar eða einhvers konar viðhengi sem náttúran hefur ekki fjarlægt, eða með öðrum orðum: Hreint rusl-DNA (junk DNA).
Hér í skyggnu #2 - 04 höfum við yfirlit yfir flokkun sameindalíffræðinnar á kirnum DNA-sameindarinnar, en þetta er gert með öðrum hætti í QF-kenningunni líkt og sýnt er í skyggnu #2 - 05 hér á eftir.

Hér sýnir skyggna #2 - 05 hvernig QF-kenningin flokkar DNA-kirnurnar, en það er með öðrum hætti en tíðkast í sameindalíffræðinni eins og sýnt er í skyggnu #2 - 04. Það var árið 1984 að hinn heimskunni eðlisfræðingur, prófessor Stephen Hawking, lýsti því yfir að það væri hans æðsti draumur að uppgötva hina svokölluðu sameiningarjöfnu alheimsins, eða uppskriftina að skammtabylgju (quantum wave) alheimsins, en hann orðaði þetta svo: „Mig langar að vita nákvæmlega hvað gerðist á milli 10 í - 33. veldi úr sekúndu (10 ⁻ ³ ³) og 10 í - 43. veldi úr sekúndu (10 ⁻ ⁴ ³). Þar er að finna hið endanlega svar við öllum spurningum um alheiminn — að lífinu sjálfu meðtöldu. Eru þau sekúndubrot sem Hawking talar hér um örlítið brot af fyrsta hluta fyrstu sekúndu sköpunarinnar. Sama ár fékk höfundur ALKAÞRAS-fyrirlestrarins afar sérstakar hugmyndir að svari við þessari spurningu í formi Venn-mengi-samhverfujöfnu fyrir 10 í - 36. veldi úr sekúndu (10) og búa samhverfueiginleikar hennar til forspá um samhverfu í þróunarbyggingu lífsins. Það er alfarið á grundvelli þessa innsæis — nefnt QF-kenningin — sem fyrirlestur þessi er byggður. Hin svokallaða lífgefandi skammtasamhverfujafna QF-kenningarinnar skýrir hinar tvær tímaörvar alheimsins með tvennum grundvallarvíddum í veruleikanum, en skilgreining þessara tveggja vídda kemur upphaflega úr verki eðlisfræðiprófessorsins Davids Bohm sem ber heitið THE IMPLICATE ORDER. Af þessum tveimur örvum tímans er hin svokallaða týnda ör tímans sú sem skapar vaxandi skipulag og tilgang meðal atóma og sameinda, sem við köllum líf, en í QF-skammta-Venn-samhverfujöfnunni fyrir lífið er þetta raunveruleiki rúmsins, þaðan sem allt efni alheimsins kemur og sem prófessor Bohm nefndi innfellda veruleikann (unfolded reality) eða fólgin veruleiki (implicate reality). Hin hefðbundna ör tímans tjáir veruleika efnisins, en hann er nefndur útskýrður raunveruleiki (explicate reality). Það er af þessum sökum sem öllum 3.200. 000.000 ACGT-kirnubókstöfum lífsins í DNA-sameindinni er í QF-kenningunni skipt í tvo hópa, þar sem 1.600. 000.000 þeirra flokkast í útskýrðan raunveruleika itraða (exon-explicate-reality) og hinir 1.600. 000.000 í fólginn raunveruleika innrauða (intron-implicate-reality). Í samræmi við eðli þessara raunveruleika búa kirnurnar í fólgnu innraðanna yfir skapandi og orsakandi forritun, en kirnurnar í útskýrða veruleika útrafanna yfir framkvæmda- og verkforritum. Þessi jafna skipting er augljóslega ekki nákvæmnisspá heldur kennilegt grunnlíkan fyrir efni sem er enn meiri háttar ráðgáta og kann vel að hallast frekar á aðra hvora hliðina, en forrit þeirra er samkvæmt líkani QF-kenningarinnar eftirfarandi:
Í QF-líkaninu hefur sá helmingur DNA-sameindarinnar sem geymir hinn fólgna innraðaveruleika skapandi og orsakandi eðli og er „harði diskurinn“ fyrir forrit sem stjórna stýrigenunum (homeotic master regulatory genes), er stýra svo jafnvægisstillingu (homeostasis) frumna og tauga í mótun þeirra, sérhæfingu og samvirkni, auk hinna svokölluðu utanerfðamerkja (epigenetic marks) sem kveikja og slökkva á genunum.
Í QF-líkaninu hefur sá helmingur DNA-sameindarinnar sem geymir útskýrðan raunveruleika útrafanna framkvæmdaeðli og inniheldur þær traðir (PSE eða Protein Sequence Exons) sem mynda kirnukeðjur genanna, auk þess að vera „harði diskurinn“ fyrir forrit sem stjórna splæsisameindum þeim sem klippa innraðirnar úr hnRNA-afritunum og búa til fullmótuð mRNA-afrit til vinnslu fyrir netkornin (ribosomes).
Hér á eftir er greint frá fyrstu rannsóknarniðurstöðum sem gefa vísbendingu um réttmæti þessa skipulags á DNA-sameindinni:
22. nóvember 2006: Andskilnings-RNA reynist stjórna tjáningu gena
Rannsakendur frá MIT, Whitehead Institute for Biomedical Research og Institute for Systems Biology í Seattle hafa uppgötvað nýtt og áður óþekkt ferli í genastjórnun. Talið er að ferlið, sem fannst í einlitna frumum gers, verndi þessar kynfrumur gegn því að ganga í gegnum meiósu (rýriskiptingu).
Skýringin kemur frá fréttastofu MIT: Þegar gen er tilbúið til að framleiða prótín vinda tveir þættir DNA sem mynda genið ofan af sér. Fyrri þátturinn framleiðir sameind sem nefnist boðbera-RNA og gegnir hlutverki móts fyrir prótínið. Líffræðingar kalla þennan fyrri DNA-þátt skilnings — eða tákna — afritið.
Þótt hinn þátturinn geymi ekki prótínuppskrift getur hann stundum einnig framleitt „andskilnings“-RNA-sameind, en röð hennar er andhverf boðbera- eða skilnings-RNA. Andskilnings-RNA hefur fundist í tengslum við mörg gen en hefur að mestu verið talið erfðafræðilegt sérkenni.
Með því að nota venjulegt bakarager uppgötvaði Cintia Hongay, nýdoktor á rannsóknastofu Gerald Fink, félaga í Whitehead og líffræðiprófessors við MIT, að í tilviki gens sem nefnist IME 4 hindrar andskilnings-RNA skilnings-RNA. Með öðrum orðum slekkur genið á eigin getu til að mynda prótín. Þetta er fyrsta skiptið þar sem tiltekin virkni andskilnings-RNA finnst í þróaðri frumu, (munið eftir rusli táknalausa milligena-DNA-sins) sagði Fink, aðalhöfundur greinarinnar. Þetta bendir til algerlega nýs ferlis í genastjórnun sem við höfum aldrei áður séð í heilkjörnungafrumum. Í þessu skilnings/andskilnings-brjálæði er ákveðið kerfi, sem býr yfir ákveðnum ein og yang-eiginleika (QF-kenning: fólginn-innraða-DNA-kirnur: útskýrðar-útraða-DNA-kirnur).
Þegar aðstæður í kringum gerfrumurnar eru góðar og næringarríkar skipta frumurnar sér með mítósu (jafnskiptingu) — það er, DNA-sameindin afritar sig þannig að hvor dótturfruma fær nákvæmlega sama fjölda litninga og upphaflega fruman. Hins vegar, þegar gerfrumurnar svelta, kveikir IME 4 á sér og virkjar ferli sem kallast meiósa. Þá skipta frumurnar sér í kynfrumugró sem búa yfir hálfum litningafjölda, líkt og egg- og sæðisfrumur spendýra. Gerspórurnar þola þetta harða umhverfi mun betur en stærri frumurnar sem þær eiga uppruna sinn í. En í sumum tilfellum getur það leitt til ófarnaðar að ýta á meiósu-rofann. Ef fruma með aðeins eitt eintak af hverjum litningi (einlitna fruma) er þvinguð í meiósu lifa afkvæmin ekki af. Sem betur fer er komið í veg fyrir slíka eyðileggjandi rýriskiptingu í einlitna frumum vegna þess að þær framleiða stöðugt IME 4 - andskilnings-RNA sem kemur í veg fyrir framleiðslu á skilnings-RNA. Andskilnings-IME 4 verndar því gegn meiósu í frumum sem ráða ekki við hana.
„Árum saman hafa vísindamenn metið genamengi með því að mæla skilnings-RNA, en talið hefur verið að andskilningsafrit hafi enga þýðingu,“ (ruslgen í sameindalíffræði) segir Fink. Hér höfum við fundið ferli þar sem andskilnings-RNA stýrir skilnings-RNA. Sama ferli kann að eiga sér stað í kynfrumum spendýra. Í raun, þegar litið er til þess hve útbreidd þessi andskilningsafrit eru, kæmi mér ekki á óvart þótt þessar niðurstöður leiddu okkur að lokum til þess að uppgötva alveg nýtt stig í genastjórnun. (Einmitt það sem QF-líkönin hafa verið að benda til.)

(Hér kemur myndbandsklippa #03)
Í byrjun níunda áratugarins tókst dr. Edward B. Lewis eftir 30 ára rannsóknarvinnu að sýna að líkami ávaxtaflugunnar var byggður með milligöngu 8 stýrigena sem hvert um sig mótaði ákveðinn hluta líkamans. Sama genamengið er að finna í hverri frumu, en tvöfalt sett af stýrigenum í hverri frumu valdi þau gen sem skyldi afrita til að búa til prótínin sem notuð voru við bygginguna. Síðar kom í ljós að sömu gerð var að finna í hrygg- og spendýrum, en þar voru stýrigenasettin fjórföld. Sumum varð ljóst að þetta samsvaraði hinu svokallaða orkustöðvakerfi jógafræðanna, nema hvað í smækkunarstefnu raunvísindanna var þetta uppgötvað með því að hluta fluguna í sundur og skoða hið smæsta. Jógarnir aftur á móti beindu vitundinni inn á við og áttu samskipti við líkamann, sem gaf þeim álíka mynd.
Þar sem genamengi taugafrumna breytir hlutverki sínu við fæðingu með því að afsala sér hæfninni til að skipta sér í mítósuskiptingu og lagfæra þannig skemmdir, er það stór spurning í raunvísindum hver tilgangurinn sé með þessu. Augljóst er að þetta tengist hlutverki taugafrumnanna að geyma upplýsingar og stýra lífi lífverunnar. Hér höfum við tekið QF-tillögu inn í myndina, en taka skal fram að fyrir henni eru engar beinar rannsóknasannanir. Sterka hliðin er hins vegar sú að einungis með þessu móti hefur okkur reynst fært að setja fram líkan af heilastarfseminni sem fellur að öðrum rannsóknum. QF-kenningin gerir ráð fyrir jafnri verkaskiptingu milli heilahvelanna, sem þýðir að fjölda itraða og innrauða er skipt jafnt. Jafnframt er gert ráð fyrir að um tvenns konar stýrigen sé að ræða, sem upphaflega annast byggingu heilans en síðan tvíþætta taugaboðefnaframleiðslu (neurotransmitter) hans.

Til að einfalda nálgun okkar á heilanum er honum skipt í sjö meginhluta líkt og fram kemur á þessari skyggnu, en þeir eru: Vinstra heilahvel, hægra heilahvel, vinstri hvatheili, hægri hvatheili, vinstri litli heili, hægri litli heili og mænukylfa ásamt stúku og undirstúku, auk heiladinguls, en aðeins lítill hluti hins síðastnefnda sést á myndinni. Þessu til viðbótar kemur vitundarbylgjusvið heilans sem á sér bústað í nýberkinum, en á síðari hluta tuttugustu aldar varð mönnum ljóst að ekki er hægt að ráða gátuna um heilann án þess að leysa jafnframt ráðgátuna um vitundina.
Með þessari skyggnu hefjum við nánari skoðun á grundvallarstarfsforritun hvers hluta fyrir sig, út frá niðurstöðum QF-kenningarinnar (QF-theory), en þar er um að ræða líkön af forritun og starfsemi sem eru nokkuð frábrugðin hinum almennt gildandi líkönum sameindalíffræðinnar (molecular biology). Það er síðan þessi uppsetning – sem samhliða lausnum á ráðgátunum um vitundina – leiðir í ljós svörin við hinum mikla aragrúa óráðinna gáta um starfsemi mannsheilans (human brain), en það á jafnt við um heilbrigða sem sjúklega starfsemi hans, sem og um allar dulspekilegar upplifanir.
Samkvæmt QF-kenningunni er heilanum skipt í tvær nokkurn veginn samhverfar einingar vegna þess að grundvallaruppsetning raunveruleika atómsins er tvöföld og samhverf. Þessa skiptingu er því sömuleiðis að finna í byggingu hins tvöfalda spíralforms DNA-sameindar lífsins, tvígormsins (double helix), og þar með taugafrumnanna í vitundarsviði heilans. Sú tvískipting DNA-sameindarinnar sem orsakar samhverfisskiptingu taugakerfa og líkamsbyggingar fjölfrumunganna stafar þó ekki af því að DNA-sameindin samanstendur af tvígormi, heldur af því að kirnum sameindarinnar er skipt jafnt í tvo hópa, þar sem QF-kenningin notar hugtökin útröð (exon) og innröð, QF-innröð (QF-intron), um þessar kirnur. Í QF-kenningunni er hugtakið exon ekki eingöngu notað um afritunarkóða DNA-kirna eins og í sameindalíffræðinni, heldur um allar þær kirnur sem gegna hlutverki framkvæmdaraunveruleika lífsins, en þar eru þekktastar kirnurnar er mynda genin, eða keðjur afritunarkóða próteinframleiðslunnar. Í QF-kenningunni er hugtakið intro síðan notað um þær DNA-kirnur sem bera í sér orsakaraunveruleika lífsins, en þær geyma stjórnunarforrit frumnanna. Þessi skipting verður skoðuð nánar í næsta kafla þegar við athugum starfsemi taugafrumna í vitundarsviði heilans.
Venjulega er virkni vinstra heilahvels í exon-hluta DNA-sameindanna sem annast efnis- og formskynjun, og það er jafnframt í þessu heilahveli sem ÉG — sem bý í efnislíkama mínum — skynja sjálfan mig sem sjálfstæðan einstakling. Skynjun eigin persónu er ekki bundin við ákveðna taugamiðstöð heldur er hún alls staðar í þessum hluta heilans, með brennidepil í kringum tal- og heyrnarstöðvarnar í grennd við vinstra gagnaugablaðið. Virkni hægra heilahvels er svo venjulega í intron-hluta DNA-sameindanna sem annast rúm- og formskynjun, og það er jafnframt í þessu heilahveli þar sem VIÐ — aðrir einstaklingar sem afstætt miðað við mig eru staddir í rúminu — eru skynjaðir sem sjálfstæðir einstaklingar af sömu tegund og ég. Skynjunin er ekki fastbundin við ákveðna taugamiðstöð heldur er hún alls staðar í þessum hluta heilans, þó með brennipunkt á Jamais vu- og Déjà vu-svæðinu í grennd við hægra gagnaugablaðið. Það er svo í kringum þessar taugastöðvar og þetta svæði við gagnaugablaðið sem stærstu ráðgátur heilans er að finna, en við skoðum þær síðar.
Þessir tveir aðalhlutar heilans – heilahvelin tvö – eru síðan tengdir saman með hvelatengslunum, stóru heilabrúnni (corpus callosum), sem hefur að geyma 200 milljónir taugafrumna, en fyrir neðan hana er hvataheilinn, randkerfið (limbic system). Innan heilahvelanna flæðir stöðugt vitundarbylgja hans frá enni til hnakka og er haldið í stöðubylgjuástandi (standing wave state) af svonefndum smávörum (microtubules) pýramídatauganna – en það er þessi bylgja sem gerir allar 24 til 30.000 milljónir taugafrumna vitundarsviðsins að einum tvíþættum almyndaraunveruleika (holographic reality). Hægri og vinstri hvataheilinn er fyrir nýja heilanum uppspretta hvatanna, sem og skynjunar á sársauka, unaði, ótta og reiði, sem hann sendir síðan áfram til stóra heilans. Hann er milliliður milli skynfæranna og nýja heilans, sem þýðir að hann nemur allt fyrst: Sjón, heyrn, lykt, bragð og snertingu. Litlu rauðu kúlurnar sem nefnast möndlur, amígdölur (amygdala), eru upphaf ótta og reiði, atlögu- eða flóttahvatarinnar. Þær tengjast með taugabrautum inn í ennisblöðin, en um miðbik síðustu aldar töldu margir taugalæknar að orsök alkóhólisma væri reiði, og af þeim sökum voru þessar taugabrautir skornar í sundur í mörgum alkóhólistum. Við það hættu þeir að reiðast, en héldu áfram að drekka, og segir kvikmyndin Frances frá slíku tilfelli. Stóru rauðu kúlurnar, skálarnar (putamen), eru taldar vera eins konar skiptiborð fyrir skyn- og hreyfiboð.
Litlu heilarnir (cerebellum), hnyklarnir, fyrir neðan og aftan hvataheilann læra og samhæfa hreyfingu og skynboð. Þeir eru taldir geyma forrit lærðra hreyfinga, allt frá göngu til píanóleiks. Þessi hluti heilans er ekki til frekari skoðunar hjá okkur í þessu verkefni.
Efsti hluti mænukylfunnar og heilastofnsins nefnist brú (pons) og mænukylfa (medulla oblongata) og hefur að geyma ósjálfráða taugastarfsemi sem heldur lífinu gangandi frá sekúndu til sekúndu; hjartslátt, öndun, meltingu o.s.frv. Að auki inniheldur svæðið svokallaða dreif (reticular formation), sem er eins konar stjórnstöð fyrir rofa („ON“ og „OFF“) á flæði vitundar og svefns. Ofan á þetta bætast svo stúka (thalamus) og undirstúka (hypothalamus), sem geyma lífhrynjandaklukku líkamans og stjórna starfsemi hins tvöfalda boðefnakirtils, heiladingulsins. Í viðskipta- og boðefnaheimi heilans jafngildir heiladingullinn seðlabanka.
Þá snúum við okkur aftur að hinu þýðingarmikla sviði heilans, hægra gagnaugablaðinu, með sínum tveimur mjög svo sérstöku, fransknefndu taugamiðstöðvum: Jamais vu og Déjà vu. Þetta eru þau svið heilans sem fara að starfa eðlilega þegar endurhæfðir alkóhólistar segjast vera farnir að neyta úr áður óþekktri innri uppsprettu. Eins og getið var í inngangi fyrirlestrarins er þetta svið, ásamt vitundarbylgjunni, ein mesta ráðgáta fremstu greina vísindanna, sameindalíffræði og kennilegrar eðlisfræði (theoretical physics), en það er einmitt vitundin, eða rafsegulsvið hennar, sem við athugum næst.

Hér höfum við tvær myndir sem sýna rafsegulsvið mannlegrar vitundar. Annars vegar er um að ræða óbeina mynd af sviðinu og hins vegar línurit rafsegulbylgna í heilanum í vöku og svefni.
Efri myndin sýnir svokallaða PET-skannamynd af rafsegulsviði vitundarbylgjunnar, en PET stendur fyrir Positron Emission Tomography, sem merkir jáeindaskurðmyndatöku (pósitrónugeislunarmynd). Þar sem vitundarsviðið er rafsegulsvið merkir það að samsetning þess birtist í formi ljóseinda, og að taka mynd af slíku sviði er ógerningur þar sem það gleypir í sig allar ljóseindir sem að því er beint og varpar engu frá sér til að gefa af sér mynd. PET-myndtækni, sem þróuð var á síðari hluta tuttugustu aldar, veitti okkur það næstbesta sem við fáum, en hún byggist á því að gefa einstaklingi glúkósa sem inniheldur vægan skammt af andefnisrafeindum, eða jáeindum (pósitrónum), er mynda ákveðna geislavirkni. Viðkomandi er síðan settur í skanna sem greinir dreifingu jáeindanna og sendir upplýsingarnar til tölvu sem smíðar mynd eftir geisluninni. Þetta er það næsta sem við komumst því að fá beina mynd af vitundarsviðinu sem sameinar allar 24 til 30.000 milljónir taugafrumna nýja heilans í einn tvíþættan raunveruleika, en sá raunveruleiki er það sem einstaklingurinn er í eðli sínu. PET-form heilbrigðrar vitundarbylgju minnir á fiðrildi og er því oft nefnt fiðrildisform vitundar.
Um miðbik tuttugustu aldar hafði verið þróuð tækni til að mæla tíðni rafsegulbylgna vitundarinnar, svonefnd heilaritsmæling (electroencephalography), skammstafað EEG eða EKG. Eru skynjarar settir á höfuðið, tíðni rafsegulbylgna vitundarinnar numin og hún skráð á línurit. Þetta eru hinar kunnu alfa-, beta-, þeta- og deltabylgjur, og á myndinni má sjá hvernig mismunandi bylgjur birtast við ólík vitundarástand, sér í lagi hvernig sveiflutíðnin minnkar eftir því sem svefninn dýpkar. Eitt afbrigði þessarar tækni er lygamælirinn.
Vitundarbylgjusviðið er með stærstu ráðgátum heilastarfseminnar, og í lok seinni heimsstyrjaldar leiddi hinn heimskunni faðir tölvunnar, dr. Alan Turing, líkum að því í sinni rómuðu ritgerð um gervigreind að vitundarbylgjan gæti verið forritið og heilinn tölvan. Á síðari tímum hefur hins vegar komið í ljós að þessu getur verið öfugt farið, og er það niðurstaða QF-kenningarinnar: Heilinn er forritið og vitundin tölvan. Við skulum næst líta á grunninn að virkni vitundarbylgjunnar.

(Hér kemur myndbandsúrklippa #04)
Þegar við skoðum rafsegulsvið vitundarbylgju heilans erum við í raun komin inn á svið nýju eðlisfræðinnar (New Physics), skammtafræðinnar (quantum mechanics). Skammtafræðin fæst við grundvallareiginleika orku, efnis og rúms, og skilgreinir fjórar gerðir orku: Rafsegulorku, veika kjarnakraftinn, sterka kjarnakraftinn og þyngdarkraftinn. Samkvæmt þessum fræðum á hvert orkusvið sér sína sérstöku orkulind, eða orkuskammt, sem ber með sér virkni orkusviðsins. Orkulind rafsegulsviðsins er ljóseindin, og hún er frábrugðin öllum öðrum öreindum sem þekktar eru í öreindafræðinni að því leyti að hún er í raun tvær eindir í senn. Ljóseindin er bæði efniseind og jafnframt sín eigin andefniseind. Hún er því eina fyrirbærið sem ber í sér báða raunveruleika efnis og rúms samtímis. Þetta þýðir að hún stekkur með ógnarhraða fram og til baka á milli þessara tveggja efnisraunveruleika, og um leið á milli tveggja raunveruleika tómarúmsins, eða hinna tveggja núllorku- eða næstum-orkupóla rúmsins.
Til einföldunar og til að greiða fyrir skilningi á skammavirkni ljóseindarinnar höfum við sett upp QF-Venn-mengi (em Venn-set em) fyrir ljóseindina ofan á mynd af vitundarbylgjusviði í heila. Samkvæmt QF-kenningunni er ljóseindin ekki einungis tvöföld, heldur hefur efnishluti hennar bylgjuvirkni sem stefnir á almynda- eða hólógrafískan hátt stöðugt ÚT frá öllum miðjum, um leið og andefnishluti hennar stefnir á sama hátt stöðugt INN að öllum miðjum; hér er um að ræða tvo raunveruleika sem eru samtímis sjálfstæðir og trufla hvor annan ekki. Þessi virkni er alls staðar í vitundarsviðinu í samspili við útraðirnar og innraðirnar í DNA-sameindunum, þótt einungis útraðirnar komi fram í vitundinni efnishvelsmegin og innraðirnar einungis rúmskynjunarmegin. Þessi mynd er sett fram á listrænu formi á kápum allra útgáfueininga P.E.A.C.E. Publication Ltd.
Þessi uppsetning á virkni vitundarsviðs heilans gerir vitund einstaklingsins kleift að sækja upplýsingar í minnisorkuþrep atómanna í kirnum DNA-sameindanna, samhliða því að setja þangað inn myndir af upplifunum líðandi stundar. Með þessu fæst skýring á þessu tvíþætta ferli og hinum mikla vinnsluhraða vitundarinnar, sem ekki verður útskýrður með rafboðaskotum heilafrumna einum saman, en þau eru hér talin afleiðing þeirrar þjónustu sem hver fruma veitir lífheildinni og launað er með viðskiptum með taugaboðefni (neurotransmitter).
Það er einmitt þetta innsæi QF-kenningarinnar í tvöfalda virkni ljóseindarinnar sem er algjör nýlunda í skammtafræðinni, en án þess væri sú líkanagerð um starfsemi mannsheilans sem hér birtist óhugsandi. Er þetta einn af þeim þremur nýjungagrunnþáttum sem nefndir eru í upphafi hvers hluta þessa fyrirlestrar: „QF-líkanið (QF-model) kynnir ný tvíþætt almyndalíkön af vitundarsviði heilans sem geymir hugsanirnar á formi almyndaljóseinda og samræmir jafnframt virkni stýrigena og klippisameinda í framleiðslu taugaboðefna.“

Hér birtist lykillinn að einföldun á heilanum og starfsemi hans, en við höfum þegar farið yfir bæði byggingu heilans og vitundarbylgjuna. Okkur verður því unnt að setja hvort tveggja fram á mengjaformi, og gildir einu hvort við skoðum það í láréttri eða lóðréttri sneið. Á myndina höfum við síðan sett línutákn fyrir heildarvirkni allra boðefna í heilanum ásamt kúlutákni fyrir brennidepil virkninnar í vitundarbylgjunni. Hér nefnum við í fyrsta sinn taugaboðefni heilans og viljum taka fram strax í upphafi að í þessum fyrirlestri er einungis rætt um tvær megingerðir náttúrulegra boðefna.
Á síðari hluta tuttugustu aldar tókst vísindunum að einangra og greina yfir 300 mismunandi boðefni í heilanum, og flokkast þau í nokkrar fjölskyldur ásamt miklum fjölda afbrigða innan hverrar fjölskyldu. Þessar efnagreiningar leiddu síðan til framleiðslu geðlyfja sem eru eftirlíkingar náttúrulegu efnanna. Boðefnin og lyfin hafa öll virknieiginleika af tvennum toga: Virkni þeirra á vitundarástandið er ýmist örvandi eða róandi, hraðandi eða hemlandi. Hvað markmið þessa fyrirlestrar snertir eru þetta þær skilgreiningar sem máli skipta, og verður einungis fjallað um boðefnin út frá virkni þeirra en ekki út frá einstökum tegundum nema í sérstökum tilvikum. Það eru svo aftur taugaboðefnin sem ráða samspili tauganna og vitundarinnar, og táknræn heildarmynd boðefnavirkninnar á myndinni getur tekið á sig margvísleg form, með þeim afleiðingum að brennipunktur vitundar getur sömuleiðis færst til. Þetta boðefnajafnvægi ræður úrslitum um andlegt og líkamlegt ástand einstaklingsins og um leið um afkastagetu heilans. Meginhluti þessa fyrirlestrar mun fjalla um boðefnaframleiðsluna og jafnvægi í vitundarástandi heilans, neyslu efna sem koma í stað náttúrulegra boðefna og afleiðingar hennar, ásamt leiðréttingu þeirra starfrænu truflana sem af því hljótast.

Til að draga saman umfjöllun okkar um samspil DNA-sameindanna í gegnum framleiðslu taugaboðefna og virkni hvors tveggja á vitundarbylgjuna er hér afar einföld yfirlitsmynd af grundvallarsamstarfi helstu þátta heilastarfseminnar í fullkomlega heilbrigðum heila.
Í efri helmingi og fyrir miðju sjáum við mengi sem táknar vinstra og hægra heilahvel, sem eru algjörlega laus við hvers kyns starfrænar truflanir, og er afleiðingin fullkomið jafnvægi boðefna og óhaggaður stöðugleiki andlegs ástands. Þetta birtist í heilu og samhverfu vitundarbylgjusviði eins og sýnt er til vinstri, og er virkni þess jöfn út í heilabörkinn og inn í DNA-kirnurnar, eins og sýnt er til hægri. Í neðri helmingi myndarinnar er dregið upp einfalt línurit yfir sveiflur í vitund og tilfinningum, þar sem græna línan táknar fullkomið jafnvægi og stöðugleika, en ofan á hana er dregin rauðbrún lína sem sýnir raunverulegt ástand. Þar birtist stöðugleiki andlegs ástands í mjög litlum sveiflum. Þetta er æskilegasta ástand sem maðurinn getur búið við, en því miður ná fáir því og viðhalda daglega í lífi sínu, hvað sem á dynur. Jafnframt er ljóst að einstaklingur með fullkomlega heilbrigðan heila býr ekki aðeins við andlegan stöðugleika og lágmarkssveiflur, heldur hefur hann mjög mikla og jafndreifða rökgreind, tilfinningagreind, siðferðisgreind og sköpunargreind. Hann er sömuleiðis mjög þroskaður og andlegur, sem þýðir að hann hefur aðrar skoðanir en fjöldinn. Slíkur maður verður að aðlaga sig öðrum fremur en að aðrir geti aðlagað sig honum. Þetta er ástand trúarbragðastofnenda sem leitast síðan við að kenna öðrum að ná sama ástandi. Þetta er einnig ástand flestra vitringa, heimspekinga og fjölmargra afburðamanna mannkynsins. Þetta ástand verður skoðað nánar í lokahluta fyrirlestrarins.

Hér sjáum við lóðréttan þverskurð af heilaberkinum og vitundarbylgjunni innra með honum. Er þessari mynd ætlað að sýna hvernig vitundarbylgjan verkar jafnt inn í börkinn sem og í hvíta efnið í heilanum. Jafnframt er henni ætlað að sýna að um er að ræða tvær þungamiðjur í boðefnaframleiðslu vitundarinnar og hversu áríðandi er að sama tíðni ríki í bylgjunni í báðum heilahvelum svo hún myndi eina heild. Sé bylgjan klofin ná heilahvelin ekki að eiga samskipti og verða bylgjuhlutarnir samstilltir á ný og tengdir ýmist með hugsunum og boðefnum ÉG-virkninnar í efnisskynjunarhvelinu, eða með hugsunum og boðefnum VIÐ-virkninnar í rúmskynjunarhvelinu. Í hvers kyns tækni við byrjun, hugleiðslu og bænir er reynt að draga vitundina úr berkinum, en við það verður skammtastökk (quantum leap), bylgjan hægir á sér og verður heil. Í því ástandi á sér stað skammalífvænleg leiðrétting á forritun genanna og um leið myndast vellíðunarboðefni.

Heilabörkurinn í heild annast samskipti vitundarinnar við umhverfið, en sú virkni safnast saman á ákveðnum svæðum í berkinum. Helstu svæðin eru hreyfibörkur sem stjórnar hreyfingum líkamans, skynbörkur sem tekur við líkamlegu skyni gegnum húðina, talbörkur sem miðlar skipunum til talfæranna, heyrnarbörkur sem vinnur úr hljóðskynjun eyrna og sjónbörkur sem tekur við skynboðum frá augum. Þar sem DNA-forritin og vitundarbylgjan eru tvíþætt beinist skynboðavirknin samtímis ýmist úr skynsviðunum INN í vitundina til úrvinnslu og þaðan samtímis til minnisbankanna í exon- og intron-kirnunum, eða ÚT úr vitundarvirkninni gegnum hreyfibörkinn til líkamsstjórnunar.
Lyktarskyn er ekki hluti af heilaberkinum heldur tilheyrir það hvataheilanum sem nemur öll skynboð fyrst, áður en þau berast vitundinni í gegnum börkinn. Þetta kemur skýrast fram þegar fólki bregður við óvænta atburði eða hljóð; þá er það hvataheilinn sem bregst við. Talbörkurinn (Broca-svæðið) er í flestum tilvikum aðeins í efnis-ÉG-heilahvelinu, en óstaðfest er hvort slíkt svæði finnist í rúm-VIÐ-heilahvelinu. Grunur leikur á að það svæði virkist við djúpa andlega eða trúarlega hrifningu þegar menn mæla á tungum. Hér er rétt að árétta enn að við sjáum ekki með augunum heldur með heilanum, nánar tiltekið með vitundarbylgjunni, en augun eru aðeins viðtakar fyrir ljóseindir sem sjónbörkurinn í hnakkanum varpar síðan inn í vitundarbylgjuna.
Vakin skal athygli á því hve stórt svæði hendur og andlit skipa í heilaberkinum, en hér liggur ástæðan fyrir því að fólk beitir sérstökum handastellingum við helgisiði, sem á sanskrít nefnast múdrur (madras), en þessar stellingar miða að því að róa vitundarbylgjuna. Sama á við um stöðu andlits og augna sem, ásamt handastellingum, er sérstaklega gætt að í hvers kyns hugleiðsluaðferðum.

Þar sem QF-kenningin skiptir öllum kirnum DNA-sameinda taugafrumnanna jafnt í exon og intro, og í ljósi þess að framsetning kenningarinnar með Venn-mengi fyrir skammtabylgju (quantum wave) alheimsins skiptist í efnis- og rúmhlið, verður heilalíkan kenningarinnar að taka mið af því. Þar sem DNA-sameindin er til staðar í öllum taugafrumum vitundarsviðsins verður líkanið sem kynnt er í skyggnu #2 - 14 að samræmast þessu. Áður höfum við séð hvernig QF-kenningin skiptir vitundarbylgjusviði heilans sömuleiðis í tvö sjálfstæð stöðubylgjusvið, þar sem annað stefnir stöðugt ÚT en hitt stöðugt INN. Þessi uppsetning leiðir af sér heila sem í raun eru tveir heilar í senn, hvor innan í öðrum, með vitund sem samanstendur af tveimur bylgjum samtímis, hvorri innan í annarri. Þetta er hin fullkomna almyndauppsetning náttúrunnar, og það stórfellda sem hún skilar eru svör við nær öllum óráðnum gátum um starfsemi mannsheilans og þær truflanir sem þar verða, en við skoðum þessa uppbyggingu nánar í næstu þremur skyggnum.

Samspil vitundarbylgjunnar og exon-intron DNA-kirnuparanna í hinum 24.000 til 30.000 milljónum taugafrumna í vitundarsviði heilans virkar í báðar áttir, INN og ÚT. Áhrifin frá hvataheilanum eru þar í forgrunni og ráðast af því hve mikið taugafrumur þessa hluta heilans eru heklaðar af taugahamlandi boðefnum. Jafnframt eru þessar taugafrumur geymsla langtímaminnis, þar sem minningarnar, á formi hólógrafískra almyndaljóseinda, eru varðveittar í rúminu á milli rafeinda og atómkjarna í DNA-kirnunum. Eru minningarnar ljóseindaalmyndir sem færðar eru inn í exon-intron DNA-kirnupörin gegnum INN-andefnishluta vitundarbylgjunnar, en á hinn bóginn eru þessar minningar sóttar úr exon-intron DNA-kirnupörunum gegnum ÚT-efnishluta vitundarbylgjunnar. Í hvert sinn sem exon-intron DNA-kirnupör taugafrumnanna taka við eða gefa frá sér ljóseindaalmyndir minninga fá þær leyfi til að skjóta rafboð og eiga þannig boðefnaviðskipti við nágrannafrumur. Með þessu er heildarmynd veruleikaskynjunar heilans stýrt.
Við fæðingu einstaklingsins festa taugafrumurnar forritið að eigin byggingu. Þetta á sér stað við vöktun vitundarinnar í fæðingunni og stafar af hinu tvöfalda ÚT INN-eðli vitundarbylgjunnar. Það er síðan vitundin sem stýrir skipan DNA-sameinda tvígormsins í taugafrumunum, þar sem exon-intron kirnupörin skipta ÚT INN-hlutverkunum nokkurn veginn til helminga. Liggja ÚT-hlutverkin í tröðunum og INN-hlutverkin í innröðunum, og við það verður veruleiki heilahvelanna almynda-hólógrafískur. Tilgangur náttúrunnar með þessu er meðal annars að skapa tvær jafnar minnisgeymslur, annars vegar byggðar á efnis-ÚT-raunveruleika útrafanna og hins vegar á rúms-INN-raunveruleika innraðanna. Þetta er harði diskur heilans. Þetta merkir að uppbygging heilans er með þeim hætti að haldi ÉG á hluta af hvíta efninu — að undanskildum heilaberkinum — í hendi mér, þá held ÉG um leið á öllum heilanum í hendinni. Þetta er þekkt í tilvikum vatnshöfuðs (hydrocephalus), og er þar frægust uppgötvun dr. A. L. Wigan frá árinu 1844 þegar hann krufði mann sem hafði aðeins efnisheilahvel en hafði verið fullkomlega eðlilegur í lifanda lífi.
Hér verður ljóst að það eru exon-kirnurnar sem bera uppi hlutverk efnis-ÉG-heilahvelsins og intron-kirnurnar hlutverk rúmskynjunar-VIÐ-heilahvelsins, en það myndar ráðandi formgerð heilans. Samhliða þessu liggja andstæðuforrit DNA-kirnuparanna að baki hvoru heilahveli um sig sem bakgrunnsforrit vitundarhluta heilans, sem skapar hinn hólógrafíska almyndaraunveruleika í uppbyggingu heilans.
Á árunum 1975 til 1980 vann dr. Karl Pribram að rannsóknum á langtímaminni miðtaugakerfisins og gerði í því skyni merkar tilraunir með mýs sem rötuðu að fæðu sinni um völundarhús í búri sínu. Klippti hann smám saman burt litla hluta af heilaberki músanna, en þær rötuðu engu að síður um völundarhúsið, nema hvað það tók þær lengri tíma eftir því sem meira var skorið burt. Eina skýringin sem dr. Pribram fann á þessu var að langtímaminnið væri geymt á hólógrafísku almyndaformi. Hann gat ekki fært fullar sannanir fyrir þessu og hlaut því ekki Nóbelsverðlaunin (Nobel Prize), en QF-kenningin kemst að sömu niðurstöðu eftir allt öðrum leiðum. QF-heilalíkanið (QF-brainmodel) leiðir út hólógrafískt almyndalangtímaminni á grundvelli exon-intron DNA-kirnupara tvígormsins og hinnar tvöföldu vitundarbylgju. Það er því við hæfi að við athugum almyndafyrirbæri nánar í næstu mynd.

Árið 1666 þróaði sér Isaac (Sir Isaac) Newton örsmæðareikninginn sem leiddi mönnum síðar í ljós að unnt væri að beina öllum ljósgeislum í sömu átt – fyrirbæri sem síðar fékk heitið leysir (laser). Eina sem vantaði var tæknin til að framkvæma þetta, en hún kom fram á sjötta áratugnum og fyrstu almyndirnar fylgdu í kjölfarið. Þegar árið 1947 hafði Dennis Gabor fundið grundvallarreglur í kennilegri eðlisfræði til að skapa þrívíðar almyndir, og færði sú kenningasmíð honum Nóbelsverðlaunin árið 1971. Eru almyndir nú orðnar vel þekkt fyrirbæri og eru byggðar upp eins og sýnt er hér í skyggnu #2 - 16 ( + #2 - 14, #2 - 15, #2 - 16 og #2 - 17). Þar sést að á almyndafilmu eru allar upplýsingar um myndina geymdar alls staðar á filmunni, en skýrleiki myndarinnar ræðst af því hve stór hluti filmunnar er lýstur upp. Almyndir eru þrívíðar og hægt að ganga í gegnum þær, og muna margir eftir Star Wars Í þar sem R 2 - D 2 varpar fram þrívíðri kvikmynd af prinsessunni að biðja um hjálp. Til að búa til hreyfanlegar almyndir þarf afar dýran búnað sem felst í gerð almyndakvikmyndafilmu, en í hálfgagnsæjum almyndadraugamyndum eru filmurnar klipptar eftir endilöngu og annar helmingurinn sýndur, sem kallar fram þrívíða og hálfgagnsæja mynd. Með röð slíkra mynda má sýna almyndadrauga.

Þar sem mörgum reynist erfitt að sjá fyrir sér hvernig náttúran mótar almyndaskipan í byggingu og langtímaminnisstarfsemi miðtaugakerfisins, höfum við sett saman þessa einföldu samanburðarlýsingu samkvæmt QF-healalíkönum (QF-brainmodels). Lengst til vinstri sýnir myndin afar einfalda skýringarmynd af venjulegu almyndakerfi, síðan er þessi uppsetning færð yfir á miðtaugakerfi mannsins í miðju myndarinnar og lengst til hægri birtast frekari smáatriði um bylgjuskiptingu og bylgjuörvun sem hér er haldið fram að eigi sér stað í miðtaugakerfinu. Ljóst má vera að þessi uppsetning er einungis möguleg ef um tvöfalt rafsegulsvið vitundar er að ræða (skyggna #2 - 09) og að virkniskipting DNA-kirnanna í taugafrumum heilans falli í tvo nokkurn veginn jafna hópa (skyggnur #2 - 05 og #2 - 06), eins og QF-healalíkön gera ráð fyrir. Í QF-líkönunum (QF-models) eru þessum tveimur hópum gefin líffræðileg heiti sem þegar eru til staðar, það er exon og intro. Í eðlisfræði QF-kenningarinnar er aðalmunurinn á þessum tveimur hópum fólginn í skammspunaeiginleikum DNA-kirnanna. Rétt er að benda á að þessi myndræna framsetning leitast við að túlka það sem á sér stöðugt stað alls staðar í almyndavitundarsviði heilans, en ljóst er að erfitt er að sýna slíkt til fulls á mynd.

Á sama tíma og dr. Karl Pribram vann að sinni langtímaminnisuppgötvun, á árunum 1975 til 1980, var dr. Roger Sperry að gera aðra ekki síður merka uppgötvun. Hann hannaði snjalla aðferð til að kanna grundvallarstarfsforrit mannsheilans hjá fólki sem hafði gengist undir skurðaðgerð þar sem heilahvelin voru aðskilin. Hér var um að ræða einstaklinga með flogaveiki sem gátu ekki lengur tekið flogalyf vegna lyfjaþols. Flogunum hafði tekist að halda í skefjum með lyfjum en auka varð skammtana eftir því sem þolið jókst, þar til skammturinn var orðinn svo hár að ógerningur var að auka hann frekar án þess að hann yrði banvænn. Þar sem 50% líkur eru á dauða í hverju stóru flogakasti var á fyrri hluta tuttugustu aldar farið að skera í burtu Jamais vu- og Déjà vu-svæðin í rúmskynjunarhluta heilans og bjarga þannig lífi sjúklingsins. Með tímanum var þessu hætt og þess í stað farið að skera á stóru heilabrúna, en það leiddi til mjög sérstæðs vitundarástands þar sem hægri höndin vissi bókstaflega ekki hvað sú vinstri gerði. Þar sem hvort auga um sig þjónar báðum heilahvelum um sjóntaugarnar, og sjóntaugavíxlunin hafði einnig verið skorin, gat dr. Sperry hagnýtt sér þetta sérstaka ástand til að greina grundvallarstarfs- eða vinnuforrit heilahvelanna, eins og sýnt er í skyggnu #2 - 18. Árið 1981 hlaut dr. Sperry Nóbelsverðlaun fyrir þessar niðurstöður. Sérstaklega er athyglisvert í þessari uppgötvun að stærðfræði-, mál- og lestrargeta er nánast eingöngu í efnis-ÉG-hvelinu, en rúm-VIÐ-heilahvelið tjáir sig myndrænt og í tónlist, og þar er jafnframt öll sköpunargreindin staðsett.

(Hér kemur myndbandsúrklippa #05)
Upphaf myndbands dr. Susan Greenfield
Hér er litið á myndband dr. Susan Greenfield með þessum tveimur tilraunum, og er íslensku tali skotið inn á milli með enska talinu. Eftir að hafa skoðað mynd af dr. Libet við skurðaðgerð sína sjáum við dr. Haggard framkvæma hina kunnu samþættingarvandamáls-rannsókn („binding problem“) með dr. Greenfield sem tilraunaaðila. Hér setur dr. Haggard EEG-heilaritsnema á höfuð dr. Greenfield og segir henni að taka meðvitaða ákvörðun, hvenær sem hún kýs, um að stöðva vísinn á tölvuskjánum með því að ýta á annan tveggja lykla á lyklaborðinu. Jafnframt á hún að skrá nákvæman tíma þess augnabliks þegar hún tók hina meðvituðu ákvörðun.
Hér höfum við fengið að sjá hvernig tímamunurinn á milli þess sem dr. Greenfield skráir í tölvuna og þess sem heilaritið sýnir fyrir sama augnablik er meira en 2000 millisekúndur. Það þýðir einfaldlega að rúmum tveimur sekúndum áður en dr. Greenfield tekur meðvitaða ákvörðun um að stöðva örina á skjánum hefur einhver annar í heila hennar tekið ákvörðunina og hafið að koma henni til vitundarinnar. Hver er þessi annar vilji?
Þessari yfirlitsmynd er ætlað að sýna og leggja áherslu á í meginatriðum hvernig grundvallarskipan og grunnforritun heilans, ásamt hinu starfræna forriti, eru samofin hvötunum sem berast inn í vitundina frá hvataheilanum. Jafnframt kemur fram í þessari framsetningu að það er í rúmskynjunar-VIÐ-hvelinu (intron-kirnupörum í DNA-sameindum tauganna) sem öll hugsun og ákvarðanataka á upptök sín, en þar eru hugsanirnar fyrst mótaðar eða kveiktar, eins og sýnt er í efsta grunnforritinu. Þar er einnig vikið nánar að spurningunni um rödd samviskunnar eða siðferðisvitundarinnar. Þetta samræmist fyllilega niðurstöðum QF-kenningarinnar sem afhjúpar orsakirnar að baki þeim, en þær eru hluti af undirstöðum kenningarinnar.
Þetta birtist í einnig furðulegustu og umdeildustu tilraun sem gerð hefur verið í taugalíffræði, hinni svokölluðu binding problem-rannsókn dr. Benjamín Libet. Um miðbik síðustu aldar starfaði dr. Libet sem heilaskurðlæknir og notaði í starfi sínu rafskaut sem gaf frá sér örfá volt til að örva heilabörkinn á því svæði sem hann var að skera, til að kanna forritun þess. Þar sem sjúklingarnir þurftu ekki svæfingu á meðan á skurðaðgerðinni stóð gátu þeir sagt honum hvar í líkamanum þeir fundu fyrir ertingunni. Dr. Libet tók eftir því og mældi nákvæmlega að 500 millisekúndur — eða hálfsekúnda — liðu frá því að hann örvaði heilabörkinn og þar til sjúklingurinn kvaðst nema eða verða meðvitaður um ertinguna.
Síðar hannaði dr. Libet heilaskannatilraunir þar sem viðkomandi stöðvaði klukkuvísi á tölvuskjá um leið og hann tók meðvitaða ákvörðun um það. Í þeirri tilraun kom í ljós að allt að 2000 millisekúndum, eða tveimur sekúndum, áður en viðkomandi tók meðvitaða ákvörðun um að stöðva vísinn sýndi heilaskanninn að einhver annar vilji í heilanum hafði þegar tekið ákvörðunina. Hver er þessi annar vilji? Hér höfum við tekið inn í fyrirlesturinn brot úr einum af BBC-sjónvarpsþáttum hins kunna breska taugalíffræðings dr. Susan Greenfield, þar sem hún fjallar um þessa rannsóknartilraun dr. Benjamín Libet. Við skulum horfa á þessa myndbandsúrklippu.
Þetta hefur neytt vísindamenn til að spyrja hvað hugtakið frjáls vilji merki í raun eða hvað búi að baki skilningi okkar á honum. Spurningar eins og: Þýðir þetta að við höfum ekki frjálsan vilja? Hvaða annar vilji er þetta sem virðist ávallt taka ákvörðunina fyrst? Hvernig verðum við yfirhöfuð meðvituð um eitthvað? Út frá þessu hefur vaknað mikill fjöldi spurninga, sem og margar ósannanlegar skýringar, en þessi ráðgáta er enn óleyst í vísindaheiminum. Flestir rannsakendur tala um að undirmeðvitundarviljinn eigi upptök að öllum aðgerðum. Listi þeirra spurninga sem þetta vekur er langur og má rekja aftur til þess er forngrísku heimspekingarnir spurðu fyrir um 2.500 árum: Hvers vegna brýtur maðurinn sífellt gegn betri vitund?
Grundvallarskýring QF-kenningarinnar á hinni frægu ráðgátu um samþættingu (binding problem) kemur fram í bókinni Litla bókfellið (THE LITTLE SCROLL) og er að sjálfsögðu á skammtafræðilegu formi þar sem kenningin er lýsing á hinu grundvallarsköpunarferli. Þar leiðir hún fram skammtabylgju alheimsins í Venn-mengissamhverfujöfnu við lok fæðingar tímans, en þessi samhverfa er jafnframt forritið að rafeindinni, grunni raunveruleikans og mannsheilans. Þar kemur fram að hinir tveir V-pólar í tómi eða tómarúmi rúmsins tjá jafnframt eðli þess, en það er út úr þessum pólum sem alheimurinn sprettur. Í mengisjöfnum QF-kenningarinnar er því grunnurinn að allri sköpun efnisheimsins í rúminu og þess vegna býr heilinn ekki yfir aðeins einum vilja, heldur tveimur, þar sem annar er orsakaviljinn og hinn framkvæmdaviljinn. Þetta er sýnt á skyggnu #3 - 19 þar sem vitundar- og DNA-forritunarjafnvægi er sýnt til hliðar, en í heilbrigðum einstaklingi er hvatakerfishlutinn réttilega heflaður í bakgrunn vitundarinnar. Í flestum tiltölulega heilbrigðum heilum eru þessir viljar í það miklu jafnvægi að þeir renna saman í einn vilja sem einstaklingurinn skynjar sem sinn eigin. Það er ekki fyrr en ójafnvægi skapast að einstaklingurinn fer að verða meðvitaður um ósamræmi í eigin vilja og gjörðum, en þetta uppgötvuðu forngrísku heimspekingarnir þegar fyrir 2.500 árum þegar þeir spurðu hvers vegna flestir menn breyttu stöðugt gegn betri vitund.

Heilinn er orkufrekasta líffærið og notar 20 til 25% af því súrefni sem við öndum að okkur, jafnframt því sem hann notar 20 til 25% af glúkósaorku líkamans. Á meðan súrefnið berst beint til tauganna með blóðrásinni kemur hin þrefalda rafsegulsviðsorka upp eftir mænunni og er flæði hennar stýrt af taktgjarðar- og klukkuforritum stúkunnar efst á mænukylfunni. Með þessu kerfi er til dæmis svefni stjórnað með dópamíni frá heilakönglinum, sem í gegnum mænuvökvann berst inn á svæði dreifdreifarinnar (reticular formation) þar sem flæðið er hemlað. En virkni dópamínsins er þó ekki sterkari en svo að sé hreyft við sofandi manni vaknar hann.
Í dagvitundarástandi er flæðinu stjórnað af forritunum í gagnaugablöðum heilans og síðan gegnum hið tvöfalda drekakerti í randkerfinu. Hægt er að koma efnum eins og klóróformi eða eter inn á svæði dreifdreifarinnar eins og gert er við skurðaðgerðir, en þá er hægt að skera í einstaklinginn án þess að hann vakni. Það athyglisverðasta er að kínverskir nálastungusérfræðingar geta stöðvað sársaukaskynjun tauganna með nálastungum víðs vegar um líkamann, sem hafa síðan áhrif á innraðarforritun (intro) taugakerfisins án þess að trufla vitundarbylgjuflæðið, þannig að sjúklingar eru með fullri vitund meðan á skurðaðgerð stendur. Þetta er einnig gert með mænudeyfingu þar sem sársaukaboð til mænunnar eru staðdeyfð á meðan vitundarbylgjuflæðið er ótruflað og sjúklingar halda fullri vitund í skurðaðgerðum eða við barnsfæðingar.
Hér líkur fyrsta hluta fyrirlestrarins sem hefur veitt okkur innsýn í uppbyggingu og grundvallarstarfsemisforritun mannsheilans. Þetta er grundvöllurinn að okkur og því sem við erum. Næsta verkefni er að skoða nánar hvernig taugaboðefnaframleiðsla heilans fer fram og hvernig henni er stýrt, og síðan hvernig taugafrumurnar eiga í vöruskiptum og viðskiptum sín á milli með þessi boðefni til að stýra raunveruleikaskynjun og hugsunarferlum.
Hér líkur þá fyrsta hluta fyrirlestrarins sem hefur veitt okkur einfalda grundvallarinnsýn í forsendur byggingar og heilbrigðrar forritunar mannsheilans. Við snúum okkur því að öðrum hluta fyrirlestrarins og skoðum hvernig heilbrigður heili stýrir raunveruleikaskynjuninni.
Næsti hluti þessa fyrirlestrar er því:
03: Annar hluti. Stjórnun heilans á raunveruleikaskynjuninni.
Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar varðandi það efni sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum sem kemur þeim áleiðis til höfundarins. Hér eru þau tölvupóstföng sem nota má til að senda skilaboðin: