Skrá 07

Fíknin í fölsk taugaboðefni

PowerPoint-fyrirlesturinn

ALKAÞRAS

Fyrirlestur í sex þáttum sem fjallar um skammtafræðilegar (quantum mechanics) og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi lyfjum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: „Alkóhólismi“, „mengun mannsheilans“, „boðefnasvindl mannsins“. Hér kemur fram í fyrsta skiptið í mannkynssögunni skýring á virkninni í taugaánetjunarsjúkdómunum og batalausn þeirra, en fyrirlesturinn samanstendur af:


ALKATHRAS/4-01_Alkathras-Thridjahluta.gif

Hér sem inngangsábending hefur verið dregin upp táknmynd fyrir afturþróun mannsins til þess tíma er við skildum okkur frá hinum prímötunum, sem á að tjá úrkynjunarhnignun vegna vaxandi neyslu áfengis og annarra gerviboðefna með meðfylgjandi fjölgun á taugaánetjuðum einstaklingum. Að sjálfsögðu er hér um að ræða óraunhæfan samanburð þar sem slík þróun er óhugsanleg, en þessi háðsþróunarmynd er jafnframt móðgun við alsaklausa frændur okkar í dýraríkinu, apana. Þeir haga sér aldrei eins og við mennirnir gerum undir beinum eða óbeinum áhrifum svindlboðefna og kemur fram í þessum þætti fyrirlestrarins að aparnir eru að nota allt það sem þeim var gefið í formi heila, en við, homo sapiens, erum einungis að nota helminginn af því sem okkur var gefið og vitum ekki einu sinni hvers vegna því er þannig farið. Aðalinntak þessa fyrirlestrar er að komið hefur fram á síðasta hluta tuttugustu aldar að breytingar eigi sér stað í genum manna við neyslu þess sem hér er skilgreint sem gervi-, fölsk- eða svindltaugaboðefni (neurotransmitter), og að þessar breytingar safnast saman og flytjast til næstu kynslóða með erfðunum. Þær breytingar sem eiga sér stað á einstaklingunum breyta jafnframt þeim sem eru í umhverfi neytandans og þar með samfélaginu í heild. Allt bendir til þess að þessar breytingar séu alvarlegri en vísindamenn hafa hingað til gert sér almennt ljóst, en nú — í byrjun 21. aldarinnar — eru þeir fyrst að byrja að verða meðvitaðir um þær að einhverju leyti. Hins vegar hafa ríkisstjórnir og heilbrigðisyfirvöld Vesturlanda engar betri hugmyndir aðrar en að reyna að snúast gegn þessu með hinni klassísku en gagnslausu aðferð, að setja refsilög til að halda þessum sjúkdómi mannkynsins niðri og eru enn allsendis ráðþrota gagnvart hinni svokölluðu ólöglegu eiturlyfjahlið hans, á meðan menn trúa því enn að til sé eitthvað sem heitir skaðlaus neysla áfengis. Yfirvöldum er enn ekki ljóst að þau hafa fyrir löngu tapað stríðinu gegn hinum ólöglegu vímugjöfum.

Í þessum kafla munum við skoða — í sem mestri mögulegri einfaldleika — hvað það er sem gerist í mannsheilanum þegar í taugunum eru fyrir hendi gervi-, fölsk- eða svindltaugaboðefni og hvernig grunnforritun heilans er breytt. Jafnframt þessu munum við skoða hverjar afleiðingarnar eru, en óhætt er að fullyrða hér að ekkert í framtíðinni ógnar manninum meira en þessi þróun sem vísindin — enn sem komið er — botna nánast lítið sem ekkert í. Þetta vegna þess að sameindalíffræðinni (molecular biology) hefur enn ekki tekist að leysa gátuna um heilann og á það orsakir í því að grundvallarlíkön þau sem nú er unnið með um heilastarfsemina í sameindalíffræðinni eru röng. Er höfuðástæðuna fyrir þessu að finna í þeirri staðreynd að „það sem vantar í taugalíffræðina“ hefur að gera með þætti sem enn þá vantar í innsæi hinnar nýju eðlisfræði (new physics), skammtafræðina. Óþarft er að vekja á því athygli hér að í þessum fyrirlestri er því haldið fram að hann sé byggður á hinu fyrsta rétta líkani af starfsemi mannsheilans sem fram kemur í mannkyninu og að það líkan komi því með rétt svör við þeim aragrúa af enn þá ósvöruðum spurningum viðkomandi mannsheilanum og starfsemi hans. Hér er einkum um að ræða þær breytingar er verða í grunnforritun heilans sem síðan framkalla taugaánetjunarsjúkdómana með breytingum á boðefnaframleiðslu heilans. Breytingar þessar leiða jafnframt til breytinga á grunnforritun erfðaefnis þess sem stjórnar starfsemi erfðalóðanna (genanna) annars staðar í líkamanum, en eins og fram kemur í fréttinni hér á eftir eru vísindamenn nú rétt að byrja að fá innsýn í þessar breytingar. Enn lengra er í að vísindin öðlist rétt DNA- og heila-líkön er skýrt geta samhengi allra þeirra truflana sem hið heilamengandi boðefnasvindl orsakar, hvort sem um alkóhólisma er að ræða eða ekki. Þar sem truflanir þessar eru skammtalögmáls-eðlis eiga þær sér stað við hvers kyns neyslu þar sem endurupptaka boðefna bregst og eru þær höfuðorsakir hins mikla fjölda statistískra sjúkdóma mannsins, en rétt er að benda á að hér er í raun einungis verið að fjalla um afleiðingar fremur en þá upphaflegu orsakastarfsemi sem framkallar þær. QF-kenning staðfestingartillaga:

Associated Press.

Morgunblaðið laugardaginn 30. desember 2000.

Stjórnleysi áfengissýkinnar kann að skýrast af breytingum í heila.

Alkóhólismi breytir erfðaefni í heilanum

New York. Reuters.

MEÐ því að nota nýjustu erfðarannsóknatækni hafa vísindamenn í Texas komist að því að ofneysla áfengis getur breytt erfðaefni, eða genum, í heilanum. Af rúmlega fjögur þúsund genum sem rannsökuð voru reyndust að minnsta kosti fjögur prósent vera um 40% öðruvísi í alkóhólistum en þeim sem ekki misnotuðu áfengi. Greint er frá þessu í desemberhefti tímaritsins Alcoholism: Clinical and Experimental Research. Rétt eins og tölvuvírus getur breytt tilteknum forritum og aðgerðum sýna upplýsingar okkar að stöðug misnotkun áfengis getur breytt efnasamsetningu og rafrásum í framhluta heilabarkarins, sagði í tilkynningu frá aðalhöfundi rannsóknarinnar, dr. R. Aron Harris, við Háskólann í Texas í Austin. Flest breyttu genin eru í tengslum við svonefnt hvítt efni í heilanum. Þetta efni myndar slíður utan um samskiptafrumur heilans og kunna genabreytingarnar að útskýra hvers vegna alkóhólistum er hættara við sjúkdómum sem eyða hvíta efninu, að því er vísindamenn segja. Með þessari rannsókn eru að byrja að koma í ljós þær óæskilegu breytingar sem sífelld áfengisneysla veldur í heilanum, sagði Harris. Svona rannsóknir munu leiða til þess að betri meðferð finnst við alkóhólisma og annarri fíkn.

TENGLAR Alcoholism: Clinical and Experimental Research: www. alcoholism-cer. com

Megi svo fyrirlesturinn verða lesandanum að sem mestu gagni.


S4-02 Stress vandamál nútímamannsins. “Stress” nútímamannsins! Hvað hefur stress að gera með þá uppástungu að nútímamaðurinn hafi glatað eiginleikum sínum, til að framkalla. náttúrulegan máta, næg tauga- hemlandi boðefni. heila sínum vegna hinnar aldagömlu hefðar hans að svindla. þessum boðefnum…
ALKATHRAS/4-02_Stress-mannsins.gif

Það mun hafa verið í kringum 1920 að þýskur læknir kom í stáliðjuver í Munchen þar sem honum var sýnt hvernig stálþynnur voru valsaðar. Var honum jafnframt bent á hversu mikill vandi það væri, þar sem stálþynnurnar yrðu of hratt teygðar — eða á þýsku zu schnell gestreßt — gætu þær brotnað og þyrfti þá að bræða þær á ný með miklum kostnaði. Varð lækninum þetta hugleikið og sá hann í því samlíkingu við nútímamanninn sem var svo hratt teygður af aðstöðubaráttu lífsins að hann brotnaði, það er, missti heilsuna. Fór hann að nota hugtakið stressaður, eða í streituástandi um þá sem sýndu einkenni mikils álags og hefur það síðan breiðst víða um jörðina.

Hvað er svo á bak við þetta ástand sem við köllum stress? Taugalíffræðilega er stress ástand, ástand skorts á hemlandi boðefnum í heila, einkum endorfíni og dópamíni, sem menn síðan mæta með neyslu á efnum sem jafngilda því að vera svindlboðefni og koma í stað hinna náttúrulegu efna. Ljóðurinn á þessari lausn er sá að hann leiðir til þess að menn missa smátt og smátt hina náttúrulegu getu til framköllunar á náttúrulegum boðefnum og verða háðir gerviboðefnum. Í verstu tilfellunum leiðir þetta svo til slíks getuleysis til framleiðslu á náttúrulegum boðefnum að maðurinn verður það sem skilgreint er sem alkóhólisti, sem er stigvaxandi sjúkdómur einstaklingsins og sem fer jafnframt stigvaxandi meðal almennings. Þetta er fyrirbrigðið sem við nú skoðum hér, en samkvæmt QF-kenningunni er þetta alvarlegasta vandamál mannkynsins.


DNA-forritum mannsins. Svo lengi sem við mennirnir höfum ritaðar heim-. ildir, höfum við verið að nýta okkur. kemisk efni til að koma. staðinn fyrir þau efni sem framkalla náttúrlegt vellíðunarástand. Hér er aðallega um boðefni af endorfin-fjélskyldunni. að ræða.. gegnum þessa iðkun. því ad…
ALKATHRAS/4-03_Booz-drykkjulausnin.gif

Hér höfum við svo hóp fólks sem er að iðka boðefnasvindl það sem um ræðir, en í því kemur gjarnan fram mikil losun á bældum tilfinningum og innibyrgðri gremju eða reiði. Er boðefnasvindlið ekki einungis bundið við alkóhól heldur alls konar önnur efni, lífræn sem ólífræn, en augljóst er að sá með sólgleraugun á myndinni er að nota eitthvað meira en bara alkóhól. Er iðkun boðefnasvindls með alkóhóli hin elsta, víðtækasta og vinsælasta frítímaiðkun mannsins og hefur trúlega verið stunduð í allt að tíu þúsund ár, en elstu þekktu viðvaranir viðkomandi alkóhólinu er að finna á veggjum musterisins í Karnak við Luxor í Thebes, Efra-Egyptalandi, og eru 5000 ára gamlar.

Nú í seinni tíð hafa læknar tekið upp á að benda streitu-stressuðum einstaklingum á að reyna að ná fram endorfín-dópamínlosun með neyslu tveggja snafsa daglega, en augljóst er að læknarnir vita ekki hvernig fólk nær þessu fram með náttúrulegum hætti. En hver er þá taugalíffræðilega skilgreiningin á þessu boðefnasvindli? Hún er einfaldlega sú að stress er andlegur sársauki og er gerviboðefnið deyfilyf á þann sársauka. Þetta þýðir að við munum skoða næst hvað sársauki er.


S4-04 Hin tvíþætta sársaukaskynjun mannsins. Andleg og líkamleg sársaukaskynjun mannsins. Tvenns konar sársauki, þar sem annar “gleymist” Horfa má. lífið sem líði það. gegnum nokkurs konar “sársaukagöng" þar sem veggir ganganna. er sársauki. Komi lífið. snertingu vid veggina-- sársaukann--þá er…
ALKATHRAS/4-04_Sarsaukaskynjunin.gif

Sársauki er fyrirbrigði sem í náttúrunni er vinur lífsins, en án hans er þróun og tilvist lífvera óhugsandi. Sársauki eru viðbrögð lífsins við einhverju sem skaðar eða eyðileggur það og má skoða þetta þannig að lífið fari í gegnum göng þar sem veggirnir eru sársaukinn. Byrji lífveran að fara út úr göngunum kemur sársaukinn til hennar og beygir henni inn í lífið aftur, en hér er frægust sú staðhæfing að þjáningin sé perla alkóhólistans; hún sé það eina sem komi vitinu aftur fyrir hann. Stöðug neysla deyfilyfja, í hvaða formi sem er, jafngildir því að flugmaðurinn byrji flugið með því að slökkva á eldviðvörunarkerfum vélarinnar og segja við sjálfan sig: Nú kviknar ekki í.

Á myndinni sjáum við mann sem hefur slasast á fingri og gefa taugarnar sársaukaboð til dreka í hvatahluta heilans, sem skynjar sársaukann, en hann er hluti vitundarsviðsins. Sársaukinn leiðir til viðbragða og lætur viðkomandi gera að sárinu sem grær svo. Þegar skurðaðgerð er gerð á heila er ekki þörf á deyfingu nema rétt á meðan verið er að komast að honum. Þetta er vegna þess að heilinn, sem móttakari sársaukans, skynjar engan sársauka sjálfur, en hefur sína eigin tegund af sársauka sem er andlegs eðlis og getur verið jafn þjáningarfullur og hvaða líkamlegur sársauki sem er, ef ekki verri. Aðalgallinn á hinum andlega sársauka heilans er sá að almennt tekst fólk ekki á við hann á réttan hátt, kann það jafnvel ekki, en deyfir hann í staðinn með áfengi, lyfjum eða öðru boðefnasvindli. Hér kemur svo til skjalanna sú staðreynd að afgreiði fólk ekki andlegan sársauka sinn á viðeigandi hátt leiðir það til vaxandi einbeitingarskorts vitundarinnar (consciousness) og gerir einstaklinginn slysahneigðari en ella. En hér er reglan sú að andlegar raskanir og sársauki koma fyrst, síðan koma slysin með líkamlegum sársauka. Með öðrum orðum: Andlegur sársauki leiðir til líkamlegs sársauka. Hver er þá hin rétta afgreiðsla eða lausn á andlegum sársauka? Þetta þýðir að við munum næst skoða sársaukalausir.


S4-05 Náttúruleg deyfilyf andlegs sársauka. Endorfínfjölskylda taugahemlandi boðefna: Fyrstu taugaboðefni lífsins. Uppgötvun hinna náttúrulegu taugaboðefna (opiata) sem hemla sársaukaskynjun heilans. Beta-Endorfín var fyrst einangrað og efnafræðilega skilgreint. árið 1960 af C. H. Li,. San…
ALKATHRAS/4-05_Betaendorphin.gif

Það var árið 1960 sem dr. Ho Li, Bandaríkjamaður af kínverskum ættum, einangraði í fyrsta sinn próteinsameind heilans sem reyndist vera með 40 — faldan deyfistyrkleika morfínsins. Hann gaf því nafnið Beta-endorfín og skrifaði vísindaritgerðir sínar um það, en uppgötvaði ekki að þetta var þýðingarmesta og aðaltaugahemilsboðefni heilans. Endorfínin reyndust vera laun til tauganna, jafnframt því að vera náttúrulegt deyfilyf fyrir þær, einkum fyrir andlegan sársauka. Varð dr. Ho Li því af Nóbelsverðlaununum (Nobel Prize). Það var 15 árum síðar að tveir lífefnafræðingar frá Aberdeen í Skotlandi, dr. John Hughes og dr. Hans Kosterlitz, fengu Nóbelsverðlaunin í líffræði fyrir þá uppgötvun.

Við uppgötvun endorfínanna urðu viðbrögð heimsins þau að margir líffræðingar töldu að nú vissum við hvernig ætti að lækna allan andlegan sársauka heilans og nú yrðu öll andleg vandamál mannkynsins úr sögunni. Hófust lyfjaframleiðendur handa við að framleiða afrit af endorfínunum og kanna virkni þeirra til markaðssetningar. Í ljós kom að afrit þessi höfðu gríðarlega sterka sársaukadeyfingarvirkni, en að þau höfðu jafnframt gríðarleg vímuáhrif og ánetjunarfylgni. Var vímuvirknin slík að neytendurnir vildu dvelja í vímunni, en öllum hvötum þeirra hafði verið svarað og þurftu þeir ekki einu sinni kynlíf eða næringu, jafnframt þurftu neytendur ekki að vera í neyslu þessara efna nema tiltölulega stuttan tíma til að vera orðnir varanlega ánetjaðir. Með öðrum orðum voru þeir orðnir alkóhólistar eftir nokkurra vikna neyslu. Var framleiðsla þessara efna bönnuð nema sem sársaukalyf fyrir dauðvona krabbameinssjúklinga sem morfíni voru hætt að virka á. Eigi að síður hafa háskólamenntaðir efnafræðingar og andfélagslegir einstaklingar víða í Austur-Evrópu tekið til við framleiðslu áður þekktra, náskyldra afbrigða þessara efna sem þekkt eru undir heitinu ecstasy-pillur, eða E-Pillur.

Rannsóknum á boðefnum endorfínfjölskyldunnar hefur miðað vel áfram og í byrjun áttunda áratugarins uppgötvaðist afbrigði sem reyndist 700 sinnum sterkara en morfín, enda var því gefið nafnið dynorfín. Efni þetta framkallast við dauðann og vakti mikil heilabrot meðal lífefnafræðinga þar sem efni, tvö hundruð sinnum sterkara en morfín, þurrkar út allan hugsanlegan líkamlegan sársauka í heilanum, en hvaða áhrif þau hafa á andlegan sársauka er ekki þekkt.

Þessi uppgötvun varð til þess að gerð var kvikmyndafantasía þar sem nokkrir læknanemar í Bandaríkjunum (United States) fóru að framkalla hver í öðrum tæknilegt „dauðanálgunarástand“, með það fyrir augum að öðlast innsæi í dauðareynslu manna og „dauðavímuna“ af þessu boðefni. Fékk kvikmyndin nafnið FLATLINERS. Þýðingarmestu spurningunni í tengslum við tilraunina, sem fjallaði um: Hvað er náttúran að gera með slík efni í dauðanum? , Var ekki svarað og sömuleiðis ekki heldur hinni enn þá erfiðari spurningu: „Hvernig hefur slíkt boðefnaframleiðsluferli þróast í taugakerfi okkar ef efni þessi framkallast einungis í dauðanum?“ Ef þessi efni eru einungis framkölluð í dauðanum þá er augljóst að við getum ekki séð fyrir okkur eitthvert selection of the fittest, eða úrval hins hæfasta ferli vera hér að verki. Menn þyrftu þar að deyja mörgum sinnum til slíkrar þróunar nei, nei að fara að reyna að rökhugsa slíkt verður eitthvert rugl. Er þessi niðurstaða ein sterkasta sönnun þess að við höfum ekki þróað með okkur Jamais vu trúarstöð heilans, eins og til dæmis dr. Sigmund Freud og dr. Richard Dawkins vilja meina, heldur er hún eitthvað sem náttúran gefur okkur. Eitthvað sem í vísindunum eru óþekktar ástæður. Margir þeirra sem upplifað hafa dauðareynslu eru ekki undrandi á uppgötvun þessa efnis og í þeim tengslum er viðeigandi að minnast lýsingar dr. David Livingstone á því þegar ljónið var að bíta hann til bana og honum fór allt í einu að líða vel og þykja vænt um ljónið, en í því komu fylgdarmenn hans og skutu það.

Fram hafa komið tilgátur um að þegar konur í Þrakíu í Grikklandi — fyrir 2500 árum — iðkuðu launhelgar úti í skógi, þar sem þær drukku vín og skáru karlmann eða dýr á háls og drukku blóðið með víninu, hafi þær með einhverjum hætti drukkið í sig slík dauðaboðefni. Komust þær í mjög sterka vímu og fengu spádómsgáfu. Sömuleiðis hafa komið fram tilgátur um að hér sé komin skýring á hinum miklu mannfórnum í Mið- og Suður-Ameríku fyrir komu Kólumbusar, en þar átu prestarnir hjartað úr fórnarlömbunum, drukku blóð þeirra og höfðu bjór og ofskynjunarsveppi með. Fengu þeir að sjálfsögðu spádómsgáfu. Hversu mikill sannleikur er í þessu er ekki vitað þar sem ekki er ljóst hvernig boðefni sem myndast í heila og mænuvökva komast út í blóðrásina.

Í lok tuttugustu aldarinnar var búið að einangra á milli 60 og 70 mismunandi útgáfur af endorfínum og búið að sýna fram á að boðefni endorfínfjölskyldunnar réðu samvirkni á milli miðtaugakerfisins, kirtlakerfisins og ónæmiskerfisins. Þetta þýðir að hér er um að ræða fyrstu boðefni lífsins. Ráða þau fyrst og fremst andlegri líðan okkar, síðan þeirri líkamlegu. Þau ákvarða hver og hvað við erum og hvernig líf okkar er.

Athyglisverðasta og jafnframt alvarlegasta varðandi hinar miklu framfarir í rannsóknum á boðefnum heilans er sú staðreynd að í öllum niðurstöðunum gengur vísindamönnum afar illa að skilja hin síendurteknu skilaboð náttúrunnar til okkar. Skilaboðin eru þau að því nær sem við komumst hinum náttúrulegu taugaboðefnum náttúrunnar, í eftirlíkingum okkar í lyfjaformi, því verri verða afleiðingarnar varðandi ánetjunarhættuna. Eru nú E-Pillurnar skýrasta viðvörunin til okkar hver þróunin er. Til lengri tíma litið byggir taugakerfið okkar alltaf upp þol við þessum efnum, sem krefst svo stærri skammta fyrir sömu virkni. Jafnframt þessu minnkar geta taugakerfisins til að framkalla samsvarandi náttúruleg boðefni og þýðir það því að því lengur sem svindlboðefnanna er neytt, því erfiðara verður að losna við þau, og að lokum kemur að því að þau rústa taugakerfinu. Hér gildir einu þó að þetta gerist með mismunandi hraða hjá einstaklingum.


S4-06 Hugleiðsla og framköllun boðefna. Iðkun andlegrar tækni til framköllunar aukinna taugahemlandi boðefna. Frá upphafi ritaðra heimilda er að finna frásagnir. af iðkun mannsins. hverskyns andlegri tækni til. að ná fram því sem gjarnan er lýst sem “útvíkkað. it ástand".. og breytt…
ALKATHRAS/4-06_Zen-idkandinn.gif

Margs konar andleg tækni er iðkuð af manninum til að ná fram betra vitundarástandi, meiri afköstum í hugsun og sköpun og betri andlegri og líkamlegri líðan. Hér er hvers kyns kyrjunar-, bæna- og hugleiðslutækni þekktust, og hefur jafnframt ýmiss konar raftækni komið fram til hjálpar við þessa iðkun. Í Austurlöndum er mikið um hugtækniiðkun og í Japan er Zen-tækniiðkun algeng, einkum á meðal þeirra sem bera mikla ábyrgð. Hefur mikið af þessari tækni flust til Vesturlanda og leiddi það til dæmis til hinnar miklu flower power — vakningar í Kaliforníu, en því miður var þar maðkur í mysunni þar sem menn voru jafnframt að nota svindlboðefni. Frægt er að á hippaárunum iðkuðu margir byrjun og hugleiðslu og ýmist drukku, tóku sýru eða reyktu kannabis með og töldu sig vera komna í vitundarástand við æðri raunveruleika. Útkoman úr því skilaði sér ekki sem skyldi og fóru margir mjög illa frá þessu, urðu jafnvel geðveikir glæpamenn.

Mörgum er ekki ljóst hvað verið er að gera með þessum iðkunum og sjá þær sem einhvers konar sjálfsfróunarsefasýki. Því miður hafa menn ekki innsæi í það að hér er um að ræða valkost á milli þess að vera stressaður og svara því með boðefnasvindli, sem borga þarf fyrir með stórfé, eða hvort betra sé að losa sig við stressið með hugtækniiðkun, framkalla endorfín, komast í náttúrulega vímu og borga ekki krónu fyrir. Hafa menn almennt lítið innsæi í það hvernig kyrjun og hugleiðsla leiðir til tíðnijöfnunar í vitundarbylgjunni sem gerir bylgjuna heila og tengir bæði heilahvelin. Við það á sér stað framköllun á endorfínum og síðan dópamínum en jafnframt fer af stað náttúruleg líftæknileiðrétting í heilanum og leiðir þetta af sér, í gegnum endorfínin, betri hugsun, líðan og heilsu. Við getum nú snúið okkur að því hvernig mengun mannsheilans breytir honum og skapar þörf fyrir einstaklinginn til að bjarga lífi sínu með leit til AA-samtakanna (Alcoholics Anonymous) og 12-spora vinnu ásamt hvers kyns kyrjunar-, bæna- og hugleiðsluiðkun. Förum við því beint í nokkrar stærstu spurningarnar í taugalíffræði vísindaheimsins.


fylleríi. Boðefnasvindl með notkun falskra taugaboðefna. Neysla/fylleri. endurupptaka boðefna bregst. Taugabilið Presynaptic (The Synaptic Cleft) Postsynaptic taugaendi (Snafsabilið) taugaendi. sameindir þoðefna bregst taug
ALKATHRAS/4-07_Dopadur-taugaendi.gif

Ein merkasta vísindauppgötvun tuttugustu aldarinnar er innsæi inn í það hvað gerist öðruvísi í taugaendunum þegar gervi- eða svindlboðefni eru til staðar. Hér höfum við tekið Skyggnu #3 - 19 úr öðrum kafla fyrirlestrarins, er sýnir boðefnaskipti í augabilinu og sett hana upp í vímuástandi. Þar sjáum við rafboðin og boðefnin á ferðinni eins og áður, en nú er komin viðbót inn í myndina og er það alkóhólsameindin. Þessu til viðbótar sjáum við að nú vantar þau boðefni sem borguð eru til baka, eða hin svokallaða endurupptaka er ekki til staðar. Þetta er veruleg breyting og þurfum við að gera okkur ljóst að í neyslunni, jafnt og án hennar, eiga þessi skipti sér stað á hverri sekúndu vítt og breytt í heilanum, á meðal þúsunda milljóna tauga og síðan í taugaendum þeirra, sem eru á milli hundrað til þúsund fyrir hverja taug.

Ef við skoðum í einfaldri líkingamynd það sem á sér stað, þá jafngildir tilkoma svindlboðefnanna fyrir taugafrumurnar tilkynningu um að þær hafi gert eitthvað gott og að þær megi í staðinn framkalla taugahemla í miklum mæli. Fara taugafrumurnar þegar í stað að framkalla mikið af taugahemlum sem svo, vegna áhrifa frá svindlboðefnum, leiðir til taugahemlaflóðs, eða vímuflóðsins í heilanum. Er því fyrsta víman oftast, að mestu leyti, náttúruleg boðefnavíma, sem sett er af stað með svindlboðefnum og endurupptökubreytingunni, en tiltölulega lítið magn áfengis þarf til að hrinda þessu af stað í byrjun neyslunnar. Þetta þýðir svo að fyrstu timburmennirnir verða oft tiltölulega vægir af þessum sökum, en flestir þekkja þessar upplifanir við byrjun þeirra á áfengisneyslu.

Þetta lága áfengisþolsástand með náttúrulegri vímu varir ekki lengi og fer einstaklingurinn fljótt að þurfa stöðugt meira áfengi til að ná fram sömu áhrifum, en það er að sjálfsögðu mismunandi í einstaklingum og er einmitt vísbending um þróun inn í alkóhólisma. Hér er um að ræða myndun áfengisþolsins sem er jafnframt upphaf myndunar hinna starfrænu truflana í heilanum, en í verðandi alkóhólistum fer vaxandi þol yfirleitt strax á fulla ferð.

Hinar starfrænu truflanir mannsheilans og tilkoma þeirra er ein stærsta ráðgáta taugalíffræðinnar viðkomandi heilastarfseminni og jafnframt ein sú flóknasta. Skýrir QF-kenningin — í sinni einföldustu framsetningu mögulegri — í QF-líkani af heila, hvernig þetta á sér stað í gegnum endurupptökutruflunina í samspilinu á milli INN og ÚT hluta vitundarbylgjunnar og EXON og INTRON hluta kirnanna í DNA-sameindunum, en truflunin á sér stað vegna rangrar umpólunar tauganna. Með þessari röngu umpólun truflast QF-innraðar-forrit (QF-intron) DNA-sameinda vitundarsviðs heila með þeim afleiðingum að afriti af grunnforriti exon-kirnanna er troðið ofan í intron-kirnurnar. Frekari afleiðingar eru svo að taugahemlaframleiðsla intron-kirnanna skerðist í vaxandi mæli við hverja neyslu, og myndar það því jafnframt vaxandi áfengisþol, en neytandinn bætir það svo upp með auknu neyslumagni.

Yfirlit um þessa þróun kemur svo fram hér á eftir í myndbandsúrklippu #07, Skyggnum #4 - 08, #4 - 09, #4 - 10, #4 - 11, #4 - 12, #4 - 13, #4 - 14, #4 - 15, #4 - 16, #4 - 17 og #4 - 18, en næst byrjum við skoðun okkar á afleiðingum þessa forritaruglings alkóhólsins sem er jafnframt þungamiðja þessa fyrirlestrar.


S4-08 Trufluð endurupptaka boðefna. Upphaf blekkinga/lyga. starfsemi mannsheilans. Með neyslu kemískra efna, sem komast. gegnum “blóð/heilaveggina" og koma sidan. stad náttúrulegra taugaboðefna, er afleiðingin sú að “svarboðið", eða “endurupptaka bodefna”. sér ekki stað. Þetta er jafngildi “lyga",…
ALKATHRAS/4-08_A-Faeding-blekkingar.gif

(Hér kemur myndbandsúrklippa #07)

Hér fengum við að sjá Brookhaven-myndbandsklippu er sýndi okkur hvernig vísindalistamennirnir tjá það þegar endurupptaka boðefna bregst í augabili hjá hinum taugaánetjaða. Hér kemur svo þýðing textans með myndinni: Heilafrumur hafa samskipti með efnasambandaskilaboðum, boðefnunum, en einn hópur þeirra er kallaður taugahemlar. Þegar heilafrumur losa frá sér taugahemla þá bindast þeir nágrannafrumum og framkalla vellíðunarskynjun eða pleasure eins og það heitir á ensku. Við fyrstu neyslu einstaklingsins á svindlboðefnum, eða taugaánetjandi gerviboðefnum, eykst framleiðsla taugahemlanna mjög og orsakar það enn sterkari vellíðunarskynjun. Þar sem endurupptaka taugahemlanna er jafnframt hindruð með nærveru svindlboðefnanna, skapar það aftur flóð af taugahemlum í heilanum, sem síðan skapar enn meiri vímuvellíðunarskynjun og veldur því að neytandinn vil sífellt meira. Hér í Skyggnu #4 - 08 kemur svo vísindalistamannateikning af þessu sama fyrirbrigði sem sýnir hvernig endurupptakan bregst og sjáum við hvernig endurupptökuboðið snýr við, eða er kastað til baka.

Spurningin sem þetta kallar á hlýtur að vera: Hvað þýðir þetta fyrir starfsemi heilans þar sem þúsundir milljóna tauga með sína hundrað til þúsund taugaenda hver, eru að skjóta rafboðum á hverri sekúndu og eru truflaðar í þessu starfi? Hér rifjum við upp þá staðreynd að í vitundarsviði heilans eru um tuttugu og fjögur til þrjátíu þúsund milljónir taugafrumna sem verið er að rugla í, aðallega með fölskum negatífum boðefnum sem koma í stað náttúrulega pósitífra boðefna og umpóla hinum pósitífu intronum mest, þannig að þau taka við negatífum forritsupplýsingum. Í stuttu máli þýðir þetta það að umpólun tauganna verður röng og er það rótin að forritunarruglinu milli exon og intro kirnanna, en það er jafnframt fæðing lyginnar og blekkinganna á tungumáli heilans.

Ekki er að furða þó að áður hafi því verið trúað að megnið af taugafrumum heilans í langt gengnum alkóhólistum væru dauðar. Urðu menn því undrandi eftir að AA-samtökin komu fram á sjónarsviðið og afrugluðu alkóhólistana og þeir urðu eðlilegir. Hér var um að ræða massífar starfrænar truflanir sem verða til með þeim hætti sem hér hefur verið líst, en hægt er að losna við með aðferðafræði AA-samtakanna. Í seinni tíð er að koma fram að umrædd ruglforrit hinna starfrænu truflana erfist á milli kynslóða, en hægt er að stemma stigu við slíku með stöðvun neyslu og leiðréttingu heilans. Er þetta mál því alvarlegra en við höfum hingað til gert okkur ljóst og kemur það frekar fram í næstu mynd og í síðasta hluta þessa fyrirlestrar.


S4-09 Afleiðingar truflaðrar endurupptöku. Hinar starfrænu truflanir. Venjulega VH 100 Venjulega HH
ALKATHRAS/4-09_Filter-truflad-forrit.gif

Þessi skyggna, sem er breytt eintak af Skyggnu #2 - 19, sýnir það sem nánast ómögulegt er að tjá í stórum eða smáum myndum, en hún er í raun þungamiðja þessa fyrirlestrar. Skyggnan gefur okkur myndlíkingaryfirlit yfir niðurstöður QF-kenningarinnar um afleiðingar boðefnasvindlsins, eða það hvernig grunnforrit exon-efnishvelsins er afritað og því troðið ofan í grunnforrit intron-rúmhvelsins, en þetta er sýnt með skástrikaða hringnum sem teiknaður er ofan á intron-rúmhveli með titlinum OFUR-EGÓ. Jafnframt hefur verið bætt inn á myndina hinu fræga „bjöllu-línuriti“ (the bell-curve of intelligence) sálarfræðirannsóknanna á greindarvísitölu manna, en til hægri eru svo tvær vitundar- og DNA-forritunar-jafnvægistáknmyndir sem hvor um sig sýna ójafnvægi. Hér er ÚT-hluti vitundarbylgjunnar sterkari en INN-hlutinn og meira um hraða og ráðaleysi en gott minni, en grunnforrit heilahvelanna sýnir í heild sinni ójafnvægi þar sem mikil aukning hefur orðið á exon-ÉG-forritinu.


boðefna vitundar Ráðandi. homla boðefna vitundar boðefna vitundar Ráðandi. ER ER
ALKATHRAS/4-10_Bodefnatruflun.gif

Við höfum nú séð hvernig svindlboðefnin eða hvers kyns ánetjandi efni orsaka það sem kallað er að endurupptaka boðefna bregðist og hvernig það framkallar síðan fyrirbrigði það sem kallað er mörgum mismunandi nöfnum og sem hér í þessum fyrirlestri er kallað filter. Það er svo þessi filter sem hefur þau áhrif á framleiðslu hemlandi boðefna heilans að það framkallar taugaánetjunarsjúkdómana. Þetta á sér stað fyrir þá staðreynd að filterinn sest ofan í intron-kirnuforrit DNA-spíralanna, og er það jafnt í hin ráðandi forrit rúmskynjunar-VIÐ-hvelsins sem bakgrunnsforrit efnisskynjunar-ÉG-hvelsins. Þetta breytir ekki einungis raunveruleikaskynjun einstaklingsins og persónuleika hans, heldur kemur jafnframt í veg fyrir náttúrulega og heilbrigða framleiðslu á taugahemlum í gegnum bæði þessi forrit. Afleiðing þessa hemlaskorts er síðan stressaður og ófullnægður einstaklingur sem er neyddur til að fá sér aftur og aftur svindlboðefnin, eða vímugjafa í einhverju formi. Þetta er rótin að taugaánetjunarsjúkdómunum sem heildarhugtakið alkóhólismi er svo notað yfir, en sjúkdómseinkennin koma aðallega fram í því að hinn verðandi alkóhólisti fer strax að þurfa meira magn til að ná sömu vímu, sem er hið aukna áfengisþol. Áberandi er hve lítið áfengismagn einstaklingurinn þarf í byrjun neyslu, en eftir því sem árin líða, filterinn vex og náttúruleg boðefnaframleiðsla minnkar, þarf einstaklingurinn að nota stöðugt vaxandi magn vímugjafa í takt við filterinn og verður hið andlega, breytta alkóhólíska hugarfar því stöðugt verra. Þar sem raunveruleikinn er okkur öllum sameiginlegur smitar hið alkóhólíska hugarfar út frá sér, einkum í aðstandendur, sem einnig öðlast filter á forsendum rangra hugsana, án þess þó að þeir fáni hið „líkamlega ofnæmi“ sem alkóhólistar skilgreina. Þessum einstaklingum er svo hættara við að ánetjast, fari þeir að stunda drykkju, þar sem þeir eru þegar komnir með einhvern filter. Á lokastigi sjúkdómsins fer svo lifrin að gefa sig og áfengisþol neytandans hrynur.

Til viðbótar við truflanirnar frá filternum er talið líklegt að um sérstakar tengingarskemmdir sé að ræða meðal ákveðinna tengifruma, sem hafa með boðefnaframleiðslu efnis-ÉG-hvelsins og heiladingulskirtils að gera, en þetta eru taugar sem við hugsum ekki með. Ef þetta er rétt, þá eru þessar skemmdir varanlegar á tengifrumum. Taugar þessar fá laun sín við að flytja skilaboð um taugahemlaframleiðslu og fá greitt fyrir með boðefnum, en í langvarandi neyslu fá þær ekki að starfa og því enga næringu og drepast því. Hér er að verki lögmálið Ef þú notar það ekki, taparðu því! , En það gildir um öll líffæri, sem visna ef þau eru ekki notuð. Þetta kemur svo aftur fram í rýrnun svokallaðs dreka, sem er hluti hvataheila og er það rúm-VIÐ-hvels drekinn sem aðallega rýrnar í alkóhólistanum. Í þunglyndum aðstandendum er það svo aftur efnis-ÉG-hvels dreki sem rýrnar. Augljóst ætti að vera, af þessari skyggnu og textanum við hana, að einstaklingur sem svona er komið fyrir á í miklum erfiðleikum með að hætta neyslu sinni án þess að losna við filterinn í rúm-VIÐ-hveli heila síns að einhverju leyti. Í næsta kafla skoðum við batann frá ánetjuninni og fáum þar að sjá hvernig við losnum við rúmskynjunar-VIÐ-hvels filterinn, en ekki filterinn í bakgrunns-intron-forriti efnis-ÉG-hvelsins. Þetta, ásamt mögulegum skaða á taugatengingum, gerir svo sjúkdóminn alkóhólisma varanlegan, þó svo að með upprætingu meginfiltersins séu sjúkdómseinkennin í dvala. Hér verður líka ljóst hvers vegna talað er um að sjúkdómurinn sé þríþættur, en filterinn í intron-kirnuforritum DNA-sameinda heilans er það sem orsakar hið andlega mein og hina huglægu þráhyggju, en bakgrunns-intron-forrit efnis-ÉG-hvelsins, ásamt hinum mögulega tengitaugaskaða, orsakar hið svokallaða líkamlega ofnæmi, sem ekki er hægt að losna við.


S4-11 Erfðakóða formauka-merkja DNA stjórnun. Litningur Hvað er gena-formauki (epigene)? Frá því 2002, sérstaklega síðustu two árin, hafa líffræðingar snúið sér. meir að gena-formaukanum (epigenetics) sem fæst við viðbætur erfðakóða uppskriftirnar án þess að breyta DNA kyrnu uppröðun, en þessar…
ALKATHRAS/4-11_A_Gena-formauki.gif
formauka" merki.. Röng DNA metýlhúðun:. Metýi-merkjum som bætt. Guanine eða Thymine. Rangar Histónu merkingar:. Mismunandi samsetningar af ýmiskonar. sameindum geta verið fest við ‘skottin’ á, histónuprótinunum. Þetta framkallar svo,. til RNA er ein leið sem rangur form- Flutningur erféaupplysinga…
ALKATHRAS/4-11_B_Rangur-formauki.gif

QF-kenningar staðfestingartillaga:

Orðið „erfðakóðaformauki“ (epigenetic marker) þýðir orðrétt „viðbót til breytinga á genaröðinni“ og er notað yfir bættar merkingar í DNA-sameindinni sem fyrst voru uppgötvaðar árið 1910 í korni og síðan 1991 í spendýrum. Við aldamótalokatalningu DNA-kyrnanna og kortlagningu erfðalóðanna af'Human Genome Project'og'Institute for Genetic Research', hafði leitin að stjórnun genamengisins (genome), ásamt skýringum á því hvernig genastarfseminni gæti verið breytt á annan máta en með breyttri kyrnaröðun erfðalóðanna, fengið byr undir báða vængi, en þar hefur erfðakóðaformaukinn gefið svarið við síðari spurningunni. Nú hafa margar tegundir af erfðakóðaformaukaferli verið uppgötvaðar en þar er talið til methylation, acetylation, phosphorylation, ubiquitylation og sumolyation, en þar af er DNA-methýlhúðunin algengust. Erfðakóðaformaukaferlin eru náttúruleg og nauðsynleg í margri lífrænni starfsemi, en komi þau fram í rangri birtingu geta þau framkallað meiri háttar heilsu- og hegðunarvandamál.

Nú þegar í dag hefur mikill fjöldi líkamlegra sjúkdóma og andlegra hegðunarvandamála, ásamt öðrum heilsufarseinkennum, verið tengdur við truflanir á erfðakóðaformaukunum. Þar er að finna meðal annars næstum allar tegundir af krabbameini, truflunum á hugsunarstarfsemi, öndunar-, æða-, kynfæra-, ónæmis- og taugahegðunarkerfasjúkdómum mannslíkamans. Þekktar eða grunaðar orsakir á bak við truflaða erfðakóðaformaukastarfsemi innihalda mikinn fjölda orsakavalda eins og til dæmis þungmálma, skordýraeitur, díselolíubruna-afgas, tóbaksreyk, polycyclic aromatic kolvetnasambönd, hormón, geislavirkni, vírusa, bakteríur ásamt ýmsum tegundum af grundvallarnæringarefnum, en neysla mannsins á alkóhóli er samkvæmt QF-kenningunni algengasta og versta orsökin. Ein af þeim rannsóknarniðurstöðum í erfðakóðaformaukarannsóknum sem mest hafa komið á óvart eru fréttir af formaukabreytingum sem kunna að hafa flust í gegnum minnst fjórar kynslóðir lífvera, en þessu hefur QF-kenningin haldið fram síðan 1994.

Samkvæmt QF-kenningunni er genatjáningunni stjórnað af „DNA-lífstjórnunarforritum“ þeim sem eru í QF-innröð (QF-intron) kyrnahlið DNA-sameindarinnar sem þýðir stjórnun hinna heilbrigðu erfðakóðaformauka. Þetta þýðir að sérhver eiturefnatruflun í þessum forritum er að orsaka rangar DNA-formaukamerkingar í DNA-sameindinni, sérstaklega í heilanum, en þaðan geta þessar röngu merkingar verið fluttar með skammabreytingu (quantum change) í samsvarandi stjórnandi líkamshluta, sérstaklega kirtlana. Þetta eru þær uppsöfnuðu starfrænu truflanir sem QF-kenningin kallar filter og sem koma í veg fyrir eðlilega taugaboðefnaframleiðslu í heila alkóhólista og annarra taugaánetjaðra þráhyggjusjúklinga.

Framtíðarhorfur varðandi yfirgripsmiklar alhliða erfðakóðaformaukarannsóknir í tengslum við mikinn fjölda sjúkdóma sem framkallaðir eru í gegnum rangar formaukamerkingar eru margfalt flóknari og yfirgripsmeiri en The Human Genome Project', en það var alheimsleg samvinna sem stóð yfir í meira en tíu ár og kostaði marga milljarða dollara.

Það sem hér er sagt er ekkert smámál og að okkar mati stærsta spurning mannkynsins. Því spyrjum við okkur: Getur þetta virkilega verið? Þar sem ekki er hægt að gera beinar kannanir á þessu, þá verðum við að styðjast við óbeinar niðurstöður, sem koma úr ýmsum áttum:

Í fyrsta lagi:

Sálar- og taugalíffræðirannsóknir skoðaðar í skyggnu #4 - 09.

Í öðru lagi:

Trúarbragðakennisetningar skoðaðar í skyggnu #48.

Í þriðja lagi:

Sjúkleikaskilgreiningar Samtaka óvirkra alkóhólista (Alcoholics Anonymous) skoðaðar í skyggnu #48.

Í fjórða lagi:

Upplifanir brautryðjenda í skammtafræði (quantum mechanics) skoðaðar í skyggnu #48.

Í fimmta lagi:

Nýjar samanburðarlíffræðirannsóknir á öpum og mönnum í skyggnu #49.

Í sjötta lagi:

Erfðaferli hins ranga innraðarforrits er svo skoðað í skyggnu #49.

Fyrsti könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Ábendingar sálar- og taugalíffræðirannsókna.

Við byrjum á því að skoða ýmsar ályktanir og niðurstöður sálfræðinnar, en í mynduppsetningunni höfum við tekið hina kunnu yfirlitsmynd dr. Sigmund Freud þar sem heilanum er skipt í þrennt, EGÓ, OFUR-EGÓ, og ID, en þar taldi Freud að undirmeðvitundin innihéldi það sem hann kallaði OFUR-EGÓ. Taldi hann OFUR-EGÓIÐ vera okkur náttúrulegt og væri það jafnframt vandræðavaldurinn í lífi manna. Var það tillaga hans að það eina sem hægt væri að gera við ónotin frá þessu OFUR-EGÓI væri að fara með það til sálgreinis eða bara drekka brennivín á það. Dr. Carl Gustav Jung — sem sáði fræinu að Samtökum óvirkra alkóhólista — var ekki sammála dr. Freud og varð þessi ágreiningur hluti af aðskilnaði þeirra. Á síðustu öld voru gerð ógrynni öll af greindarvísitöluprófum á fólki og var meðalniðurstaðan eins og fram kemur á línuritinu sem sett er inn á myndina hér í skyggnu #4 - 09. En það er hin fræga bjöllubogalína, eða „bell curve“. Þar er vaxandi fólksfjöldi rannsakaðra settur á móti vaxandi greindarrannsóknaniðurstöðum. Á skala sem gerir ráð fyrir tvö hundruð mögulegum greindareiningum kemur í ljós að meðalgreind fólks er um eitt hundrað stig, en það vísar til þess að fólk hefur að meðaltali aðgang að helmingi heila síns, sem styður niðurstöður QF-kenningarinnar. Að vísu er rétt að athuga að greindarvísitöluprófanirnar hafa verið mjög efnishyggjuhvels-miðaðar, en sú staðreynd í sjálfu sér styður niðurstöður QF-kenningarinnar enn frekar. Við þetta bætist svo að sálfræðin talar um rúmskynjunarhvelið sem undirmeðvitund og eru sálfræðingar sífellt að reyna að finna út hvað þar er á seyði, en þessi leit er enn frekari vísbending um að þar kunni að vera blekkingarhjúpur á ferð.

Hér koma einnig til niðurstöður úr taugalíffræðirannsóknum sem sýna að við notum nánast eingöngu efnishyggjuhvelið við að leysa hversdagsleg verkefni okkar. Er það kallað „ósamhverfa mannsheilans“ og eru þessar niðurstöður svo veigamiklar að þær verða skoðaðar sérstaklega hér á eftir í skyggnu #4 - 11. Almennt er svo talað um að meðalmaður hafi einungis aðgang að um 50% getu heila síns og noti daglega 15 til 30% af þeirri getu, en af þessum tillögum eru margar útgáfur.


Ef Djöfullinn er en maðurinn. hann, þá hefur hann vissulega skapað hann. sinni eigin. Dostoevsky. ind og líkingu.
ALKATHRAS/4-12_Filterskapadur-djofull.gif

Annar könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Ábendingar trúarbragðakennisetninganna. Ef trúarbrögðin eru skoðuð í ljósi þessara niðurstaðna QF-kenningarinnar, sést að öll trúarbrögð snúast að stórum hluta um þessa spurningu. Áður en við skoðum hvað trúarbrögðin hafa að leggja til málanna viðkomandi hinu falska innraðarforriti rúmskynjunarhvelsins í QF-kenningunni, er viðeigandi að skoða hvað hinn mikli náttúrusálfræðingur, Fyodor Dostoevsky, hafði að segja um þetta. Hið illa, sem fyrirfinnst ekki í náttúrunni, er tjáð hér í táknmyndinni um hugtak okkar um hið illa í manninum, okkur sjálfum, og eru orð Dostoevsky hér mjög viðeigandi og staðfesta QF-líkanið (QF-model) um okkar eigin sköpun hins illa. Hafði hann þetta að segja: Ef Djöfullinn er ekki til, en maðurinn hefur skapað hann, þá hefur hann vissulega skapað hann í sinni eigin ímynd og líkingu, og á það fulla samsvörun við myndir QF-líkansins um hið falska innraðarforrit.

Þegar kemur að trúarbragðakennisetningum virðist okkur sem þær snúist nánast eingöngu um þetta falska forrit í innraðarkyrnum rúmskynjunarhvelsins. Skulum við því kíkja á hvað þær hafa að segja um þessa tillögu QF-kenningarinnar. Ef við byrjum í Austur-Asíu og skoðum taóismann (með hliðsjón af konfúsíusisma), þá er þar talað um drekann, sem bæði getur verið jákvæður og neikvæður og skyldu menn gæta þess að hafa hann góðan. Næstur er hindúisminn á Indlandi, en þar er þetta forrit þekkt ýmist sem „karma - “, lögmál orsaka og afleiðinga, „Maya - “, blekkingin mikla eða „mara“, sem er enginn annar en hinn illi eða Djöfullinn sjálfur. Þar sem búddisminn er sprottinn af hindúismanum notar hann sömu hugtök um þetta forrit. Þá eru það Mið-Austurlönd, en þar er elsta núlifandi trúarbragðið gyðingdómurinn, sem að einhverju leyti er sprottinn af trúarbrögðum Forn-Egypta, þar sem einn aðalhöfundur gyðingdómsins var alinn upp af fornegypskum prestum við hirð Faraósins. Í gyðingdóminum er komist öllu nær upptöku hins falska innraðarforrits í sögu Mósesar af syndafalli mannsins og burtvísun hans úr Paradís. Þar er hinn forboðni ávöxtur ekkert annað en alkóhólið, þó svo hann þori ekki að segja það beint af ótta við óvinsældir, en neysla þessa ávaxtar, segir snákurinn, verður til þess að maðurinn muni verða eins og Guð og þekkja muninn á réttu og röngu, góðu og illu. Þetta er að sjálfsögðu andstætt afleiðingum áfengisneyslunnar enda eru þetta orð snáksins, eða drekans, sem er jafnframt lygari, en afleiðingarnar eru svo brottvísun úr sæluástandi paradísar, sem er tákn um skerta framleiðslu endorfína og andlega vanlíðan í streitu. Þessu til viðbótar eru svo syndir feðranna, erfðasyndin, sem eru erfðirnar á hinu falska innraðarforriti. Er þetta skilgreiningin á hinu falska forriti, sem komið er ofan í forrit hins Æðra-Sjálfvilja í innröðunum og er sköpun okkar á því sem við svo köllum Djöfulinn. Þessar líkingamálssögur Mósesar koma heim og saman við niðurstöður QF-kenningarinnar. Þar sem kristindómur og íslam eru trúarbrögð sem sprottin eru af gyðingdómi, nota þau sömu grunnhugtök og hann.

Þriðji könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Sjúkleikaskilgreiningar Samtaka óvirkra alkóhólista. Hið falska forrit í VIÐ-innröðum rúmskynjunarheilahvels kemur mjög við sögu í leiðréttingarprógrammi Samtaka óvirkra alkóhólista, en þar er það einfaldlega kallað lestir og brestir. Er tilgangur AA-prógrammsins að losna við þetta forrit fyrir tilstilli Guðs, sem samkvæmt niðurstöðum QF-kenningarinnar á sér stað í gegnum Jamais vu trúartaugamiðstöðina í þessu heilahveli. Fjallar fjórði og síðasti þáttur þessa fyrirlestrar um það taugalíffræðiferli sem býr að baki þessari leiðréttingu.

Fjórði könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Upplifanir brautryðjenda í skammtafræði. Einna merkilegust í þessari lauslegu könnun er sú reynsla sem sumir forfeður skammtafræðinnar urðu fyrir á fyrstu árum rannsókna sinna. En þeir urðu þess áskynja að svo virtist sem þeir væru í sumum rannsóknum sínum að horfa á raunveruleikann í gegnum einhvers konar filter. Filter svipaðan þeim sem settir eru á myndavélar. Er þetta sagt hafa verið ein af spurningum dr. Wolfgang Paul til dr. Carl Gustav Jung, þegar hann heimsótti hann til Zürich 1930. Hugtakið filter um Djöfulinn, eða persónulega lesti og bresti, er andstætt því sem er að finna í sálfræðinni og trúarbrögðunum, þar sem það er ekki þolendatengt og án allra ásakana í garð einstaklingsins um að hann sé eitthvað verri en aðrir. Vísar hugtakið filter einungis til þeirrar tillögu að eitthvað starfi ekki rétt í heilanum og verður filter-hugtakið því það hugtak sem framvegis verður notað hér í þessari umfjöllun um hið falska innraðarforrit.

Fimmti könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Samanburðartaugalíffræðirannsóknir á öpum og mönnum. Það var fyrst upp úr miðbiki tuttugustu aldarinnar að líffræðingum fór að takast að efnagreina og kryfja mannsheila að einhverju gagni og var þá meðal annars hafist handa við að reyna að finna hvað það var í heilanum sem orsakaði hinn gífurlega afkastamun milli manna. Meðal annarra frægra manna gaf Albert Einstein sjálfur heila sinn í þessar rannsóknir. Voru niðurstöðurnar þær að enginn verulegur munur fannst á heila þeirra sem við mennirnir skilgreinum sem bjána eða snillinga. Einnig fengu menn um þetta leyti niðurstöður sem sýndu að ekki var að finna neinar sérstakar skemmdir á heilum úr alkóhólistum, ef þeir voru ekki byrjaðir að fá krampa og óráðsvitfirringu (delirium tremens). Kom í ljós að það var ekki fyrr en í krömpunum og óráðsvitfirringunni sem taugadauðinn byrjaði, en þetta var staðfest um þessar mundir af reynslu Samtaka óvirkra alkóhólista, sem sýndu að illa ruglaðir alkóhólistar, sem talið var að væru með miklar heilaskemmdir, náðu sér og afrugluðust. Síðar fundust rýrnaðir hvataheila hægri-drekar í langt gengnum alkóhólistum.

Á síðustu áratugum tuttugustu aldarinnar urðu miklar framfarir í heilaskönnunartækni taugalíffræðinnar og voru nú meðal annars endurgerðar tilraunirnar á þeim sem við skilgreindum sem bjána og snillinga. Voru slíkir einstaklingar settir í skanna, þar sem hægt var að sjá hvar og hversu mikil virkni var í heilanum hverju sinni og þeir síðan spurðir sömu spurninganna. Niðurstöðurnar voru þær að sá sem við köllum snilling svaraði spurningunni strax rétt og sýndi skanninn lítt aukna virkni í heila hans. Sá sem við köllum bjána hugsaði og hugsaði aftur á móti, og kom ekki með neitt svar, en skanninn sýndi gífurlega aukna virkni í heila hans á meðan. Ekki var hægt að ákvarða neitt um þessar niðurstöður annað en það að verið var að horfa á tvo heila með mismunandi magni af starfrænum truflunum. Þetta er filterinn samkvæmt QF-kenningarlíkaninu um heilastarfsemina.

Niðurstöður annarrar mjög athyglisverðrar skannarannsóknartilraunar gefur að líta á skyggnunni hér, en þetta er samanburðarstaðfesting á svokölluðu „ósamhverfi mannsheilans“, sem áður var minnst á og þykir staðfesta QF-kenninguna til jafns við „binding problem“-tilraunina sem sýnd var hér áður með skyggnu #2 - 19. Myndirnar sýna skannaniðurstöður fyrir heila í manni og simpansa, sem báðir eru að leysa sömu einföldu tölvuþrautina, en þrátt fyrir að myndirnar séu ekki góðar, þar sem þær eru teknar af myndbandasjónvarpsupptöku, er niðurstaðan tiltölulega skýr. Kemur fram að maðurinn notar nánast einvörðungu efnisskynjunarhvelið við að leysa þrautina, en simpansinn aftur á móti notar bæði heilahvelin. Ástæðurnar fyrir þessum mismun eru ekki þekktar í vísindum taugalíffræðinnar, en QF-kenningin er með skýr svör um þær; Simpansinn og forfeður hans hafa ekki verið að, og eru ekki að, iðka boðefnasvindl eða heilamengun sér til afslöppunar. Þeir eru að framkalla taugahemla eins og endorfín og dópamín á náttúrulegan máta.

Sjötti könnunarvettvangur okkar á spurningunni um tilvist hins falska innraðarforrits; Erfðir hins ranga innraðarforrits. Skipuritið hér fyrir neðan er af hinni frægu rannsóknarniðurstöðu tékk-austurríska munksins, Gregor Johann Mendel, á hinum genatísku erfðalögmálum, sem hann gerði á nítjándu öld og sem aðeins lítillega hefur þurft að leiðrétta síðan. Sem dæmi sýna erfðalögmálin að ef hvítur og svartur einstaklingur eignast barn saman, getur barnið orðið hvítt og einnig barn þess barns, en síðan getur komið svartur einstaklingur í þriðju kynslóð eða fjórðu. Nú er að koma í ljós að áunnin hegðunarmynstur erfast í gegnum kynslóðirnar eftir þessu lögmáli og tilheyra taugaánetjunarsjúkdómarnir þessum flokki erfða, en þetta staðfestir svo aftur tillögur QF-kenningarinnar. Með öðrum orðum, erfðaorsakir taugaánetjunarsjúkdóma geta átt rætur sínar allt að 5 til 7 kynslóðir aftur í tímann.


S4-13 Ósamhverfi mannsheilans. erfðir. Heilaskann manns og apa að framkvæma sama verk.. Erfðalögmál Jóhanns Gregor Mendel. Genetískar erfðir. Geta komið fram koma fram. síðari kynsl. 5-7 kynslóðum síðar. (al. ala la
ALKATHRAS/4-13_A-Osamhv.gif

(Hér kemur myndbandsúrklippa #08)


Eitt af því allra furðulegasta sem fram kemur í þeim hluta QF-kenningarinnar sem snýr að lífinu og mannsheilanum er staðfesting á því að spádómar eru mögulegir og hvernig virkni þeirra er háttað. Í framhaldi af því kemur í ljós að hægt er að fá samhangandi og raunveruleikasamsvarandi túlkun á hinum furðulegu og ruglingslegu trúarlegu myndlýsingum í spádómi Opinberunarbókar Biblíunnar, séu þær túlkaðar út frá líffræðilegum byggingarhugtökum og skammtafræðilegum starfshugtökum um mannsheilann. Kom í ljós að á þessum forsendum var spádómurinn að lýsa þróunarferli einstaklings inn í lokastig taugaánetjunarinnar, endurhæfingu og fráhvörfum ásamt lífi hans þar á eftir. Með öðrum orðum: Hvernig það var — hvað gerðist — og hvernig það er — í taugaánetjunarsjúkdómsferli þessa einstaklings.

S4-14 Filter-skilaboð æðri raunveruleika. Dyra/drekagata 13. kafla Opinberunarbokar Biblíunnar. “þá sá ég dýr koma upp “Dýrið sagði þeim að byggja úr sjónum.". líkneski til heiðurs dýrinu... “Drekin gaf dýrinu vald sitt..." Og. var því leyft að blása lífi. líkneski fyrra. Seinna Fyrra Seinna Fyrra…
ALKATHRAS/4-14_Gata-13-Kaflans.gif

Þar sem þessi túlkun leiddi í ljós líkingarmálsmyndlýsingar á framköllun filtersins í heila hins taugaánetjaða í 13. kafla spádómsins, er viðeigandi að taka þá túlkun hér inn í þessa umfjöllun um þetta fyrirbrigði, en þar segir líkingamálið í grófum dráttum frá dýrunum tveimur og drekanum:

Fyrra dýrið: Kemur upp úr sjónum með vald drekans, en þetta er lýsing á illa hemlaði virkni úr hvataheilanum, sjónum, eða hægri-dreka, inn í rúmskynjunar-VIÐ-hvelið. Seinna dýrið: Kemur upp úr jörðinni og talar sem dreki með vald fyrra dýrsins, en þetta er lýsing á illa hemlaði virkni úr hvataheilanum, jörðinni, eða vinstri-dreka inn í efnisskynjunar-ÉG-hvelið, sem með alkóhólinu nýtur boðefnavirkni rúmhvelsins. Seinna dýrið lætur síðan byggja líkneski af sjálfu sér í formi fyrra dýrsins, þar sem fyrra dýrið var til húsa, eða til heiðurs fyrra dýrinu.

Síðan segir í niðurlaginu að engar taugafrumur geti stundað boðefnaskipti nema hafa leyfi seinna dýrsins sem hér er skapað með filternum eða taugaánetjunarsjúkdómnum. Þetta segir okkur að nánast öll boðefnaskipti taugafrumnanna séu ráðin af virkni filtersins, sem við munum nú skoða hér á eftir, þó ekki í spádómsmáli.

Ef það er rétt sem QF-kenningin leggur til, að um sé að ræða að raunveruleiki æðra-sjálfsins eða Guðsvitundartengslanna í heilanum sé truflaður af filternum og sé þar með alvarlegasta vandamál mannkynsins, þá er ekki að furða þótt fjallað sé um fyrirbrigði filtersins í þessum spádómi Biblíunnar. Þar sem filterinn er orsök allra þessara truflana í starfsemi orsakahluta heila okkar, og skapar jafnframt afrit af egóforriti einstaklingsins ofan í innraðar-trúar og samkenndarstöð heilans, er ekki að furða þótt fram komi einstaklingar sem við geðrofs-uppvakningu þessa forrits fara að lýsa því yfir að þeir séu Jesús, Búdda, María mær eða Napóleon. Er heldur ekki að undra hina almennu óbeit manna á því sem þeir skilgreina sem hvers kyns Guðskjaftæði, þar sem sálfræðingar og geðlæknar fara fremst eftir að hafa heyrt marga andlega sjúka einstaklinga rausa mikið rugl af þessu tagi. Það er heldur ekki skrýtið að Kristur hafi varað við komu margra falskrista í framtíðinni, en hann hafði greinilega innsæi í framþróun hins andlega ástands mannkynsins. Tilvist filtersins skýrir jafnframt hina miklu fjölbreytni og aragrúa af starfrænum truflunum í rúmskynjunar-VIÐ-heilahvelinu, eða undirmeðvitundinni, sem svo inniheldur skýringar á því hversu hlutfallslega fátíð tónlistar-, myndlistar-, innsæis- og ímyndunaraflssköpunarvirknin er meðal mannanna, að við gleymum nú ekki hinni þvinguðu siðferðisvitund okkar og efnishyggjutengda kærleika til hvers annars. Allt þetta staðfesta heilastarfslíkön QF-kenningarinnar.


S4-15 Ystu mörk vitundarástands heila. Heilbrigt ástand og filteröfgaástand heilajafnvægis. Heildar boðefnavirkni. Heildar boðefnavirkni.. No 9.
ALKATHRAS/4-15_Extreme-vitund.gif

Hér er yfirlit yfir ystu mörk filtersástands mannsheilans og er myndin einungis til þess að benda á helstu flokka hinna starfrænu truflana er filterinn veldur, en við skulum gera okkur ljóst að hér er alls konar millibilsástand mögulegt. Augljóst er að filterinn getur hafnað hvar sem er í heilanum og safnast hann upp á mismunandi sviðum hans. Þar sem mikið af hvötum okkar verða illa heklaðar í neysluástandinu, einkum kynhvötin, er þeim svæðum í heilanum sem hvötunum þjóna einkum hætt við að safna í sig filter. Þetta er höfuðástæðan fyrir því að tíðni krabbameins er svo há í kynkirtlum mannsins. Rétt er að athuga að á myndinni er ekki tjáð hið sérstaka vitundarástand sem á sér stað í hinni hröðu líftæknibataþróun sem framkallast við upprætingu filtersins.

Efst í miðju skyggnunnar höfum við einstakling sem er filterslaus og er það hinn uppljómaði furðufugl, en hann getur ekki annað en verið öðruvísi en hinn venjulegi nútímamaður. Hér er boðefnajafnvægislínan þannig að brennipunktur vitundar, tjáður með kúlu, er stöðugt í miðjum heilanum, eða stóru heilabrúnni. Þetta á við um menn eins og trúarbragðahöfundana, en í þessu ástandi er trúarstöð mannsheilans fullvirk. Þetta eru einnig margir sköpunarsnillingar mannkynssögunnar, einkum þeir sem ekki örvuðu andlega getu sína með efnum, eins og Albert Einstein, sem fékk andlega vakningarupplifun sem unglingur og drakk aldrei áfengi. Flestir hinna svokölluðu hernaðarsnillinga mannkynssögunnar örvuðu heila sinn með áfengi eða efnum og hafa jafnvel heilu vísindakenningarnar verið skrifaðar af slíkum einstaklingum.

Í miðri miðröðinni höfum við þá hinn svokallaða meðalnútímamann, sem ýmist notar áfengi eða ekki, en ef hann gerir það, þá getur hann notað það í hófi eins og það er kallað, eða missir ekki stjórn á neyslu sinni að öllu jöfnu. Flestir eru með erfðafilter, en þeir sem eru með mikinn erfðafilter eiga yfir höfði sér að verða með tímanum alkóhólánetjaðir. Hér er boðefnalína heilans með tveimur lágpunktum, sem þýðir að brennipunktur er ráðandi í efnis-ÉG-hvelinu, en stekkur af og til yfir í rúm-VIÐ-hvelið og fylgir þessu yfirleitt klofin vitundarbylgja, sem svo leiðir af sér agaleysi, einbeitingar- og athyglisskort sem veldur svo slysunum. Margir slíkir einstaklingar fá andlega vakningarupplifun, en fara síðan að örva heilastarfsemina með alkóhóli eða kókaíni og með því snúa áhrifum hennar til baka. Aðrir framkalla andlega vakningarupplifun alfarið á slíkum efnum eins og dr. Sigmund Freud og sér Arthur Conan Doyle. Hættan í þessu er að þessir einstaklingar geta þróast inn í einn hinna fjögurra algengustu geðsjúkdóma, eða þá að þeir lenda inn í öðru hvoru hinna tveggja vitundarójafnvægis-geðraskana heilans.

Neðst í miðröðinni gefur að líta boðefnaójafnvægisástand í heila einstaklings sem er kominn að endamörkum boðefnasvindlsins og er filterinn orðinn það þétt ofinn í heila hans að hann getur nánast ekki framleitt nein hemlandi taugaboðefni. Verður hann því að fá sér einhvers konar gervitaughemla utan að, hvað sem það kostar, en boðefnalínan er komin út úr heila hans og getur brennipunktur vitundar verið hvar sem er í heilanum í þessu ástandi. Þessi einstaklingur er mjög nálægt því að hrökkva inn í einn hinna fjögurra þekktustu geðsjúkdóma, eða þá að þeir lenda inn í öðru hvoru hinna tveggja vitundarójafnvægis-geðraskana heilans.

Efst í hægri röð er geðsjúkdómurinn geðhvarfasýki, eða manía-depressiva. Í miðri hægri röð er geðsjúkdómurinn geðklofi, sem birtist í minnst fimm útgáfum. Neðst í hægri röðinni er svo geðsjúkdómurinn stjarfaklofi, sem kom fram í myndinni The Awakening, með Robin Williams og Robert De Niro. Neðst í vinstri röð er það sem ýmist er skilgreint sem geðröskun eða geðsjúkdómur, en það er þunglyndið sem er mjög algengt meðal alkóhól- og lyfjaneytenda. Í miðju vinstri raðar er ástand sem ekki er skilgreint sem geðsjúkdómur en þetta eru siðblindur einstaklingur eða félagsblindur og fjölpersónuleiki, sem einnig eru mörgum alkóhólistum ekki ókunnir. Efst í vinstri röðinni er svo ástand hins duglega egó-maníska hrokagikks sem algengur er meðal aðstandenda alkóhólista.

Að lokum skal bent á, að það er ekkert sem segir, að ekki sé hægt fyrir hvern sem er, að losna við filterinn og komast í vitundarástand númer eitt, vitundarástand hins uppljómaða. Það kann hins vegar að vera mismunandi erfitt að komast þangað og getur þarfnast mikils skilnings á viðfangsefninu og jafnframt mikillar hjálpar og leiðsagnar.


S4-16 Samanburður “normal-” og neysluheila. Samanburður: heil eða brotin boðefnaframleiðsla. Heildaráhrif boðefnadreifingar Boðefnavirkni. Neysla falskra boðefna framkallar ósamhverfi vitundarbylgju og DNA -forrita.
ALKATHRAS/4-16_Skonnun-filtertrufluna.gif

Efri skannamyndin á að gefa okkur hugmynd um það hvernig meðalmaðurinn lítur út, með sinn meðalfilter — en hinn sameiginlegi erfðafilter hefur nú vaxið og útbreiðst á Vesturlöndum allverulega á síðustu öld. Það er þessi meðalfilter sem kann jafnframt að vera ein banvænasta útgáfan af filternum þar sem afleiðingar hans koma fram í hvers kyns öfgahegðunarmunstrum, sem öll eru orsökuð af tilraunum intro rúmskynjunar-VIÐ-hvelsins, til að bæta upp á einhvern máta, hina skertu endorfínframleiðslu heilans. Hér kemur til skjalanna mikið úrval af stjórnleysisþráhyggju þar sem efst eru á blaði átröskunarfíknirnar, spilafíknirnar, sambands- og kynlífsfíknirnar, afbrigðilegar kynhegðunarfíknir og má hér lengi telja. Meðalfilter þessi skapar mikla óhamingju og leiðir til dauða rétt eins og allir aðrir filterar, en í seinni tíð er ofátsfíknin að verða hvað verst á Vesturlöndum og hafa til dæmis bandarísku læknasamtökin nú viðurkennt, að ofátið hrjái ekki bara 30% Bandaríkjamanna, heldur 69%, en svipað ástand er að finna annars staðar á Vesturlöndum. Það ömurlegasta við þessa filtera er, að verið er að reyna að losna við þá, með sálfræðingasamtölum sem gefur falska tilfinningu um breytt ástand í gegnum framleiðslu samkenndarendorfína, en blekkingin skapar síðan vaxandi filter. Enn verra er svo lyfjaátið sem boðið er upp á, en það skapar enn meiri og verri filter.

Neðri skannamyndin á svo að tjá ástand langt gengins taugaánetjaðs einstaklings, en þar er mótsögnin sú að hann kann að vera í betri aðstöðu en meðaljóninn hvað við kemur því að losna við filterinn, þar sem þjáningarástand hans getur komið til með að leiða hann inn í hina einu réttu batalausn. Þar sem meðaljóninn er ekki alkóhólisti, dettur honum síður í hug að hann þurfi að hætta neyslu falskra boðefna og snúa sér að því að losa sig við filterinn á sama hátt og hinn langt leiddi neytandi, og með því breyta hugarfari sínu varanlega.


Alkóhól framkölluð ójafnvægiskynjun líkama. Við áhrif venjulegrar neyslu alkóhóls er jafnvægiskynjun vitundar mannsheilans trufluð. tvenna mismunandi máta. Algengast er sú truflun jafnvægisins sem framkallar "ölvunar göngulag“, en virkni þess er tiltölulega DNA-EXON "ÉG" SVIÐ HEILA augljós og vel…
ALKATHRAS/4-17_Alkahol-Truflad-Jafnva.gif

Eðlilegt jafnvægisskyn heilans. Stytt lýsing úr skrifum Andrew Derrington sálfræðiprófessors.

Eðlileg jafnvægisskynjun: Venjuleg jafnvægisskynjun heilans.

Í Skyggnu 17 höfum við grafískar myndir sem sýna okkur einfaldaða skýringu lýsingu á heilbrigðri starfsemi og virkni jafnvægisskyns í ytra og innra eyra, ásamt grafík sem sýnir hið tvöfalda QF-almynda vitundarsvið í heilanum sjálfum. Innbyggðar í göng miðeyrans og innra eyrans eru hinar ofurviðkvæmu skyn- og stjórntaugabrautir heilans sem gera okkur kleift að njóta jafnvægisstöðugleika í okkar daglega amstri án þess að það veki nokkrar spurningar um virkni þess.

Malleus Semicircular canal Ear. canal af. Auditory tube
ALCATRAS/4-17_Alcoho-Body.gif

Þrjár upplýsingamiðstöðvar framkalla jafnvægisskynjunarupplýsingarnar fyrir heilann. Í miðeyranu finnum við aðaltaugaskynstöðvarnar og síðan finnum við aðalhreyfiskynfærin í formi tveggja vökvafylltra hálfhringlaga rása (semicircular channels) og hins svokallaða kuðungs (cochlea). Þetta er skynjun á hreyfingum höfuðsins í gegnum vöðvahreyfingu í hálfhringlaga rásunum og kuðungnum sem á sér stað í VOR-kerfi innra eyrans (Vestibular Organ Reflexes). Þetta eru hreyfingar sem skynjaðar eru í hálsi og líkama í gegnum vöðva- og sinatengingar; ásamt hreyfingu hluta í umhverfi okkar, skynjuðum af sjónkerfinu (steðji, hamar, hljóðhimna, ístað). Upplýsingarnar frá hinum mismunandi skynjurum eru bornar nákvæmlega saman áður en þær ná til vitundarinnar og áður en við (vitundin) framkvæmum edrú leiðréttingaraðgerðir. Fræg dæmi um þetta eru höfuðhreyfiskynjanir í heila nýliðaflugmanna, en þær urðu á stríðsárunum mjög hættulegar flugmannanýliðum. Þessar hreyfingar eru skynjaðar af bogagöngunum (semicircular canals), sem eru hluti af jafnvægisfæri innra eyrans og gerð úr vökvafylltum rörum í hauskúpunni. Tengslin milli bogaganga jafnvægisfæri innra eyrans og kuðungsins eru aðskilin með vegg sem kallaður er cupula eða copula. Þegar höfuðið snýst í fleti bogaganganna hefur vökvinn tilhneigingu til að hægja á sér og þrýsta á móti copulunni. Þrýstingurinn sem myndast er skynjaður af sérstökum taugafrumum sem kallaðar eru hárfrumur (hair cells), en þær framkalla þá skynjun sem segir að höfuðið sé að snúast. Við erum því með þrjá bogaganga hvorum megin í höfðinu þar sem hver er staðsettur til að tilkynna hreyfingu í mismunandi stefnu. Hér svarar VOR-kerfi innra eyrans snúningshreyfingarskynjununum með jafnandi sveiflum augnhreyfinga sem kallaðar eru augntin (nystagmus). Þar sem inntak (höfuðhreyfingarnar) og úttak (augnhreyfingarnar) í VOR eru nákvæmlega mælanleg, er jafnvægisvirknin eitt af best skildu stjórnkerfum heilans. — Þrátt fyrir þessa staðreynd er kerfið enn að bjóða upp á nýjar og óvæntar rannsóknarniðurstöður.

Drykkjuójafnvægisvirkni: Alkóhólið hefur áhrif sín á Vestibular Organ Reflexes (VOR).

Það er jafnframt vel þekkt staðreynd að ein af fyrstu líffærum taugakerfisins sem alkóhólið truflar í drukknu fólki eru þessar tvær taugastöðvar í mið- og innra eyranu. Alkóhólið í blóðinu örvar bogaganganna og gerir copuluna léttari, og lætur hana með því fljóta. Þrýstingurinn upp á við sem af því myndast er skynjaður af sérstökum frumum sem kallaðar eru hárfrumur, en þær senda nú frá sér röng skilaboð til vitundarinnar. Þessi skilaboð krefjast rangrar leiðréttingar sem framkallar ölvunargöngulagið, lætur okkur detta niður stiga og orsaka umferðarslys í akstri þar sem við deyjum eða drepum aðra. Hvers kyns ónákvæmni í VOR-starfseminni kemur fram sem hættuleg ójafnvægisskynjun í sjónsviði okkar. Í þessu skynjunarsviði kemur einnig fram eitt algengt viðvörunareinkenni, en það er svimi, sem kemur meðal annars fram þegar fólk er að venjast nýjum gleraugum. Þegar skipt er um gleraugu breytist stækkunargeta augans og með því stærð þeirrar augnhreyfingar sem sér um nákvæmni leiðréttingarinnar á höfuðhreyfingunni. Þegar við svo venjumst gleraugunum aðlögum við okkur að VOR og heimurinn verður stöðugur aftur. Lengi var haldið að leiðréttingarsveifluferlið í augnhreyfingunum — kallað nystagmus — væri orsakað af hitabylgjuáhrifum í augnvökvanum, en tilraunir um borð í Skylab sýndu að svo getur ekki verið. Slíkir varmaflutningsstraumar eða augntin geta ekki átt sér stað í geimnum þar sem enginn þyngdarkraftur er til staðar til að framkalla varmaburð. Gagnstætt þessu — þó svo að það hafi ekki verið reynt í geimnum — er sú snúningsskynjun sem framkölluð er af alkóhóli háð þyngdaraflinu. Annars væri stefna spunans ekki háð stöðu höfuðsins. Alkóhólið örvar vökva hálfhringlaga rásanna vegna þess að alkóhólið í blóðinu gerir copuluna léttari en vökvann í kringum hana, sem veldur því að hún flýtur og framkallar röng skilaboð. Afleiðingin er uppstreymisþrýstingur á copuluna sem jafngildir aukinni snúningshröðun höfuðsins og er hún túlkuð af heilanum sem slík, sem framkallar drykkjugöngulag í kjölfarið. Með því að blanda tveimur skömmtum af þungu vatni við einn skammt af alkóhóli jafnast þyngd copulunnar út, sem stöðvar hina röngu skynjun til heilans og þar með drykkjugöngulagið. Því miður er verð á þungu vatni og eðli áhrifa alkóhólsins á taugakerfið slíkt að þetta telst óraunhæf lausn til að halda skýrum haus við drykkju.

Afeitrun: Hægt er að fjarlægja alkóhól frá VOR-taugasviðinu með þungu vatni.

Sannað hefur verið með tilraunum á einstaklingum að með því að blanda 2 hlutum af þungu vatni við 1 hluta af alkóhóli stöðvast ölvunargöngulagið.


S4-17X Alkóhól “Spinning Room” Vitundarástand. Annað vitundarástand þar sem ójafnvægi kemur fram er hin svokallaða "spuna vitund", eða “spinnandi herbergi" en það er með fáum undantekningum mjög svipað ójafnvægi því sem fram kemur. “copula/- hair-nervecell” ójafnvægis virkninni. Við skoðum hér hvað…
ALKATHRAS/4-17X_Alkohol-Spinning-Room.gif

Hin óeðlilega jafnvægisskynjun heilans í drykkjuspunaástandi. Útdráttur úr skrifum dr. Karls S. Kruszelnicki sálfræðings.

Hvað gerist þegar herbergið snýst í fylleríi.

Annað helsta alkóhólíska vitundarójafnvægið er „fylleríssnúningur herbergis“ (e. drunk spinning room), sem með fáum undantekningum er mjög svipað og ójafnvægi það sem tengist jafnvægisleysi milli copulu og hárfrumna. Við skoðum nú hvað dr. Karl S. Kruszelnicki hefur að segja um þetta fyrirbæri, þegar einstaklingur verður nægilega drukkinn áður en hann gengur til rekkju og fær þá tilfinningu að herbergið sé farið að snúast. Hvernig fer alkóhólið að því að framkalla þessa skynjun þegar við erum að reyna að sofna eftir drykkju?

Fyrir efnafræðinginn eru etanól, metanól, própanól og bútanól öll hluti af fjölskyldu sem kölluð er „alkóhól“. Sérhver efnafræðingur veit jafnframt að það er aðeins ein tegund af þessu alkóhóli sem hægt er að drekka — etanól. Hin alkóhólin eru eitruð. Etanól, alkóhólið sem þú getur drukkið, er mjög sterkt lyf fyrir líkamann. Alkóhól er almennt notað sem iðnaðarleysir, öflugt sótthreinsiefni og sem rotvarnarvökvi til að verja dauða lífræna hluti fyrir rotnun í glerkrukkum. Með hliðsjón af því hve öflugt lyf alkóhólið er og þeirri staðreynd að etanól er mest notaða deyfilyf mannkyns, er að undra að það skuli ekki hafa fleiri aukaverkanir. Maðurinn hefur verið að sötra bjór í að minnsta kosti 7.000 ár og eru 6.000 ára gamlar efnafræðilegar vísbendingar um þessa neyslu að finna í súmerskri verslunarmiðstöð við Godin Tepe í Zagros-fjöllum í vesturhluta Írans. Þessi verslunarmiðstöð varð síðar að virki á hinum fræga Silkivegi til Kína. Árið 1991 fundu fornleifafræðingar efnafræðilegar leifar af víni í rústum eins herbergjanna í þessari verslunarmiðstöð. Ári síðar, eða 1992, fundu þeir í öðrum krukkum í sama herbergi leifar sem sýndu að bjór hafði einnig verið geymdur þar í krukkum.

Ear Inner Ear
ALCATRAS/4-17X_Alcoho-Body.gif

Þótt heimurinn hafi snúist nokkrum sinnum síðan súmersku kaupmennirnir tæmdu þessar krukkur, erum við enn ekki 100% viss um hversu mikið alkóhól þarf til að láta herbergi snúast. Nokkrar kenningar eru á lofti, en þær vinsælustu halda því fram að það stafi af því að alkóhólið breyti eðlismassa eða þéttleika sumra hluta í jafnvægiskerfi okkar.

Eyru okkar gera meira en að heyra hljóð (með því að breyta hljóðbylgjum í rafboð) — þau geyma einnig jafnvægisskyn þitt. Þetta á sér stað í hvoru innra eyra fyrir sig, sitthvorum megin á höfðinu. Það er staðreynd að í hvoru innra eyra höfum við tvö aðskilin kerfi sem fást við jafnvægisskynið. Í fyrsta lagi eru í hvoru innra eyra þrír bogagangur sem liggja hornrétt hver á annan. Þessir þrír bogagangur eru fylltir vökva sem skynjar snúningshröðun í vökvanum í hverri rás fyrir sig, í þeim þremur plönum sem rásirnar mynda – upp-niður, vinstri-hægri og fram-aftur. Í öðru lagi eru tvö kúlulaga líffæri sem líkjast hlaupkögglum nálægt botninum, þar sem þessir þrír bogagangur koma saman – þau eru kölluð skjóða (utricle) og poki (saccule)–og gefa þér upplýsingar um línulega hröðun, lóðrétta og lárétta. Hér kemur svo þýðingarmesta atriðið – það sem setur jafnvægisskynjunina í gang, hvort sem um ræðir bogaganganna þrjá eða skjóðu- og pokaparið, eru þessir litlu hlaupkögglar sem stjórna jafnvægisskynjuninni. Þessir hlaupkenndu kögglar eru tengdir við VIII. heilataugina sem liggur inn í heilann. Auk þess að sjá um heyrnina hefur VIII. heilataugin einnig það hlutverk að sjá um jafnvægi. Þessir hlaupkögglar eru kallaðir steinar (otoliths) í skjóðu- og pokaparinu en „cupula“ í bogagöngunum.

Það eru sem sagt þessir „hlaupkögglar“ í hvoru innra eyra sem bera ábyrgð á jafnvægisskynjun þinni (steinar í skjóðu og poka, jafnvægisleysi milli cupulu og hárfrumna). Þegar þú hreyfir höfuðið hreyfast hlaupkögglarnir sem ýta þá við hinum örfínu hárfrumum sem festar eru við hlaupið, sem sveigjast við það. Þegar hár þessi sveigjast senda þau frá sér rafboð sem fara eftir VIII. heilatauginni inn í heilann — afleiðingin er sú að þú færð skyndilega á tilfinninguna að þú sért á hreyfingu. Svo virðist sem þegar þú drekkur of mikið og alkóhólið (sem er mjög öflugur leysir) berst út í blóðrásina og þaðan inn í cupuluna, breyti það þéttleika hennar. Þetta breytir einnig lögun cupulunnar og leiðir til þess að hún sveigir fínleg hár hárfrumnanna. Hárin senda þá rafboð til heilans um að þú sért í einhvers konar snúningshreyfingu — eða að herbergið sem þú ert í sé að snúast. Áhrifin verða sterkari þegar þú liggur í rúminu í dimmu herbergi og engin önnur skynboð (eins og frá augunum) segja þér að herbergið sé í raun kyrrt. — Áttin sem herbergið virðist snúast í fer eftir því í hvaða stefnu höfuðið snýr þegar þú leggst á koddann. Eftir því sem líður á nóttina leysist alkóhólið hægt og rólega úr litlu hlaupkögglunum og við það minnka rafboðin og þar með snúningsskynjunin. Eftir nokkrar klukkustundir í viðbót hefur alkóhólið nær alveg horfið úr kögglunum, en heilinn hefur eytt mörgum klukkustundum í þeirri trú að höfuðið væri að snúast. Vitundin hefur vanist snúningnum og túlkar því EINNIG ENGA SNÚNINGSHREYFINGU sem snúning í hina áttina.

Þetta þýðir að þú getur farið að sofa í herbergi sem snýst í eina átt og vaknað síðan í herbergi sem er að snúast í hina áttina.

Hér líkur tilvitnuninni í dr. Karl.

Mörg skammtaspunafyrirbæri hafa svipaða eiginleika og þeir sem fram koma í snúningi herbergja í ölvun. Þetta er skoðað lauslega í skyggnu 17X hér á undan. Eins og dr. Karl segir í grein sinni: Nokkrar kenningar eru á lofti, en þær vinsælustu halda því fram að það stafi af því að alkóhólið breyti þéttleika sumra hluta í jafnvægiskerfi okkar (ójafnvægi milli cupulu og hárfrumna). Þessi skýring er sú sem QF-kenningin aðhyllist sem líklegasta til að vera næst raunveruleikanum, en QF-kenningin er einnig opin fyrir nokkrum öðrum möguleikum, eins og til dæmis skýringum sem styðjast við skammtaspuna vitundarinnar. Þetta samþykki á rætur sínar í tilraununum með þunga vatnið. Þennan ágreining og tengdan vafa er að öllum líkindum ekki hægt að leysa án endurtekinna rannsókna, og líklega ekki án rannsókna sem framkvæmdar eru í þyngdarleysi eins og í geimnum sjálfum. Að þessu viðbættu heldur QF-kenningin því fram að líkamlega heilsufarshliðin á áhrifum neyslu alkóhóls sé margfalt alvarlegri en við höfum verið meðvituð um í gegnum mannkynssöguna. Kenningin heldur því einnig fram að þessar heilsufarslegu aukaverkanir fari nú vaxandi með veldisvexti. Spurningin um tengslin á milli skammtaspuna, vitundar mannsins og neyslu hans á alkóhóli — sem virðist svo hversdagsleg og ómerkileg eins og hún er sett fram hér — kann að vera margfalt þýðingarmeiri en við gerum okkur grein fyrir í dag. — Þetta er ein meginástæðan fyrir fyrirlestrinum um ALKAÞRAS.


S4-18 Boðefnaskorts klofin vitundarbylgja. Vitundarbylgja heilans. og hvelin “tala ekki saman“: Það er. sem er hraðari.. Hemla- skortur skortur Algengasti vitundarágalli mannsins er “klofin vitundarbylgja“. Um skammtíma eða lang- tíma ójafnvægi er að ræða. rúmskynjunarheilahveli, venjulega hægri,…
ALKATHRAS/4-18_Klofin-vitundarbylgja.gif

Þá er komið að því að við skoðum nánar ýmiss konar ástand vitundarbylgjunnar og byrjum á því að skoða algengasta truflunarástandið sem þekkt er, en þetta er það sem við köllum klofna vitundarbylgju. Þetta ástand orsakast að sjálfsögðu af filter, sem er annaðhvort arfgengur, tilkominn í uppeldinu, eða hvort tveggja, að viðbættri neyslu. Filterinn framkallar svo hemlaskort í rúmskynjunar-VIÐ-hvelinu, þannig að bylgjan í þeim hluta heilans verður hraðari og fer úr samstillingu við bylgjuna í hinu hvelinu, efnis-ÉG-hvelinu, sem veldur því að hvelin ná illa að tala saman. Þetta framkallar einbeitingarskort af því tagi sem best er þekktur þegar fólk í þessu ástandi er að lesa og byrjar með brennipunkt í efnis-ÉG-hvelinu, sem er sá hluti heilans sem ritmálið á heima í, samanber skyggnu #2 - 18. Á meðan á lestrinum stendur stekkur brennipunkturinn með skammtastökki yfir í rúm-VIÐ-hvelið og dvelur þar um stund, en þegar hann stekkur til baka verðum við vör við að hafa jafnvel lesið heila blaðsíðu án þess að hafa hugmynd um hvað við vorum að lesa. Í þessu ástandi fer nánast ekkert af því sem lesið er inn í langtímaminnið. Andstæða þessa er lestur með heilli bylgju, þar sem jafnframt er lesið milli línanna í lestrarefninu og það festist vel í minninu.

Klofin vitundarbylgja er sama ástand og fólk lendir í við akstur þegar hugurinn reikar og bílstjórinn lendir aftan á bílnum fyrir framan áður en hann veit af, ef ekki eitthvað enn verra. Þetta vitundarástand er helsti slysavaldur mannkyns og skýrir um leið hvers vegna virkir alkóhólistar — drukkið sem ódrukkin — eru almennt mestu slysavaldarnir.

Skólanemum sem oft búa við klofna vitundarbylgju gengur verr að læra en þeim sem eru með heila bylgju og virðast hafa lítið fyrir náminu. Algengt ráð við þessu meðal háskólanema er að nota örvandi lyf meðan á próflestri og prófum stendur, og sætta sig við að þurfa að ganga í gegnum fráhvörfin sem fylgja. Hér koma ofvirku börnin einnig við sögu, þar sem vandamál þeirra er erfðafilter sem orsakar mikinn hemlaskort (dópamín) og klofning í vitundinni, sem síðan er, illu heilli, lagfærður með því að örva alla vitundarbylgjuna með örvandi lyfjum og gera hana þannig heila. Hið sorglega við þetta er að vísindi okkar hafa ekki nægan skilning á því hvað er að gerast, og enn síður nokkra hugmynd um filterinn og hvernig unnt sé að losna við hann. Til að losna við filterinn þarf stundum að koma til að foreldrið byrji á að losa sig við sinn eigin filter, þar sem flest ofvirk börn (ADHD) eru börn, barnabörn eða barnabarnabörn virkra alkóhólista eða fólks með virkan aðstandendafilter. QF-kenningar staðfestingartillaga: QF-kenningin hélt þessu fyrst fram árið 1994.

Tækni vísindi mbl. is 7.8. 2007 13:00

Taugaboðefni í heilanum gegnir lykilhlutverki í athyglisbresti með ofvirkni

Niðurstöður tveggja rannsókna sem birtar voru í gær leiða í ljós að dópamín, sem er taugaboðefni í heilanum, gegnir lykilhlutverki í athyglisbresti með ofvirkni (ADHD), og segja vísindamenn að þessar niðurstöður kunni að varpa ljósi á hvers vegna fólki með ADHD hættir til að misnota áfengi og fíkniefni.

Það voru vísindamenn við bandarísku heilbrigðisvísindastofnunina sem gerðu rannsóknirnar. Í ljós kom að fullorðnir með ADHD höfðu minna magn af dópamíni í heilanum en þeir sem ekki voru með kvillann. Dópamín tengist heilastöðvum sem varða athygli og vitsmunastarf, auk umbunar.

Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að fólk með ADHD er líklegra en aðrir til að reykja og misnota áfengi, maríjúana, kókaín og önnur fíkniefni. Minnkuð dópamínframleiðsla í heilanum kann að veita vísbendingu um ástæðuna fyrir þessu.

Þegar fíkniefna er neytt, hvort heldur það er nikótín, alkóhól eða kókaín eða eitthvað annað, eykst þéttni dópamíns tímabundið í heilanum. Ástæða neyslunnar kann því ekki eingöngu að vera sú að neytandinn vilji komast í vímu, heldur líður honum einfaldlega betur þegar hann neytir efnanna og á jafnvel tímabundið auðveldara með að leysa verkefni.

Einn vísindamannanna segir að þessar niðurstöður kunni einnig að gefa vísbendingar um hvers vegna lyf á borð við Rítalín virka gegn ADHD, þ.e. að lyfin auki dópamínþéttni í heilanum.


S4-19 Blackout-vitundarbylgja (hálf og út). Vitundarbylgja heilans. dreka leiðir til hvarfs. hluta vitundar. Við neyslu alkóhóls getur það framkallað skammtavirknistruflun. intron-hluta DNA tauganna sem stjórna orkuflæði vitundarbylgju. Afleiðingin getur orðið að INN-sveiflandi hluti vitundar-…
ALKATHRAS/4-19_Blackout-vitund.gif

Eitt af þekktustu furðufyrirbærum neyslunnar er ástand þar sem önnur hlið vitundarbylgjunnar hrynur algjörlega, en þetta ástand er þekkt sem minnisrof (black-out). Það birtist í mörgum tímamyndum og getur komið fram bæði í neyslu og fráhvörfum. Hér getur verið um að ræða skammtímaástand í neyslu, með stuttum millibilum af minnisrofi, en þetta er kallað svissneskur-ostur-minnisrof (Swiss-cheese black-out). Lengri tímabil minnisrofs geta staðið yfir í einn eða fleiri daga og átt sér stað bæði í neyslu og fráhvörfum frá neyslu, einkum lyfja. Það sem á sér stað er lömun í svokölluðum dreka í hvatakerfi rúmskynjunar-VIÐ-hvelsins, en í gegnum hann er vitundarbylgjuflæðinu stjórnað. Við þessa lömun hverfur INN-hluti vitundarbylgjunnar algjörlega, og hætta þá allar minnisupplýsingar að streyma inn í kirnur minnisbanka DNA-sameindanna. Eftir stendur ÚT-hluti vitundarbylgjunnar og hefur einstaklingurinn fulla andlega framkvæmdagetu í gegnum hann einan, en hann hefur aðgang að öllum hvata- og minnisbönkum sem og allri skynjun, og skammtímaminnið er í fullu fjöri. Það er einungis langtímaminnisgeymslan sem fer úrskeiðis, en þegar einstaklingurinn vaknar af minnisrofinu getur honum brugðið mjög við að muna ekki hvað hann hefur aðhafst á meðan á því stóð. Við þetta bætist svo að fólk veit ekki hvað er að gerast í heilanum, og eykur það enn á ofsóknarkennd ógnartilfinningu þess gagnvart þessu ástandi. Margir álíta að þetta ástand kunni að vera hættulegt, sem það í sjálfu sér er ekki, en eigi það sér stað í ölvunarástandi er það ölvunin sem er hættuleg eins og alltaf. Hin hliðin á þessu fyrirbæri er svo lömun í drekahluta hvataheila efnisskynjunar-ÉG-hvelsins, sem þýðir hrun á ÚT-hluta vitundarbylgjunnar, en afleiðingarnar af því er vímurot eða ofurölvunarsvefn eins og það er einnig kallað. Það verður því engin atburðarás til að gleyma í því ástandi.


(Ppolyneuropathie) byrjar med krömpum og Delirium Tremens; ða Korsakow Síkósum. dauðar. árunum 1946 til 1950.. 24 25. hesturinn, hesturinn
ALKATHRAS/4-20_Throun-Alkaholismans.gif

Hér höfum við sett saman tvö vísindalega unnin línurit, ásamt hinum kunnu rannsóknarniðurstöðum dr. E.M. Jellinek á þróunarferli hinna fjögurra stiga taugaánetjunar, eða alkóhólismans, eins og öll afbrigði taugaánetjana eru sameiginlega kölluð. Samsíða þessu höfum við tekið það sem við teljum vera 1.950 ára gamla andlega spádómsmynd af þessu sama þróunarferli, en þetta eru hinir fjórir riddarar endalokanna í Opinberunarbókinni. Er þetta andleg lýsing á hinu fjögurra stiga þróunarferli sjúkdómsins alkóhólisma.

Dr. E.M. Jellinek gerði þessa vísindarannsókn á árunum 1945 til 1950 á 2.200 endurhæfðum alkóhólistum sem voru virkir í Samtökum óvirkra alkóhólista (AA), og sýndi hún að sjúkdómsferlið fór í gegnum fjögur stig sem innihéldu 44 þrep, með síðasta þrepið ofan í gröfina. Hér virðist hið furðulega og torskilda spádómsmál Opinberunarbókarinnar í fljótu bragði vera eins fjarri hinni nútímalegu vísindarannsókn og hugsast getur. Þegar kemur að spurningum um spádóma hafa vísindin ekki getað skýrt hvers vegna við munum einungis fortíðina en þekkjum ekki framtíðina. En það er einmitt spurning í kennilegri eðlisfræði hvers vegna þetta sé svo, og þá jafnframt hvort spádómar séu mögulegir, og ef svo er, með hvaða hætti? QF-kenningin svarar því játandi að þetta sé hægt og skýrir jafnframt hvernig slíkt gerist og hvers vegna það gerist svo sjaldan. En það var einmitt þessi niðurstaða sem leiddi til rannsókna á ýmiss konar spádómum í ljósi QF-kenningarinnar og færði mönnum innsæi í spádóm Opinberunarbókarinnar sem lýsingu á þróun einstaklings inn í lokastig alkóhólismans; bata hans frá sjúkdómnum í gegnum AA-samtökin og líf hans þar á eftir.

Ótvíræð samsvörun er á milli hinna fjögurra sjúkdómsstiga í lýsingum dr. Jellineks og hinna fjögurra riddara spádómsins. Riddararnir eru hið raunverulega upphaf spádómsins, og líkingamálslýsingar á upplifunum neytandans. Á fyrsta stiginu upplifir neytandinn sig sem prinsinn; riddarann á hvíta hestinum. Á öðru stiginu er hann kominn með sverð árásarhneigðarinnar á rauðum hesti skapofsans. Þá kemur þriðja stigið, sem er jafnframt fyrra sjúkdómsstigið, og er þá hesturinn orðinn hinn svarti gæðingur þunglyndisins, riddarinn með vogarskálar dómhörkunnar. Fjórða og lokastiginu er svo að sjálfsögðu best líst í hinu skáldlega líkingamáli spádómsins sem riddaranum á bleika hesti dauðans, þar sem helvíti fylgir í kjölfarið. Myndin efst á skyggnunni til vinstri er af taugum í heilbrigðum heila, en myndin til hægri sýnir ástand tauga við endalok sjúkdómsferlisins, þar sem fram koma hin svokölluðu Korsakoff-einkenni við lokadægur alkóhólismans.

Áfengisvímu- og áfengismagnslínuritin fyrir ofan þróunarferlið sýna uppbyggingu áfengisþolsins með tilkomu filtersins, og síðan hvernig þolið hrynur þegar lifrin tekur að gefa sig. Þá dugar alkóhólistanum eitt glas af lampaspritti til að vera í vímu í tvo daga, þar sem lifrin hreinsar alkóhólið ekki lengur úr blóðinu að neinu gagni.


(psychopata eða sósciopata). 01. Nokkur yfirborðsþokki og greind yfir meðallagi. 02. Engar ranghugmyndir eða önnur merki um órökrétta hugsun. 03. Engin merki um kvíða eða önnur taugaveiklunareinkenni, eru yfirvegaðir og tunguliprir. 04. Óáreiðanleiki, gegna ekki skyldum, engin ábyrgðakennd. smáu…
ALKATHRAS/4-21_Psychopatinn.gif

Í júní árið 2003 var breskur læknir, dr. Harold Shipman, sem hafði um árabil verið morfínfíkill, sendur í fangelsið í Wakefield á Englandi, en sannað þótti að hann hefði myrt 215 einstaklinga og talið mögulegt að fórnarlömbin gætu verið um 400 alls. Hann framdi svo sjálfsvíg ári síðar til þess að eiginkona hans fengi greiddar lífeyristryggingar hans. Án skilnings á þróunarferli alkóhólismans og QF-kenningarinnar um filterinn sem af honum leiðir, er illskiljanlegt hvernig þessi maður, sem hafði gert það að köllun sinni að hjálpa samferðamönnum sínum, varð að mesta fjöldamorðingja í sögu Bretlandseyja. Þessi staðreynd varð til þess að sjónvarpsstöðin Sky Television fékk virtan geðlækni til að koma fram í sjónvarpinu og útskýra fyrir áhorfendum hvernig mögulegt væri að maður með þá köllun að lækna aðra hefði framið slík voðaverk.

Geðlæknirinn hóf mál sitt á því að segja við áhorfendur: Það var ekki vegna þess að dr. Shipman var eiturlyfjaneytandi sem hann framdi þessi fjöldamorð. Það var vegna þess að hann var andfélagslegur geðsjúklingur. Læknirinn útskýrði ekki fyrir áhorfendum að orðið sýkópati er einungis skilgreiningarstimpill á ákveðna hegðun og að geðfræðin veit ekki hvaða taugalíffræðilega virkni liggur að baki. Enn síður er vitað hverjar orsakir þessa sjúkdóms eru, og gildir hið sama um taugaánetjunarsjúkdóma. Hefði læknirinn sagt satt hefði svar hans orðið: Við vitum einfaldlega ekki hvers vegna þetta gerist. Hefði hann hins vegar haft innsæi í QF-kenninguna hefði hann getað útskýrt fyrir áhorfendum að orsökin fyrir hegðun dr. Shipmans lægi í erfða- og neyslufilter hans, ásamt þeim breytingum sem filterinn olli á hugsun hans og vitundarlífi.

Vegna skorts á innsæi vísindanna í skammtafræðileg ferli heilans getur lyfjageðfræðin ekki áttað sig á tilurð filtersins, né heldur á samansöfnuðum arfgengi hans og áhrifum milli kynslóða. Þessi staða er afar sorgleg og kostar daglega hundruð taugaánetjaðra einstaklinga lífið á Vesturlöndum, en hér skortir æðstu menntastofnanir okkar lokaþekkingu á starfsemi mannsheilans. Starfslíkön QF-kenningarinnar eru fyrsta heildræna myndin af þessum ferlum sem mannkyninu býðst. Enn sem komið er halda hefðbundnar menntastofnanir í aðferðafræði sem læknar ekki, heldur elur af sér meiri drykkju, filter og dauða. Sérstaklega er áberandi að þessi vísindaaðferð hefur ekki ráðið við að lækna siðblindu eða psýkópatíu, enda er það reynt með sömu aðferðum og skópu hana upphaflega; með gervitaugaboðefnum. Eini möguleiki geðlækningavísindanna er að þessi mikilvægi geiri samfélagsins kynni sér þær skilgreiningar á taugaánetjunarsjúkdómum sem fram koma í skammta- og taugalíffræðilegum skýringum QF-kenningarinnar.

Hér er ráð að skoða listann á skyggnunni sem hefur að geyma 16 afbrigðileg og óæskileg hegðunareinkenni sem fullyrða má að AA-endurhæfðir taugaánetjunarsjúklingar; alkóhólistar, kannist vel við. Hér er um að ræða filterinn sem veldur hegðunarmynstri neyslunnar, en hjá endurhæfðum alkóhólistum nefnist filterinn: Lestir og brestir.


S4-22 Statistískir sjúkdómar og filterinn. Hvað gerist. frumunum þegar menn fá krabbamein? Stytt grein dr. Helgu Ogmundsdottur Mbl. 07/10/2000.. frumur eru frábrugðnar eðlilegum frumum og er samnefnarinn fyrir afbrigðilega hegðun þeirra að þær kunna ekki lengur að hegða sér rétt. samfélagi frumna…
ALKATHRAS/4-22_A-Krabbameinsgatan.gif

QF-kenningin heldur því fram að orsökin fyrir öllum svokölluðum tölfræðilegum sjúkdómum sé í gegnum filters-erfðir og áunninn boðefnasvindlsfilter, en það er býsna djörf staðhæfing. Tölfræðilegir sjúkdómar eru þeir sjúkdómar þar sem hvorki er um veiru né bakteríu að ræða, og ekki aðra erfðagalla eða ellihrörnun. Það eina sem vísindin vita um þessa sjúkdóma er að þeir koma fram með sömu tíðni í hverjum hundrað einstaklingum, og er því talað um þá sem tölfræðilega sjúkdóma. Orsakaskýringar vísindanna á þessum sjúkdómum eru engar til. Í þessum hópi eru allir geð- og taugaánetjunarsjúkdómarnir ásamt öllum geðröskunarfyrirbærunum. Þar eru einnig þunglyndið, einhverfan, flogaveikifyrirbærin, ofvirknin og ofátssýkin, svo eitthvað sé nefnt. Sama gildir um hina illvígari sjúkdóma á borð við krabbamein, alzheimers, sykursýki, Parkinsons, MND-lamanir og ALS-þverlamanir, en upptalningin er enn lengri og kunnum við henni ekki tæmandi skil, en viljum samt ekki láta hjá líða að minna á öll úrkynjunarfyrirbærin þessu til viðbótar.

Hvernig má þetta vera? Hvernig er hægt að halda slíku fram? Hér segir QF-kenningin að raunveruleiki hverrar einstakrar innraðarkirnu (intro nucleotide) í DNA-tvígorminum sé sami skammtaraunveruleikinn og skammtaraunveruleiki rúmsins. Jafnframt sé hann sameiginlegur raunveruleiki allra annarra innraðarkirna. Ef þetta er rétt eru allir atburðir sem gerast innan þessa raunveruleika — samkvæmt Kaupmannahafnartúlkun prófessors Niels Bohr á skammtafræðinni (quantum mechanics) — alfarið háðir tilviljun eins og í teningaspili. Ef komið er falskt eða rangt forrit í heilann — filter — ofan á réttu stjórnunarforrit taugafrumnanna, getur filterforritið í einnig slíkri taugafrumu tekið skammtastökk yfir í stjórnunarforrit venjulegrar frumu og með því truflað starfsemi hennar, þannig að fruman verði sami egóistinn og alkóhólistinn eða geðsjúklingurinn. Kemur þetta einkar skemmtilega fram í þeirri lýsingu sem dr. Helga Ögmundsdóttir gefur á krabbameininu, þar sem hún reynir óbeint að líkja krabbameinsfrumunni við hegðunarmynstur mannanna til að auðvelda skilning almennings. Á skyggnunni er sýnt lauslega hversu alvarlegt óeðli krabbameinsins er, en lagt er til að Skyggna #4 - 20 með útdrætti úr umfjöllun dr. Helgu sé lesin gaumgæfilega. Um krabbameinspláguna má lengi fjalla, en sá vettvangur er í raun annars staðar, og munum við hér einungis reyna að skoða nýjustu niðurstöður krabbameinsrannsókna og sjá hvernig þær skila myndum sem þokast í áttina að tillögum QF-kenningarinnar varðandi orsakir krabbameinsins. Í dag er krabbamein skilgreint sem sjúkdómur genamengisins (genome) og endar nú þriðji hver Vesturlandabúi líf sitt í hörmungum krabbameins, sem gefur fulla ástæðu til að skoða tillögur QF-kenningarinnar er þetta varðar.

Tíðkast hefur í læknisfræðinni að skipta líklegum orsökum krabbameins — til viðbótar við erfðirnar — í tvo hópa: Annars vegar hefur verið talað um að 70% krabbameinsins væri orsakað af geislunarvöldum stökkbreytingum í einu geni, og er þar talað um að kynkirtlakrabbamein sé hvað algengast. Hins vegar hefur verið talað um að 30% krabbameins sé orsakað af eiturefnavöldum stökkbreytingum, en þar er reykingakrabbamein talið algengast. Allt frá því árið 1993 fór QF-kenningin að gefa myndir sem gáfu í skyn að tengsl væru á milli hinna tölfræðilegu sjúkdóma — einkum krabbameinsins — og filtersins. Þar var annars vegar um að ræða tengslin á milli hegðunarmynsturseiginleika filtersins í heilanum og hegðunarmynsturseiginleika krabbameinsins í æxlinu, eins og fram kemur í skrifum dr. Helgu. Hér leggur QF-kenningin til að þessi 70 prósent krabbameina, sem áður voru talin verða til við geislunarstökkbreytingu í einu geni, séu orsökuð af hinum einstaklingsbundnu eiginleikum filtersins. Filterinn, sem inniheldur mikinn fjölda ýmissa starfrænna stjórnunartruflana, er að mestu leyti skapaður af persónulegum hugsunum lífsreynslu okkar þegar til staðar eru gerviboðefni sem valda truflunum á endurupptöku taugaboðefna (neurotransmitter). Hér bendir QF-kenningin á að þar sem neysla Vesturlandabúa á gerviboðefnum byrjar almennt í tengslum við kynhvötina og hin ranga taugaumpólun verður því í tengslum við kynhvatahugsanir, leiðir það til sérstaklega sterks filters á þeim sviðum genanna sem annast kynhvötina. Mikill meirihluti hjóna á Vesturlöndum og víðar notar síðan áfenga drykki til að örva kynhvötina og auðga kynlífsreynslu sína án þess að um nokkurn alkóhólisma sé að ræða, en þessi menningarlegi siður er samkvæmt QF-kenningunni orsök þess að krabbamein er algengast í kynkirtlum mannsins. Er því QF-kenningin að segja að þegar filterinn tekur skammtastökk í aðrar frumur muni forritið sem filterinn flytur með sér trufla mikinn fjölda gena.

Þessi mynd QF-kenningarinnar af krabbameinsorsökunum gaf ekki mikið tilefni til bjartsýni um að einhverjar vísindarannsóknaniðurstöður kæmu henni til stuðnings. Í byrjun árs 2001 lauk svo talningu og kortlagningu genamengis mannsins og kom þá endanlega í ljós að stjórnun frumustarfseminnar fór fram í innraðarkirnum genamengisins, alveg eins og QF-kenningin hafði haldið fram allt frá byrjun árs 1993. Þar sem innraðarkirnurnar í genamenginu voru ekki notaðar sem gen til afritunar höfðu skýringarnar á þeim áður verið mjög óljósar og jafnvel svo fáránlegar að innraðirnar væru leifar úr þróuninni sem náttúran hefði gleymt að þurrka út. Með tilkomu aukins skilnings vísindanna á stýrigenum og hins nýja skilnings á stjórnunarstarfsemi innrauða í frumunni tóku rannsóknir manna nýja stefnu, og leiddi það til þess að hannaður var hinn stórmerkilegi DNA-kubbur (DNA-chip). Með þessari kubbatækni hefur nú tekist að sýna fram á að hin truflaða stjórnun í frumum krabbameinsæxlisins nær yfir mikinn fjölda gena, eða allt að tuttugu til hundrað, og er það í fullu samræmi við tillögur QF-kenningarinnar sem spáði fyrir um 70 trufluð gen, þótt ekki sé það full sönnun fyrir þessari uppástungu hennar né kenningunni um filterinn.

Staðfestingartillaga QF-kenningar: Þessi kenning hefur verið inni á þessum vef síðan í árslok 2000, en nú í apríl árið 2007 birtist þessi frétt á vef RÚV. Eru þessar rannsóknarniðurstöður taldar ein sterkasta vísbendingin um réttmæti heila- og líffræðilíkan QF-kenningarinnar.

RÚV-frétt frá: 23.04. 2007 kl: 17:46

Víndrykkja tengd brjóstakrabbameini

Konur sem drekka sem svarar tveimur vínflöskum á viku auka um helming hættuna á að þær fáni brjóstakrabbamein. Ný dönsk rannsókn sem gerð var á 17.647 hjúkrunarkonum sýnir að hætta á brjóstakrabbameini eykst um helming hjá konum sem drukku 22–27 glös af áfengi, þ.e. bjór eða vín, miðað við þær sem drukku 1 – 3 glös af áfengi á viku. Hættan eykst mest sé áfengið drukkið á skömmum tíma. Konurnar sem tóku þátt í rannsókninni voru allar úr hópi hófdrykkjukvenna.

Þetta þýðir að ekki er lengur hægt — eins og áður var gert — að skýra orsakir 70% krabbameina með geislunarstökkbreytingu í einu geni. (Líkurnar á geislunarstökkbreytingu á tveimur mismunandi genum samtímis minnka tölfræðilega mjög hratt, og þegar um þrjú eða fleiri gen er að ræða verður geislunarstökkbreytingarskýringin gagnslaus.) Er nú verið að endurskrifa kennslubækur læknavísindanna varðandi eðli krabbameins eins og fram kemur í stuttmyndinni sem við sýnum hér næst um þessar nýju rannsóknaniðurstöður, en enn er orsakaferli krabbameins með öllu óþekkt. Skal það hér aftur tekið fram að þessar nýju vísindaniðurstöður eru ekki skoðaðar sem endanleg sönnun á tillögum QF-kenningarinnar varðandi orsakir krabbameinsins. Aðaltillaga QF-kenningarinnar varðandi krabbameinsvarnir líkama okkar snýr að sjálfsögðu að starfsemi ónæmis- og varnarkerfis líkamans, sem samkvæmt QF-kenningunni er verulega trufluð af þeim filterum sem myndast í DNA-innraðarkirnum heilans. Truflar filterinn framleiðslu taugaboðefna í heilanum og þar með starfsemi stúku og undirstúku og þannig aftur heiladinguls, sem síðan hefur áhrif á alla aðra kirtlastarfsemi líkamans. Með þessu eru fölsk boðefni, einkum alkóhólið, stærsta genastarfsemistruflun lífsins. Hér kemur svo — tillögum QF-kenningarinnar til stuðnings — umrædd myndbandsúrklippa úr BBC-sjónvarpsþættinum After the Genome, eða Eftir kortlagningu genamengisins.

(Hér kemur myndbandsúrklippa #09)

Fréttablaðsfrétt 4. ágúst 2006.

Krabbameinssjúkum fjölgar ört á Íslandi

Í fréttinni koma fram þær skýringar heilbrigðisyfirvalda að hærri meðalaldur Íslendinga sé orsökin, án þess að vitnað sé í aldursflokkarnir á krabbameinssjúklingum. Ekki segja vísindamennirnir í greininni hvernig hærri aldur getur orsakað krabbamein, heldur er ýjað að því að þetta sé sjúkdómur efri áranna og þar af leiðandi orsakaður af eðlilegri ellihrörnun. Með öðrum orðum að hér sé á ferðinni úrelding á stjórnun DNA eða ónæmiskerfisins.

Morgunblaðsfrétt 15. ágúst 2006.

Fleiri börn greinast með krabbamein í heila en áður

Mun fleiri dönsk börn greinast með krabbamein í heila nú en fyrir tuttugu og fimm árum, samkvæmt upplýsingum dönsku krabbameinssamtakanna. Við vitum ekki hvers vegna. Það getur að hluta til tengst því að við séum orðin færari í að greina sjúkdóminn. Það skýrir þó ekki alla þessa aukningu, segir Ole Raaschou-Nielsen, sem stjórnaði rannsókn á tíðni sjúkdómsins á vegum samtakanna. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknarinnar greindust 30 dönsk börn með krabbamein í heila árið 1980 en 50 árið 1996.

RÚV: Fyrst birt 30. október 2007

Rannsókn: Bændur fá síður krabba

Bændastéttin er mun betur stödd en aðrar stéttir hér á landi hvað varðar krabbamein. Miklu minni líkur eru á því að bændur, bæði karlar og konur, fáni krabbamein en karlar og konur í öðrum stéttum.

Rannsóknin er gerð samtímis hér á landi og á hinum Norðurlöndunum. Hér nær hún til 120.000 manna og miðast við hvaða stétt fólk á aldrinum 20 til 64 ára tilheyrði í manntali árið 1981. Eldri innlend rannsókn sýnir svipaða niðurstöðu.

Í þessu úrtaki eru 8.000 bændur; um 4.500 karlar og um 2.500 konur. Tölurnar sýna að ef 100 karlar í þjóðfélaginu fengju krabbamein myndu aðeins 70 karlar í bændastétt fá krabbamein, og hið sama gildir um 100 konur annars vegar og 80 konur í bændastétt hins vegar. Bændur reykja og drekka minna en aðrir. Ef 100 manns fengju lungnakrabbamein myndu aðeins 42 í bændastétt fá það. Um fimmtungur kvenna í bændastétt á móti 100 í öðrum stéttum fær leghálskrabba. Ristilkrabbamein er helmingi ólíklegra meðal bænda en annarra. Niðurstöður úr norrænu rannsóknunum verða kynntar á næsta ári.

Athugið: Ská- og undirstrikaða feitletrið er áminning frá vefstjóranum um að höfundur vefsins hefur haldið því fram síðan 1994 (birt fyrst á netinu 2000) að krabbamein væri orsakað af röngum forritum í heilanum, filterunum, sem upphaflega urðu til vegna neyslu áfengis, en þau framkalla síðan rangar epigenetískar merkingar eða formaukamerkingar í allt að 70 erfðalóðum í frumum mismunandi líkamshluta. Þetta ferli erfist síðan milli kynslóða og magnast upp með þeim afleiðingum að DNA-genastjórnun þeirra aðskilur sig frá hinum frumunum og þær mynda krabbameinsæxli.


Hér líkur þá þriðja hluta fyrirlestrarins, sem hefur veitt okkur einfalda grundvallarinnsýn í hvernig boðefnasvindlið framkallar sjúkdóminn alkóhólisma og aðrar taugaánetjanir, jafnframt því sem bent hefur verið á mögulegar frekari sjúkdómsafleiðingar boðefnasvindlsins. Næst og síðast munum við skoða hvernig batinn frá þessum ósköpum verður til og hver hin líffræðilega virkni batans er, ásamt því að skoða lauslega þá geðsjúkdóma sem bíða alkóhólistans og neytandans ef ekkert er að gert. Við snúum okkur því að fjórða hluta fyrirlestrarins og skoðum bataleiðréttingu heilastarfseminnar og hvaða varanlegu breytingar hafa átt sér stað í heilanum.

Næsti og síðasti hluti þessa fyrirlestrar er því:

05: Fjórði hluti. Bataleiðrétting og varanlegar breytingar á heila.


Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar viðkomandi því efni sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum, sem mun koma þeim áfram á réttan stað. Hér eru þau netföng sem hægt er að senda skilaboðin á: