PowerPoint-fyrirlestur
ALCATRAS
Hér fer á eftir fyrirlestur í sex hlutum þar sem líst er skammtafræðilegum (quantum mechanical) og líffræðilegum ástæðum fyrir, og afleiðingum af, neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugarbreytandi vímuefnum og efnum, löglegum sem ólöglegum. Þetta er í dag ýmist kallað:
„Alkóhólismi“, „Fíkniefnafíkn“, „Mengun mannsheilans“, „Svik við taugaboðefni“.
Fyrirlesturinn er fyrsta skýring heimsins á starfsemi taugatengdra fíknsjúkdóma og bata frá þeim, en hlutar hans eru:

Endirinn eða Fin! — Endorfín! Niðurstöður og umræður um fyrirlesturinn.
Við erum komin að lokum þessa sérstæða fyrirlestrar, en eftir standa þrjár spurningar sem þeir spyrja gjarnan sem annaðhvort hafa setið fyrirlesturinn eða lesið hann á vefnum:
Hver verður framtíðarþróunin í aukningu alkóhólisma á plánetunni?
Mun mannkynið nokkurn tíma losna við neyslu áfengis og annarra hugarbreytandi vímuefna?
Hver er staðan varðandi sönnun á tengslum milli áfengis og annarra hugarbreytandi efna og orsakanna fyrir tölfræðilegum sjúkdómum eins og QF-kenningin bendir til?
Það kann að vera ógerlegt að svara þessum spurningum með beinu jái eða nei, en eftirfarandi er okkar besta mat sem stendur.
0
Hver verður framtíðarþróunin í aukningu alkóhólisma á plánetunni? Fyrirlesturinn býður okkur upp á nýtt og í meginatriðum raunveruleikatrútt sjónarhorn á ríkjandi ástand og framvindu varðandi mengun mannsheilans, og gefur okkur nýjan grundvöll fyrir upplýstri forspá um það sem við megum vænta í framtíðinni. Framtíðina er að sjálfsögðu ekki hægt að spá fyrir um með neinni nákvæmni varðandi frelsun úr fjötrum áfengis og annarra hugarbreytandi efna. Hins vegar er það sem QF-kenningin færir okkur fullvissa um að ástandið eigi eftir að versna vegna uppsafnaðra síubreytinga í erfðaforritun okkar og að öllum líkindum muni þessi þróun hraðast með síauknum hraða, áður en ástandið fer að lagast. Þetta er þegar orðin okkar bitra reynsla af tuttugustu öldinni, þar sem fíkninnar hafa fimmfaldast, þar sem neyslubreytingar í DNA-forritunum hafa fært okkur fjölmörg stríð, sem við höfum – fram til þessa – talið ranglega að væru af pólitískum rótum. Nú er því haldið fram, með niðurstöðum QF-kenningarinnar, að þetta stafi af bilun í „spegilfrumustöðvum“ (mirror neurons centers), eða „samúðargáfum“, í rúmhveli mannsins vegna áfengisneyslu. Hér næst höfum við tvær skýringarmyndir sem sýna tvo líklegustu þróunarferlanna og framreikning þeirra, fyrir liðna og komandi þróun alkóhólisma í vestrænum samfélögum. Af þessum tveimur er það „veldisvísisferillinn“ (exponential curve) sem talinn er nær raunveruleikanum, bæði hvað varðar fortíð og framtíð, frekar en sá sem er með „línulegum ferli“. Grundvöllur beggja ferla byggir á ónákvæmum ófullkomnum upplýsingum úr fortíðinni og ber því að líta á þá sem bestu nálgun. Á eftir þeim kemur síðan mynd sem sameinar báða ferlana.


Í lok 20. aldar hafði alkóhólismi náð til 25% íbúa í vestrænum menningarsamfélögum en um 70% landsmanna prófa nú áfengi (30% eru annaðhvort börn eða þeir sem aldrei prófa áfengi). Af þeim 70% sem prófuðu áfengi verða 36% alkóhólistar í dag, óháð því í hvers konar drykkjumenningu þeir búa. Af þessum 36% fá aðeins 56% nokkurn tíma vitneskju um hina einu óefnafræðilegu andlegu lausn Samtaka óvirkra alkóhólista við hinni banvænu fíkn, 44% gera það aldrei. Af þessum 56% ná aðeins 5% til 10% bata, en þetta stafar að miklu leyti af samkeppni sálfræði, geðlækninga og lyfjaiðnaðar við andlegu lausnina.

Hinn almenni maður er ekki sérlega meðvitaður um, eða upptekinn af, hinum hröðu samfélagslegu breytingum á grundvallarsálfræðigerð okkar og flestir halda því fram að áfengi hafi fylgt okkur svo lengi, hvers vegna ætti það að vera að breyta okkur á einhvern óhugnanlegan hátt á síðustu áratugum. Þetta er ekki undarlegt viðhorf þar sem jafnvel margir vísindamenn eru af svipuðu bergi brotnir og jafnvel opinberar stofnanir á borð við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), sem rannsakar virkan heilsufarsvá áfengis og vímuefna, eru á sömu skoðun. Þetta stafar af skorti þeirra á innsýn í hina grundvallar skammtagerð og virkni mannsheilans, en hér hefur ALCATRAS-fyrirlesturinn forskot þar sem hann grundvallast á upplýsingum QF-kenningarinnar, sem hefur að geyma þá hluta sem vantað hefur í skammtafræðina. Þetta á sérstaklega við um eðli og virkni „sameiginlegs raunveruleika“ (collective reality) undirmeðvitundar rúmhvelsins, en án innsýnar í rétta heildræna virkni og heildræna uppröðun hinna 3,2 milljarða táknaða (exon) og innrauða (intro) núkleótíða í DNA-gerðinni er þessi skilningur ekki mögulegur. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að okkar frábæru vísindamönnum hefur ekki tekist að leysa gátu mannsheilans.
Ástæðan fyrir því að hvorki vísindamenn okkar né stjórnmálamenn hafa viðeigandi áhyggjur af hinni hröðu aukningu áfengissýki í vestrænni menningu og trúa enn þeirri gömlu villu að manninum takist að halda henni í skefjum með lagasetningu, stafar af skorti þeirra á grundvallarinnsýn í starfsemi og vanstarfsemi mannsheilans. Hér eru tveir þættir sem stuðla að þessari afar hættulegu framvindu sem hvorki vísindamenn né stjórnmálamenn eru meðvitaðir um, en þeir eru: Í FYRSTA LAGI: Þá skortir innsýn í hversu alvarlegar afleiðingar sívaxandi neyslu okkar — allt frá 1950 — á geðvirkum efnum eru, sem notuð eru til að stjórna sálrænu ástandi okkar. Þá skortir innsýn í hversu alvarlegt þetta er fyrir framtíð mannkyns, þar sem þeim eru ókunnar hinar uppsöfnuðu „virknitranir“ í DNA-núkleótíðum heilans sem þetta veldur, til viðbótar við þær sem stafa af áfengisneyslu, sem þeir skilja heldur ekki. Enn síður skilja þeir að þetta er að breyta grundvallarforritum heila okkar. Þessar virknitranir, sem eru skammtafræðilegs og hólógrafísks eðlis og á formi ljóseinda, fá í QF-kenningunni nafnið „sía“. Það er síðan þessi sía sem berst kynslóð fram af kynslóð í gegnum erfðaferlið og það er fyrir tilstilli uppsöfnunar hennar sem hið ört vaxandi áfengisheilkenni, sem og margvíslegir tölfræðilegir sjúkdómar, verða til. Í ÖÐRU LAGI: Skortur á innsýn í afleiðingar hinnar risavöxnu byltingar í almenningssamgöngum og samskiptum frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og þeirra gríðarlegu samfélagslegu menningarbreytinga sem hún hafði í för með sér. Stór og hættulegur hluti af þessu er sívaxandi framganga okkar inn í hnattræna, samfélagslega áfengis- og eiturlyfjamenningu dauðans, sem hraðar enn frekar framvindu sameiginlegrar fíknar okkar í gegnum erfðir. Það eru þessir þættir sem hraða uppsöfnun DNA-galla sem valda veldisvexti í fíklunum, sérstaklega í vestrænum menningarsamfélögum. Fyrir þá fáu sem nú vita og skilja þessa þróun eru vísindamenn í geðlyfjarannsóknum og lyfjaframleiðslu farnir að líkjast eins konar óvættum brjálaðra vísindamanna líkt og dr. Frankenstein, og dr. Peter Breggin er farinn að líkjast eins konar dýrlingi. Með þeim alþjóðlegu upplýsingamiðlum sem nú eru tiltækir ættum við þegar að vera meðvituð um að vel meinandi forvarnaaðgerðir okkar og lagalegar refsingar duga ekki í baráttunni gegn sívaxandi fíkn mannkyns. Við ættum einnig að vera meðvituð um að við töpuðum stríðinu gegn áfengi og vímuefnum fyrir löngu síðan. Með greind okkar hefðum við fyrir löngu átt að verða meðvituð um að það eru áfengið og hin löglegu og ólöglegu vímuefni sem eru okkar dómsdagshætta, en hér kemur þáttur afneitunar til sögunnar, en hún er einnig framkallað af fíkniefnunum. Til að geta raunverulega farið að berjast gegn þessari ógn við tilveru okkar — og alls lífs á þessari plánetu — verðum við ÖLL að fara að læra sannleikann um áhrif þessara efna á okkar helsta líffæri — heilann — EN ÁN ÞEIRRAR INNSÝNAR GETUR ENGIN UMSNÚNINGUR ÁTT SÉR STAÐ. Sívaxandi stjórnleysi mannkyns á öllum sviðum lífsins og ört vaxandi tíðni tölfræðilegra sjúkdóma, sérstaklega hjá ungu fólki, svo sem offitu, sykursýki, einhverfu, þunglyndis og alls kyns geðsjúkdóma og sálfræðilegra truflana, eru í beinu samræmi við spár QF-kenningarinnar og eru taldar til marks um gildi hennar. Til þess að gera almenningi kleift að nálgast þessar mikilvægu upplýsingar var ALCATRAS-fyrirlesturinn þróaður og óhefðbundinni framsetningu hans er ætlað að gera hann aðgengilegan öllum, allt frá óvirkum fíklum til læknavísindafólks. Þetta form gerir kleift að kynnast ávöxtum QF-hugmyndafræðinnar, sem býður upp á heildstæða sýn á sköpunina, sem leiðir til útskýringar á lífinu sjálfu og síðan til QF-healalíkananna sem skýra erfðir og áhrif innraðasíanna sem verða til í heila okkar við notkun gervitaugaboðefna. Með öllum þeim spám sem nú eru gerðar um framtíð mannkyns, svo sem fólksfjölgun, hnignun heilsuverndar, minnkandi hreyfanlega orkugjafa, loftslagsbreytingar, samdrátt í fæðuframleiðslu sjávarútvegs og landbúnaðar, stöðugleika efnahagslegra uppspretta o.s.frv., o.s.frv., kann spáin um aukningu áfengissýki að vera sú alvarlegasta, þar sem hún mun hafa skaðleg áhrif á getu okkar til að takast á við neikvæðar afleiðingar annarra breytingaþátta í afkomu okkar. Þetta er fyrst og fremst vegna þess að aukin áfengis- og efnaneysla og áfengissýki mun hafa bein áhrif á sameiginlega stjórnhæfni þeirra gjörða okkar sem ráða framtíð okkar og mun lækka þröskuld hruns laga og reglu í mannlegum samfélögum, en það kann að vera mesta ógnin af öllum við mannkynið.
Hvað er alkóhólísk geðveiki?
Að beita endurtekið sömu aðferð í lífinu og vænta mismunandi niðurstaðna, það er alkóhólísk geðveiki
Að reyna endurtekið að leiðrétta mistök í lífinu með því að nota aðferðina sem skapaði þau, það er alkóhólísk geðveiki
AA-viska
Mun mannkynið nokkurn tíma losna við neyslu áfengis og annarra hugarbreytandi vímuefna?
Hvenær jafnvæginu verður raskað milli fíknskapandi löngunar okkar í þær fölsku kenndir sem áfengið framkallar í taugakerfinu og þeirrar vitundar okkar um þann gríðarlega skaða og fjöldaeyðingu sem þetta veldur, er erfitt að spá fyrir um. Máttur áfengisblekkingarinnar í undirmeðvitundartilveru mannsins er svo sterkur að áður en við sameiginlega skiljum, verðum meðvituð um og samþykkjum sem sannleika að áfengi sé helsti óvinur lífs á jörðinni, verða meiri háttar skammtímahamfarir af völdum áfengis að eiga sér stað. Þetta er það sem línuritin hér á undan gera ráð fyrir, eða að slíku hámarki hamfara verði náð, eða það þvingað upp á mannkynið, fyrr en við teljum mögulegt. Hvernig slíkt hrun í tengslum við aðrar manngerðar hamfarir, svo sem hækkun sjávarmáls sem d drekkir strandborgum, mun líta út, er eitthvað sem enginn fær spáð fyrir um. Hins vegar mun það örugglega verða eitthvað hræðilegra en nokkuð sem mannkynið hefur nokkru sinni séð, eða mun nokkru sinni sjá. Það er engin furða að prófessor Albert Einstein hafi — undir lok ævi sinnar — líst því yfir að mannkynið væri sofandi, á floti niður dauðafljótið út í haf sjálfseyðingar. Með komandi breytingum á aðgengi að hreyfanlegri orku (koli og olíu) og breytingum á loftslagi jarðar gæti fíkniástand mannkyns hraðast meira en nokkur fær spáð fyrir um. Á hinn bóginn er mögulegt að við getum — án stórfelldra hamfara sem kveikju — að lokum náð fram breytingu á hinu sameiginlega viðhorfi til áfengis, svipaðri þeirri sem við erum nú farin að upplifa gagnvart reykingafíkninni. Þetta gæti birst í því að við neyddumst til að grípa til róttækra félagslegra aðgerða eftir því sem hin sameiginlega DNA-röskun og erfðaskemmdir vegna áfengis verða óumdeilanlegar. Þetta getur hins vegar ekki átt sér stað án þess að vísindasamfélag okkar hafi víðtæka þekkingu á hinum lúmsku langtímaáhrifum heilamengunarbrjálæðis okkar, sem hér í þessum fyrirlestri eru boðin almenningi í fyrsta sinn. Hér erum við ekki bara að tala um þær breytingar á manninum sem eiga sér stað við alkóhólisma, heldur við alla neyslu efna sem koma í stað hinna náttúrulegu taugaboðefna og valda því að endurupptaka í skiptunum mistekst. Án þessarar þekkingar mun enginn fjöldi einstaklingsharmleikja eða sameiginlegra hamfara fá okkur til að átta okkur á því að það er hið sameiginlega uppsafnaða stjórnleysi af völdum áfengis sem veldur þessu. QF-kenningin og hvalalíkön hennar sýna hver lausnin er og staðfesta að vandann er ekki hægt að leysa með neinum lyfjum og að allar slíkar tilraunir muni aðeins auka á vandann vegna eðlilegra líffræðilegra og eðlisfræðilegra viðbragða taugafrumnanna við framandi efnum.
Mannfræði okkar hefur sýnt okkur að reynsla mannkyns hefur verið ris og fall menningarsamfélaga. Hér sýnir QF-kenningin okkur að án hins endanlega skilnings á virkni og vanvirkni mannsheilans verða tengsl þessarar framvindu við þau hugarbreytandi efni sem maðurinn hefur notað og notar ekki skilin. Önnur afleiðing af vanþekkingu okkar á langtíma uppsöfnuðum áhrifum áfengis og annarra hugarbreytandi efna á mannsheilann birtist í vanhæfni okkar til að stjórna neyslu þeirra og hegðunarbreytingum sem af henni leiða. Þetta hefur skilið okkur eftir með ónýtar og kostnaðarsamar endurhæfingarrefsingar sem löggjafarstofnanir okkar deila út og gagnslausa og kostnaðarsama fræðslufyrirlestra til forvarna frá uppalendum okkar fyrir ungmenni. Hvorugt virkar til að koma í veg fyrir framvindu fíknar í vestrænum menningarsamfélögum, en 36% þeirra sem prófa áfengi munu verða háðir því og þetta hlutfall fer vaxandi. Aðeins bál og brandar geta vakið okkur af svefni afneitunarinnar varðandi sannleikann um áfengi og önnur hugarbreytandi efni. Kaldhæðnin liggur í þeirri staðreynd að með ALCATRAS-fyrirlestrinum höfum við grundvöll fyrir skilningi sem getur hugsanlega breytt stefnu okkar úr dauðagöngu í lífsgöngu, en við erum því miður ekki tilbúin að byrja að skoða hann til aðgerða, heldur þrjóskumst við við í okkar „eftir mér syndaflóðið“-viðhorfi, sem upphaflega stafar af taugaboðefnasvikum forfeðra okkar og okkar sjálfra.
0
Hver er staðan varðandi sönnun á tengslum milli áfengis og annarra hugarbreytandi efna og orsakanna fyrir tölfræðilegum sjúkdómum eins og QF-kenningin bendir til? Spurningarnar um gildi ábendinga QF-kenninganna um tengsl á milli neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugarbreytandi efnum sem orsaka tölfræðilegra sjúkdóma eru í raun nátengdar viðfangsefni ALCATRAS-fyrirlestrarins. Augljóslega getum við ekki vænst þess að allar tilraunir til að sýna fram á þessi tengsl með vísindalegum tilraunum fullnægi kröfum vísindahefðarinnar, en þegar árið 1932 benti prófessor Niels Bohr á þetta vandamál í sínum fræga LJÓS OG LÍF fyrirlestri. Í honum kemur skýrt fram að það er svo gott sem óhugsandi að gera skammtatilraunir á lifandi frumum. Fyrir utan það er skammtafræði sem vísindagrein eitthvað sem fjallar um eitthvað sem enginn sér og á sér stað að mestu í heila vísindamannsins á stærðfræðilegu formi, en aftur, með fyrirsjáanlegri aukningu á vandamálum mannkyns, kann róttæk viðhorfsbreyting að eiga sér stað í huga mannsins, sem leiðir til gerbreyttrar aðferðafræði. Vísindarannsóknir eru hins vegar háðari framleiðsluhagnaði en flestir vísindamenn vilja viðurkenna, en hjá mörgum vísindamönnum er eina vandamálið við áfengi og önnur hugarbreytandi efni hvernig megi framleiða meira af þeim hraðar og ódýrara. Þar sem QF-kenningin er eingöngu skammtafræðilegs eðlis verður hún — þegar kemur að líffræði — að leita staðfestingar sinnar í rannsóknaniðurstöðum sem eru í veruleika sem er skrefi ofar skammtaveruleikanum. Þetta er veruleikinn þar sem orsakir tölfræðilegra sjúkdóma eru ekki greinanlegar, en hér hafa margar rannsóknaniðurstöður síðustu áratuga óbeint staðfest spár QF-kenningarinnar um hraðar vaxandi fjölda tölfræðilegra sjúkdóma, einkum hjá yngri kynslóðum, svo sem ört vaxandi fjölda offitusjúkdóma, sykursýki, þunglyndissjúkdóma og geðraskana og geðsjúkdóma. Þetta er viðvörunarmerki sem ætti að vekja áhuga læknastéttarinnar á að kynna sér QF-kenninguna varðandi sköpun, erfðir og virkni innraðasíunnar í DNA-núkleótíðum heila okkar.
Hér er það spá QF-kenningarinnar um síuna, að aukning tölfræðilegra sjúkdóma muni hraðast og kvillarnir verða illvígari, á meðan ekkert verður gert til að koma í veg fyrir svik við taugaboðefni og síu-afleiðingar þeirra svo lengi sem læknar og lyfjaframleiðsluvísindamenn halda áfram óafvitandi að styðja við vöxt vandans. Gert er ráð fyrir að þessum vanda verði mætt með síaukinni neyslu geðlyfja, sem þýðir ekki aðeins aukinn hagnað og völd fyrir lyfjaiðnaðinn, heldur einnig vöxt og uppsöfnun lyfjavakinnar síu í DNA-sameindum mannsheilans. Heildarniðurstaðan er samfélagslegur hringekja vaxandi vandamála, á sama hátt og einstakir fíklar upplifa þau, án þess að nokkur átti sig á eða tengi orsakirnar við heilamengunina í svikum við taugaboðefni. Það síðasta sem mennirnir munu vilja viðurkenna er að „hinn guðdómlegi nektar“ beri sökina á okkar illu þróun, en engu að síður fögnum við þeirri vitneskju að nauðsynleg hugarfarsbreyting mannkyns er orðin raunhæf með tilkomu hinnar nýju innsýnar fyrir tilstilli QF-kenningarinnar sem þessi fyrirlestur býður upp á.
0
Vísindasamfélagið er þegar meðvitað um þá staðreynd að það eru svörin við spurningum okkar varðandi heilann sem ráða örlögum mannkyns. Prófessor Gerald D. Fischbach, fyrrverandi rektor Harvard-háskóla, staðfesti þetta í yfirlýsingu sinni árið 1993 í Scientific American: Heimspekilegri rannsókn verður að fylgja eftir með tilraunum sem eru nú meðal þeirra brýnustu, krefjandi og mest spennandi í allri (sögu) vísindanna. Lífsafkoma okkar og líklega lífsafkoma (alls lífs á) þessari plánetu veltur á fyllri skilningi á mannshuganum.
Augljóslega er þessum fyrirlestri ekki ætlað að bjarga heiminum, það verður heimurinn að gera sjálfur, einstaklingur fyrir einstakling, en menning okkar, fyrst og fremst á Vesturlöndum, er mótuð af áfengisneyslu, sem hefur leitt okkur út í neyslu á öðrum fölskum taugaboðefnum, löglegum og ólöglegum. Þetta skapar gríðarlegt magn af vinnu í samfélagi okkar, en ef neysla áfengis og annarra hugarbreytandi efna væri skyndilega numin brott úr samfélaginu og maðurinn næði heilbrigðri, samhverfri heilastarfsemi, myndi það þýða algjört efnahagshrun.
QF-kenningin býður upp á fjölmargar nýjar innsýnar í eðlisfræði þar sem staðfestingar hafa þegar fundist, en mikilvægustu afurðir hennar eru heilaforritunarlíkönin og heilastarfsemislíkönin sem hún býður upp á. Það er þessi líkanagerð sem er mikilvægust af niðurstöðum hennar, þar sem hún bendir á vaxandi ógn neyslu áfengis og annarra hugarbreytandi efna við homo sapiens. Þetta er þrátt fyrir þá staðreynd að þessar ábendingar muni lenda neðst á öllum vinsældalistum mannkyns. Þetta þýðir að umtalsverðs hugrekkis er þörf við að flytja fyrirlesturinn, þar sem fyrsti tilgangur QF-kenningarinnar er að reyna að rjúfa vanþekkingu og afneitun vísindasamfélagsins varðandi neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugarbreytandi efnum. Með öðrum orðum er honum ætlað að reyna að opna augu mannsins fyrir mestu ógn við mannkynið og líf á plánetunni jörð, öflugustu gereyðingarvopnunum. DNA-truflandi efnum, sem við verðum að borga fyrir með erfiðispeningum okkar, en sem við gætum fengið ókeypis í formi hinna náttúrulegu, ef við aðeins kynnum að framleiða þau í heila okkar. Heilamengunin í svikum við taugaboðefni er því langt frá því að vera eins skaðlaus og látið er líta út fyrir í áfengisauglýsingum. Þetta er vegna þess að spurningin um áfengi og önnur hugarbreytandi efni í mannkyninu er ekki spurning um einhver hegðunar- eða samfélagsvandamál, hún er spurningin um lífsafkomu mannkyns.
Reynslan okkar af tuttugustu öldinni er sú að taugatengdar fíknir hafa fjórfaldast, en aðeins QF-kenningin getur útskýrt fyrir okkur hvers vegna þetta er svo, og á sama tíma sýnir hún okkur að ekki er til neitt sem heitir „skaðlaus neysla áfengis“ fyrir mannkynið. QF-kenningin og þessi fyrirlestur kunna að breyta einhverju varðandi þennan vanda í fjarlægri framtíð, en líklegast verða meiri háttar fjöldahörmungar nauðsynlegar til að sýna mannkyninu tengslin milli hinna uppsöfnuðu erfðabreytinga, sem neysla á fölskum taugaboðefnum veldur, og þessara hamfara. Fyrir slíka atburði er mjög ólíklegt að almenningur og stjórnvöld í vestrænum menningarsamfélögum öðlist þá auðmýkt að vera reiðubúin að byrja að læra raunveruleikann um hin sönnu gereyðingarvopn á meðal okkar og þeirra lúmsku langtímalimlestingar- og drápsstarfsemi.
Um leið og við þökkum þér fyrir að sitja þennan fyrirlestur kveðjum við með því að lýsa yfir þeirri von okkar að hann þjóni fyrst og fremst þeim tilgangi að opna þín innri augu og eyru, og að hann megi nýtast í þínu persónulega lífi og sem uppspretta innblásturs. Á sama tíma viljum við minna þig á að: Þú ert barn alheimsins og alheimurinn býr í þér! , Eða ef þér líkar betur: „Þú ert barn Guðs og Guð býr í þér!“ Að þú hefur öll hráefni til að lifa lífi þínu í heilbrigði, hamingju og gleði, hverjar sem aðstæður þínar kunna að vera eða hvort samferðamenn þínir á plánetunni vita þetta eða ekki.


Þér hefur verið veitt innsýn. Innsýn í stærstu ráðgátu í mannlegri tilveru.
PEACE Publication Ltd. og þeir sem styðja félagið hafa þróað efnið á þessari vefsíðu sem og unnið að vefnum án nokkurs endurgjalds. Viðhald vefsins með sjálfboðavinnu er í þeim tilgangi að þjóna þeim sem óska eftir að nýta sér efni hans. Hins vegar fylgir nokkur kostnaður þessu starfi, og af þeim sökum birtum við hér upplýsingar um reikninga PEACE Publication Ltd., fyrir þá sem vildu taka þátt í að leggja inn á Vefstjóra- og netþjónasjóð PEACE Publication Ltd. Öllum slíkum greiðslum ætti að fylgja tölvupóstur til vefstjóra með upplýsingum um gefandann og tilkynningu um fyrirætlanir hans.
Fjármálastofnun PEACE Publication Ltd.:
ÍSLANDSBANKI Kirkjusandi, 155-Reykjavík, ÍSLAND
Bandaríkjadalarareikningur: IBAN - Númer………… IS57 0513 3810 0410 5502 0238 70 BIC - Númer…………... SWIFT ISBAISRE
Evrureikningur: IBAN - Númer IS57 0513 3871 0220 5502 0238 70 BIC - Númer…………… SWIFT ISBAISRE
PEACE Publication Ltd. vinnur nú að útgáfu geisladisks, VHS-myndbands og DVD-disks með fyrirlestrinum, en því miðar frekar hægt þar sem þetta er unnið í sjálfboðavinnu.
Hér líkur þessari kynningu, en nota má tölvupóstföng vefstjóra hér að neðan til að senda okkur athugasemdir, gagnrýni, kvartanir og formælingar, sem allt er mjög vel þegið.
Hafi lesandi þessa skjals einhverjar athugasemdir eða umkvartanir varðandi efnið sem hér er kynnt, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar, eru þær aufúsugestur hjá vefstjóranum, sem mun koma þeim áfram til viðeigandi aðila. Hér eru netföngin sem má nota fyrir hvers kyns skilaboð eða fyrirspurnir: Til baka á