Skrá 07

Newton, regnboginn og QF-kenningin

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/03_ENGIL-Logo.jpg

QF-ritgerð 11.

Sér Isaac Newton og hin andlega hlið tilveru hans.

Innsæis- og sköpunargreind mannsheilans í ljósi sögu Newtons.

Þessi mappa kynnir hluta af röð ritgerða sem lýsa, með eins miklum einfaldleika og unnt er, grundvallarafleiðingum niðurstaðna QF-kenningarinnar, sem kynnt var árið 2002 með útgáfu bókarinnar THE LITTLE SCROLL og síðar á vefsíðum PEACE-Files. QF-kenningin er heildstæð sameiningarkenning í eðlisfræði sem inniheldur áhorfandann, líf og meðvitund og er hún því skilgreind sem allsherjarkenning (Theory of Everything).


QF-ritgerðirnar og efni þeirra:

QF-L — 00

Kynning á QF-bréfunum

QF-L — 01

Önnur stærðfræðileg lausn QF-kenningarinnar

QF-L — 02

Endalok kennilegrar eðlisfræði

QF-L — 03

Samsíða alheimur og takmörk stærðfræðinnar

QF-L — 04

Gáta BBC um: Guð í heilanum

QF-L — 05

Gátur déjá vu til ráðgátu einhverfu

QF-L — 06

Tvær gerðir rúmmálstaps í dreka

QF-L — 07

Eftir greinina um genamengið – eftir tvígorminn

QF-L — 08

QF-kenningin og trúarsvið mannsheilans

QF-L — 09

QF-kenningin og samúðarsvið mannsheilans

QF-L — 10

QF-kenningin og sameining trúar og vísinda

QF-L — 11

Newton, regnboginn og QF-kenningin

QF-L — 12

QF-kenningin og fyrirbæri tvíraufatilraunarinnar

QF-L — 13

Mannhverfa lögmálið og QF-kenningin

QF-L — 14

Leitin að alkóhólisma og Guði í genum okkar

QF-L — 15

Spurningar um allsherjarkenningu sem hrjá eðlisfræðina

QF-L — 16

Þyngdarafmsgátur Richards Feynmans

QF-L — 17

Gáta fínformgerðarfastans (Fine Structure Coupling Constant Riddle)

QF-L — 18

Viðtal við hinn dularfulla herra 666

QF-L — 19

Gáta hinna þriggja grundvallarrita náttúrunnar

QF-L — 20

Eftirmálinn

Til inngangssíðu íslensku útgáfunnar


Ellefta QF-ritgerðin:

Sér Isaac Newton, regnboginn og QF-kenningin.


Eftirfarandi fyrirlestur fjallar um leyndardóm innsæis- og sköpunargreindar mannsheilans í ljósi hinnar lítt þekktu sögu Isaacs Newtons hvað við kemur andlegum málefnum. Er umfjöllun þessi fyrst og fremst gerð með hliðsjón af hinum trúarlegu, andlegu, dulspekilegu og alkemísku viðfangsefnum Newtons en hann hélt þeim leyndum meðan hann lifði. Það er ekki fyrr en eftir að John Maynard Keynes kaupir meginhluta hinna andlegu skjala Newtons árið 1936, að vitað var um þessa hlið hans og ekki farið að fjalla svo neinu nemur um hana fyrr en í lok tuttugustu aldar.


Það er grunur minn að tilraunir Newtons hafi alltaf verið gerðar til staðfestingar þess sem hann þegar vissi, fremur en til uppgötvunar nýrra sanninda.

Tilvitnun frá: John Maynard Keynes


Það sem hér kemur fram er samantekt lauslegra þýðinga og stytts efnis úr ýmsum áttum. Þar er helst um að ræða bókmenntagagnrýni eftir I. M. Oderberg um bók Gale E. Christianson sem kom út árið 1984 og bar enska titilinn INN THE PRESENCE OF THE CREATOR: ISAAC NEWTON HIS TIMES sem á íslensku væri:

Í NÁVIST SKAPARANS: ISAAC NEWTON OG SAMTÍMI HANS. Birtist gagnrýnin í SUNRISE MAGAZINE 1986, en það er gefið út af Theosophical University í Pasadena í Kaliforníu. Efni þetta er jafnframt samofið ýmsu öðru frá ævisöguriturum Newtons, prófessor Richard S. Westfall og prófessor Arthur B. Anderson, en hinn síðarnefndi fjallaði verulega um trúarlíf og biblíuáhuga hans sem beindist einkum að Opinberunarbókinni.


Hin óþekkta hlið hins mikla snillings, sér Isaac Newton?

Sic Isaac Newton 1642-1727 MN
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/05_Newton-Framed.gif

Sér Isaac Newton, hinn nafntogaði náttúruheimspekingur sem fæddist að Woolsthorpe Manor í Lincolnshire 4. janúar 1642, var betur þekktur fyrir hið mikla framlag sitt til vísindalegrar þekkingar mannsins en fyrir viðleitni sína á hinu trúarlega, dulspekilega og alkemíska sviði og leit hans að hinni mikilfenglegu uppskrift er hann taldi vera kjarna alheims.

Þar til nú á síðustu tímum hafa ævisöguritarar Newtons haft tilhneigingu til að forðast þennan hluta verka hans í þeirri trú að hvers kyns þekking á tilvist þeirra kynni að varpa skugga á orðspor þessa stórkostlega vísindamanns.

Ævisöguritararnir hafa því haft tilhneigingu til að forðast hvers kyns tilvitnanir í hinn mikla fjársjóð ritverka hans um þetta andlega, dulspekilega og óvísindalega efni, þar sem guðfræðin ein inniheldur 416 ritgerðir.

Fjölskylda jarlsins af Portsmouth hafði erft eftir stjúpfrænku Newtons safn vísinda- og annarra ritverka er hann lét eftir sig. Gaf fjölskyldan safnið til Bókasafns Cambridge-háskóla með þeim skilmálum að þeim hluta sem ekki var vísindalegs eðlis yrði skilað.

Sala andlegra, dulspekilegra og óvísindalegra skjala Newtons.

JOHN MAYNARD KEYNES
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/06_John-Maynard-Keynes.gif

Portsmouth-fjölskyldan seldi síðan hinn andlega hluta ritverka Newtons á uppboði árið 1936 þar sem breski hagfræðingurinn John Maynard Keynes (1883–1946) keypti mikinn hluta þeirra.

Er Keynes mikilla þakka verður fyrir að hafa bjargað þessu efni, en hann var heillaður af innihaldi þess og segir hann meðal annars eftirfarandi um það: Mig grunar að tilraunir Newtons hafi alltaf verið gerðar til staðfestingar þess sem hann þegar vissi, fremur en til uppgötvunar.

Keynes efaðist mjög um þá skoðun manna á Newton sem ríkjandi var á átjándu öld og lýsti sér í því að menn töldu hann „hinn fyrsta og mesta vísindamann nútímans; skynsemishyggjumanninn sem kenndi okkur að hugsa með kaldri og litlausri rökhyggju“.

Keynes, sem sjálfur var mjög hæfileikaríkur og skapandi hugsuður, sá Newton sem „síðasta töframanninn, síðasta Babýloníumanninn, Súmerann, hinn síðasta hinna hugumstóru manna sem horfðu út í hinn sjáanlega og vitsmunalega heim með sömu augum og þeir sem hófu að byggja hinar vitsmunalegu erfðir okkar fyrir tæpum 10.000 árum síðan“. Árið 1930 gaf Carl Gustaf Jung í bók sinni PSYCHOLOGY AND LITERATURE eftirfarandi snilldarlýsingu á skammta- og taugalíffræðilegri virkni hins skapandi raunveruleika í heilastarfsemi listamannsins: Listamaðurinn er ekki einstaklingur sem er gefinn frjáls vilji til að þjóna sínum eigin löngunum, heldur er hann einstaklingur sem leyfir listinni að birta tilgang sinn í gegnum vitund sína. Sem mannvera kann hann að hafa skap, vilja og persónuleg markmið, en sem listamaður er hann maður í æðri skilningi — hann er birting hinnar sameiginlegu vitundar, miðlari og kynnir hins ómeðvitaða sálarlífs mannkynsins. Þessi skilgreining hefur sömu túlkun og gildissvið fyrir vísindamanninn, hvað við kemur upphafsinnsæi hans í nýrri uppgötvun, eins og fram kemur í lýsingu Alberts Einsteins á hinni upphöfnu andlegu uppgötvunarreynslu: „Hin fegursta reynsla sem við getum öðlast er hin dularfulla. Hún er sú grundvallartilfinning sem stendur við vöggu allra sannra lista og vísinda.

Hin kaldhæðnislega mynd er Newton gaf heiminum af sjálfum sér.

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/07_Blakes-Newton.gif

William Blake and hið Newton

Mynd sú sem Newton gaf heiminum af sér var af áhorfanda sem horfði á alheiminn og það sem í honum var sem ráðgátu; sem leyndardóm sem hægt væri að leysa með því að beita hreinni hugsun á ákveðnar staðreyndir, ákveðna lykla sem faldir væru á hinum ýmsu stöðum í náttúrunni. Mætti sjá náttúruna eins og hún byði upp á nokkurs konar fjársjóðsleit náttúruheimspekinganna. Þessi mynd var einmitt sú hlið Newtons sem enska ljóðskáldið, dulhyggjuspekingurinn, listmálarinn og myndristulistamaðurinn William Blake (1757–1827) harmaði svo mjög og notaði sem tákn fyrir hinn vélræna hugsunarhátt – efnishyggjuna – sem hann sá vaxandi í Englandi; tilbúna að gleypa hin andlegu viðhorf til tilverunnar, sem löng röð fornra heimspekinga hafði aðhyllst. Þar sem Blake hafði ekki vitneskju um hin andlegu skrif Newtons, taldi hann að hið vélræna viðhorf hans til veraldarinnar og alheimsins hefði skilið Guð eftir, hinn innri mann og lífið sjálft. Hann taldi því að Newton hefði sniðgengið öll þau gildi sem gerðu lífið þess virði að lifa því og verður manni spurn: Hvað hefði Blake sagt ef hann hefði fengið að sjá hina duldu hlið heimspeki Newtons?

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/08_Jahn-Keats.gif

John Keats and hið Newton

Rómantíska enska ljóðskáldið John Keats (1795–1821) hélt því fram mjög ungur að Newton hefði fléttað regnbogann í sundur með því að skera hann niður í liti þá sem þrístrendingsgler framkallar. Hefði hann með því að skýra samsetningu regnbogans rænt hann fegurð sinni. „Langt því frá!“ segir hinn umdeildi Richard Dawkins; „sundurfléttur Newtons eru lykillinn að stórum hluta nútíma stjarneðlisfræði og hins stórkostlega listræna innsæis geimvísindanna. Áður dulin fyrirbrigði tapa ekki hinni listrænu fegurð sinni við skýringu þeirra því lausnin er oft enn fegurri en upphaflega ráðgátan, þar sem þau birta okkur oft enn grundvallarlegri ráðgátur. Með „regnbogafléttu sinni“ sýndi Newton okkur sannleikann um regnbogann, en samkvæmt hinum fleygu einkunnarorðum Keats sjálfs; „sannleikur er fegurð og fegurð er sannleikur“ (truth ís beauty, beauty ís truth) þá jafngildir sú birting hreinni fegurð.

Newton hafnaði hugmyndum Descartes um tvíhyggju anda og efnis og leitaði til baka í viðhorf pýþagóríska bræðralagsins þar sem efnisheimurinn var byggður á stærðfræðilegum líkönum eins og rúmfræðinni. Hann skildi vel hugmyndafræði þeirra en hún innihélt meira en bara stærðfræðina, eins og til dæmis samræmi hinna fullkomnu himnesku rúmfræðilegu forma sem fram kom í hinni pýþagóríska kenningu um tónlist og hljóð. Fyrir Newton var sú nákvæmni er hann sá í náttúrunni ekki bara tilkomin af stærðfræði- og eðlisfræðilögmálum sem sköpuðust í tilviljanakenndu ástandi, heldur vísbending um starfsemi víðáttumikilla, alheimstengdra vitsmuna sem hann kallaði Guð. Var skilgreining hans önnur og meiri en sú sem almennt er lögð í það hugtak í dag.

Í stærðfræði- og vísindavinnu sinni opinberaði Newton vitsmunum okkar tignarlega kennisetningu sem fjallaði um fall eplis eða steins, flóð og fjöru hafsins, brautir reikistjarnanna og tunglsins, birtingu og hvarf halastjarnanna og hreyfingu hins skínandi himinhvolfs stjarnanna. Hin stórkostlegu vitsmunafrek hans þarfnast ekki allsherjarupptalningar hér; en á fyrri hluta þriðja áratugar lífs hans – „anni mirabilis“ kraftaverkaárunum – hafði hann þegar fundið grunneindir diffur- eða deildarhluta örsmæðareikningsins (1665) og heildar- eða tegurhluta hans ári seinna (1666), en þessu var fylgt eftir með uppfinningu hans á spegilsjónaukanum. Bók hans, PRINCIPIA MATHEMATICA, var gefin út þegar hann var 45 ára (1687), en hún fjallaði meðal annars um alheimsaðdráttaraflið, sem var efni blásið honum í brjóst af athugasemd Jacob Boehme: Aðdráttaraflið er fyrsti eiginleiki náttúrunnar. Lagði ritverk þetta grunninn að þeirri vísindalegu hugsun sem ríkti fram á tuttugustu öld þegar lögmál hans voru sameinuð hinni enn víðtækari afstæðiskenningu Einsteins. Annað risaverk hans, OPTICKS (1704), fékkst við eiginleika ljóssins þar sem hann stakk upp á því að það samanstæði af öreindum sem sendar væru í allar áttir út frá ljósgjafanum.

Segja má að vísindin hafi verið trúarbrögð Newtons þar sem hann sá Guð í öllu og var biblíulestur uppáhaldsiðja hans. Hann aðhylltist ekki nein sértæk trúarbrögð en hallaðist að Unitarian Church of England sem var bönnuð um tíma. Er það talin ástæða þess að hann afþakkaði stöðu sem rektor Trinity College þar eð þá hefði hann orðið að taka vígslu í ensku biskupakirkjunni (Church of England) sem var þríeiningartrúar.

Hugmyndir Newtons um Guðs- og sköpunarraunveruleikann.

Það sem ekki hefur verið almennt vitað er að skjalasafn Newtons og bækur þær sem geymdar voru í bókasafni Cambridge-háskóla innihéldu gífurlegt magn efnis viðkomandi guðfræði, heimspeki, dulspeki og alkemískum fræðum. Áhugi hans á alkemíunni er talinn hafa sprottið af viðleitni hans við að komast að kjarna efnasambandanna, í leit sinni að hjarta hins upphaflega efnis sem tengingu við hinn guðlega efniskjarna sem alls staðar var nálægur. Þekking Newtons á Biblíunni var jöfnuð af fáum guðfræðingum en hann var sérstaklega vel að sér í frumtexta kristninnar. Hann túlkaði hina guðlegu sameiningu alls sem þá orku er hélt öllu í tilvist og var jafnframt vitsmunir alheimsins, sem olli öllum ferlum og fyrirbærum. Þykja hugmyndir hans um Guðdóm þann er gegnumsýrir alheiminn vera í dag merkilega líkar nútímahugmyndum margra um Guðs-raunveruleikann sem upphafsgrundvöll allra lífsforma.

Í hugtökum þessum aðhylltist Newton hugtök hins platónska Cambridge-heimspekings, Henry More (1614–1687), um rúmið sem óendanleika þann er birti öll takmörkuð birtingarform.

Í bók sinni, THE SECRET DOCTRINE (1888), tjáir H. P. Blavatsky (1831–1891), stofnandi Guðspekifélagsins, svipuð hugtök um rúmið sem hina sífrjóu móður alheimsins og allra íbúa hans.

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/09_Henry-More.gif
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/10_H.-P.-Blavatsky.gif

Henry Mores

H. P. Blavatsky

Principia Mathematica Newtons skilgreinir muninn á milli tíma og endalauss tímabils (eilífðar) þar sem hið síðara er vissulega viðfangsefni vísindanna, en jafnframt gegnsýrt andlegum, trúarlegum og dulspekilegum grunntónum, en það var grunnur allrar vísindahugsunar Newtons. Er sú hugsun í dag birt í kröfunni um tenginguna á milli líkana eðlisfræðinnar og áhorfandans; leitin eftir eðlisfræði- og líffræðiskilningi okkar á orsökum hinna andlegu, trúarlegu og dulspekilegu eiginleika mannsins.

Meðal þeirra andlegu ritgerða og bóka Newtons sem John Maynard Keynes hafði keypt á uppboðinu var að finna mikið af efni um dulspeki, gullgerðarlist (alchemy) og spádóma Biblíunnar, þar á meðal tuttugu mismunandi útgáfur af Opinberunarbókinni (Book of Revelation), sem og endurgerða útgáfu af hebreska textanum um grunnmynd musterisins í Jerúsalem, sem Newton leit á sem „táknmynd fyrir skipulag heimsins“. Aðeins ein af bókum Newtons sem fjallaði um biblíulegt efni var gefin út árið 1733, en það var:

OBSERVATIONS UPON THE PROPHECIES OF DANIEL

AND THE APOCALYPSE OF ST. JOHN

Á íslensku væri þetta:

ATHUGANIR Á SPÁDÓMUM DANÍELS OG OPINBERUN HEILAGS JÓHANNESAR

Rannsóknir hans á Daníelsbók höfðu byrjað þegar hann var tólf ára og skipuðu sérstakan sess meðal áhugamála hans allt lífið. Enn fremur skrifaði hann um spádóma almennt og tjáði í auðmýkt að hann sjálfur bæri mikla lotningu fyrir þeim spádómsorðum sem honum hafði gefist kostur á að lesa. Newton játaði sig sigraðan gagnvart Opinberunarbókinni og kvaðst hvorki botna upp né niður í innihaldi hennar. Var það niðurstaða hans að tilgangurinn væri sá að bókin yrði einungis skilin af örfáum einstaklingum þar til endalok heimsins tækju að nálgast, tími hins efsta dóms rynni upp og hið eilífa ríki hinna heilögu tæki að birtast, en þá myndi koma fram á jörðinni fólk sem gæti skilið spádóminn.

Newton hélt því fram í einu guðfræðirita sinna, Irenicum, að fram hefði komið við sögulegar rannsóknir á kristindóminum — sem sprottinn var af gyðingdómi — að upphaflega hefðu allar þjóðir verið einnar trúar þar sem hin tvö höfuðboðorð þessarar frumstæðu trúar hefðu verið innilega einföld: Að elska Guð og náungann eins og sjálfan sig. Í dag eru margir þeirrar skoðunar að ef hin leyndu áhugamál Newtons hefðu verið almennt kunn á sautjándu og átjándu öld hefði nútíminn erft af honum óskýra mynd sem trúvillingi. Hefði almenningur fengið þessar upplýsingar hefði það jafnvel getað leitt til þess að hann hefði verið myrtur af trúarofstækismanni.

Okkur hefði vissulega ekki verið gefin sú heildarmynd sem nú ríkir af manninum Newton - frummynd hins vísindalega, ofur-rökfasta hugar sem einungis hafði áhuga á áþreifanlegu efni, einfaldlega vegna þess að ekkert annað var til! Newton kann hins vegar að hafa tilheyrt hinum sjaldgæfa hópi frjósamra hugsuða sem sáðu í hugmyndaheim mannkynsins fræjum er skjóta rótum á sínum eigin tíma þegar aðstæður eru réttar, í þeim tilgangi að framkalla þýðingarmiklar breytingar hjá mannkyninu.

Newton gegndi stöðu Lucas-prófessors í stærðfræði við Cambridge-háskóla í 33 ár, en árið 1699 var hann skipaður The Master of the Mint eða forstjóri konunglegu myntsláttunnar. Hann sat á breska þinginu fyrir Cambridge-háskóla og var kjörinn forseti Konunglega breska vísindafélagsins (Royal Society); embætti sem hann gegndi í 24 ár. Hann var sleginn til riddara árið 1705, lifði til áttatíu og fimm ára aldurs og var jarðsettur í Westminster Abbey þar sem Burnet biskup lýsti honum sem:

„Hreinustu sál sem hann hefði nokkru sinni kynnst.“

Árin 2002–2003 framleiddi BLAKEWAY PRODUCTIONS sjónvarpsþátt fyrir BBC og WBGH BOSTON sem fjallaði um dulrænu hliðina á sér Isaac og bar heitið ISAAC NEWTON - REJECTOR OF THE TRINITY BELIEVER INN ONE GÓÐ, eða ISAAC NEWTON — HAFNAÐI HEILAGRI ÞRENNINGU OG TRÚÐI Á EINN GUÐ. Er sér Isaac þar jafnframt nefndur NEWTON, THE DARK HERETIC, eða NEWTON, HINN MYRKI TRÚVILLINGUR, en hér er átt við að hann teljist trúvillingur fyrir það eitt að neyta að trúa á heilaga þrenningu. Þennan klukkutímalanga þátt má sjá á netinu (hægt að stækka í heilan skjá) og er hann að finna á slóðinni:

http://video.google. com/videoplay? docid = 930571660745143381

Eftir að skjöl Newtons voru gerð opinber og hin trúarlega, dulspekilega og gullgerðarfræðilega hlið hans varð kunn sáu margir hina sterku trúarhneigð hans sem staðfestingu öflugs vitsmunaafls á tilvist guðdómsins. Aðrir litu á Newton með augum efasemdarmannsins og sögðu: Hann hugsaði svo mikið að hann bilaði og varð að afvegaleiddum rugludalli sem elti álfa. Hvað varðar spurningarnar um sálarlíf og innri mann Newtons gera sér ekki margir grein fyrir því að hugsunarferli hans verða ekki skilin til fulls og afgerandi dómur lagður á þau fyrr en mannkynið hefur til fulls leyst gátuna um mannsheilann (human brain), en enn vantar mikið upp á að sú starfsemi sé að fullu skilin. Eru ráðgáturnar hvað mestar í tengslum við starfsemi rúmskynjunarhvelsins og þá hvergi meiri en kringum innsæis- og sköpunargreindina, en hún á heima í þessum hluta heilans. Newton — sem varð strax ljóst að allar hvers vegna — skýringar vantaði við hvernig — skýringar hans á þyngdaraflinu — átti sér þann æðsta draum að leysa gátuna um sköpunina og alheiminn. Newton, sem var víðkunnur fyrir að vera utan við sig og líklega holdgervingur hins viðutan prófessors, átti í stöðugu samtali við Guð innra með sér. Er því hér haldið fram að Jamais vu — trúar- og sköpunarsvið, sem jafnframt er hið kosmíska og sameiginlega svið heila hans, hafi verið í fullri virkni og hann því verið í vitundarsambandi við Guð. Þetta er heilastarfsemi sem nútímamaðurinn upplifir almennt ekki og hefur því lítinn skilning á, en hún birtist í öðru ljósi sé hún skoðuð í tíðaranda Newtons. Lítill vafi leikur á því að Newton hafi stöðugt verið að biðja „Guð“ um svör við þeim gátum sem hann glímdi við, en auðvitað gat hann ekki vitað að flestar þeirra voru af því tagi sem við í dag teljum vera af skammtafræðilegum (quantum mechanics) toga. Þeir innsæis- og sköpunarhæfileikar sem hér um ræðir eiga alfarið við um frumuppgötvanir á grundvallarlögmálum náttúrunnar, ekki þá framþróun sem af þeim leiðir. Hér hefur Guð, eða sköpunarraunveruleikinn, svarað honum að mestu í myndrænu og táknrænu formi, og því er ekkert skrýtið að hann skyldi telja að grunnmynd musterisins í Jerúsalem hefði að geyma lykilinn að byggingaleyndardómi sköpunarinnar og að leyndardóm efnisheimsins væri að finna í gullgerðarlistinni; enda vann hann stundum 18 stundir á sólarhring við gullgerðartilraunir sínar. Það sem áður var ókunnugt um skjöl Newtons, bréf og bækur sem varðveitt voru í bókasafni Cambridge-háskóla, var að þau höfðu að geyma aragrúa efnis um guðfræðileg, heimspekileg og gullgerðarfræðileg efni. Áhugi hans á gullgerðarlist er talinn stafa af tilraunum hans til að komast að kjarna frumefnanna, þar sem hugmyndir hans um samsetningu málma og annarra atóma, sem og ummyndun eins efnis í annað, endurspegla leit hans að kjarna hins upphaflega efnis, frumefnisins, sem tengingu við hinn alstaðarnálæga guðlega kjarna. Sú gullgerðarlist sem síðan veitir okkur svörin um samsetningu efnisheims alheimsins kemur ekki fram fyrr en 300 árum eftir þessa áköfu leit Newtons, þegar herra prófessor Max Karl Ernest Ludwig Planck kynnti hugmyndir sínar um skammtasamsetningu orkunnar fyrir Konunglega þýska vísindafélaginu þann 14. desember árið 1900. Í dag má líta á skammtafræðina sem „Lapis Philosophorum“ eða „gullgerðarlist“ nútímans og leitina að allsherjarkenningunni (Theory of Everything) sem „grunnmynd musterisins í Jerúsalem“ nútímans.

Newton hefur því afar líklega verið að reyna að knýja fram innsæi sem á hans dögum tilheyrði enn fjarlægri framtíð og krafðist margvíslegra uppgötvana áður en mögulegt væri að höndla það. Vera má að starfsemi rúmskynjunarhvelsins hafi verið að færa honum svör Guðs, sköpunarraunveruleikans eða alheimsvitundarinnar án þess að hann hafi skilið þau til fulls. Mörgum okkar sem síðar fáum innsýn í hugsunarhátt Newtons fyrir 300 árum er augljóslega ókleift að skilja þær hugmyndir og forsendur þeirra, hvort heldur er í ljósi hugarfars samtíma hans eða þeirrar takmörkuðu vísindaþekkingar sem þá var fyrir hendi, og var það Newton sjálfum þegar ljóst. Hann gekk því þannig frá hnútum að þessi hluti hugsunar hans og skrifa kæmist ekki fyrir almenningssjónir nema að mjög takmörkuðu leyti meðan hann lifði, líkt og sjá má af útgáfu bókarinnar ATHUGANIR Á SPÁDÓMUM DANÍELS OG OPINBERUN HEILAGS JÓHANNESAR.


„Ég veit ekki hvernig ég kann að sýnast heiminum, en sjálfum mér hef ég aðeins virst eins og drengur að leik í flæðarmálinu, sem hefur dundað sér við að finna annað slagið sléttari stein eða fegurri skel en venjulega, á meðan hinn mikli hafsjór sannleikans lá ókannaður fyrir framan mig.“

Tilvitnun: Sir Isaac Newton


Frá því að þau skjöl sem fjallað er um í þessu æviágripi komust í hendur almennings um miðja tuttugustu öldina hefur áhugi fræðimanna og hugsuða á andlegum hugðarefnum Newtons farið stöðugt vaxandi. Er bók Gale E. Christianson frá árinu 1984 einn þeirra ávaxta sem sprottið hafa af þessum rannsóknum. Margir hafa brotið heilann mjög til að skilja þennan mann, Newton, sem þegar þótti stórbrotinn áður en upplýst var um hin andlegu áhugamál hans. Sýnist mönnum Newton ýmist vaxa eða minnka við kynnin af þessum skjölum, en þeir sem ná að lifa sig inn í tíðaranda og hugarfar þess tíma sem Newton var uppi á sjá hann jafnvel sem enn stærra undur og enn stórkostlegri en samtíðarmenn og síðari tíma menn höfðu gert sér grein fyrir. Snúum okkur nú að síðari hluta fyrirlestrarins:

Regnbogafyrirbærið í huga Newtons.


Það eru verkefni sem bíða og það eru verkefni sem tekur langan tíma að skilja; ástæðan er sú að þau færa svör við spurningum sem enn hafa ekki verið bornar upp; því spurningin kemur oft fram hræðilega löngu eftir að svarið er komið.

Tilvitnun: Oscar Wilde

Leit Newtons að uppskrift alheimsins eða allsherjarkenningunni.

Sú tillaga að leit Newtons að „Lapis Philosophorum“ jafngildi leitinni að heildstæðu sameiningarkenningunni (Complete Unified Theory) sem geymir allsherjarkenninguna, eða uppskrift alheimsins, skýrir hinar stöðugu samræður hans við Guð innra með sjálfum sér, en þær sköpuðu myndina af honum sem hinum viðutan vísindasnillingi. Þegar hann fór í matsal háskólans átti hann það til að taka matardiskinn sinn, setjast við borð sitt, skilja matinn eftir ósnertan og ganga út úr salnum í þungum þönkum, talandi við sjálfan sig, en þetta fellur fullkomlega að skýringum QF-kenningarinnar (QF-theory) á hugsun hins skapandi ofursnillings með hjálp QF-healalíkana (QF-brainmodels). Þetta staðfesti hann óbeint með ummælum sínum um að engin mikil uppgötvun hafi nokkru sinni orðið án þess að gerð hafi verið djörf tilgáta, en hér er tilgátan sú hugmynd (idea inn deus) sem birtist í vitund hans frá Jamais vu-sköpunarraunveruleikanum. Er þetta mjög í takt við hugleiðingar Keynes um Newton þegar hann sagði: Mig grunar að tilraunir Newtons hafi alltaf verið gerðar til að staðfesta það sem hann vissi nú þegar, fremur en til að gera uppgötvanir. Innsæissnilld Newtons inn í náttúruna spratt af samræðum hans við skapara náttúrunnar, þar sem hann lagði athuganir sínar á náttúrunni fram í formi spurningar og lét síðan af leitinni að svarinu, felandi sjálfan sig og svarið í hendur sköpunarraunveruleikans. Svarið birtist honum síðan þegar hann var ekki að hugsa um það, sem styður þá kenningu að öll svör séu þegar til staðar í vitund okkar og aðeins sé spurning um aðganginn að þeim. Er þetta jafnframt lykillinn að innsæis- og sköpunarhæfileikum Newtons, sem þegar voru vaknaðir í vitund hans áður en hann stóð á hæsta tindi innsæis síns, tuttugu og fjögurra ára gamall, sem hann lýsti síðar af sinni kunnu auðmýkt með orðunum: Hafi ég séð lengra en aðrir er það vegna þess að ég stóð á öxlum risa, og gerði lítið úr eigin ágæti um leið og hann viðurkenndi og þakkaði forvinnu annarra.

Newton á tindinum: „Anni mirabilis“, kraftaverkaárið 1666.

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/11_Brunasula-London.gif

Sá tími þegar Newton stóð á hátindi sköpunargáfu sinnar rann upp þegar svarti dauði geisaði í London árin 1664–1667 og Newton, sem þá var 22 til 25 ára námsmaður við Trinity College í Cambridge, leitaði skjóls á ættaróðali sínu, Woolsthorpe Manor í Lincolnshire. Létti plágunni ekki fyrr en í Lundúnabrunanum mikla árið 1666.

Þegar hann var kominn til Woolsthorpe Manor var hann í pestarfríi frá skólanum og gat því helgað sig þeim viðfangsefnum sem sóttu mest á hann, en hér kemur einmitt fram að hann virðist þegar hafa verið búinn að meðtaka hugmyndir sínar og hafi einungis verið að gera staðfestingartilraunir, eins og Keynes stakk upp á. Þar uppgötvaði hann tvíliðuregluna (binomial theorem), deildareikningsaðferð sína (method of fluxions), hreyfilögmálin þrjú (tregðulögmáli), lauk við mótun örsmæðareikningsins og gerði sína stærstu uppgötvun: Lögmálið um alheimsþyngdarkraftinn. Sama ár gerði hann sína frægu tilraun með þrístrent gler (prisma) og staðfesti með henni að hvítt ljós væri samsett úr þremur litum og afsannaði með því hina svokölluðu „umbreytingarkenningu ljóssins“ (Modification Theory of Light).

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/12_Woolsthorpe-Manor.gif

MINNISVARÐI UM BRUNA LUNDÚNABORGAR 1666 OG WOOLSTHORPE MANOR

Umbreytingarkenningin hélt því fram að prisma-glerið breytti einungis birtingu hins einsleita hvíta ljóss þannig að litirnir kæmu fram. Tilraun Newtons sýndi hins vegar að ljósið er samsett úr þremur aðgreindum litum sem dreifast vegna áhrifa prisma-glersins en eru ekki skapaðir með því. Átti það eftir að taka hann 15 ár að fá Vísindaakademíuna til að fallast á að þetta væri sannleikurinn í málinu, en áður hafði hann verið sakaður um að stela hugmyndum annarra og jafnvel um landráð. Var það þáverandi forseti akademíunnar sem barðist af mestri hörku gegn honum.

Hér má sjá skýringarmynd sem sýnir tilraunina er Newton gerði til að kanna réttmæti hugmynda sinna um samsetningu ljóssins úr þremur grunnlitum. Fyrir ofan tilraunina eru rökfræðileg Venn-mengi (em Venn-set em) sem sýna samsetningu ljóssins á hverju stigi tilraunarinnar.

Screen lets only one color pass through Wht gh First prism
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/13_B_Newton-Prismatilraun-Vinstri.gif
QF-Kenningin og Prisma tilraun Newtons 1666. Innsæi. grundvallar samsetningu efnis og orku.. Aðeins ein af þremur. bylgjum heldur áfram. gegn en er EKKI DREIFT. ný, né hefur sjálf. Sólar-. stæða tilvist frá hinum bylgjunum. er áfram. “explicate” ástandi speglandi yfirborð vatnsatómanna. Veggur #1.…
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/13_A_Newtons-Prismatilraun.gif
þé Screen lets. one color pass through. White light First prison
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/13_C_Newton-Prismatilraun-Haegri.gif

Hinn stórkostlegi draumur Newtons og aðferðafræði hans.

Þungamiðja þessarar sögu er sú staðreynd að þegar Newton hafði gert þessar tvær miklu uppgötvanir varðandi aðdráttaraflið og samsetningu ljóssins var hann orðinn fyrsta og helsta vitnið í leitinni að allsherjarkenningunni. Hafi hann gert sér þetta ljóst og jafnframt alið þá von að honum tækist að finna lokasvarið með aðferðafræði sinni, þá kom sá draumur hans þó ekki í ljós fyrr en eftir dauða hans og birtingu skjalanna. Má lýsa Newton sem gagnteknum af fegurð og einfaldleika uppgötvana sinna, en hann var sér jafnframt meðvitandi um að þær voru aðeins hvernig — uppgötvanir, án þess hvers vegna sem til þurfti svo um fullkomna heildstæða sameiningarkenningu gæti verið að ræða. Eigi að síður lagði Newton með þessum uppgötvunum hornsteininn að viðleitni nútímaeðlisfræðinga til að sýna fram á rökrétta nauðsyn fyrir tilvist alheimsins eins og við upplifum hann. Það eru því ekki yfirlýsingar eðlisfræðinganna um eigin framfarir sem eru takmarkið í sjálfu sér, heldur þessi draumur Newtons, sem var og er lokamarkmið hinna kennilegu eðlisfræðinga samtímans. Vegvísinn þangað, segja eðlisfræðingarnir, er að finna í fegurð stærðfræðijafna þeirra, en fegurð er samkvæmt Shakespeare/Hume undir augum áhorfandans komin. Hins vegar felst hún samkvæmt eðlisfræðinni í rökréttum samhverfum og óumbreytileika náttúrunnar.

Þegar Newton stóð frammi fyrir því að vera svo nálægt lokamarkmiðinu sem raun bar vitni nýttist honum einn af mörgum mannkostum hans umfram aðra. Þetta var snilligáfa hans við að spyrja réttra spurninga. Hér spurði hann hvað það væri í alheimsrúminu sem léti þyngdaraflið breiðast samstundis út um allt og hvernig það verkaði á massa efnisins. Jöfnur hans sýndu aðeins hvernig aðdráttaraflið hagaði sér en ekki hvað byggi að baki þessum alltumlykjandi krafti, þótt veikur væri. Hin spurningin var ekki síður merkileg, en hún varðaði þá niðurstöðu hans að ljósið væri samsett úr þremur grunnlitum, og var spurningin afar einföld: Hvað er það í náttúrunni sem krefst þess að grunnlitirnir séu einmitt þrír? Hvers vegna ekki 2, 5, 7, 12 eða einhver önnur tala?

Það sem vakti forvitni hans enn frekar var skýringin á því hvers vegna aðallitirnir sem fram komu í prisma-glerinu voru fjórir, rétt eins og í regnboganum: Rauður, gulur, grænn og blár, þar sem vitað var að ekki var hægt að blanda saman neinum litum til að búa til rauðan, gulan eða bláan og voru þeir því álitnir grunnlitir náttúrunnar. Græna litinn var hins vegar hægt að búa til með því að blanda saman gulum og bláum, og var græna bandið í regnboganum því blöndunarlitur. Gott og vel! Þetta var allt skiljanlegt, nema hvað fyrir Newton vaknaði spurningin: Hvers vegna er þá ekki appelsínugult blöndunarlitaband — líkt og græna bandið — á milli rauða og gula bandsins í regnboganum?

Mjög mjótt orange blendiband.. Breitt grænt blendiband.
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/14_Prismaregnbogi.gif

Örvarnar þrjár í litunum á myndinni tákna sveiflustefnu þeirra þriggja skammtabylgna (quantum wave) sem mynda samsetningu allra efniseinda samkvæmt QF-kenningunni.

Þessar spurningar fóru fram og til baka í huga Newtons í mörg ár, og beitti hann strax ráðgátulausnaraðferð sinni á þær, en sú aðferð fólst einfaldlega í því að spyrja innri rödd sína — Guð eða sköpunarraunveruleikann — um svarið og vera vakandi fyrir því þegar það birtist. Það sem Newton vissi ekki var að þegar hann beindi ljósgeisla að prisma-glerinu og horfði á grunnlitina þrjá koma fram úr því var hann að framkvæma einföldustu en um leið grundvallarlegustu skammtafræðitilraun sem hugsanleg er. Hann kunni að vísu að spyrja réttra spurninga eins og áður hefur komið fram, en hin fullkomna gátulausnaraðferð hans dugði ekki til, þar sem enn skorti mikla þekkingu til að aðferðin virkaði. Hér minnumst við þess að í aðferð sinni leit Newton á náttúruna eins og ráðgátu sem leysa mætti með því að beita hreinni hugsun á ákveðnar vísbendingar, ákveðna dulræna lykla sem Guð hefði falið víðs vegar, en hér skorti Newton þessar ákveðnu staðreyndir. Svörin sem Newton fékk voru því alltaf hin sömu: Tíminn er ekki kominn fyrir svör við þessum spurningum. Tími svaranna er tími endalokanna sem spáð er um í Opinberunarbókinni. Það var því engin tilviljun að Keynes skyldi finna 20 mismunandi útgáfur af Opinberunarbókinni meðal skjala Newtons. Það sem hér vantar er auðvitað uppgötvun skammtakenningarinnar á fyrsta ári tuttugustu aldarinnar og sömuleiðis afstæðiskenningar Einsteins sem komu fram á árunum 1905 og 1915.

Það er almenna afstæðiskenningin (General Relativity) frá 1915 sem færir svarið við fyrri hluta spurningar Newtons, en vísindin skortir enn lokasvörin við því hvað það er í efninu sem sveigir tímarúmið og veldur þar með þyngdaraflinu.

Hvað varðar tvíþættu spurninguna um virkni prisma-glersins og regnbogans stendur vísindaheimurinn enn algerlega á gati, nema hvað mannkynið hefur nú eignast nýju eðlisfræðina (New Physics) (skammtafræðina) þar sem svarið mun á endanum finnast. Það sem hindrar eðlisfræðina í að finna svarið er sú staðreynd að enn hefur ekki tekist að sameina stærðfræðilega skammtafræðina og almennu afstæðiskenninguna, og þar situr hnífurinn í kúnni gagnvart öllum frekari framförum á sviði eðlisfræðinnar í leitinni að hinni endanlegu allsherjarkenningu með tengingu við áhorfandann – sem einmitt var draumur Newtons um „Lapis Philosophorum“ og bjó innra með honum í leynum.

Svarið við spurningu Newtons um græna blöndunarlitabandið í prisma-glerinu og regnboganum er um leið lokasvarið við spurningunni um samsetningu allra efniseinda (ekki orku). Slíkt svar fæst ekki án svars við spurningunni um tengsl efnis og rúms, sem er jafnframt svarið við gátunni um tengsl skammtafræðinnar og almennu afstæðiskenningarinnar og þar með lokasvarið við síðasta hluta ráðgátunnar um þyngdarkraftinn. Það svar verður lykillinn að hinum langþráða leyndardómi um grunnmynd musterisins í Jerúsalem í huga Newtons, sem í dag birtist sem heildstæð sameiningarkenning mannkyns, allsherjarkenningin, að því gefnu að hún feli í sér skipulag DNA-sameindarinnar, líf og meðvitund (Life and Consciousness) áhorfandans. Það svar mun loks færa okkur endanlegan leyndardóm regnbogans.

Merkilegast af öllu þessu er aðferðafræði Newtons við að leita svara í Guðsvitund sinni og meðvitund hans um hvar svörin um alheiminn og lífið væri að finna. Hann vissi að svörin voru einungis fáanleg úr þeirri Guðsvitund sem býr innra með manninum. Newton heldur því áfram að fræða okkur með sínum 280 ára gömlu dulrænu skrifum. Spurningin er: Kunnum við að skilja þennan hluta visku hans?


Engin mikil uppgötvun hefur orðið án hugdjarfrar tilgátu.


HVAÐ HEFUR QF-KENNINGIN AÐ SEGJA UM ALLT ÞETTA; ÞYKIST HÚN EKKI HAFA ÖLL SVÖRIN? HVAÐ SEGIR QF-KENNINGIN UM GRUNNLITI NÁTTÚRUNNAR? HVERS VEGNA ERU ÞEIR BARA ÞRÍR? HVERS VEGNA ER EKKI JAFNBREITT APPELSÍNUGULT BLÖNDUNARLITABAND OG GRÆNA BLÖNDUNARLITABANDIÐ Í PRISMA-GLERINU OG REGNBOGANUM?


Skýring QF-kenningarinnar á því hvers vegna grunnlitirnir eru aðeins þrír.

Þar sem skýringin á aðdráttaraflsráðgátunni og svar QF-kenningarinnar við henni eru flókin fyrirbæri, munum við láta nægja að skýra hér hvernig grunnlitir náttúrunnar verða til og hvers vegna appelsínugult (orange) blendiband kemur ekki fram. Við snúum okkur því að svörum QF-kenningarinnar við grunnlitaspurningum Newtons og förum lauslega yfir helstu þætti tímabils fyrstu sekúndu sköpunarinnar, sem liggja handan við lok fæðingar tímans (sekúndu 10) og Miklahvell (sekúndu 10). Þetta eru Venn-mengi (Venn-sets) rökfræðinnar sem lýsa stuttlega tilurð þeirra þriggja skammtabylgna (quantum waves) sem QF-kenningin segir að liggi til grundvallar öllu efni (ekki orku), en þær verða til áður en Miklihvellur hefst.

Þar sem QF-kenningin er sett fram í myndrænni mengjastærðfræði (set-math), en ekki í hefðbundinni deildareikningsstærðfræði (uppfinningu Newtons), er hún aðgengileg til almenns skilnings án 20 ára háskólanáms. Við byrjum því á því að sýna eina mynd sem gefur til kynna hvernig Venn-mengjaefni það sem á eftir kemur lítur út í formlegri stærðfræði. Síðan koma 6 QF-myndir mengjastærðfræði John Venn sem sýna sköpunina í mikilli einfaldleika; þ.e. miðað við hefðbundna stærðfræði.

Er grundvallarniðurstaða QF-kenningarinnar sú að ALLAR efniseindir séu samsettar úr þremur bylgjum; ekki aðeins „þungeindirnar“ (baryons-hadrons) með sínar þrjár kvarkabylgjur. Þar með eru allar „létteindir“ (liptons) sömuleiðis með þrefalda bylgju. Ástæða þess að eðlisfræðin hefur ekki uppgötvað þetta er sú hve smáar létteindirnar eru og að í sköpuninni gáfu tvær bylgjanna megnið af massa sínum í eina bylgju — massabylgjuna — og eru þær því margfalt minni en hún.

(CALCULUS EQUATIONS). of Fig.. given by Hoge and
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/15_Calculusinn.gif
CC FILMS PJE 0216
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/16_Skopun-0.gif

Sköpun 0.

Til skilnings á Venn-mynda röklíkönum sköpunarinnar er bent á bókina Litla bókfellið (THE LITTLE SCROLL), sem er að finna undir THE UNIFICATION FILES á aðalefnisyfirlitinu (master index).

ILMS PJE 021. IMYNDADUR TÍMI CC FILMS PJE 0216 Dees. BOGNA RÚM
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/17_Skopun-1.gif

Sköpun 1.

ILMS PJE 021. cm 10 IMYNDADUR Tími t-14. CC FILMS PJE 0216 0.000.000.000.000.000.000.00. ÓENDANLEIKI OG EYLÍFÐ BYRTIST
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/18_Skopun-2.gif

Sköpun 2.

CC FILMS PJE 0216. CC FILMS PJE 0216. ER GEFIÐ TIL KYNNA MEÐ. BYRTINGU HINNAR FYRSTU. SKAMMTABYLGJU SEM ER. Ww BYLGJAN ER SPINNUR TIL. HÆGRI OG ÚT FRÁ MIÐJU EINELDISINS
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/19_Skopun-3.gif

Sköpun 3.

CC FILMS PJE 0216. Us CC FILMS PJE 0216 110. HÉR BYRTIST SVO SKAMMTABYLGJA. SEM ER HINN HELMINGUR. ER SPINNUR TIL VINSTRI. OG INN
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/20_Skopun-4.gif

Sköpun 4.

CC FILMS PJE 0216 QF-KENNINGIN. 10 CC FILMS PJE 0216. TVAER GRUNDVALLAR SKAMMTA BYLGJUR ALHEIMSINS:
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/21_Skopun-5.gif

Sköpun 5.

CC FILMS PJE 0216 F-KENNINGIN. CC FILMS PJE 0216. from cm 10 begin. ÞRIÐJA BYLGJAN ER. úr oG
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/22_Skopun-6.gif

Sköpun 6.

TÍMI SEKUNDA 10“ ILMS PJE 02 insion to estimated cm
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/23_Stori-Hvellur-7.gif

Sköpun 7.

Hér eru grunnlitir náttúrunnar fullskapaðir.

CC FILMS PJE 0216. TÍMI SEKÚNDA 10. CC FILMS PJE 0216. HINAR FULL PONDU. BIRTA SKAMMTA. BYLGJU ALHEIMSINS. FÆÐINGU TÍMANS.
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/24_Skopun-8.gif

Sköpun 8.

QF-KEN FO CC FILMS PJE 0216. Eh Eh SET. symbol Se. Au NL Exons Introns EN LO. Tp WE NR EA TAT
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/25_Kenningin-um-Alt-9.gif

Sköpun 09.

CC FILMS PJE 0216. CC FILMS PJE 0216. STÖÐUR OG SAMVIRKNI. SEM MYNDA HIÐ. EINFALDASTA ATOM
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/26_Vetnisatomid-10.gif

Sköpun 10.


Skýring QF-kenningarinnar á mismun blendibanda?

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/27_Lion-and-Unicorn.gif
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/28_Unicorn-Rainbow.gif

Í skjaldarmerki bresku krúnunnar er að finna ljón og einhyrning. Segja sumir Ríkarð Ljónshjarta vera ljónið og Newton einhyrninginn. Eru meðfylgjandi myndir því hér viðeigandi er við byrjum könnun litasamsetningar regnbogans með gátunni: Hver er sá veggur víður og hár, veglega settur röndum, gulur, rauður, grænn og blár, gerður af meistarans höndum?

Svo segir gátan, en sérstakrar athyglisgáfu er þörf til að grípa þá staðreynd að ekki er sagt: Gulur, appelsínugulur, rauður, grænn og blár. Þarf hér athyglisgáfu náttúruspekinga eða eðlisfræðinga til þess að veita slíku smáatriði eftirtekt. Enn færri gera sér grein fyrir því að í skýringunni á því hvers vegna appelsínugula blendibandið er ekki til staðar er að finna eitt þýðingarmesta innsæi í grundvallarbyggingu alheimsins.

Til skilnings á því hvað QF-kenningin segir okkur um ástæðu þess að aðeins er um eitt breitt blendiband að ræða í regnboganum OKKAR er gott að við byrjum á því að gera okkur ljóst að regnboginn OKKAR er efnisregnbogi, en ekki andefnisregnbogi. Hér höfum við mynd sem sýnir okkur báðar tegundir þessara regnboga, en þann síðarnefnda er ekki að finna hér á jörðu.

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/29_Matter-Antimatter-Rainbo.gif
eru skornar. opnar þannig að
ICELANDIC_FILES/QF-F-11/30_Elect-Posit-Match.gif

Endanleg skýring á leyndardómi regnbogans.

Í menginu fyrir rafeindina kemur fram að tvær af þremur skammtabylgjum þeim sem mynda efniseindina eru að sveiflast ÚT, en það eru sú gula og sú bláa, en sú rauða sveiflast aftur á móti INN. Þessar tvær bylgjur hafa því tíma og virkni sem leyfir þeim að blandast og mynda græna blendibandið. Sú rauða sveiflast INN og hefur því hvorki tíma né virkni til að blandast þeirri gulu og mynda appelsínugult blendiband. Þetta er uppsetning náttúrunnar fyrir allar efniseindir (fermions) og er henni snúið við í öllum atriðum í andefniseindunum eins og fram kemur í mengi andefniseindarinnar til hægri.


Á landi regnbogans.

ICELANDIC_FILES/QF-F-11/31_Land-Regnbogans.gif

Til að finna hina endanlegu skýringu á regnboganum verða menn að fara þangað sem tekið er á móti þeim með listaverki í formi regnboga.

Hér er ekki um að ræða það sem við köllum tilviljun, heldur stjórnun þess raunveruleika sem upphaflega setti alheiminn af stað, kom lífi á jörðina og sem Newton leit á sem stjórnanda allrar atburðarásar. Newton var því þeirrar skoðunar að engar tilviljanir væru til; einungis mismunandi skilningur okkar mannanna á upphafi orsakaferlisins og mismunandi túlkun okkar á raunveruleikanum. Rúrí: Regnboginn á landi regnbogans.

Mjög fáir hafa lesið Newton og er það vegna þess að til að skilja hann er krafist menntunar. Hins vegar eru margir áfjáðir í að tala um hann, en til þess þurfa menn ekkert að vita. (Tileinkað höfundi fyrirlestursins)

Voltaire.

Skrifað á sólnánd (perihelion) 2007.

(Sólnánd = dregið af grísku yfir „næst sólu“, en sá dagur er 4. janúar fyrir jörðina. Fjórði janúar er fæðingardagur Newtons).


Hafi ég séð lengra en aðrir, þá er það fyrir þær sakir að ég stóð á öxlum risa. Tilvitnun frá: Sir Isaac Newton


Í tengslum við lestur þennan er lesandanum sérstaklega bent á síðuna QF-R — 09 í þessum greinaflokki, en hún fjallar um náskylt efni og er vefslóðin eftirfarandi:

http://www. peace-files. com/ICELANDIC_FILES/QF-B-09/01_QF-Samkendarstodin. html


Áður birtar tilvitnanir í ritgerðum og greinum:

http://www.pbs. org/wgbh/nova/elegant/program. html http://www.bbc.co. uk/science/horizon/2001/paralleluni. shtml http://www.bbc.co. uk/science/horizon/2003/godonbrain. shtml http://www.visindavefur.hi. is/index. asp? url = svar. asp? id = 3947 http://kevxml2 a.infospace. com/_1_300313__info. alltel/health/hlt-story. htm & qid = 517182 & qt = 1


Þessi heimasíða er enn í fæðingarhríðum og verður væntanlega sett upp af kunnáttumanni, framtíðarvefstjóra PEACE-útgáfunnar ehf., sem hefur mögulega störf í ágúst 2007.

Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir, tillögur eða kvartanir sem hann vil koma á framfæri, hvort heldur sem er af jákvæðum eða neikvæðum toga, mun bráðabirgðavefstjóri okkar taka við þeim og koma þeim til skila á réttan stað. Hér eru netföng sem nota má til að senda slík skilaboð áfram: