PowerPoint-fyrirlesturinn
ALKAÞRAS
Fyrirlestur í sex hlutum sem fjallar um skammtafræðilegar (quantum mechanical) og líffræðilegar orsakir og afleiðingar neyslu mannsins á áfengi og öðrum hugbreytandi efnum, löglegum sem ólöglegum. Sjúkdómur sá sem af þessu leiðir er í dag ýmist kallaður: Alkóhólismi, mengun mannsheilans eða boðefnasvindl mannsins. Hér kemur fram í fyrsta skipti í mannkynssögunni skýring á virkni taugaánetjunarsjúkdóma og lausn þeirra til bata, en fyrirlesturinn samanstendur af:

Hér á titilskyggnu annars hluta fyrirlestrarins höfum við stillt upp þremur þekktustu táknum mannsins fyrir vitundarjafnvægið, en þau eiga að sjálfsögðu upptök sín í trúarbrögðunum. Táknunum er stillt upp innan Venn-mengis (Venn-set) sem er sprottið af grundvallarbyggingu mannsheilans (Human Brain), en hér táknar blái liturinn neikvætt efnis-ÉG-svið hans, en rauði liturinn jákvætt rúms-VIÐ-sviðið. Í miðjunni sjáum við hið kunna austurasíska tákn fyrir Yin og Yang, en í uppsetningunni tökum við táknin í sundur til að sýna hvernig þau eru byggð upp af tvöföldum heila og tvöfaldri vitund, sem renna síðan saman í auga mengisins þar sem táknið verður heilt. Athyglisvert er að Yin og Yang-táknið sýnir brot af Yin í Yang og Yang í Yin, sem er að sjálfsögðu vísbending um almyndaeðli þeirra. Vinstra megin er svo hakakrosstáknið sem kemur frá Indlandi, en Rómverjar notuðu táknið heilt og kom það fyrir á myntum þeirra. Neikvæði hluti táknsins er hvað þekktastur sem tákn nasismans og átti það vel við þar sem það táknaði hreinan egóisma. Áður hafði Eimskipafélag Íslands tileinkað sér neikvæða hluta táknsins, en Guðspekifélagið hinn jákvæða hluta þess. Hin sexhyrnda stjarna er upprunnin í hindúisma, en gyðingdómur og síðar kristni og íslam hafa tileinkað sér hana. Það vekur því jafnframt sérstaka athygli að Samtök óvirkra alkóhólista (Alcoholics Anonymous) hafa – af okkur ókunnum ástæðum – tileinkað sér jákvæðu hlið táknsins og á það einstaklega vel við.
Hér endurtökum við ábendinguna sem kemur fram í byrjun hluta þessa fyrirlestrar varðandi líkön sameindalíffræðinnar (Molecular Biology) og QF-kenningarinnar (QF-theory) á starfsemi mannsheilans og starfstruflunum sem í honum koma fram. Þetta er gert til að leggja áherslu á að án þessa mismunar er líkanið sem hér er sett fram – QF-líkanið (QF-model)–með sitt víðtæka svið skýringa á starfsemi heilans, ekki mögulegt. Grundvallarmismun þessara tveggja líkana er að finna í þeim þremur þáttum sem QF-líkanið býður upp á umfram hin hefðbundnu líkön, en þeir eru:
Hið fyrsta nýja innsæi:
QF-líkanið kynnir ný tvíþætt og jafnskipt hlutverk kirnanna í öllu genamengi pýramídafrumna í vitundarsviði heilans, þar sem annað kirnusviðið framkallar örvandi taugaboðefni en hitt hemlandi taugaboðefni. Þetta er sýnt í fyrsta hluta, skyggnum #2 - 05, #2 - 06, #2 - 07, #2 - 09 og skyggnu #2 - 19, og í öðrum hluta, skyggnu #3 - 09.
Annað nýja innsæið:
QF-líkanið kynnir ný tvíþætt almyndalíkön (hólógrafísk) af vitundarsviði heilans sem geymir hugsanirnar í formi almynda-ljóseinda og samræmir jafnframt virkni stýrigena og klippisameinda við taugaboðefnaframleiðsluna.
Þetta er sýnt í fyrsta hluta, skyggnum #2 - 14 og #2 - 15.
Þriðja nýja innsæið: QF-líkanið kynnir ný tvíþætt almyndalíkön (hólógrafísk) af grunnraunveruleika forrits heilans sem geyma stjórnunarforrit fyrir frumustarfsemina og afritun prótínuppskrifta erfðakóðans. Þetta er sýnt í fyrsta hluta, skyggnum #2 - 15, #2 - 16, #2 - 17 og #2 - 19.
Hvað átt er við með þeim hugtökum sem hér eru notuð mun koma fram í fyrirlestrinum, en hér í þessum hluta er sérstök áhersla lögð á þessar skýringar.
Frekari mismun á þessum tveimur líkangerðum er að finna í þeirri staðreynd að líkön sameindalíffræðinnar hafa ekki fram að færa neinar afgerandi, samfelldar og heilsteyptar skýringar á grundvallarstarfsemi heilans og nánast engar afgerandi skýringar á vitundinni (consciousness). Þau bjóða heldur ekki upp á skýringar á þeim grundvallarrökunum sem fram koma í hinum mikla fjölda starfstruflana heilans: Geðröskunum, geðsjúkdómum og ánetjunarsjúkdómum. Þar er heldur ekki að finna skýringar á hugsuninni sjálfri, formi hennar eða minnisgeymslu og endurheimt minninga. Þetta eru hins vegar þættir sem QF-líkön (QF-models) af mannsheilanum geta skýrt og bent á frumorsakir fyrir.

Hér höfum við einfaldasta mögulega yfirlitsrit yfir stjórnun á raunveruleikaskynjun heilans, en þungamiðja þessarar stjórnunar felst í innihaldi vitundarbylgjunnar. Þar sem vitundarbylgjan er til staðar innan allra kirnapara DNA-sameindanna, þýðir það að raunveruleiki vitundarbylgjunnar er jafnframt raunveruleiki allra taugafrumnanna í sjálfu vitundarsviðinu. Það er svo í taugafrumunum sem taugaboðefnin, sem stilla af vitundarástandið, eru framleidd, en hvað okkur varðar hér í þessum fyrirlestri eru þau einungis af tvennum toga. Þau eru annaðhvort örvandi taugaboðefni eða hemlandi taugaboðefni, og um engin önnur er að ræða. Í taugafrumunum starfa svokölluð stýrigen og klippisameindir sem velja í hvert sinn hvaða taugaboðefni skuli framkalla, og ræðst það af innihaldi hugsana í hinni tvöföldu vitundarbylgju. Hér ættu þeir sem iðka 12 — spora kerfi AA-samtakanna að vera sérstaklega meðvitaðir um þá staðreynd að hugsanirnar og vitundarástandið, einkum hvað varðar fundasóknina, stýra taugaboðefnaframleiðslunni fyrir vitundina og þar með andlegri líðan. Flestir eru hins vegar ómeðvitaðir um hvað ræður taugaboðefnaframleiðslu heilans og þar með raunveruleikaskynjun hans, en hér er um að ræða hvernig tekið er á móti atburðarás umhverfisins inn í vitundina. Andlegt ástand manna ræðst svo af þessu. Þetta þýðir að ef einn þáttur í þessu ferli breytist, þá breytast allir hinir, en þekktasta dæmið um slíkt eru inngrip mannsins sjálfs í taugaboðefnabirgðir heilans með hvers kyns gervi- eða svindlboðefnum, sem síðan breyta vitundinni og forritun genanna.

Skýringarmyndin af frumunni sem hér birtist getur sýnt hvort sem er veffrumu eða taugafrumu, en hér göngum við út frá því að hún sýni dæmigerða taugafrumu. Í miðju frumunnar er sívalur, rauður kjarni sem geymir DNA-sameindina, þar sem stöðugt er verið að afrita röðina af hinum lífrænu ACGT-bókstöfum lífsins sem mynda genin, en í taugafrumum eru þetta forritin fyrir taugaboðefnunum. Afrit þessi nefnast mína, eða boðbera-RNA, og berast þau út um op á kjarnanum þar sem flóknar sameindir sem nefnast ríbósóm (ribosomes) taka á móti þeim. Ríbósómin lesa síðan mRNA-röðina og raða saman prótínum með aðstoð tRNA-sameinda, eða flutnings-RNA, til að framleiða viðkomandi taugaboðefni. Þegar taugaboðefnið er tilbúið getur taugafruman átt í viðskiptum með það við nágrannafrumur sínar og um leið breytt rafhleðslupólun þeirra. Taugaboðefnin eru hins vegar fyrst og fremst næring; örvandi boðefni virka sem eins konar starfsorkueining en hemlandi boðefni sem viðhaldsfæða. Bent skal á að sum frumulíffæranna milli frumuhimnunnar og kjarnans virka sem eins konar geymsluhólf, en þau geta fyllst af kannabisolíu og lyfjaleifum sem erfitt reynist að losna við, þótt það gerist stundum með útskilnaði sem fylgir lögmálum helmingunartíma geislavirkni.

Hér sjáum við í frekari smáatriðum ferlið við framleiðslu prótína og taugaboðefna. Við hefjum athugunina á stýrigeninu sem kemur og binst við DNA-spíralinn þar sem afritun á að hefjast, en við það opnast spíralinn. Þá streyma að efni til uppbyggingar afritsins, svonefnds hnRNA-afrits, sem gengur síðan út úr DNA-spíralnum. Þar tekur hin stórundursamlega klippisameind á móti afritinu, klippir burt innraðir (tintrons) og splæsir síðan tröðum (exon) RNA-keðjunnar saman, sem myndar þá hreina mRNA-boðberakeðju. Þegar keðjan berst síðan út úr kjarnanum taka ríbósómasameindirnar á móti henni og hefja lestur afritsins, og raða saman prótínum með hjálp tRNA-sameinda til að mynda það taugaboðefni sem á að byggja. Keðjan sem myndast fellur í ákveðið form þegar smíði hennar er lokið og verður þannig að fullbúinni afurð.
Í þessari atburðarás koma fram þrjú stórmerkileg stjórnunarferli sem vísindin hafa enn ekki skýrt til hlítar, en áður var talið að um eins konar blinda og vélræna rafsegulefnavirkni væri að ræða. Hér er spurt: Hvað stjórnar stýrigeninu og klippisameindinni? Hvað stýrir lögun prótínkeðjunnar? Lengi vel var talið að einhvers konar forritun væri í stýrigeninu sjálfu sem réði aðgerðum þess, en þegar stýrigen sem býr til auga á ávaxtaflugu var sett í fósturvísir úr mús, og um leið var stýrigeni sem myndar auga músar komið fyrir í fósturvísi flugunnar, uxu rétt augu á hvora lífveru fyrir sig. Þetta sýndi að stjórnunin hlýtur að koma annars staðar frá. Hvað varðar taugaboðefnaframleiðslu heilans er skýring QF-kenningarinnar sú að stjórnun stýrigensins í vitundarhluta heilans ráðist af innihaldi hugsananna í hinni tvöföldu vitundarbylgju. Spurningin um hvað stjórnar klippisameindinni er svo flókin að við skoðum hana sérstaklega hér á eftir. Formmyndun prótína hefur verið talin stjórnast af rafhleðslu sameindanna sem keðjuna mynda, en nýjar rannsóknir sýna að svo einfalt er málið ekki og að eitthvað meira búi að baki. Þetta tengist rannsóknum á taugasjúkdómum á borð við riðu í dýrum og Creutzfeldt-Jakob-sjúkdóm í mönnum, þar sem rétt lögun prótína hrynur og myndar svokölluð príonprótín.
Í taugaánetjunarsjúkdómum er taugaboðefnaframleiðsluferlið gallað hvað varðar framleiðslu á taugahemlum, og neyðist hinn ánetjaði þá til að neyta gervi- eða falskra taugahemla. Ljóst er að hér er um að ræða einhvers konar truflun á starfsemi stýrigenanna og eða klippisameindanna, og er markmið okkar að gera nánari grein fyrir þessu í kaflanum um ánetjaðir.

Það vakti líffræðingum mikla furðu þegar í ljós kom að sama kirnaröðin, eða sama genið, var afrituð margsinnis og síðan klippt til á mismunandi vegu, og þannig framkölluð mörg ólík prótín eða taugaboðefni. Hér er til að mynda þekkt öfgadæmi þar sem sama genið er afritað allt að 38.016 sinnum og síðan klippt í mismunandi mína. Þetta leiddi í ljós að mögulega voru ekki allir sjúkdómsvaldandi erfðagallar bundnir við ranga kirnaröð eða einstök gölluð kirni, heldur gætu þeir átt upptök sín í rangri klippingu á hnRNA-afritinu. Þessi uppgötvun, ásamt endanlegri tölu yfir fjölda kirna og gena, leiddi til mikils verðfalls á hlutabréfum líftæknifyrirtækja á mörkuðum.
Þar sem ljóst var að ekki var um blinda rafsegulefnafræðilega virkni að ræða í starfsemi stýrigenanna og klippi- og splæsisameindanna, heldur einhvers konar valstjórnun eða fylgni við forrit, fóru rannsakendur að leita uppruna þessarar stýringar. Enn hefur stýring klippi- og splæsisameindanna ekki fundist, þótt margar athyglisverðar tilgátur hafi komið fram. Hvað varðar starf klippi- og splæsisameindarinnar er það eflaust dularfyllst af stóru spurningunum þremur um stjórnun frumustarfseminnar: Hvað stjórnar stýrigeninu? Hvað stjórnar klippi- og splæsisameindinni? Hvað stjórnar lögun prótínanna? Þegar að verki klippi- og splæsisameindarinnar kemur líta öll útraðakirni og innraðakirni nákvæmlega eins út fyrir vísindamönnunum. Við getum einungis greint þessar sameindir sem hluta af þeim 3.200 milljónum ACGT-kirna sem mynda DNA-sameindina. Hvernig klippi- og splæsisameindin veit hvað telst útröð og hvað innröð, eða hvað skuli klippa og hvað ekki, er óráðin gáta; það er einmitt með því að skoða afleiðingarnar af starfi hennar sem við greinum muninn á tröðum og innröðum. Svarið sem QF-kenningin setti fram strax árið 1993 — meðan á mótun hennar stóð — er að innan hvers frumukjarna sé sérstakt rafsegulsvið, hliðstætt vitundarsviði heilans, og að í venjulegum líkamsfrumum berist stýringin úr forritum innrauða gegnum þessa bylgju. Í taugafrumum vitundarsviðs heilans berist stýring stýrigenanna hins vegar úr forritum bæði itraða og innrauða gegnum vitundarbylgjuna. Það varð því mikill stuðningur við QF-kenninguna og QF-healalíkön (QF-brainmodels) þessa fyrirlestrar þegar vísindamennirnir, sem unnið höfðu að kortlagningu genamengisins, fóru að ræða þessar spurningar við formleg verklok, en við munum líta lauslega á þær næst.

Í febrúar árið 2001 birtu bandarísku rannsóknarverkefnin tvö, The Human Genome Project og Celera Genomics, niðurstöður sínar um kortlagningu genamengisins. Þar kom fram að genafjöldinn sem þurfti til að mynda mannslíkamann var einungis um 30.000 til 35.000 gen, en jafnframt kom í ljós að aðeins 3% til 5% af þeim 3.200 milljónum kirna í DNA-sameindinni voru nýtt í þær útraðakeðjur sem mynduðu genin. Skýringin á þessum fábreytta fjölda gena fólst í margföldu afriti sömu genanna. Enn fremur vakti hinn mikli fjöldi innrauða á móti örfáum tröðum mikla undrun, ásamt því að hinar stuttu útraðakeðjur reyndust fleiri en innraðakeðjurnar, sem voru mjög langar. Ekki var lengur hægt að afgreiða innraðirnar sem einhverjar leifar frá þróunarsögunni. Vísindamenn tóku því að halla sér að sömu niðurstöðu og QF-kenningin: Að stjórnun frumustarfseminnar byggi í innröðunum. Sú kenning samræmist fullkomlega hugmyndum QF-kenningarinnar um að stjórnun frumunnar og þar með lífsins sjálfs sé nánast alfarið fólgin í innröðunum, en raunveruleiki þeirra er eðli málsins samkvæmt sá sami og innrauða í taugafrumum vitundarsviðs heilans. Á skyggnu #3 - 06 sjáum við yfirlýsingu vísindamanna frá öðru fyrirtækjanna sem annaðist talninguna og kortlagninguna, en hún endurspeglaði niðurstöður beggja. QF-kenningin hafði átta árum áður komist að þessari sömu niðurstöðu, og var þeirri yfirlýsingu því fagnað ákaft af aðstandendum hennar. Er það ástæða þess að hún er sýnd hér á skyggnu #3 - 06. Meginástæðan fyrir þessari umfjöllun er sú að raunveruleiki innraðanna er jafnframt raunveruleiki rúmsins, og samkvæmt QF-kenningunni er hann sköpunar- og stjórnunarraunveruleikinn – sá raunveruleiki sem menn nefna æðri mátt (Higher Power) eða Guð. Þetta er grundvöllurinn fyrir því að QF-kenningin teflir fram orsaka- og stjórnunarforriti innrauða á skyggnu #2 - 19 og skyggnu #3 - 19, en á fyrri skyggnunni var nánari skýringum á þessu forriti sleppt þar til fjallað hefði verið um efnið sem hér kemur fram.
Sameindalíffræðingurinn dr. Rupert Sheldrake hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að stjórn frumunnar stafaði frá rúminu, og vert er að minna á að alheimurinn sprettur einmitt fram úr rúminu í Miklahvelli (Big Bang) á minna en einnig sekúndu. Hér standa menn jafnframt frammi fyrir hinni aldagömlu spurningu: Hvað er líf? Við skoðum það nánar á næstu skyggnu.

(Hér kemur myndbandsbrot #06)
Spurningin um teikningu, hönnuð og byggingameistara lífverunnar birtist hvergi skýrar en við athugun á getnaði, frjóvgun eggsins og þroskaferli þess frá fósturvísi til fósturs. Fyrstu þrjá til fjóra dagana skipta frumurnar sér án nokkurrar sérhæfingar; þær eru allar nákvæmlega eins og stýrigen þeirra eru ekki farin að starfa. Þetta eru fósturstofnfrumur sem læknavísindin binda miklar vonir við að megi nota til viðgerða á mannslíkamanum, einkum taugum og hjartavef. Á þriðja til fjórða degi, þegar um 100 til 300 frumur hafa orðið til við frumuskiptingu, gerist undrið: Stýrigenin hefja störf og frumurnar taka að sérhæfast og móta fóstur. Ein fruman tekur til við að mynda miðtaugakerfið, önnur hjarta- og æðakerfið, sú þriðja hrygg og höfuðkúpu utan um mænu og heila, og svo koll af kolli. Í þessu ferli verður hvert einasta stýrigen í sérhverri frumu að hefja störf í fullkomnum takti við stýrigenin í hinum frumunum, annars verður útkoman vansköpun. Þetta er eitt stórkostlegasta undur allrar sköpunarinnar. Hér er engum verkstjórnarfrumum til að dreifa, og telja vísindamenn nú líklegt að öllu ferlinu sé stýrt úr innröðunum, en einmitt þetta spáði QF-kenningin fyrir um árið 1993. Ástæðan fyrir því að þetta er tekið fyrir hér er sú að raunveruleiki innraðanna, sem skilgreindur er sem orsaka- og sköpunarraunveruleikinn, er einnig til staðar í innröðum DNA-sameinda í taugafrumum heilans, þar sem þær mynda meðal annars trúarmiðstöð hans. Þetta er sá raunveruleiki sem við nefnum æðri mátt eða Guð, og eins og við munum sjá í næsta hluta fyrirlestrarins hættir hann að starfa rétt í vitundarlífi okkar við neyslu á svindlboðefnum, hvort sem um alkóhólisma er að ræða eða ekki.

Rökrétt er að skipta taugaboðefnaframleiðslu heilans í tvo flokka: Annars vegar taugaboðefnaframleiðslu ósjálfráða taugakerfisins, sem er fyrsti taugaboðefnavettvangurinn – boðefni lífsins; og hins vegar taugaboðefnaframleiðslu raunveruleikaskynjunar og svörunar heilans sjálfs, sem er annar taugaboðefnavettvangurinn – boðefni vitundarinnar.
Hér skoðum við fyrsta taugaboðefnavettvang taugakerfisins — boðefni lífsins — sem felur í sér framleiðslu á boðefnum ósjálfráða taugakerfisins, en það hefur ætíð forgang að öllum taugaboðefnum enda heldur það lífinu gangandi. Þessi boðefnaframleiðsla fer fyrst og fremst fram gegnum heiladingulinn, sem stjórnað er af taugamiðstöðvum stúku og undirstúku efst á mænukylfunni, en þar er einnig taktmælir lífsins staðsettur. Samhliða eru heilahvelin tengd þessum taugastöðvum og geta haft áhrif á virkni þeirra og taugaboðefnaframleiðslu heiladingulsins, sérstaklega þegar um hvatasvörun er að ræða í vitundinni. Truflun á starfsemi rúmskynjunarhluta heilans hefur síðan áhrif á boðefnaframleiðsluna og veldur alls kyns taugaveiklunartruflunum, þar sem magabólgur og magasár eru þekktust. Starfsemi stúku, undirstúku og heiladinguls fer að mestu leyti fram á meðan við sofum, og má því með réttu segja að dagurinn byrji þegar við förum að sofa frekar en þegar við vöknum. Næsti dagur ræðst mikið af því hvernig til tókst með svefninn, og sést hér vel að heilbrigður nætursvefn er lykilþáttur í grundvelli heilbrigðs vitundarástands og lífs.
Á miðöldum fólst einhver grimmasta pyntingaraðferðin í því að svipta menn svefni með því að krúnuraka þá og festa í grind sem hélt þeim í fastri stellingu. Síðan var stór vatnsdropi látinn falla með reglulegu millibili á hvirfilinn. Fólk sem sætti þessu fékk næringu en engan svefn, og eftir um það bil tíu daga tóku ofskynjanir að gera vart við sig, síðan áfengisóráð (delirium tremens) sem leiddi til dauða eftir rúmar tvær vikur. Um miðja tuttugustu öld var gerð rannsókn á læknanemum í Bandaríkjunum (United States) sem neituðu sér sjálfviljugir um svefn, en þeir voru teknir út úr tilrauninni þegar þeir fóru að sýna einkenni áfengisóráðs. Þar kom í ljós að þegar taugaboðefnakerfi ósjálfráða taugakerfisins tæmdist af boðefnum fór það að ganga á birgðir heilans, sem varð þá bremsulaus og tók að ofskynja, en það er einmitt það sem gerist á lokastigum alkóhólisma.

Hér sjáum við aftur hina tvöföldu almyndauppsetningu af vitundarsviði heilans, þar sem gefið er yfirlit yfir annan taugaboðefnavettvang taugakerfisins — boðefni vitundarinnar, sem stjórna vitundarástandi og raunveruleikaskynjun. Hér er það útraðahlið kirnanna í DNA-stiganum sem sér um starfsemina í efnishveli raunveruleikans og er jafnframt ráðandi í framleiðslu örvandi taugaboðefna. Á móti kemur innraðahlið kirnanna í DNA-stiganum, sem annast starfsemina í rúmhveli raunveruleikans og ræður framleiðslu hemlandi taugaboðefna. Í krafti hinnar tvöföldu gormbyggingar DNA-sameindarinnar verður heilinn að tvöföldu almyndakerfi. Þetta merkir að í efnishveli raunveruleikans er jafnframt til staðar innraðaforrit rúmhvelsins, sem stýrir framleiðslu hemlandi taugaboðefna. Þetta er bakgrunnsboðefnakerfi efnishvelsins. Hið gagnstæða gildir svo um rúmhveli raunveruleikans, þar sem útraðaforrit efnishvelsins stýrir framleiðslu örvandi taugaboðefna. Það er bakgrunnsboðefnakerfi rúmhvelsins.
Heildarniðurstaðan af þessu fyrirkomulagi er sú að í heilbrigðum heila, án nokkurra starfrænna truflana, framleiðir efnishveli útrafanna einkum örvandi taugaboðefni en getur einnig framkallað hemlandi taugaboðefni. Á hinn bóginn framleiðir rúmhveli innraðanna fyrst og fremst hemlandi taugaboðefni, en getur einnig framkallað örvandi taugaboðefni. Með öðrum orðum: Í heilbrigðum heila getur hvort hvel um sig framkallað bæði örvandi og hemlandi boðefni eftir þörfum hverju sinni.

Samkvæmt QF-kenningunni myndar rafsegulbylgja vitundarinnar í vitundarsviði heilans tvöfalda bylgju sem sveiflast af gríðarlegum hraða inn og út um V-póla tómarúmsins. Sveiflan milli efnis- og andefnishliða rafsegulsviðsins er samtímis í tengslum við báða raunveruleika genanna – traðir og innraðir – en undir venjulegum kringumstæðum skynjum við þessa tvo raunveruleika sem einn. Þessari mynd er ætlað að veita heildstætt innsæi í hvernig þessu er háttað í heilanum, og bent er á að samkvæmt QF-kenningunni á þetta sér einnig stað, í miklu smækkaðri mynd, í DNA-sameind sérhverrar frumu líkamans.

Byggt á skammtafræðilíkönum sameiningarkenningarinnar (Complete Unification Theory) í QF-eðlisfræði sem kom út árið 2002, halda QF-healalíkönin því fram að „ÉG-skynjunar - “ og „VIÐ-skynjunar - “ svið heilans séu staðsett eins og fram kemur á skyggnu #3 - 11. Þetta er annars vegar brennipunktur fyrir útraðakirnin í DNA-sameindum efnis-ÉG-heilahvelsins, og hins vegar innraðakirnin í DNA-sameindum rúms-VIÐ-heilahvelsins. Í daglegu lífi eru þetta hinir ráðandi taugaboðefnapólar vitundarsviðs heilans, en hjá nútímamanninum er VIÐ-skynjunarhliðin yfirleitt illa starfandi eða jafnvel óvirk með öllu (einhverfa). Í QF-kenningunni um heilann stafar þessi truflun af uppsöfnuðum starfrænum kvillum sem í kenningunni eru nefndir filter, sem getur verið ýmist arfgengur eða áunninn, og er fullyrt að hann valdi aragrúa sjúkdóma og fyrirbæra. Þar á meðal eru óskyld fyrirbæri eins og einhverfa og hin að því er virðist ótengda upplifun Déjà vu, sem og ALLIR tölfræðilegir sjúkdómar mannsins. Déjà vu-upplifunin er af kenningunni talin vera augnablikstruflun í VIÐ-skynjunarhlið heilans (Déjà vu merkir: „Ég hef séð þetta áður“ og tengist upplifuninni: „Hafi ég séð þig áður, mun ég þekkja þig og sýna þér samkennd“). Orsakir þessara starfrænu truflana eða galla, uppsöfnun þeirra og flutningur milli kynslóða (sem skoðað er nánar í þriðja hluta fyrirlestrarins) eru meginviðfangsefni QF-kenningarinnar, en truflun af þessu tagi er frumorsök allrar andfélagslegrar hegðunar mannsins. Flestir viðurkenna þá staðreynd að maðurinn er í grunninn félagsvera og að forfeður okkar — og þar með við sjálf — hefðu ekki lifað af þróunarsöguna án þess að halda hópinn. Samt sem áður er full ástæða til að ætla að ef forfeður okkar hefðu haft sömu félagslegu eiginleika og nútímamaðurinn — eiginleika sem mótað hafa sögu nútímans og krefjast laga og löggæslu til að halda samfélaginu saman — þá sé harla óvíst að við hefðum lifað af þróunina og værum hér í dag. Sú hugmynd að stríð ýti mest undir tækniþróun er hér dregin mjög í efa. Það er miklu fremur samstaðan og samvinnan sem átök stríðsins (hvort heldur heits eða kalds) þvinga fram hjá manninum. QF-kenningin heldur því hér fram að það séu filter-truflanirnar sem skapa þörfina fyrir lög og löggæslu til að halda samfélögum saman, en vestræn samfélög standa nú frammi fyrir sívaxandi rofi á lögum og reglu vegna kynslóðabundinnar veldisaukningar á uppsöfnuðum og arfgengum filter í innraðahlið DNA okkar. Hér er um að ræða ört vaxandi vanda sem vísindamenn okkar hafa ekki hugmynd um hvernig eigi að útskýra, hvað þá hversu alvarlegur hann er. Filter-fyrirbærið er höfuðviðfangsefni þessa fyrirlestrar, og munum við skoða það rækilega í þriðja og fjórða hluta. Hér er verið að halda því fram að við höfum verið og séum enn að breytast sameiginlega að þessu leyti, en samkvæmt QF-kenningunni snýst þetta um jafnvægið milli starfsemi hinna tveggja umræddu taugaboðefnapóla heilans, sem ákvarða andlegt ástand einstaklinganna og þar með samfélagsins í heild. Þessi taugavirkni birtist í hinu kunna boðorði Krists, þar sem hann mælti svo fyrir að vér skyldum elska Guð og náungann eins og sjálf okkur. Í þessum lærdómi sem öðrum verða kenningar Krists að taugaboðefnastjórnandi kjarna allrar skammtafræðilegrar sálar- og lífeðlisfræði mannsins. Við ættum því öll að spyrja okkur: Hvað er ég að hugsa? , En samkvæmt QF-kenningunni er VIÐ-skynjunarsvið heilans samofið trúarsviði hans, eða Jamais vu-stöðvunum. Rétt væri því að uppfæra heimspekilegan grundvöll vestrænnar siðmenningar, en Descartes hitti ekki alveg í mark, þrátt fyrir jesúítamenntun sína, þegar hann sagði: „Cogito ergo sum“, eða „Ég hugsa, þess vegna er ÉG!“ Hann hefði náð mun meiri nákvæmni hefði hann sagt: ÉG hugsa VIÐ, þess vegna er ÉG! Athugasemdir til staðfestingar: Í júlí 2004–tuttugu árum eftir að höfundur þessara skjala gerði kennilega uppgötvun á VIÐ-skynjunarsviði heilans – birtu tveir ítalskir vísindamenn í Parma á Ítalíu, dr. Giacomo Rizzolatti og dr. Laila Craighero, grein í tímaritinu Annual Review of Neuroscience um tilraunaniðurstöður sínar í taugalíffræði varðandi það sem þeir nefndu spegilfrumur (MIRROR NEURONS). Ári síðar var farið að líta á þessar niðurstöður sem gríðarlega merkar og gengu sumir svo langt að jafna þeim við uppgötvunina á byggingu DNA-sameindarinnar, en flestir telja þær hafa úrslitaþýðingu fyrir framtíðarskilning okkar á mannsheilanum. Fyrir höfund QF-eðlisfræðisameiningarkenningarinnar og kenningarinnar um QF-heila (QF-brain) er þetta mikilvæg staðfesting á kenningasmíð hans, þar sem þessar niðurstöður falla að verulegu leyti að hugmyndum hans. Vísindamennirnir, sem komust að þessu fyrir tilviljun, túlkuðu starfsemi spegilfrumnanna í rúmskynjunarhluta heilans réttilega sem kærleiks- eða samúðarstöð heilans (Brain's Empathy Center). Þetta er einmitt það sem QF-eðlisfræðikenningin sá fyrir strax árið 1984, og birti fyrst árin 1993, 1998 og 2002. Árið 1993 var þessi niðurstaða tekin inn í QF-healalíkönin sem birtu þessar forspár og staðsettu spegilfrumu-samkenndarstöðvar rúmskynjunarhvelsins — sem kenningin nefnir VIÐ-skynjunarstöðvarnar — um það bil 0,5 sentimetrum aftar í heilaberkinum en hinar nýju skannamyndir sýna okkur. Aðalmismuninn á kenningasmíð QF-healalíkananna og niðurstöðum um spegilfrumur er að finna í túlkuninni á starfsemi efnishvelsins í heild sinni. Samkvæmt QF-healalíkaninu er brennipunktur þessa heilahvels í miðstöð ÉG-skynjunar heilans, sem jafnframt er Broca-málsvæðið. Eru þessar niðurstöður taldar mikilvægur stuðningur við hina samhverfu hlutverkaskiptingu í kirnum DNA-sameindarinnar eins og hún er kynnt í QF-healalíkaninu. Hin sérstæða aðferðafræði QF-kenningarinnar við að uppgötva þessar taugamiðstöðvar felst í því að beita skammtafræðilegum líkönum úr eðlisfræði á atburðarásina í fyrstu sekúndu sköpunarinnar, þar sem notuð er rökfræði Venn-mengja fremur en deildarjöfnur skammtreiknings. Lesandinn getur kynnt sér hina prýðilegu fréttaskýringu á NOVAscienceNOW þar sem þessi mikilfenglega uppgötvun er kynnt af hinum snjalla fréttamanni Robert Krulwich, en hún birtist fyrst hjá NOVA hinn 25. janúar 2005. Vefslóðin er eftirfarandi:
http://www.pbs. org/wgbh/nova/sciencenow/archive/

Við getum þá snúið okkur að því að skoða nánar hin margbreytilegu boðefnasamskipti, sem við nefnum hér viðskipti. Heilinn framleiðir yfir 300 mismunandi taugaboðefni úr prótínsameindum sem skiptast í tvo meginflokka hvað umfjöllun okkar hér varðar: Örvandi eða hemlandi boðefni. Á skyggnunni sjást tvær taugafrumur í ólíkum litum til aðgreiningar, en út frá frumubolnum teygir sig mikill fjöldi griplna (dendrites), og auk þess liggur frá honum langur sími (axon). Fjöldi þessara tengipunkta er venjulega um eitt hundrað en getur orðið allt að eitt þúsund. Það er í gegnum þessa anga, sem ná til aðliggjandi frumna, sem rafboð og efnaboð taugafrumnanna fara fram. Milli taugaendanna og aðlægrar taugafrumu er örlítið bil sem nefnist taugamót (synapses) eða boðskiptabil, en í þessum fyrirlestri er það kallað „snafsabilið“ þar sem það er einmitt þar sem truflandi áhrif svindlboðefna koma fram.
Hér er rétt að nefna einangrunina umhverfis síma taugafrumnanna sem kemur í veg fyrir að rafboðin tapist, en hún er mynduð úr sérstökum stoðfrumum sem vefja sig um símana. Það hendir að innraðaforrit ónæmiskerfisins raskist, og tekur kerfið þá að líta á þessar einangrunarfrumur sem hættuleg aðskotaefni, ræðst á þær og eyðir þeim. Þetta eru MS- og ALS-lömunarsjúkdómarnir.

Hér skoðum við taugaboðefnaskiptin í taugamótunum nánar, og sjáum hvernig rafboðin tekur með sér taugaboðefnin sem bíða í taugaendunum og flytur þau um útskilnaðarop yfir í viðtakaop á hinni tauginni, en þetta ferli umpólar um leið rafsegulhleðslu móttökutaugarinnar. Að loknu rafboðin tekur bakstreymi jöfnunarstraumsins með sér svokölluð endurupptökuboðefni, sem virka sem eins konar endurgreiðsla í þessum viðskiptum.

Ef litið er á skýringarmynd af uppbyggingu taugamótanna sjálfra kemur í ljós hvernig form eða bygging útskilnaðaropanna og móttökuopanna í taugaendunum passar við form sjálfra taugaboðefnanna. Með þessum hætti er stýrt hvaða boðefni berast til hvaða taugafrumna, en samt eru til margar efnasameindir sem ekki teljast boðefni en passa engu að síður í þessi op. Hér er alkóhólsameindin sérlega fjölhæf, þar sem hún virðist geta gengið í nánast allar gerðir viðtakaopa. Á skyggnunni sjáum við hvar boðefnastraumurinn ber með sér rauðbláu upphafsboðefnin, en bakslag afskotsins ber með sér gulgrænu endurupptökuboðefnin, sem einnig geta verið sömu boðefni og komu sem upphafsboð. Vísindin vita ekki með vissu hverjar heildarafleiðingar þessara taugaboðefnasamskipta eru, og eru kenningar þar að lútandi afar flóknar og umdeildar, en fullvíst er að þetta umpólar rafsegulhleðsluástandi móttökutaugarinnar. Samkvæmt QF-kenningunni er það einmitt þessi umpólun sem stjórnar raunveruleikaskynjuninni í þeim 24.000 til 30.000 milljónum taugafrumna sem vitundarsviðið myndar. Vegna hins gífurlega fjölda taugaenda á hverri frumu á þessi umpólun sér stað í þúsundum milljóna taugafrumna á hverri sekúndu vakandi hugsunar. Í QF-kenningunni opnar og lokar umpólunin útraða- og innraðakirnum eftir því sem við á um viðkomandi boðefni, þar sem hemlandi boðefni eru jákvæð en örvandi boðefni neikvæð. QF-kenningin lítur jafnframt á taugaboðefnin sem örvandi orkugjafa og hemlandi umbun fyrir vel unnin störf. Þetta er því dreifi- og umbunarkerfi heilans sem heldur taugafrumunum gangandi og lifandi.
Næstu þrjár myndir eru skýringarmyndir eftir teiknara sem sýna rafboða- og taugaboðefnasamskipti taugafrumna í mannsheilanum, en taugaendarnir og bilin á milli þeirra eru allt of smá til að hægt sé að ljósmynda smáatriði þeirra í smásjá, jafnvel með rafeindasmásjá.

Hér má sjá ferli eins boðefnaskots í einnig taugafrumu. Símar frumnanna eru rafboðabrautir sem flytja taugaboð yfir lengri vegalengdir. Mynd #1 sýnir eina af 24.000. 000.000 til 30.000. 000.000 pýramídafrumum í vitundarsviði heila okkar einhvers staðar í hinum þrívíða taugaskógi þess. Mynd #2 sýnir hvar rafboð berst eftir síma frá annarri pýramídafrumu neðst til hægri, sem veldur því að taugin sendir frá sér boð sem berst út í allar griplurnar eins og sýnt er á mynd #3, sem og út eftir símanum sem sést á mynd #4.
QF-kenningin heldur því fram að það sem ræður því hvort taugafruma í vitundarsviðinu gefur frá sér Rafskot sé hvort hún sé að taka við almyndaljóseindum til geymslu í minni eða að veita aðgang að slíkum eindum í DNA-byggingunni. Að sjálfsögðu geta upplýsingar í formi almyndaljóseinda einnig borist frá skynfærum og hvatastöðvum heilans. Í gegnum rafskotið fær fruman leyfi til að eiga í samskiptum og viðskiptum við nágrannafrumurnar, en það er grundvöllurinn að því að fruman fáni þrifist.

Þetta er ferli eins taugaboðefnaskots frá taugaenda frumu, og sést hér glöggt hvernig taugaboðefnin safnast saman í taugaendanum á mynd #1 þegar rafboð er í þann mund að fara í gegn, en mynd #2 sýnir þegar rafboðin skellur á. Mynd #3 sýnir svo hvernig rafboðin hrífur með sér taugaboðefnin sem biðu í taugaendanum, en mynd #4 sýnir endurupptökuna. Löngu rauðu pípurnar eru háræðar.

Þessar sex myndir sýna ferlið inni í einu taugaendabili sem fer í gegnum boðefnaskot taugafrumu og eru „boðefnaskráargötin“ sýnd á mynd #1. Síðan sýna myndir #2, #3 og #4 greinilega hvernig boðefnin eru að koma út úr skráargötunum í taugaendanum og sturtast síðan í viðtakana. Hér eru það myndir #5 og #6 sem sýna endurupptökuna. Löngu rauðu rörin eru háræðar.

Hér fáum við yfirlitsmynd yfir starfsemi stjórnunarþríhyrnings vitundarsviðsins sem umfjöllun þessi hófst með í skyggnu #3 - 02. Efst til vinstri sjáum við mynd af heilanum sem sýnir í miðjunni svæði sem framkallar boðefni þau sem halda lífinu gangandi frá mínútu til mínútu í ósjálfráða hluta heilans. Utan um það er svo heilinn sjálfur sem stjórnar raunveruleikaskynjun sinni með eigin taugaboðefnaframleiðslu (neurotransmitter). Efst til hægri gefur að líta allsherjarboðefnaflæði heilans og er það nokkurn veginn í takt við flæði rafsegulsviðs vitundarbylgjunnar. Neðst til vinstri er táknmynd fyrir jafna virkni ÚT sem INN í rafsegulsviði vitundarbylgjunnar, en neðst til hægri er táknmynd fyrir jafnvægi í útjaðar - (exon) og innraðarforritun (intro) heilans. Miðmyndin sýnir okkur svo yfirlit yfir það hvað við erum fyrst og fremst, en það er taugakerfi okkar og er líkaminn byggður utan um það með stoðkerfi beinanna til að halda honum uppi.
Með þessu er í raun lokið hinni afar einföldu umfjöllun okkar um heilbrigða starfsemi heilans, en hér í lok kaflans munum við skoða nánar grunn- og trúarstöðvaforritun heilans, sem hefur að gera með grundvallarskilning okkar á réttri forritun innraðarkirnanna í DNA-sameindum hans.

Þýðingarmesta uppgötvun QF-kenningarinnar er grunnforrit innraðanna, en það er þessi niðurstaða sem — ásamt uppgötvun hins tvíþætta INN- og ÚT-eðlis rafsegulsviðs vitundarinnar — gerir smíði QF-healalíkana mögulega. Líkön sem framkalla skýringar á bæði heilbrigðri og sjúkri heilastarfsemi, jafnframt því sem þau skýra sköpunargetuna og dulræna reynslu. Höfuðástæðurnar fyrir þessu eru þær að raunveruleiki innraðanna er orsaka-, sköpunar- og stjórnunarraunveruleikinn, og jafnframt sá raunveruleiki sem mennirnir kalla æðri mátt eða Guð. Kemur þetta fram í efsta heilaforritinu sem sýnt er á Slide #2 - 19 og er það síðan endurtekið hér í Slide #3 - 19. Það næsta sem vísindin hafa komist þeirri niðurstöðu að um stjórnun genamengisins sé að ræða í innröðunum, er að finna í yfirlýsingu þeirri sem birtist á Slide #3 - 06 og kom frá vísindamönnum annars risalíftæknifyrirtækisins sem framkallaði kortlagningu genamengisins. Það er einmitt þetta svæði í heilanum sem er mesta ráðgáta taugalíffræðinnar og þar með vísindanna allra, í gegnum ráðgátuna um áhorfandann og þátttöku hans í rannsóknum í skammtafræði (quantum mechanics) og túlkun niðurstaðna hinnar nýju eðlisfræði.
Þegar árið 1993 leiddu niðurstöður QF-kenningarinnar (sem ekki hefur hlotið viðurkenningu vísindaheimsins) af sér líkön af grunnforriti raunveruleikans og þar með mannsheilans. Reyndust líkön þessi gera forspár um að starfsemi heilans væri þannig háttað að hún ætti að vera eins og fram kemur í samrunavandatilraun (binding problem) dr. Libet, sem fylgir með skyggnu #2 - 19. Er þetta fyrsti tilraunastuðningurinn við niðurstöður QF-kenningarinnar varðandi forritun og hlutverkadreifingu kirna DNA-mengisins og grunnforrita innraðanna, eins og þetta kemur fram í ALKAÞRAS-fyrirlestrinum. Þetta líkan gerir ráð fyrir að mannsheilinn hafi tvo sjálfstæða vilja, eins og áður var sýnt í skyggnu #2 - 19 og nú er endurtekið hér í skyggnu #3 - 19. Er annar viljinn framkvæmdaviljinn, og er það ÉG-viljinn, en hinn orsakaviljinn, sem er VIÐ-viljinn, eða æðra-sjálf-Guðs-viljinn, og er hann samkvæmt QF-kenningunni jafnframt rödd samviskunnar og siðferðisvitund okkar. Það er VIÐ-viljinn sem stjórnar alltaf lífi okkar; spurningin er bara hvort hann stjórnar því með áunnum eða arfgengum starfrænum truflunum innanborðs, eins og t.d. í ofursjálfinu (superego) hans dr. Sigmund Freud. En það er í næsta hluta fyrirlestrarins sem við skoðum hvernig QF-kenningin útskýrir myndun og viðhald þessara starfrænu truflana – sem hún kallar „síu“ (filter). Sé þessi VIÐ-vilji laus við allar starfrænar truflanir talar einstaklingurinn gjarnan um að lífi hans sé stjórnað af æðri mætti, sálinni eða vilja Guðs, en í QF-kenningu samsvarar þetta hugmyndum mannanna um lifandi Guð. Í sumum geðsjúkdómum kemur það fyrir að vilji þessi verður ofurvirkur í geðrofi (psychosis) vegna mikilla samansafnaðra starfrænna síutruflana, sem svo leiðir til þess að einstaklingurinn kann að fremja voðaverk sem hann segir að Guð hafi „sagt sér að framkvæma“, og er þetta náskylt voðaverkum trúarofstækis sem framin eru í nafni Guðs. Hér heldur QF-kenningin því fram — andstætt heimspeki Thomasar Hobbes — að manninum sé siðferðisvitundin meðfædd og eðlileg, en ekki sköpuð af okkur sjálfum vegna hagnýtisgildis hennar. Sama gildir um trúar- og samkenndarstöð mannsheilans sem framkallar hugmyndir okkar um æðri mátt eða Guð og fær okkur til að starfa saman. Er þetta vitundarsvið okkur einnig meðfætt og eðlilegt, en í QF-kenningunni má rekja tilvist þess allar götur aftur til skammtabylgju alheimsins í Miklahvelli, við endalok fæðingar tímans. Þessi eiginleiki okkar er því ekki skapaður og þróaður af okkur sjálfum vegna félagslegs notagildis síns — eins og dr. Sigmund Freud og dr. Richard Dawkins vilja meina — heldur stafar ágreiningur okkar manna um þennan eiginleika af uppsafnaðri sjálfskapaðri starfrænni síutruflun í heila okkar. Truflun sem við skiljum enn lítið sem ekkert í, og er þessi fyrirlestur fyrsta og eina skýringin á henni. Rétt er að geta þess að árið 1927 skrifaði Freud bók sína Framtíð einnar tálvonar (The Future of an Illusion) þegar hann var undir áhrifum morfíns vegna krabbameins. Ef á hinn bóginn er um að ræða verulegar starfrænar síutruflanir í innraðarkirnum VIÐ-vitundarhluta heilans er talað um að einstaklingum sé stjórnað af hinu illa, þar sem siðferðisvitundin tekur að kafna. Þetta eru lestir og brestir mannsins, sem við skoðum nánar í næsta hluta fyrirlestrarins þar sem við sjáum hvernig boðefnasvindl eða heilamengun mannsins veldur kæfingu raddar samviskunnar, og sem QF-kenningin segir til dæmis vera beina og óbeina orsök nánast allra tölfræðilegra sjúkdóma í mannkyninu, eins og til dæmis krabbameins. Þetta þýðir að þessar starfrænu truflanir í innraðarkirnum VIÐ-vitundarhluta heilans framkalla allar truflanir á starfsemi vitundarinnar og lífsins, allar taugaveiklanir og geðraskanir, alla geðsjúkdóma og taugafíknisjúkdóma. Þetta er jafnframt það svið heilans sem framkallar mestu snillingana, vitringana og hugsuðina. Hvað það er sem veldur þessum gífurlega mun á heilaafköstum milli einstaklinga er um leið ráðgátan um framtíð mannsins, en við munum leitast við að svara því í næstu tveimur hlutum — seinni helmingi þessa fyrirlestrar. Í næstu skyggnu – skyggnu #3 - 20–munum við skoða rannsóknarniðurstöður vísindamanna, ásamt niðurstöðum og tilgátum QF-kenningarinnar, varðandi þessar spurningar. Rannsóknarniðurstöður þær sem fram koma í skyggnu #3 - 20 eru meðal merkustu og þýðingarmestu uppgötvana sem gerðar hafa verið á tuttugustu öldinni, en vísindin hafa enn ekki fundið skýringar á þeim. Skýring sú sem QF-kenningin býður upp á á rætur sínar í tilvist trúarstöðvar mannsheilans og heilbrigðri starfsemi hennar þegar hún er án uppsafnaðra starfrænna síutruflana.

Árið 2000 var opinberlega staðfest að gagnaugablaðssvæði rúmskynjunarhvels heilans innihéldi það sem svaraði til trúar- eða andlegra miðstöðva hans. Þetta svæði er að finna í kringum Sylvíusar-glufuna (Sylvian fissures) sem myndar gagnaugablaðið og eru hin þekktu „Jamais vu“-og „Déjà vu“-svæði þungamiðja þess. Er mikið deilt um það hvers vegna við höfum þetta svæði í heilanum og þá hvort við mennirnir höfum sjálfir skapað það með þróun, eða hvort það sé okkur eðlislægt samkvæmt raunveruleikanum; hvort þetta sé afleiðing þess að við höfum skapað okkur Guð til að styrkja okkur í hinni hörðu lífsbaráttu, eða með því að vera að fróa okkur andlega eins og dr. Freud lagði til; hvort Guð sé bara ópíum fólksins eða eitthvað meira? Ef svo er ekki, þá er spurningin: Hvað er það í raunveruleikanum sem krefst þess að við búum yfir þessari trúar- eða andlegu taugamiðstöð?
Í QF-kenningunni er gert ráð fyrir því að Jamais vu- og Déjà vu-svæðin sé að finna í rúmskynjunarhveli heilans og að Jamais vu svari til trúarstöðvarinnar, en Déjà vu til VIÐ-, eða samkenndarskynjunarinnar. Í júní 2004 uppgötvuðu tveir ítalskir vísindamenn fyrir tilviljun þetta taugasvið sem þeir kalla spegiltaugar (mirror neurons). Kom í ljós að þessar taugar búa yfir samkenndareiginleikum (empathy), en QF-kenningin skilgreindi þetta taugasvæði sem samúðarstöð heilans þegar árið 1993 og birti niðurstöðurnar á prenti 1998 og 2002, eins og nánar var greint frá í skyggnu #3 - 11. Aðrar staðfestingar á starfsemi þessa heilasvæðis koma fram í nærveruupplifuninni sem fram kemur í segulörvunarrannsóknum dr. Michael Persingers sem næst er fjallað um. Í QF-kenningunni er því haldið fram að þetta svæði samsvari þeim anda sem kenning Krists tjáir og jafnframt að truflun á starfsemi hennar valdi Déjà vu-upplifunum fólks. Mjög sterkar vísbendingar hafa komið fram um að Jamais vu-svið heilans tengist helst framleiðslu taugaboðefna af endorfínfjölskyldunni, sem eru mikilvægustu boðefni lífsins, en við fáum að kynnast því nánar í næsta kafla.
Snjöllustu rannsóknir á þessu heilasvæði sem gerðar hafa verið voru framkvæmdar af dr. Michael Persinger við Laurentian-háskólann í Sudbury (Laurentian University), Kanada. Snilli hans fólst í því að örva þetta svæði heilans með segulbylgjum fremur en rafsegulbylgjum. Með þessu gat hann kallað fram margvíslega andlega reynslu hjá flestum einstaklingum, þó ekki öllum, en þessir einstaklingar tóku ekki varanlegum breytingum líkt og þeir sem upplifa slíka reynslu á náttúrulegan hátt. Orrustuflugmenn sem settir eru í miðflóttavél upplifa svipaða reynslu skömmu áður en líður yfir þá við 9 — falda þyngdarhröðun, en þeir breytast ekki við hana. Þeir sem neyta LSD eða annarrar sýru örva þetta svæði og fá andlegar upplifanir og breytast til hins verra. Það eru einungis þeir sem ganga í gegnum nær-dauða-reynslu og þeir sem öðlast náttúrulega andlega reynslu með andlegri iðkun sem breytast til hins betra. Hvers vegna þetta er svona og hvað býr að baki vita vísindin ekki enn, en eins og áður segir býður QF-kenningin upp á svör sem gera ráð fyrir þessu og skýra það.
Að lokum er rétt að minna aftur á þá staðreynd að þetta svæði í heilanum er jafnframt svæðið þar sem flestar starfrænar truflanir mannsheilans safnast saman og mynda hin ýmsu birtingarform taugaveiklunar, ánetjunarsjúkdóma, breyttrar kynhegðunar, flogaveiki, hrörnunarsjúkdóma, geðsjúkdóma og glæpahneigðar. Á sama tíma er þetta svæðið í heilanum þar sem er að finna uppsprettu allrar sköpunarsnilli mannsins og alls náungakærleika hans. Hvers vegna þetta er svona er enn óljóst, en mótsögnin er ein sú stórfenglegasta sem þekkt er í raunvísindum. Svar QF-kenningarinnar við þessari spurningu er einmitt næsta viðfangsefni þessa fyrirlestrar.
Hér líkur þá öðrum hluta fyrirlestrarins sem veitt hefur okkur grundvallarinnsýn í hvernig raunveruleikaskynjun heilbrigðs heila er stjórnað með boðefnaframleiðslu hans og hvernig boðefnaframleiðslunni er svo aftur háttað; hvernig taugafrumurnar eiga síðan í samskiptum sín á milli með þessum boðefnum til að stýra raunveruleikaskynjuninni og hugsunarstarfseminni. Næst munum við skoða hvernig maðurinn truflar þessa starfsemi heilans með boðefnasvindli eða neyslu á gerviboðefnum og hvaða líffræðilegu afleiðingar þessi heilamengun hefur. Þetta er þriðji hluti fyrirlestrarins og skoðum við þar taugaánetjunarfyrirbærin og hvernig þau breyta hinum heilbrigða mannsheila. Næst er því:
04: Þriðji hluti. Taugaánetjun með fölskum taugaboðefnum.
Hafi lesandinn einhverjar athugasemdir eða ábendingar varðandi efnið sem hér birtist, neikvæðar eða jákvæðar, þá eru þær vel þegnar af vefstjóranum (webmaster), sem mun koma þeim áfram á leiðarenda. Hér eru þau netföng sem nota má til að senda skilaboðin: